Þjóðviljinn - 19.12.1961, Blaðsíða 11
Einsr BjömsscR var kjörinn loimaður
Knattspyrnufáðs SsYkj'avíkuE
Jón Guðjónsson, setti íundinn
og stakk upp á Haraldi Stein-
þórssyni sem fundarstjóra og
var sú uppástunga samþykkt
einróma. Því næst var einróma
kjörinn fundarritari Sigurgeir
Guðmannsson
Aðalfundur K.R.R. var hald-
inn í Framheimilinu á miðviku-
dagskvöldið, hinn 25. í röðinni.
Gestir fundarins voru þeir
Björgvin Sehram form. K.S.Í.
og Reynir Karisson þjálfari.
Fyrrverandi formaður ráðsins,
lllli
Frá einum leikja meistaraflokks Fram sl. sumar. Geir markvörður grípur knöttinn.
Á meðan kjörbréfanefnd var
að starfi las Sigurgeir Guð-
mannsson upp fundargerð síð-
asta aðalfundar og var hún
samþykkt samhljóða án um-
ræðu. Kjörbréfanefnd skilaði
siðan áliti og fór fram á að
kjörbréf yrðu samþykkt eins
og þau lægju fyrir, sem og var
gert.
Jón Guðjónsson las skýrslu
stjórnarinnar og kom þar m.a.
fram að stjórnin hefði haldið
um 60 bókaða fundi á árinu.
— Ráðið sæmdi Harald Gísla-
son gullmerki og heéðursskjali
ráðsins fyrir frábært starf í
þágu knattspyrnunnar í Reykja-
vík, en hann hefur í 9 ár átt
sæti í knattspyrnuráðinu og
setið yfir 400 bókaða fundi,
auk annarra. starfa fyrir ráðið.
— Eitt aðalverkefni stjórnarinn-
ar var nú sem áður að raða
niður öllum knattspyrnumótum
og einstökum kappleikjum sem
fram faTa hér í Reykjavík. Ráð-
ið raðaði einnig niður leikjum
allra landsmótanna, hvort sem
leikirnir fóru fram hér í
Reykjavík eða utan bæjarins.
— Erlendar heimsóknir voru
með mesta móti á árinu. Hing-
að komu alls 7 erlendir flokk-
ar, 3 meistaraflokkar og 4 yngri
flokkar. Tvær mótanefndir
störfuðu á vegum ráðsins. Sá
önnur um leiki í meistara- og
1. flokki, en hin sá um leiki í
yngri flokkunum.
Eins og undanfarin ár var
komið á bæjakeppni við Akra-
nes og sigraði Reykjavík 5:0.
Var þetta 5. sigur Reykjavík-
ur í þessari bæjarkeppni, en
Akranes hefur sigrað 6 sinn-
um. Tveir leikir hafa orðið
jafntefli.
í tilefni 50 ára afmælis Mela-
vallarins fór fram leikur milli
Reykjavíkur og úrvals utan-
bæjarmanna. Líð utanbæjar-
manna sigraði 2:1. Ennfremur
lék iið Reykjavíkur gegn úr-
vali frá Hafnarfirði, Keflavik
og Sandgerði. Leiknum lauk með
sigri Reykjavíkur 2:1. í þessum
leik lék Gunnar Guðmannsson
KR sinn 25. leik í úrvalsliði
Reykjavíkur og er hann þriðji
leikmaðurinn sem það gerir.
Áður hafa Karl Guðmundsson
Eram og Halldór Halldórsson
Val náð þessum árangri. Hefur
stjórn ráðsins ákveðið að
heiðra þá með því að sæma þá
merki ráðsins með lárviðar-
sveig og heiðursskjali og gefa
þeim grip til minningar um
þetta.
Gefin var út sérstök leikja-
bók svo sem gert hefur verið
undanfarin ár og var hún send
öllum aðilum. Stóðst niðurröð-
unin mjög vel, hvað snerti
Framhald á 14. síðu.
HVAÐ
VILTU VERÐA?
Hvað viltu veiða?
Þar er spilað um íé og írama, gæíu og gengi, í
þeirri mynd, sem hver einn kýs sér.
er heimilisspilið I ár
íræðandi, þroskandi og geíur innsýn inn í hin
ýmsu störf þjóðfélagsins. ,
Hvað viltu verða?
Jafnt ungir sem gamlir hafa óskipta ánægju af
því að spila HVAÐ VILTU VERÐA?
Ásaþór
Laufásvegi 4 — Sími 13492.
Pétur Eincrsson
itSalstræti 9C —Símar: 11795, 11945.
Þriðjudagur 19. desember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (J ]j