Þjóðviljinn - 19.12.1961, Blaðsíða 14
Frá sðalfuni K.R.R.
Framhald af 11. síðu.
um málum á síðari árum. Hef-
Reykjavíkur- og Haustmótin en
þegar kom að landsmótunum
fór hún öll úr skorðum. Margar
ástæður voru til þess, m.a.
ferðalög sem ákveðin er.u í
trássi við niðurröðun og ekki
kunngerð fyrr en á síðustu
stundu. Þetta fyrirkomulag er
orðið algerlega óviðunandi fyr-
ir alla sem að þessum málum
vinna. Leikmenn hætta að
treysta á þá ieikdaga sem til-
kynntir eru og setur þetta
jafnvel úr skorðum sumarleyfi
sem menn hafa hagað í sam-
ræmi við leikjabókina. Nauð-
synlegt er að setja þessi mál
i fastar skorður, þannig að
leik verði ekki frestað nema
vegna hamfara náttúruaflanna.
— Eins og að undanförnu starf-
aði dómstóll á vegum ráðsins
og tók hann fyrir og afgreiddi
8 mál á árinu. — Á liðnu leik-
timabili hefur tekizt mjög vel
með störf dómara. Miklar
breytingar hafa orðið á þess-
um málum á síðari árum og
má þakka það breyttu skipu-
lagi sem K.D.R. tók upp fyr-
ir nokkrum árum. Hefur hún
skipað einn fulltrúa úr stjórn
félagsins til þess að hafa eft-
irlit með þessum málum hver
á sínum velli. Skal fulltrúinn
fvlgjast með því að dómari
mæti og útvega aðra ef það
bregst, ellegar dæma sjálfur. —
Eins og undanfarandi ár ann-
aðist íþróttavöllurinn viðhald
og krítun á öllum keppnisvöll-
um í Reykjavík. Var það í
mjög góðu lagi eins og áður.
Flytur ráðið vallarstjórn, vall-
arstjóra Baldri Jónssyni og
starfsmönnum vallanna beztu
þakkir fyrir.
Tveir pressuleikir fóru fram
í Reykjavík. — Skipting hagn-
aðar varð með sama fyrir-
komulagi og verið hefur.
Ólafur Jónsson las upp
reikninga ráðsins og kom það
fram að hagur ráðsins er all-
góður.
Var síðan orðið gefið laust
um skýrslur og reikninga og
tóku eftirtaldir til máls: Björg-
vin Schram, Jón Guðjónsson,
Haraldur Snorrason, Ólafur
B.R. var kjörinn Einar Björns-
son; til vara Jón Guðjónsson.
Úr dómstólnum áttu að ganga,
-sqm- .ahalfuHtf, Hjörtur Hjart-
arson ' «g varafulltr. Böðvar
Guðmundsson en voru báðir
endurkjörnir til þriggja .ára.
Árstillag var samþ. óbreytt
kr. 500.00.
Tillaga kom frá stjórninni j
sem viðbótartillaga við 3. gr.
• starfsreglna K.R.R. eg var hún
ú þá leið að við fráfall merk-
isbera" (gull j mætti sæma ann-
an mann í stafiinn cn aldrei
mega fleiri en 12 manns bera
merkið samtímis.
Undir liðnum önnur mál tók
fyrstur til máls hinn nýkjörni
formaður, Einar Biörnsson, og
þakkaði hann þ-að traust sem
fundarmenn hefðu sýnt honum
og félagi hans Val og kvaðst
hann myndi leysa starf sitt eins
og hann bezt gæti.
Fyrsta verk Einars s.em for-
manns var að veita Reykjavík-
urstyttu þá sem það félag hlýt-
ur sem flest stig fær eftir
sumarið og varð það Fram sem
hlaut 169 stig. Afhenti hann
síðan form. Fram Sigurði E.
Jónssyni stýttuna. Ellefu aðr-
ir tóku til máls undir þessum
lið og yrði of langt mál að geta
málflutnings hvers og eins hér,
en þó skal tekið fram að Reyn-
ir Karlsson ræddi á áhrifamik-
inn hátt um þjálfunarmál og
það starf sem tækninefnd K.
S.í. væri þegar búinn að undir-
búa fyrir væntanlegt nám-
skeið.
Björgvin Schram tók næstur
til máls og kvaðst hann harma
að jafn góður ræðumaður sem
Reynir Karlsson væri og hefði
ennfremur mikla þekkingu á
þessum málum, hefði ekki látið
í sér heyra á þingi K.S.Í.
Mörg önnur mál voru rædd
sem urðu fundarmönnum gagn-
leg og upplýstist ýmislegt sem
mönnum var áður ókunnugt
um. Það var álit fundarmanna
að fundur þessi hefði farið
mjög vel fram og gagnleg orða-
skipti hefðu farið á milli fund-
armanna um hin ýmsu mál er
herja á okkur í dag.
Fundi lauk rétt fyrir mið-
nætti. H.
Jónsson, Haraldur Steinþórs-
son.
Var þá gengið til atkv. og
skýrslan og reikningar samþ.
einróma. Næst fór íram kosn-
ing formanns fyrir næsta kjör-
tímabil. Allir ráðsfulltrúar
voru í kjöri en kosningu hlaut
Einar Björnsson. Aðrir í stjórn-
inni eru Jón Guðjónsson, Ól-
afur Jónsson, Haraldur Gísla-
son og Jens Karlsson.
Endurskoðendur voru endur-
kjörnir en þeir eru Baldur
Steingrímsson og Gunnar Már
Pétursson. Fulltr. á ársþing í.
Hermennirn-
ir sigruðu
íslendingana
Á sunnudagskvöldið lék úr-
valslið Rcykjavíkurfélaganna í
körfuknattleik við lið frá
bandaríska hernámsliðinu á
Keflavikurflugvelli. Bandaríkja-
menn sigruðu með 57 stigum
gegn 45. — Frásögn bíður
næsta blaðs.
Gjöf Jóns
I verðlaunanefnd Gjafar Jóns
Sigurðssonar kaup Alþingi í gær
Þórð Eyjó’fsson ög Matthfas
Þórðarson (af a-lista) og Magn-
ús Má Lárusson (af b-lista).
Vikukaup
Um fáar kvikmyndir er nú meira talað en um Kleópötru, en
þá mynd er verið að gcra suður í Uóm með miklum bægsla-
gangi. Aðalhlutvcrkin leika Elisabeth Taylor, Richard Burton
og Uex Harrison. Mynd þessi cr af einu atriði kvikmyndar-
innar. Það er Afrískur dans á Forum Homanum. Sá atburður
er liður í hátíðahöldunum í tilefni af sigurinnrcið Klcópötru
í Rómarborg.
Ranglæti tryggingarleganna
Frmhald af 6. síðu.
félagi. Mörkin munu vera um
Kaplaskjól. Viljið þið ekki
einnig staldra við þessi mörk
og athuga, hvaða mun þið sjá-
ið á þessu sama. Eftir þessar
áreiðar þykir mér líklegt, að
þið sæjuð það sama og allir
aðrir landsmenn hafa séð, þ.e.
að þegnréttur fólks í þúsunda-
tali víðsvegar um landið hefur
verið freklega skertur og af því
haft stórfé, á þess mælikvarða,
á undanförnum árum með fyrr-
greindum lagaákvæðum, mið-
að við aðra þegna þjóðfélagsins,
sem eins er ákomið með. .
Eins og ég gat um, liggur nú
fyrir alþingi því, er nú situr
frumvarp, er felur í sér úr-
bót á því, sem hér hefur verið
gert að umtalsefni. Þetta sýnir
að til eru menn á þingi, sem
sjá ósómann og vilja úr hon-
um bæta. Þúsundir manna
munu fylgjast með gangi og
úrslitum þessa máls.
Þess má geta, að þetta vesa-
lings fólk, sem óréttlætið bitn-
ar á, er þegar farið að leika
sum mótleik, þótt aðeins fáir
geti komið því við. Til er, að
það er farið að skrifa sig þeim
megin markanna, sem bæturn-
ar eru fullar, þó það dvelji og
eigi raunverulega heima hinu-
megin. Ég fæ ekki séð, hvernig
þið getið komið í veg fyrir
þetta,. nema með því að setja
upp girðingar, eins og þeir í
Berlín hafa gert, ráða svo verði
með tilheyrandi útbúnaði, setja
síðan upp spjöld sitt hvoru
megin markanna. Mætli þá ann-
ars vegar hafa áletrunina: Full-
Framhald af 16. síðu.
Hér hefu.r aðeins verið drep-
ið á helztu atriðin í samningun-
um. Dagsbrúnarmenn niunu á
næstunni fá nakvæmar útskýr-
ingar á þessu máli í blaði Dags-
brúnar, sem er væntanlegt innan
skamms. Hér skal þeim eindreg-
ið bent á að leita upplýsinga
hjá skrifstofu Dagsbrúnar um öll
þau atriði sem þeir kunna að
vera í vafa up, og öll atriði sem
ágreiningur kann að verða úm.
Nokkrir tóku til rnáls að ræðu
Eðvarðs lokinni og báru fram
ýmsar fyrirspurnir sem hann
svaraði. Að loknum umræðum
var samningurinn samþykktur
með öllum greiddum atkvæðum
gegn 3.
Ekki ballakns
fjárlög
Framhald af 16. síðu.
þessu móti gætu þingmenn engu
um það ráðið hvernig þessari
fjárveitingu væri varið. heldur
væri það allt lagt á vald flug-
vallastjórnarinnar.
ur réttur, en hinum megin
réttur eða annað, sem orðhagir
menn kynnu að velja og ykkur
væri mest særnd í.
H0LLYW00D BED
NíKOMIÐ
KJÓNARÚM MEÐ BÓLSTRUÐUM GÖFLUM
Verð aðeins kr. 4.980,00 ,
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS
Bergstaðastræti 2 — Sími 16807.
En við skulum vona að engra
Berlínargirðinga verði hér
þörf, að þið séuð velflestir þeg-
ar búnir að sjá, að verðlags-
mörkin eru óþörf og óréttlát
og a£ þeim ástæðum eiga þau
að hverfa. Þessi von styðst
meðal annars við það, að al-
þingismennirnir Sigurður
Bjarnason, Guðlaugur Gíslason
og Birgir Finnsson munu hafa
lýst því yfir, að verðlagsskipt-
ingin ætti ekki rétt á sér.
Þarna eru þingmenn úr tveim-
ur stjórnmálaflokkum og menn
úr þeim þriðja flytja frum-
varpið, og ég efast ekki um, að
þessir menn eiga marga sam-
stöðumenn í ykkar hópi um,
að afmá þá vanvirðu, sem verð-
lagsskiptingin felur í sér. Hér
er ekkert vandamál um að
ræða. aðeins einfalt og óbrotiö
réttlætismál, sem auðvelt er á
skömmum tíma að kippa í lag,
og því fyrr, sem það er gert
því betra. .
Þess er því vænzt, að þið
háttvirtir alþingismenn, látið
ekki jólahelgina halda innreið
sína, án þess að hafa fært
þetta í lag með lögbreytingu.
Það er ykkar sómi og þvf
munu fylgja hlýjar jólaóskir
margra og friður í sál ykkar.
vegna þeirrar meðvitundar að
hafa leyzt réttlætismál.
Með innilegum jólateveðjúm
og ósk um, að ykkur takist
giftusamlega að leysa þjóðmál
okkar.
Hraungerði í Garðahreppi
6. dos. 1961.
Jóh. Teitsson.
-k Móðgun við Alþingi
Þá minnti Karl á, að aðalmál-
gagn ríkisstjórnarinnar hefði gef-
ið í skyn að verið sé að fjalla
um það utan þings að breyta
stórlega vissum tekjuliðum fjár-
laganna, sem hér ætti-að fara að
samþykkja, og væri slíkt móðg-
un við Alþingi ög óhæf vinnu-
brögð. Hér væri um að ræða
tekjur ríkisins af benzíninnflutn-
ingnum. Spurði Karl fjármála-
ráðherra hvort rétt væri, að ver-
ið væri að fjalla um það mál
utan Alþingis eða leggja ætti
fyrir þingið frumvarp um laga-
breytingu varðandi þetta efni.
Svaraði Gunnar með örfáum
orðum. Tók hann til tvennt:
lækkun innflutningsgjalda af
bifreiðum og hækkun innflutn-
ingsgjalda áf benzíni, (enda þótt
Karl hefði einungis spurt um
benzínið.) Var svar ráðherrans
það, að hvorugt he.fði verið rætt
í ríkisstjórninni.
Umræðunni lauk laust eftir mið-
nætti sl., en atkvæðagreiðslu var
frestað til fundar í dag. Frá all-
mörgum breytingartillögum, sem
fluttar voru við fjárlagafrum-
varpið við 3. umræðu verður
sagt í næstu blöðum.
Samúðarkort
Slysavarnafélags íslands
kaupa flestir. Fást hjá slysa-
varnadeildum um land allt. I
Reykjavík í hannyrðaverzlun-
inni Bankastræti 6, Verzlun
Gunnþórunnar Halldórsdóttur,
Bókaverzluninni Sögu, Lang-
holtsvegi og í skrifstofu fé-
lagsins í Nausti á Granda-
garði. Afgreidd í síma 1-48-97.
MINNINGAR-
SPJÖLD DAS
Minningarspjöldin fást hjá
Happdrætti DAS, Vesturveri,
sími 1-77-57. — Veiðarfærav.
Verðandi, sími 1-37-87 — Sjó-
mannafél. Reykjavíkur, sími
1-19-15 — Guðmundi Andrés
syni gullsmið, Laugavegi 50,
sími 1-37-69. Hafnarfirði: A
pósthúsinu, sími 5-02-67.
[14) — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 19. desember 1901