Þjóðviljinn - 27.01.1962, Síða 4

Þjóðviljinn - 27.01.1962, Síða 4
i i útvarpsannáll Séra Jón Auðuns hafði orð á því í sunnudagsprélikun sinni, að mjög erfitt væri að koma heim og saman kenn- ungu Páls postula um nóðina og kenningu Krists um að maðurinn myndi uppskera, eins og hann hefði niður sáð. Þó fór hann að öllu með gát og hélt báðum dyrum opnum, að minnsta kosti til hálfs. Mátti einna helzt af orðum hans ráða, að náðin væri nokkurskonar einkafyrirtæki Páls postula, stofnsett sjálf- um honum til réttlætingar sökum þess hve hann hafði misgert mikið er hann of- sótti lærisveina Krists í önd- verðu. En hvað mun verða um okkur, hina ólærðu, þegar hinir skriftlærðu komast í slíkan vanda er þeir rannsaka ritningarinnar? -■4\ Spurnmgar vakna Eftir hádegið kom annar klerkur á vettvang. Séra Jakob Jónsson ræddi þá um flóttamannamálin í Þýzka- landi og sennilega hempulaus. Þetta var að mörgu leyti mjög merkilegt erindi og ólíkt því er áður hefur heyrzt um þessi mál frá útvarpinu í fréttum, fréttaaukum, eða er- indum. Venjan er, þegar slík mál ber á góma á áðurnefnd- um vettvangi, hvort sem það er í fréttum, fréttaaukum eða erindum, að maður fær það á tilfinninguna að sá er frá segir sé í þessháttar sálar- ástandi, að hið innra með honum búi einhver löngun til að rífa þá austanmenn á hol, eða klóra úr þeim augun. Engu sh'ku var til að dreifa um séra Jakob. Enda þótt , hann liti þessi mál með vest- * rænum augum og hefði heim- ildir sínar að meiri hluta frá Vestur-Þjóðverjum, var hann ekki vitund vondur og skýrði . frá þeim upplýsingum er hann hafði aflað sér hlut- , drægnislaust. En ýmsar spurningar hljóta að vakna hjá manni eftir að . hafa hlýtt á ■ þetta hófsam- lega erindi, svo sem eins og þessar: Er ekki orðið skað- lega fátt fólk eftir í Austur- Þýzkalandi, ef þær tölur eru réttar sem vesturþýzk yfir- völd gáfu upp við séra Jak- ob? Eða hefur sama fólkið verið að rápa fram og aftur milli landshlutanna? Eða er , hugsanlegt að áróður vestan- manna eigi kannski einhvern þátt í þessum fólksflutning- um? Eða sé það rétt, er séra Jakob heldur fram, að fólk þar eystra liggi undir ein- hverskonar andlegri þvingun, væri þá ekki hugsanlegt að sú þvingun lægi meðfram í því að það finndi sig sem á milli tveggja elda áróðu.rsins að vestan og óánægjunnar með það sem því finnst öðru- vísi en það myndi óska sér austur þar? Þó að séra Jakob léti öllum slíkum spurningum ósvarað var erindi hans svo iaust við ofstæki að hlutlaus hlustandi var miklu nær því að skilja það vandamál er það fjallaði um eftir en áður. Aummgja Skálholt Kvöldið var óvenjugott a*f sunnudagskvöldi að vera. Kristbjörg Kjeld las upp bráðsmellna smásögu: Bann- settur klárinn. Síðan kom þátturinn Spurt og spjallað, og var einhver sá bezti á vetrinum, enda var umræðu- efnið hvorki meira né minna en framtíð Skálholts. Aumingja Skálholt, þetta eftirlætisbarn þjóðarinnar, engu er líkara en það sé orð- ið að vandræðabarni sem eng- ir tveir geta orðið sammála um hvað við eigi að gera. Og margir eru þeir orðn- ir, sem þykjast eiga einskon- ar sjónarvott í Skálholti. Sá, þessi eða hinn þykist hafa uppgötvað, að það þurfi að gera þetta eða hitt fyrir Skálholt, eða þá bara að það þu.rfi að gera eitthvað fyrir Skálholt, og að það þurfi að endurreisa Skálholt. En hvernig, þar stendur hnífur- inn í kúnni. Þó kvað vera búið að verja einum tíu millj- ónum í þessa endurreisn, sem þó er enn ekki byrjuð. Dýr verður Hafliði allur. Hið skoplega við þetta Skál- holtsfjas er þó það, að enginn virðist í raun og veru þora að kveða upp úr með sannleik- ann. Það er nefnilega ekki hægt' að endurreisa Skálholt. Skálholt hefur lokið sínu sögulega hlutverki. Vitanlega er sjálfsagt að viðhalda þeim litlu sögulegu minjum sem kunna að finnast þar, og kom- ið gæti til mála að byggja snoturt hús yfir hið litla sem enn kynni að finnast í land- inu af dóti frá hinum forna VIKAN 14. TIL 20. JANÚAR Skálholtsstað. Annað eða meira gætum við ekki gert eða hefðum við ekki átt að gera fyrir Skálholt fortíðar- innar. Skálholt nútíðarinnar hefur í raun og veru ekki öðru hlutverki að gegna en aðrar jarðir í Biskupstungum, nema hvað þar hefði átt að reisa litla og snotra sveitakii’kju, sem í öðrum sveitum þessa lands. En lxér er vitanlega um tómt mál að tala. Héðan af verður ekki við snúið með vitleysuna. Vesalings Skálholt, ef það hefði mátt mæla. myndi það hafa beöið þess að guð varðveiti það fyrir vinum þess. Hið skemmtilega við um- ræðurnar um Skálholt var það að þátttakendurnir, sem í rauninni virtust ekki sam- mála um neitt, virtust allir gera sér ljóst, að .þeir voru í raun og veru ekki að gera annað en að leika eitt lítið atriði í hinni stóru Skálholts- revíu sem vafalaust verður á sviði þjóðlífsins næstu árin og áratugina. Tvö hannorB Magnús Árnason listmálari talaði um daginn og veginn á mánudagskvöldið af lipurð og sipekkvísi. Fyrst dvaldi hann nokkuð við listii’. Ræddi meðal annars hugmynd sína, snjalla og frumlega, um fyrir- komulag listasafna. I stað þess að skoðandinn labbar um og skoðar myndirnar á hann að sitja kyrr, en myndirnar eiga að labba framhjá honum og sýna sig. Þá kom hann inn á skipulagsmál Reykjavíkur og hafði þar margar nýjar og nytsamar hugmyndir upp á að bjóða, en að lokum mun honum þó hafa orðið nokkuð á í messunni, að ýmsra dómi, því hann minnti á tvö oi’ð, sem eru bannorð í útvarpinu okkar, nema innan gæsalappa, en það eru orðin friður og hlutleysi. Þau samrýmast nefnilega ekki vestrænni sam- vinnu. Sveinn Einarsson flutti leik- húspistil, þann bezta á vetr- inum, ræddi meðal annars við Val Gíslason leikara, í til- efni af sextugsafmæli hans. Á Þridjudagskvöldið hófst nýtt framhaldsleiki’it, Bjartar vonir, gert upp úr sögu eftir Dickens, og munu eflaust all- ir, sem lesið hafa Oliver Tvist og David Copperfield, hugsa gott til að hlusta á þessa þætti. Síðar um kvöldið flutti Grétar Fells erindi um Hegð- unargalla og háttvísi; vafa- laust þörf áminning fyrir okk- ur, sem höfum vanizt á að snúa skrápnum út. Lausn I náS Að loknum Eyi’byggjulesti’i Helga flutti Ásmundur frá Skúfstöðum mikið kvæði um Hóla í Hjaltadal á kvöldvöku miðvikudagsins, En þótt ég legði mig allan fram vildi andi skáldsins ekki yfir- skyggja mig. meðan ég hlýddi kvæðinu. Þá sagði Páll Kolka læknir einkar skemmtilega frá fei’ð sinni norður á Strandir og læknaþjónustu í Hólma- víkurhéraði vorið 1918. og að lokum las Jóhannes úr Kötl- um enn um drauga úr Þjóð- sögum Jóns Árnasonar. Fimmtudagskvöldið var fi’emur leiðinlegt. að undan- teknu erindi Lúðvíks Krist- jánssonar. Hákon Guðmunds- son flutti dómsmálaþátt, dá- lítið leiðinlegan, enda þótt hann væri helgaður konum eingöngu, og svo var lesinn bókarkafli, einhverskonar flugferðaminningar, þýddar af einhverjum Erlingi og lesnar af öðrum Ei’lingi, og var hvortveggja, framsetning og flutningur einhvernveginn tilgerðarlegt og eins og upp í skýjunum. Á miðviku- og fimmtudags- kvöld eftir síðari fréttir var lesin saga eftir Kristján Bend- ei’, Refaskyttui’nar, dálítið langdregin framan af, en end- irinn hnyttinn. En sennilega hefur þó saga þessi verið betri en hún virtist vera í flutningi Valdimars Lárusson- ar. Það var næstum eins og sagan losnaði öll í reipum og leystist upp í meðferð lesar- ans. Auk margsagðra útvarps- frétta höfðu þeir Björgvin og Tómas það helzt að segja á föstudagskvöldið, að stúlkur væru fitaðar ‘ til giftingar í Afríku og pylsusali í Álaborg hefði misst af sér nefið, vegna þess að kaupóðar konur ýttu honum í gegnum gluggarúð- ur. Hvernig væri að gefa þessum ágætu mönnum lausn í náð og fela fréttastofu út- varpsins þá þjónustu við hlustendur, er þeir hafa með höndum haft nú um sinn? Það er næstum eins og manni finnist sem ljóð Jón- asar Hallgrímssonar lesin af Einari Ólafi Svéinssyni eigi ekki heima milli þáttarins Efst á baugi og reyfara- kenndrar útvarpssögu, en þeir um það þar syðra. Hver mað- ur hefur sinn smekk. Vonandi ekki feigt Þú ert vonandi ekki feigur, var stundum sagt í gamla daga við þann sem gerði eitt- hvað sem öllum kom á óvart. Vonandi veit það ekki á neitt verra, þótt útvarpið flytti rússneskt leikrit á laug- ardagskvöldið. Tania hét það víst eftir söguhetjunni. Því fylgdi dálítill formáli eins og til skýringar, og eins og til afsökunar. Og hvað kom svo upp úr kafinu? Bara venjulegt fólk, rétt eins og fyrir vestan tjald, fólk með persónuleg vanda- mál, en að vísu með sósíalskt þjóðfélag í baksýn, nákvæm- lega á sama hátt og hjá vest- rænu fólki sést kapitalískt þjóðfélag venjulega í baksýn. Sá er aðeins munurinn, að í vestrænni leikritum gerir þjóðfélagið annaðhvort, að láta einstaklinginn afskipta- lausan, eða beinlínis smækka hann, þegar erfiðleikarnir steðja að. En í þessu leikriti er þvflík- ast sem þjóðfélagið komi ein- staklingnum til hjálpar þótt með óbeinum hætti sé. í starfinu fyrir þjóðfélagið, flokkinn, kommúnismann finnur einstaklingurinn fót- festu í lífinu á ný, eftir að hafa beðið skipbrot í einka- lífi sínu. Ef til vill er þetta blekk- ing, en hver er sá sem ekki lætur blekkjast, annaðhvort til ills eða góðs? Og svo er þetta áróður, segja aðrir. Já vitanlega er það áróður. En þykja það ekki yfirleitt þunn- ar bókmenntir, sem engan boðskap hafa að flytja? En það sem ef til vill er athyglisverðast við þetta leik- rit er að allar persónur þess eru í raun og veru bezta fólk, og af því mætti ef til vill draga þá ályktun, að höfundi þess væi’i sýnna um að hafa upp á því góða í fari náung- ans, en hinu er lakara kynni að vera. Og hér vestan tjálds. mun vera litið svo á að slíkur eiginleiki sé eitt gleggsta ein- kenni sannkristins manns. Skúli Guðjónsson. eftir SKÓLA GUÐJÓNSSON frq Ljótunnarstöðum Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa erlendís Vfsindastyrki NATO hlutu: Ófeigur J. Ófeigsson, læknir, til framhaldsrannsókna á meðferð brunasára við Royal Infirmary í Glasgow, Erlendur Lárusson, filj kand., til framhaldsnáms 1 stærðfræðilegri statistik við Stokkhólmsháskóla, og Hjalti Þórarinsson, læknir, til fram- haldsrannsókna á sviði brjóst- holsskurðlækninga. Úr Minningarsjóði Harald Quintus Bosz, Ilollandi, hlutu eftirtaldir menn styrki: Jóhann Axelsson til rannsókna á sviðj, lífefnafræði við lífefnafræði- deild Oxford-háskóla og Vil- hjálmur Skúlason til náms og rannsókna í lyfja- efnafræði og lífefnafræði við háskólann í North Carolina, Bandaríkjunum. ★ Námsstyrkir ,þeir, sem getið var hér að framan, eru yfirleitt til eins skólaárs. Sumir þeirra voru boðnir fram gegn sams konar styrkveitingu af hálfu ís- lands, og enn aðra má telja endurgjald fyrir styrki, er menntamálaráðuneytið hefur áður veit námsmönnum frá við- komandi löndum. Á þessu skóla- ári hefur ráðuneytið veitt eft- irtöldum erlendum námsmönn- 'Uin styrk til náms við Háskóla íslands í íslenzkri tungu, 9ögu íslands og bókmenntum: Frá Ástralíu: Jane Vaughan. Frá Bándaríkjunum: Annie-Jo Yates. iFrá Bretlandi: Anthony Pearson. tírá Danmörku: iPreben Meulengracht Sören- sen. Frá Finnlandi: Aune Enni Petro. Frá Færeyjum: Jóhan H. W. Poulsen. Frá Japan: Sadao Morita. Frá Kanada: : Harold Fr. Bjarnason. Frá Kína: Li Chih-Chang. Frá Noregi: Turid Taksdal. Frá Sambandslýðveldinu Þýzkalandi: Renate Pauli.. Frá Svíþjóð: Inger Grönwald. (Frá mnntamálaráðuneytinu 23. janúar 1962.) Eins og að undanförnu hlutu á síðastliðnu ári allmargir ís- lendingar erlenda styrki til há- skólanáms eða rannsóknarstarfa utanlands. Fer hér á eftir yfir- lit um þær styrkveitingai’, sem menntamálaráðuneytið hefur haft einhvei’s konar milligöngu um. m. a. í sambandi við aug- lýsing styrkjanna og tillögur um val styrkþega. Styrkirnir hafa verið boðnir fram af stjómar- völdum viðkomandi landa, nema annars sé getið. Finnland: Gunnar M. Jónsson, stúd- ent, hlaut styrk til náms í húsa- gerðarlist við Tækniháskólann í Helsinki. Italía: Guðmundur Karl Ásbjörnsson Framhald á 10. síðu. — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 27. janúar 1962

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.