Þjóðviljinn - 14.02.1962, Qupperneq 5
Gúmbátar voru settir ut
Fórviðri og mtmn-
tjón víða um heim
Mildll veðrahamur hefur ver-
ið víða um heim síðustu dagana
og hafa margir meun beðið bana
af þcim sökum. Hér fer á eftir
úrdráttur úr fréttum sem borizt
hafa um atburði þessa:
LOS ANGELES 12/2. í Kali-
forníu hafa 26 manna beðið bana
af völdum óveðra, sem þar hafa
gengið. í ríkjunum Utah. Wyom-
ing og í austurhluta Idabo hafa
hundruð manna orðið að yfir-
gefa heimili sín af völdum flóða
og nautgripir hafa drukknað og
vegir eyðilagzt.
1 Holywood stóð víða djúpt
vatn á götunum og bílar skoluð-
ust burt með flaumnum. Hús
margra leikara hafa stórskemmzt
af vatni.
LONDON 12/2. Ógurlegt fár-
! viðri gekk yfir mikinn hluta Ev-
I rópu á mánudag. Minnsta kosti
5 manns létu lífið í þeim ham-
|förum. f Lanarkshire í Englandi
var veðrið verst, komst vindhrað-
inn þar uppí 200 km. á klst.
án vitundar
Framh. af 1. síðu.
Verður hún ekki rakin hér ná-
kvæmlega þar sem atburðaröðin
er þegar orðin kunn af fréttum
en hins vegar verður á það drep-
ið, sem nýtt kom fram í henni.
f skýrslu sinni sagði skipstjóri,
að það hefði verið án sinnar vit-
undar og í leyfisleysi, sem
gúmmbjörgunarbátarnir tveir
þeir fyrstu voru settir út og að
mennirnir fóru í þá. Sömuleiðis
hefði það verið án sinnar vit-
undar, sem flekinn var settur út
log að piltarnir fóru út á hann,
og aðspurður sagði hann, að flek-
inn væri einkum til þess ætlað-
ur að nota hann, ef menn féllu
útbyrðis af skipinu. Kvaðst skip-
stjóri hafa brýnt það fyrir mönn-
um sínum að skipið gæti legið
lengi á hliðinni án þess að
sökkva og að Júpíter væri á leið-
inni til hjálpar, enda hefðu menn
róazt mjög við það,
Skipstjóri var spurður, hvað
hann teldi að raunverulega hefði
gerzt er lekinn kom að Elliða.
Kvaðst hann ekkert’geiá sagt um
það með vissu en sér kæmi helzt
til hugar að hádekkið sem kallað
er hefði sprungið frá. Sjórinn
hefði streymt alltof ört í lestarn-
ar til þess að um það gæti verið
að ræða að hnoð hefði farið. Þá
tók hann fram, að áður hefði
engin bilun komið fram á sjólfri
skipssíðunni en hins vegar hefði
dekkið eitt sinn sprungið við há-
dekkið og hefði verið gert við
það við 8 ára klössun. Þá sagði
hann að sjór hefði ekki komið í
vélarrúmið eða í hásetaklefana.
Um björgunina sagði skip-
stjóri, að línan í bátnum frá
Júpíter hefði lent í skrúfunni á
EUiöa svo að það varð að skera
hana sundur þannig að báturinn
var ekki £ neinum tengslum við
Júpíter. Taldi hann, að um 40
mínútur hefðu liðið frá því skip-
verjar voru komnir í björgunar-
bátinn og þar til þeir voru allir
komnir heilu og höldnu um borð
í Júpíter. Beið Júpíter um stund
átekta eftir að Elliði sökk, þar eð
hann hætti ekki á að koma of
nærri, ef hann kynni að rekast
á flakið meðan það var í hálfu
skipsfjóra
Aðspurður sagði skipstjórinn að
tveir gúmmbátanna hefðu verið
skoðaðir á Siglufirði áður en
skipið fór í þessa ferð en einn
þeirra ekki. Sagðist hann ekki
vita hver þeirra það hefði verið,
sem var óskoðaður eða hvers
vegna ekki varð af skoðun á
honum. Þá kvaðst hann telja að
eitthvað óeðlilegt hefði komið
fyrir alla gúmmbátana, því hann
áliti það ekki eðlilegt að tveir
þeirra skyldu slitna frá skipinu,
annar mannlaus en hinn aðeins
með ’tveim mönnum, þar sem
þetta hefðu hvort tveggja verið
12 manna bátar og því alls ekki
verið fullt álag á línuna er hún
slitnaði. Sagði hann ennfremur,
að skipherrann á Óðni hefði sagt
sér, að línuspottinn, er fylgdi
tóma bátnum hefði verið um
faðmur á lengd. Hefði sú lína því
slitnað of fjarri skipinu til þess
að hafa getað höggvizt eða
izt á neinu. Aðspurður sagði
hann, að tveir trébátar hefðu
verið um borð, en vegna
unnar á skipinu hefði verið al-
gerlega útilokað að nota þá enda
var ekki reynt að nota þá. Loks
gat skipstjórinn þess, að skip-
verjar hefðu höggvið upp tvær
smurolíutunnur er stóðu á dekk-
inu og helltu olíunni í sjóinn til
þess að lægja ölduganginn og
hefði það gert svolítið gagn.
Næstur kom fyrir dóminn
Jens Pálsson 1. vélstjóri og var
skýrsla hans einnig lesin í rétt-
inum. Skýrði hann m.a, frá því.
að þegar skipið valt til skiptis.
á bakborða og stjórnborða var
reynt að rétta það af með því að
dæla olíu á milli geyma á meðan
það var unnt. Um orsök lekans
bar honum saman við álit skip-
stjórans og rökstuddi mál sitt m.
a. með því, að sjór hefði runnið
inn í vélarrúmið gegnum ljósa-
rör og gæti sjórinn ekki hafa
komizt annasstaðar inn í þau
en við bilun á áðurnefndum stað
á skipinu.
Sjóprófunum var síðan frestað
en þau eiga að halda áfram í dag
og hefjast kl. 10.15 f.h. Koma þá
m.a. fyrir sjódóminn bátsmaður,
loftskeytamaður og 1. stýrimaður.
Stattu við orð þín Mac!
Hundruð stúdenta við
liáskólann í Oxford
tóku á móti Macmillan forsætisráðherra með orðunum „Stattu við
orð þín, Mac — ekki fleiri atómvopnatilraunir! Macmillan va(r að
ganga inn í hátíðasal háskólans til að halda ræðu. I
200.000 manna :
líkfylgd í París
Framhald af 1. síðu.
hafði 30.000 manna 1-ð vopnaðra
lögreglumanna verð sent á vett-
vang, en verkalýðssamtökin buðu
einnig út sínu eigin varðliði til
þess að tryggja það að fjölda-
gangan gæti farið fram. Hurfu
lögreglumennirnir þá af sjónar-
sviðinu.
Mannfjöldinn mikli, sem
fylgdi hinum föllnu t'l grafar,
stóð þögull meðan greftrunar-
athöfnin fór fram. Formaður
franska stúdentasambandsins,
Dominjgue. , Wallon, og fulltrúi
kaþólska yerkalýðssambandsins,
Robert Duvivier, sögðu í ræðum
sínum að h'nir dauðu hefðu fórn-
að lifi sínu fyrir frið í Alsír.
Fulitrúi kennarasambandsins
sagði í sinni ræðu. að Parísar-
búar væru lostnir harmi og reiði
vegna hrottaskapar lögreglunnar.
Eugene Hena.ff, fulltrúi verka-
lýðssambands kommúnista, sagði
að nú yrðu allir andfasistar í
Frakklandi að standa saman
gegn aðsteðiandi hættu. Franska
þjóðin yrðj að berjast fyrir því
að þeim, sem væru ábyrgir fyrir
blóðsúthellingunum, yrði refsað.
Lögreglan hindraði
í gær boðaði verkalýðssam-
band sósíaldemókrata til þögullar
fjöldagöngu fvr.'r friði og gegn
fasisma og ofbeldi. Átti að ganga
til minnismerkisins. á Lýðveldis-
torginu í París. Þúsundir lög-
reglumanna umkringdu torgið og
Ekki kom til átaka. Síðan gengu
ekki kom til_ átaka. Síðan- gengu
;rúmlega 1000 manns til hermála-
ráðuneytisins í þögulli göngu.
I fararbroddi var Pierre Mendes-
France.
Keensf Glenn
Eoks á loff?
KANAVERALHÖFÐA 13 2. Á
morgun er áformað að gera til-
raun til að skjóta John Glenn
ofursta útí geiminn ef veður
leyfir. Einn af veðurfræðis.érfræð-
ingum á höfðanum sagði í dag
að útlitið væri ekki sem verst,
en samt ekki eins gott og æski-
legt hefði verið.
Til varnar Suður- Afríku
Um nokkurn tíma hefur á
vegum verkalýðshreyfingarinn-
ar, verið starfandi alþjóðleg
nefnd til aðstoðar frelsisbaráttu
hinna kúguðu í S-Afríku. Þessi
nefnd, er samanstendur af full-
trúum margra verkalýðssam-
banda innan og utan Alþjóða-
sambandsins, hefur nú gefið út
ávarp til alls verkalýðs, þar
sem hún skorar á hann að
beita áhrifum sínum til þess að
afnema það hróplega ranglæti
sem nú er beitt gegn meirihluta
íbúa Suður-Afríku, með þvf
meðal annars að senda mótmæli
til stjórnar Suður-Afríku gegn
kynþáttamisrétti hennar og
öðrum kúgunarráðstöfunum; að
senda slík mótmæli til allra
sendiráða hennar; að senda orð-
sendingar til stjórna allra Af-
ríkuríkja með áskorun til þeirra
um stuðning við frelsisbaráttu
hinna kúguðu i Suður-Afríku;
að senda kröfur til þings Sam-
einuðu þjóðanna um virkari að-
gerðir gegn Suður-Afríkustjórn;
með því að senda samúðar-
kveðjur til eina verkalýðssam-
bandsins í Suður-Afríku, er
heldur uppi baráttu gegn kyn-
þáttamisrétti stjórnarinnar,
South African Congress of
Trade Unions í Jóhannesarborg;
og með því að safna fé til stuðn-
ings þessari baráttu.
Ávarpi sínu lýkur nefndin
með þessum orðum: Sameinizt
um að gera 7. febrúar að degi
einingar og samhyggð^'r er bindi
skjótan endi á það óþolandi
hörmungarástand er karlar, kon-
ur og börn eiga nú við að búa
í Suður-Afríku.
í Suður-Afríku búa ellefu
milljónir Afríkumanna, þrjár
milljónir hvítra manna ein og
hálf milljón annarra litaðra
manna og um hálf milljón Ind-
verja. öll stjórn landsins og
völd eru í höndum hinna hvítu,
en hinir eru sviptir öllum al-
mennum mannréttindum. Með
lögum er þeim bannað að ger-
ast fastir starfsmenn og einnig
að vera í verkalýðsfélagi, þeim
er bannað að flytjast á milli
staða, nema með sérstöku leyfi,
þeir mega elcki koma saman til
fundahalda og þeir mega ekki
ilæra neina iðn. Þá er þeim
bannað með lögum og að við-
lagðri þungri refsingu að fara
úr vinnu, sem þeir eru í, en
atvinnurekandinn hefur óskorað
vald til að láta þá fara að eig-
in geðþótta. öll æðri menntun
er þeim bönnuð, því eins og
dr. Verwoerd orðaði það í þing-
ræðu, þarfnast þeir ekiki ann-
arrar menntunar en að geta
skilið fyrirskipanir húsbænda
sinna.
Verkalýðshreyfingin er þrí-
skipt. Verkalýðsfélög hvítra
manna, verkalýðsfélög Ind-
verja og annarra sem ekki eru
af afríkönskum stofni og verka-
lýðsfélög afríkana. Hin tvö fyrr-
nefndu eru skrásett og viður-
kennd af ríkisvaldinu en verka-
lýðsfélög afríkana njóta engrar
viðurkenningar eða réttinda.
Launamisréttið er óskaplegt, t.
d. hafa hvítir verkamenn í
byggingariðnaði 15 £ á viku en
afríkumaður aðeins 5 £, í nám-
unum hafa hvítir verkamenn
60 £ lágmarkslaun á mánuði, en
afríkanskir 5 £ hámark. Aðeins
hvítir verkamenn njóta ein-
hverra trygginga. Sl. ár voru á
aðra milljón afríkana dæmdir
til iþvingunarvinnu fyrjr smá-
vægileg brot á aðskilnaðarlög-
unum og geta þá atvinnurek-
endurnir tekið þá til vinnu fyr-
ir 2 pence á dag.
Verkalýðsfélögin eru:
South African Congress of
Trade Unions, sem í eru með-
limir af öllum kynstofnum og
hefur haldið uppi baráttu gegn
aðskilnaðarstefnunni. í því eru
rúmlega 53 þús. meðlimir úr
53 stéttarfélögum.
South African Trade Union
Council for Europeans, með
rúmlega 160 þús. meðlimi úr
50 félögum.
South African Confederation
of Labor með um 144 þús. með-
limi. Þá er einnig fjórða sam-
bandið, hið svokallaða Fedeiv
ation of Free African Trade
Union of South Afrikan með
rúmlega 5 þús. meðlimi. Þessi
klofningssarntök eru ávöxtur
„Gula sambandsins“.
Frá Afmælis-
happdrætfi
ÍÞjóðviljans
Ennþá eru nokkrir sem ekki
leru búnir að taka miða til
' dreifingar og eru þeir áminnt-
' ir um að gera það sem allra
(fyrst þar eð dreifingu út í
I deildirnar á að vera lokið fvr-
l ir 20. þessa mánaðar eða eftir
. rétta viku. Hafið samþand við
skrifstofu happdrættisins að
' Þórsgötu 1, sími 22396, strax
I í þessari viku.
.Næsti dráttur í. þappdrætt-
1 inu fer fram 6. marz eða eft-
) ir aðeins röskar 3 vikur, þess
(vegna er áríðandi að þeir sem
j búnir eru að taka miða tij sölu
ifari að hefjast handa um söl-
' una. Vekið athygli fólks á því.
' að það er ekki aðeins bíll i
I boði 6. marz, heldur eru enn
lefitir um 300 aukavinningar,
I sumir að verðmæti um eða yf-
. ir 10 þúsund krónur. Geta
menn gengið úr skugga um
' það um leið og þeir kaupa
I miðana, hvort þeir hafa hlot-
I ið einhvern aukavinninganna.
Miðvikudagur 14. febrúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (Jjj