Þjóðviljinn - 14.02.1962, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 14.02.1962, Blaðsíða 11
* 6 Francis Clifford II li I IVI Ci M ..n— w- f hann hélt henni fyrir framan sig niður við jörð og sneri henni til í sólskininu. Boog sá ekki hvað hann var að gera, enda einblíndi hann á flugvélina og gaut aðeins til beirra augunum við og við. Drengurinn fékk sólina til að glampa á krómaða hlið:na á munnhörpunni. Hann skók hana fram og aftur í æs- ingi, hélt henni rétt fyrir fram- an sig. Sjötíu metrum framar fékk flugmaðurinn allt í einu Ijós- glampa í augað. Þetta endur- tók sig tvívegis með stuttu milli- bili. Hann sneri til höfðinu. Veggirnir á dældinni voru auð- ir og berir, aðeins stöku stein- ar og kræklótt tré. Glampinn kom enn meðan hann var að skima, féll á augu hans eins og dálítið leitarljós. Þetta vakti undrun hans og hann sneri vél- inni við. Hann stefndi að ó- slétta svæðinu, skimaði ákaft án þess að gera sér miklar vonir. Hann hafði látið gabbast fyrr: hitamóðan gerðj allt svo annar- legt; hann sá stundum ofsjónir. Birtan gerði honum ótrúlegustu grikki... Hann þokaðist áfram, lagkkaði flug'ð litið eitt, fór niður í fjörutíu fet. Hann var enn þrjátíu metra frá klettun- um og enn í vafa, þegar glamp- inn féll beint í augu honum og í þetta sinn sá hann meira en villandi græna og brúna liti með kolsvörtum skuggabeltum. Hann kom allt í e'nu auga á Pastir liðir eins og venjulega. 13.00 „Við vinnuna". 17.40 Framburðarkennsla í dönsku og ensku. 18.00 fltvarpssaga barnanna: „Nýja heimilið". 20.00 Varnaðarorð: Hjálmar R. Bárðarson skipaskoðunar- 'Stjóri talar um notkun björgunarbáta úr gúmí. 20.10 Tónleikar: Ray Martin og hljómsveit .hans leika iétt lög. 20.20 Kvöldvaka: a) Lestur forn- rita: Eyrbyggja 'saga; X- (Helgi Hjörvar rithöfundur). b) Isienak tónlist: Lög eft- ir B'aldur Andrésson og Bjarna Böðvarsson. c) Hall- grímur Jónasson kennari flytur gamla minningu frá þorrádögum. d) Jóihannes úr Kötlum les úr þjóðsögum Jóns Árnasonar. e) Siguirður Jónssön frá Brún les frum- ort kvæði. 21.45 íslenzkt mál (Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag.). 22.10 Veraldarsaga Sveins frá Mælifellsá; IV. lestur Haf- liði Jónsson garðyrkjuráðu- nautur). 22.30 Næturhljómleikar: Frá tón- leikum Sinfóniuhljómsveitar íslands í Háskól'abáói 8. þ.m. Stjórnandi: Jindrich Rohan. Sinfónia, nr. 2 í D-dúr op 73 eftir - Brahms,- 23.20 Dagskrárlok. ' ' ■ U gf ,4 ii./jf.; 46. dagur drénginn ... En næstum samtím- is kom hann auga á mann sem þaut á fætur og hljóp fram í sólskinið með uppréttan handlegg eins og til að veifa. Það var Boog. Hann skaut á hiaupunum, einu sinni, tvisvar, miðaði á plastbelginn. Hann hljóp fimm eða sex skref, stanz- aði og skaut aftur, hafði gott vald á byissunnli þrá/tt íyr'r taugaæsinginn, og þótt hann yrði að nota vinstri hönd'na. Hann hrópaði. Það var eins og hrollur færi um þyrluna. And- artak hékk hún á sama stað, urrandi og vaggandi. Svo var eins og allt líf hyrfi úr henni, hún seig snöggt niður eins og lyfta. Hún kom rétt niður og gusa af gulu ryki þeyttist upp. Boog hljóp nokkur skref enn, sneri sér síðan við og otaði.byss- unni. Hann ætlaði ekki, að eiga neitt á hættu. ,,Þú! .. Strákur!...“ Þejr gátu varla heyrt til hans. Vélin gekk ennþá, stóri spaðinn snerist enn í hring. ,,Komdu hingað!“ Drengurinn flýtti sér til hans, skelfdur yfir því sem hanni hafði orðið vitni áð. Bo.og ýtti honum fram fyrir sig, stuggaði honum að flugvélinni. Það voru tvö skotgöt í plexiglerinu, hvort um sig umkringt ógegnsæjum köngu- lóarvef Loftstraumurinn lék um fötin þeirra, ýfði á þeim hárið. „Opnaðu dyrnar þarna!“ Drengurinn tyllti sér á tá, náði í handfangið. í þriðju til- raun gaf hurðin eftir. Flugmað- urinn lá fram á mælaborðið. Andlit hans vissi í áttina til þeirra og augu hans hreyfðust hægt. Hann virtist vera að reyna að segja eitthvað. Skyrt- an var blóðflekkótt og ljósleitar buxurnar lika og blóð lak niður á gólfið. Boog starði á hann án allrar geðshræringar og það fór að fæðast með honum hug- mynd. Svo vék hann frá. Eitt hræðilegt andartak hafði dreng- urinn haldið að honum yrði sk'pað in.n í vélina. En _ þess í stað rak Bo.og hann yfir til hinna,, ös,kraði til hans að flýta sér. Hayden var risinn upp; ^n'klinnj^a þarna grafkyrrir og stirðnaðir, eins og leikarar að bíða eftir stikkorði. „Sæktu gullið,“ sagði Boog við drenginn. Og svo bætti hann við, fokreiður yfir hiki hans: ,,AUt gullið. Allar fjórar stengí urnar.‘‘ Hvorki Hayden né Frankl'nn hrey.fðu sig. ,,í djöf- uls nafni!“ Það var eins og æði gripi hann. Hann hleýpti af skoti, sem kom í jörðina rétt við Hayden. „Hjálp'ð þið hon- um! Fáið honum þær!“ Þeir hlóðu stöngunum á hand- leggi drengsins. Hann kiknaði í hnjáliðunum undan þunganum. Með byssuna við bakið haltraði hann með erfiðismunum yfir að þyrlunni. Hún var aðeins þrjá- tíu metra í burlu, en hann hefði ekki komizt öllu lengra. ,,Inn með þær,“ öskrað.i Boog gegnum urgandi vélarhljóðið. Drengurinn gerði eins og hon- um var sagt. þorði ekki að líta framan í andl.'tið á særða mann- inum meðan hann lyfti stöngun- um einni og einni upp í vél-. ina. Þegar þær voru allar komn- ar inn, benti Boog honum að fara frá. „Vertu hjá dyrunum, þú. Rétt v'ð þær.“ Hann lagði byssuna á þyrlu- gólfið, áður en hann skreiddist inn. Þegar hann var þangað kominn, þre.'f hann í axlirnar á flugmann:num og neyddi hann til að setjast aftur í sæti sitt. Höfuðið á manninum valt til og frá eins og hann væri ofur- ölvi. Drengurinn þoldi ekki að horfa á þetta; þorði ekki að hlaupa heldur. Hann klemmdi aftur aug- un og var hræddari við byssuna en nokkru s:nni fyrr. Það sem hafði gerzt var honum að kenna Honum að kenna. .! Utar í dældinni stóðu Hayden og Franklinn og horfðu á það sem var að gerast, sáu aðeins - átök- in inni í þyrlunni. Yfir hóstann í vélinni gat drengurinn heyrt ofsaleg öskrin í Boog, löðrunga og spark. Það virtist halda á- fram endalaust. En allt í einu frussaði vélin og þagnaði. Spað- arnir hættu að snúast. í þögn- inni sem fylgdi var rödd Boogs óeðlilega há, skerandi af reiði. Óttasleginn opnaði drengurinn augun. Höfuðið á flugmanninum hafði fallið út á hliðina og sneri að honum. Tveir blóðtaum- ar runnu útúr munninum á hon- um. Hin skelfilega dauðagríma fyllti hann hryllingi, en ennþá gat hann ekki hreyft sig. Hann stóð við dymar og beið skjálf- andi og eins og gróinn-við jörð- ina, þar til Boog klifraði út. Þá gerði hann eins og honum var sagt, klaufalegur í ákafa sínum að forðast blóðið, og dró gull- stengurnar út aftur. Ótt'nn gerði hann tvíefldan og hann lyfti þeim upp, áttatiu pundum í einu, og reikaði aftur yfir til h:nna. Boog ko.m á eftir, rennsveittur. Bólgin og þrútin augu hans voru flóttaleg og æðisleg. Það var óbragð uppi í honum. Hann spýtti og veifaði byssunni. „Skiptið þeim með ykkur,“ sagði hann hásum rómi. ,,Og af stað með ykkur.“ Hayden starði á hann. „Er »is 'i*. „Hvað kemur þér það við, séra minn?‘‘ „Er hann dáinn?“ Hjartans þakkir flytjum við öllum þeim, ef auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför ást- kærrar dóttur, fósturmóður og systur GUEftÚNAR SIGRlÐAR SIGURJÓNSDÓTTUR, Urðarstíg 5. Kristín Asgeirsdóttir, í Kolbrún Eiríksdóttir og systkini. .-('■'.'r.-iA .77" ; Us- TS'ÍI ' Júrí Gagarín, fyrstfi; geimfar- inn, var nú í vikunni sæmdur einu af æðstu heiðursmerkj- um Líberíu — Afríkustjörn- unni — fyrir það afrek að fara fyrstur manna umhverf- is jörðu úti í geimnum. Gag- arín hefur undanfarið verið í heimsókn í Líberíu í boði stjómarvalda þar. Dr. Kopp nefnist þýzkur efna- fræð.'ngur, 67 ára gamall. Hann hefur verið handtekinn í rannsóknarstofu sinni, skammt frá Orleans, en hann hefur lengi starfað í Frakk- landi. Dr. Kopp er grunaður um að hafa framleitt eiturlyf til sölu á svörtum markaði. Við húsrannsókn hiá ho.num fundust efni og tæki, sem benda ótvírætt til þess að hann hafi fengizt við að fram- leiða heróín. Lögreglan komst á slóð Kopps, þegar nafn hans og símanúmer fannst í vasa- bók Gilberts Coscia, sem handtekinn var fyrir eitur- lyfjasölu í fyrra. - rikjáfórsetá, if ö & um kdhimún- Sigmundi Böðvarssyni, stud. jur. og forustumanni íhalds- stúdenta, var fyrir skemmstu boðið t:l Noregs á svokallað hesthúsþing lögfræðinema í Osló. Mun það ha.fa verið hin athyglisverðasta samkunda, og hefur heyrzt að Sigmundur hafi ritgerð í smíðum um hesthúsþing/ð. Myndin er tek- in á þinginu. Konan er ónafn greind. U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, biður öll aðildarríki SÞ að greiða nú þegar þann kostnað sem þe'm ber til samtakanna. í yfirlýsingu frá SÞ sl. þriðju- dag segir, að U Thant hafi verið tilneyddur að bera fram tilmæli sín vegna mjög lélegs fjármálaástands Sameinuðu þjóðanna. Um áramótin munu skuldir aðildarríkja til SÞ hafa numið tugum milljóna dollara. 18 ríki hafa borið uppi kostnaðinn af herliði SÞ í Ko.ngó, sem tók til starfa í júlí 1960 Robert Welch, stofnandi h'nna svokölluðu John Birch-sam- taka í Bandaríkjunum, hefur fengjð tilmæli frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu um • að leggja fram sannanir á há-' værum fullyrðingum sínum undanfarið. Welch segir: „Það eru nokkur þúsund kommún- istar í lykilstöðum í embætt- ismannakerfi Bandaríkjanná“. John Birch-samtökjn byggja mjög á McCarty-ismanum, sem var allsráðandi í Banda- ríkjunum fyrir skömmu, qg líktist engu frekar en galdra? ofsóknum, þar sem McCarty og óameríska nefndin svo- nefnda höfðu mikil völd. Ro- bert Welch hefur m.a. sakað Eisenhower fyrrv. Banda-, Helena Rubinstein er þekkt nafn á gæðavöru til snyrting- ar kvenfólki. Fæstir v:ta að Helena sjálf er enn á lífi og meira að segja í fullu fjöri. i Að vísu er hún 92 ára göm- , ul. En þrátt fyrir það fær j hún að jafnaði eitt giftingar- tilboð á viku. Keppinautur Helenar í tízkuly.fjum, Elisa- ' beth Arden, er talin vera 10 1 til 20 árum yngri, en hún er i löngu hætt að fá biðilsbréf. j i * * I Krústjoff forsætisráðh. Sovét- ríkjanna dvelur um þessar i mundir í orlofi í Sochi á i Svartahafsströnd, segir í frétt j frá Tass. í fréttinn.i segir að j Krústjoff hafi s.l. miðvikudag, átt viðtal við Roberto Ass- ' umpsad sendiráðsritara Bras- 1 ilíu í Moskvu. i * ' . * * > Cyi'ille Adoula, forsætisráð- herra í Kongó, hefur þekkzt boð um að koma í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna í sumar, segir í frétt kongósku fréttastofunnar ACP. Aðal- fulltrúi Sovétríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Valer- ian Zor:n, afhenti Adoula heimboðið í New York í fýrri viku. Humberto Delgado, einn aðal- ) leiðtogi portúgalskra andfas. j ista í útlegð, segir að sá tími ( muni koma, að gengið verði milli bols og höfuðs á Sala.zar og áhangendum hans. Ummæli þessi viðhafði Delgado í Sao 1 Paulo í Brazilíu í tilefni þess ! að dómstóll í Lissabon hefur ( dæmt hann fjarverandi í 19 ára fangelsi fýrir hlutdeild í ráni skipsins Santa Maria ó síðastliðnu ári. Delgado segist 1 hafa sjálfur stjórnað herupp- ! reisninni í Baia í Portúgal i fyrir skömmu. Kveðst haijn j hafa farið til Portúgal með ■ leynd, dvalið þar í 12 daga j og skipulagt heri uppreísnar- , manna, sem bráðlega myndu ( : látg til skarar skríða. Galvao höfuðsmaður, sem stjórnaði 1 uppreisninni á Santa Maria, var dæmdur 22 ára fangelsi af sama dómstóli. Hann neit- aði að segja nokkuð um dóm- inn. „Ég hef engan áhuga á ákvörðun dómara Salazars“, £ sagði hann. Miðvikudagur 14. febrúar 1962 ÞJÓÐVILJINN (11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.