Þjóðviljinn - 28.02.1962, Blaðsíða 5
4
frumflutt í Moskvu
MOSKVA. — Mikill listviðburð-
ur grerðist í Moskvu í síðustu
viku: flutningur æskuverks
Sjostakovitsj fjórðu sinfóníunn-
ar. Þetta er fruniflutningur, enda
þótt Sjostakovitsj hafi samið 12
sinfóníur. En það er autt bil
á milli þeirrar fyrstu og þeirrar
fimmtu. Þær þrjár sem á milli
eru hafa aldrei ixoi í hljómleika-
salina komizt.
Nú fyrst er fjórða sinfónían
flutt af Fílharmóniuhljómsveit
Moskvuborgar og enginn annar
en Kondrasjin er stjórnandi. Sin-
fónían var samin árið 1934 og
átti að flytjast í Leningrad. En
gagnrýnendur rifu hana, í sig.
Þetta var á þeirri tíð, er gagn-
rýnendurnir gátu skipt máli fyr-
ir örlög; listaverkanna og stund-
um jafnvel listamannanna.
Sjostakovitsj varð niðurdreg-
inn vegna hinnar ströngu gagn-
rýni og dró sjálfur verk s.'tt til
baka. Það varð því aldrei þekkt
meðal almennings. Vitanlega var
mikil eftirvænting meðal tón-
listarunnenda borgarinnar vegna
þessa óvanal. frumflutnings, og
hinn stóri hljómleikasalur troð-
fylltist. Menn biðu einnig með
eftirvæntingu eftir gagnrýnj um
hljómleikana.
Eins og við var að búast var
gagnrýnin á allt annan veg en
árið 1936. Sinfónían var sögð
stórvirkí, sem nauðsynlegt væri
Sovétrikin bjéða sam-
starf i oeimrannsoknum
NEW YORK 26/2 — Fulltrúi Sov-
étríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, Valerian Zorin, sagði á
blaðamannafundi í New York í
dag að Sovótríkin væru reiðubú-
in að hafa samvinnu við Banda-
ríkin og Sameinuðu þjóðirnar um
rannsóknir á himingeimnum.
Hann sagði að tillögur um slíkt
samstarf yrðu lagðar fram fyrir
geimrannsóknarnefnd Sameinuðu
þjóðanna þegar hún kemur sam-
an í New York 19. marz.
Zorin kvað Sovétríkin þegar
hafa haft samvinnu við Banda-
ríkin og aðrar þjóðir innan Sam-
einuðu þjóðanna. Við viljum —
sagði hann — halda því sam-
starfi áfram. Geimrannsókna-
nefnd Sameinuðu þjóðanna ætti
að geta útbúið stefnuskrá fyrir
samvinnu i þessu veigamikla málí.
<*>-
Geimvísindamót í
Bendaríkjunum
WASHINGTON 22/2 — Alþjóðleg
ráðstefna um friðsamleg not af
himingeimnum verður haldin í
Seattle dagana 8.—10. maí.
Foringi stjómar Bandaríkjanna
í geimrannsóknarmálum(. James
Webb, tilkynnti í gær í Washing-
ton að vísindamönnum hvaðan-
æva úr heiminum yrði boðið.
Markmiðið með ráðstefnunni er
að veita bandarísku þjóðinni,
sem og öðrum, skilning á stefnu
Bandaríkjanna í þeim málum, er
snerta rannsóknir á himingeimn-
um.
Lýðvéldið Ghana 5 ára
Lýðveldið Gliana í Vcstur-Afríku er 5 ára í dag. Minnismcrkið
stendur á „28. febrúar-stræti" í Accra, og það heitir „Hlið sjálf-
stæðisins". Þair er reist á stað þar sem brezkar nýlenduhersveitir
og lögreglulið hófu skotárás á Ghanamenn, sem voru í kröfugöngu
gcgn nýlendustefnu en fyrir sjálfstæði hinn 28. febrúar 1948. Þar
létu margir lífið. Á þessum stað vígðu Ghanabúar minnismerkið
þegar lýst var yfir sjálfstæði landsins 28. febfrúar 1957, og ietruðu
á það kröfuorð þeirra sem þarna féllu níu arum áður: „Frelsi og
réttlæti". ,
til sk'lnings á tónlist Sjostakov-
itsj og skildi á milli fyrrf verka
hans:og þeirra nútímalegri. Hinn
frægi tónlistargagnrýnandi Bog-
anova kvað sinfóníuna frábæra.
..Fjórða sinfónía Sjostakovitsj
hefur til að bera geysilegan
tragiskan styrk“ ------- skrifar
hún — „Takmarkaiausf skarp-
lega er hinum háleitu tilfinn-
irigum stíllt upp gegn því ógn-
arlega, því ruddalega sem af-
hjúpar allt, sköpunarkraftinum
gegn hinum eyðandi efa, hin
harða barátta mannverunnar
gegn óvini sínum, hinni blindu
og vélrænu ómennsku — það
er efni þessarar tónl:star“.
En — segir hún"— sinfónían
veitir ekki svar við hinum knýj-
andi spurningum. Svo virðist, að
þegar náð er æðsta stigi. tón-
listarlegrar tjáningar á sorg, há-
leitri þjáningu og vonlausum
draumum þá ýmist opni listin
eða loki fyrir Ijósið, hamingj-
una — einhvers konar heilbrigði
eftir langvarandi erfiðleika.
Menn geta viðurkennt eða vís-
að þessari tónlist á bug, en menn
Dmitri Sjostakovitsj.
geta ekiki ne.tað hinni mikiu
myndauðgi og hinni sérkennilegu
og harkalegu fegurð, segir Bog-
anova, sem Iítur á verkið sem
inngang að hinni heimsfrægu
fimmtu Ttalniri". .icm veitir svör
vjð spurningunum með þeirrl
stórfenglegu sinfónísku lofgjörð
um hugrekkið, baráttuna og gleð-
ina vegna endanlegs sigurs.
Hún kveðst vona að sinfóní-
urnar tvær megi brátt hljóma
saman í hljómleikasölunum, þá
muni sú hrifning sem frumsýn-
ingargestir sýndu við flutning
fjórðu sinfóníunnar verða enn
Kvikmynd um
Hamarskjöld
STOKKHÓLMI 25/2. — Um þess-
ar mundir er sænski listamaður-
inn Bo Beskow að rannsaka
möguleikana á að gera kvikmynd
um Dag Hammarskjöld. Beskow
var vinur Hammarskjölds urn
árabil. Hann er nú í New York
og kveðst hafa fundið nægilegt
kvikmkyndaefni í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna. Þar að
auki vonar Beskow að fá megi
lánaðar kvikmyndir um ýmsar
athafnir Hammarskjölds utan
vettvangs Sameinuðu þjóðanna.
ViSræður um
stjérnarmyndun
VIENTIANE 26,2 — Souvanna
Fhouma, foringi Hlutleysis-
Elokksins í Laos, fór í dag til
Khang Khay til þess að ræða um
Gtjórnarsamstarf við forystumami
kommúnistaflokksins, Souphanou-
vong prins.
Við brottförina sagði Souvanna
prins að viðræður þeirra Boun
Oums, leiðtoga hægri manna
hefðu borið góðan árangur. Eftir
viku mun Souvanna koma aftur
til að halda áfram viðræðum sín-
um við Boun Oum.
Ráðagerðir eru nú uppi tm að
menn frá öllum þrem flokkunum
í Laos itaki þátt í stjórnarmynd-
un. Líklegt er talið að Boun
Oum verði i nna n rík is ráðlierra,
Souvanna Phouma varnarmála-
ráðherra og Souphanouvong fjár-
málaráðherra í þeirri stjórn.
Uppndm út af kvik-
mynd um Múhame
KAIRO
Nú á tímum, þegar menn eru farnir búa 400 milljónÍT manna. Banda-
A nsk kvikmyndafelog myndu þvr
að ferðast um óravíddir geimsins, leiða fæstir nug-
ann að- því, að ferðir mannanna virðast sumstaðar
takmarkaðri hér á jörðunni en utan hennar. Hin-
ar heilögu borgir múhameðstrúarmanna, Mekka
og Medina, hafa um aldir verið lokaðar borgir
og eru það enn í dag — öllum nema rétttrúuðum.
Það er þvi hægt að ímynda
sér það uppnám, sem varð í
heimi múhameðstrúarmanna,
þegar það var kunnugt, að
bandarískir kvjkmyndaframleið-
endur áformuðu að gera kvik-
mynd um ævi og starf sjálfs
trúarföðurins. Mótmæli og for-
dæmingar komu hvaðanæva úr
löndum múhameðstrúarmanna.
Samkvæmt trúarreglum múham-
eðstrúarmanna er það nefnilega
bannað að gera myndir af guði,
eða Múhameð spámanni haris.'
Blöð í Kairo skrifa í hæðnis-
tón um Bandaríkjamenn, sem
eru búnir að útjaska Biblíunni
í kvikmyndum eins og hægt er.
Nú séu þeir orðnir leiðir á
þeirri heilögu ritningu og ætli
sér að fara að nota Kóraninn
sem kvikmyndahandr.'t. Sé það
nú augljóst að Bandaríkjamönn-
um sé ekkert heilagt lengur.
Hinn virðulegi háskóli múham-
eðstrúarmanna A1 Azhar birti
yfirlýsingu þar sem segir: „Þeir
géta haldið áfram að gera
krísts-kvikmyndir í Hollywood
e/ns og myndina „Konungur
konunganna". En kvikmynd um
spámanninn munum vlð aldrei
leyfa, jafnvel þótt hann sæist
aldrei sjálfur í kvikmyndinni“:
Lj.óst er, að hvort sem kvik-
mynd verður gerð um spámann-
inn Múhameð eða ekki, þá verð-
ur hún aldrei sýnd í löndum
múhameðstrúarmanna, en þar
missa af gróðatækifærum í þess-
um löndum, og talið er að þa&
kunnj að hafa nokkur áhrif á
þá. Þá er vitað, að Afríku- og:
Asíuríki, þar sem múhameðstrú
rikir, muni liggja Bandaríkja-
mönnum mjög á hálsi ef þeir
gera kvikmyndina. Þeir munu.
telja það óvirðingu við trúar-
brögð sín, og það mun sp'llæ
mjög fyrir Bandaríkjunum á
stjórnmálasviðinu.
Það er þó alkunna, að gróða-
sjónarmiðin hafa oftast úrslita-
áhrifin hjá Bandaríkjamönnum,.
og því er hugmyndin um Mú-
hameð í Hallýwood-kvikmyncl
alls ekki úr sögunni.
I Bandaríkjunum hafa verið gerðair margar kvikmyndir, byggðar
á efni úr biblíunni. Á myndunum sést Chariton Hcston í tveim
biblíuhlutverkum: t.v. sem Ben Húr í samnefndri kvikmynd og:
t.h. sem Moses í „Boðorðin tíu“.
Miðvikudagur 28. febrúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN
(3