Þjóðviljinn - 25.05.1962, Blaðsíða 9
Kolbeinn og Sigfús og Adda Bára Sigfúsdóttir. Ljósmyndari Þjóðviljans, Ari Kárason, tók mynd-
ina í fyrradag að Laugateigi 11, á heimili Öddu Báru og Bjarna Benediktssonar frá Hofteigi.
Pleiri eiga annríkt í Reykjavík en borgarstjórinn, og' það var gegn
mótmælum samvizkunnar að ég bað Öddu Báru Sigfúsdóttur að
stanza hjá mér litlá stund og svara fáum spurningum um sjálfa sig
og starf sitt, því hún er nýkomin af ströngum veðurfræðiskóla úti á
Englandi og tekin til við starf sitt á Veðurstofunni, átti að tala í út-
varpsumræðunum um kvöldið og á fundi í Austurbæjarbíói í kvöld. Og
svo þarf hún sjálfsagt að taka til hendinni heima og litlu drengirn-
ir hennar, Sigfús og Kolbeinn, vilja auðvitað ráða einhverju um frí-
stundirnar. Adda Bára er dóttir Sigfúsar Sigurhjartarsonar og konu
hans Sigríðar Stefánsdóttur. Og hún er í þriðja sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík við borgarstjómarkosninguna á sunnudag-
inn.
>riðia mann
rKJAVÍK
lánakgara
teygt sig eftir Jpér. Er ekki
veðurfræðingurinn ráðríkur við
stjórnmálaáhugann? Og vilja
ekki Sigíús og Kolbeinn ráða
hvernig þú verð talsverðu af
tíma íþínum?
— Að sjálfsögðu. Það er ekki
hægt að verja frístundum —
og maður vill ekki gera það —
þann tíma sólarhringsins, sem
börnin eru vakandi, fil annars
en að vera heima með þeim, þá
verðanokkrar kvöldstundir eft-
ir til annarra starfa, og þær
vilja oft endast skammt. En
það verða lika ódrjúgar frí-
stundir heimilisfeðranna e;ns
og nú er komið, til dæmis
heimi’lisföður sem verður sð
vinna — ekki 48 stunda —
heldur 60—70 stunda v;nnu-
viku. Og starf konu utan
heimilis er því aðeins mögu-
legt að hún sé ekki ein um
hei-mil; sstörfin, heldur séu þau
verk tveggja.
— Já, nóg gæti virzt
við tímann að gera.
— Það getur reynzt svolítið
snúið að finna rétta stund fyr-
‘r hvað eina. En við.fangsefnin
blasa svo skýrt við í þjóðmál-
unum, að það er ekki hægt
annað en vera þar líka með,
og erfitt að hlaupa frá verk-
efni á því sv.ði, sem maður
hefur komið auga á að nauð-
syn sé að vinna við.
— Nú eru borgarmálefni
Reykjavikur efst á baugi. Að
hverju vildirðu helzt vinna á
þeim vettvangi?
— Ég mundi telja það höfuð-
verkefni nú, að borgarstjórnin
ynni að því að gera fólki kleift
að búa í húsum án þess að
það þyrfti að kosta allt að
þvi helmingi tekna manna.
Húsnæðisvandamálin eru að
ludaginn
Og það getur víst engum
blandazt hugur um, hvaða
flokkur það er; sem einn
styður heils hugar réttiætis-
aðgerð;r eins og þær, sem við
eíndum til í vetur.
Það er því aðeins rökrétt
afleiðing af fyrri afstöðu okk-
ar, að við sameinumst »ú í
þessum kosningum um G-list-
aim.
sliga fjöldann af fólki, hús-
mæður og húsfeður eru að
ganga atgjörlega fram af sér
í viðureigninni við þann vanda.
— Hvað telur þú þar heizt
til úrbóta?
— Um þau mál liefur Al-
þýðubandalagið lagt frani ýtar-
Iegar tillögur, með aðaláiierzlu
á féiagslegri Iausn þessa mikla
vandamáls. Ég flutti í bæjar-
stjórninni fyrir nokkrum ár-
um tillögu sem miðaði að því
að almennu byggingafélagi yrði
gert kieift að annast veruleg-
an hluta af nauðsynlegum
ibúðabyggingum í Reykjavík,
og að tryggt væri að þær í-
búðir gengju ekki kaupum og
sölum í braski. Ég tel félags-
Iega lausn einu leiðina til að
ráða bót á vinnuþrælkuninni'
og; hinum óhóflega lnisnæð's-
kostnaði. Frumskilyrði er það,
að slíku félagi sé tryggt láns-
fé með lágum vöxtum.
★
— Er ekki konum og mæðr-
urn gert óþarflega erfitt fyr'r
um þátttöku í opinberu lifi og
raun-ar öllu starfi utan h.eim-
ilis? Værj ekki hægt að gera
eítthvað til þess að gera reyk-
Vískum konum kleift að sam-
eina slík störf þvi að eiga
he.'mili og börn?
— Jú, sanuarlega! Það hef-
ur verið eitt megináhugamál
mitt frá því ég var ung stúlka
að konum sé gert kleift að
stunda þau störf sem þær
hafa áhuga á, og það eins þó
þær eignist bú og börn.
Til þess er frumskilyrði að
hægt sé að tryggja bömunum
góða aðbúð meðan móðirin er
við vinnuna. Þetta er eitt af
því isem -stjórnendur Reykja-
víkurborgar hafa 'hróplega
vanrækt. Það eru ek-ki til í
Reykjavíik nema 12 vöggu-
stofurúm og 288 dagheimilis-
pláss fyrir börn á aldrinum
eins árs til sex ára.
★
— Hvað væri helzt til úr-
bóta á þessu sviði?
— Að sjálfsögðu að stofna
dagvistarheimili í öllum íbúðar-
hverfum; en mér fyndist full
þörf á að gerð væri tilraun með
e'na stóra sambyggingu, sem
hefði dagvistarheimili fjrrir börn
í húsinu sjálfu og bar væru
einnig skipulögð fleiri sam-
eiginleg þjónustustörf til að
Iétta heimjlisstörfin. í slíkri
sambyggingu gæti verið mið-
stöð barnagæzlu og sameigin-
legrar þjónustu fvrir íbúðar-
hverfi, sem ekk; mætti vera of
stórt.
Þetta fyrirkomulag ér til í
Danmörku og Svib.ióð, en ég
þékki það ekki af eigin raun.
★
— Þú ert al.'n upp á stjórn-
málaheimili. Varðst þú ekki
snemma áhujasöm um stjórn-
mát og' bæjarmál?
— Jú, ég' hef heyrt rnikið
talað um bæjarstjórnarmál og
almenn stjórnmál frá þvi ég
man eftir mér. í þingkosning-
unum 1937 fylgdist ég af mikl-
um álhuga með atkvæðatölum
föður rníns og Ólafs Thors í
Gul'lbringu- og Kjósarsýslu.
Mér var að vísu ekki ljóst þá
hvað þeim bar á milli, en það
hefur skýrzt síðan. Frá 1940
hef ég fylgzt með öllum stjóm-
málatíðindum, góðum og illum,
hertöku, kosningasigrum og ó-
sigrum. En sérstaklega minn's-
stæðir eru mér kosningasigrar
Sósíalistaflokksins 1942 cg aðr-
ir atbnrðir þess eftinniiraiilega
árs. í bæjarstjórnarkoisningun-
um í Reykjavik var faðir minn
fyrst kqsinn í bæjarstjórn og
þrír aðrir sósíalistar; í fyrri
þ' ngkosningunum iókst þing-
fylgi Sósíalistaflokksins úr
þremur þingmönnum í sex og
nokkrum mánuðum síðar í 10
manna þingflokk. Verkatýðs-
hreyfingin eyðilagði "erðar-
dómslög.'n alræmdu og felldi
aíturhaldsstjórnina sem setti
þau. Og mér finnst að sú aft-
urhald'SStjórn hafi ekki verið
mjög frábrucðin afturhalds-
stjórninni sem nú sltur.
Og því skyldi hún ekki geta
fallið líka fyrir sterku átaki,
eins og- hin fyrir tuttúgu ár-
tim? S.G.
Kosning Sogs-
virkjunersijórnær
Framhald af 16. síðu.
á þann hátt, heldur er hún lát-
in fara fram á þeirri íorsendu,
að fyrri kosningin haf; verið
ógild sökum þess, að viiii borg- !
arfulltrúa hafi ekki komið rétti- [
lega fram. Leitazt er við að
sanna þetta með opinberri könn-
un á vilja nokkurs hluta borg-
arfulltrúa. En með því er brotin
grundvalilarregla íslenzkra laga ;
um leyn'legar kosningar, þar ;
sem tryggt Skal. að fólk geti á-
hættulaust látið \’ilja sinn í
ljósi með leynilegum kosningum.
Ef það verður staðfest, að
filokksfor'ngjar geti, ef þeim'Iík-
ar ekki kosningaúrslit, gengið til
flokiksmanna sinna og' spurt þá;
,,Hvern kaust þú?“, er hætt við.
að margur ístöðulítf 11 maður
muni seeja, að hann hafi kosið
þann, sem hann veit, að fiokks-
foringinn vildi að næði kosn-
Ingu, þótt hann hafi kosið á
annan veg. Þessi aðferð er bví |
ólíklegri til að sýna réttan vilja
kjósenda en leynilegar kosning-
ar. en þar ,af leiðir, að meir; lík-
ur eru til, að hinn raunverulegi
vilji borgarfulltrúa hafi kom'ð
í ljós við fyrri kosninguna en
við hina síðari.
12 atkvæði þarf til að
svipta umboði
Rétt er að benda á, að t'l
að ógilda réttmæti kosningu
eða taika umiboð af kjörnum 3
fuilltrúum innan borgarstjórnar
Reykjarvíkur, þarf minn.st 12
meðatkvæði, svo að ekK .sé
gengið á hlut minniihlutans. Eft-
ir yfirlýsingum bo.rgarfu'ltrúa.
sem .bókaðar eru í fundargerð-
arbók borgarstjórnar, er úti-
lokað, að stiík úrslit hefðu náðst
í þessu málj.
Með tilvísun tiil framanritaðs
krefjum.st við, að staðfest verði
af hinu háa félagsmálaráðuneyti.
að þeir Gunnar Thoroddsen,
Guðmun-dur H. Guðmundsson og
Einar Olgeirsson séu réttikjörn-
ir aðalfulitrúar Reykjavíkur í
stjórn Sog.svirkiunarinnar og
þeir Tómas Jónsson, Helgi
Herm. Eiriksson 0£ Gunnlaug-
ur Pétursson varaíuliltrúar.
Endurrit af fundargerð borg'-
arstjórnaríundar 17. maí 1962
fylgir.
Reykjavík, 23. maí 1962.
Guðmundur Vigfússon
Alfreð Gíslason
Guðmundur J. Guðmundsson.
félagslíf
Ferðafélag íslands fer tvær
skemmtiferðir á sunnudaginn.
önnur ferðin er í Brúarárskörð.
Ekið austur í Biskupstungur.
Reykjaveg að Úthlíð, gengið það-
an u.m Úthh'ðai'hraun í Brúar-
árskörð. Ekið heim um nýju
brúna á Brúará og um Laugar-
dal. Hin ferðin er um Brenni-
steinsfjöll. Ekið að Kleifarvatni
og gengið þaðan á fjöllin. Lagt
af stað kl. 9 frá Au.sturvelli. Far-
miðar seldir við bílana. Uppl. í
skrifstofu félagsins símar 19533
Munið kosnings-
sjóð G-listans
Alþýðubandalagsfólk!
Styrkið kosningasjóðinn
Komið framlögum ykkai- sem
fyrst á skrifstofu G-listans,
Tjárnargötu 20.
Föstudagur 25. maí 1962 — ÞJÓÐVILJINN —