Þjóðviljinn - 14.10.1962, Side 10
20 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur 14. október 196t
Skáidsaga eftir RICHARD CORDON
efstu hæðina. Hann bandaði
þjóninum frá og vísaði gest-
unum þremur inn í lítinn en
vel birgan bar með stórum
gluggum og útsýn yfir Paseo
de la Castell'ana og Las Ventas.
Á leiðinni úr anddyrinu og inn
á barinn hafði hann í sífellu
verið að stanza og benda á út-
skot hér og málverk þar. allt
saman fallegt og smekklegt,
Bourne til töluverðrar undrunar.
„Þú býrð ekki sem verst, með
hliðsjón af því að þú ert alltaf
að kvarta yfir fátækt.“ sagði
Bourne og reyndi að vera létt-
ur í bragði.
„Kæri vinur,“ sagði Munoz.
„Ég hef alltaf átt við hlutfalls-
lega fátækt. Ef Goya hefði ekki
rænt okkur næstum öllu, hefðu
ekki verið margar fjölskyldur
ríkari í Evrópu i dag. Hvað vilj-
ið þér drekka, frú Boume?"
„Sherry, þökk fyrir.“ Eva
hafði tyllt sér á háan stól við
gluggann. Karlmennirnir tveir
studdu olnbogunum á barborð-
ið. Milli flasknanna gaf köttur-
inn Montes þeim auga. meðan
gestgjafinn bénustureiðubú-
inn með ta>- t a í hendinni.
. „Sherry? Ne. heyrið mig nú.
frú Bourne. Það er ómögulegt.
Eg er búinn að útvega mikið úr-
val af whiský handa ykkur.
Meira að segja sjaldgæf merki.
Hvemig væri með eitt glas?“
„Sherry, þökk fyrir.“
Hann kingdi og hellti í lítið
sherryglas handa henni Svo
sneri hann sér að Jean Marie.
„Monsieur Calbert? Quinquina?
Amer Pieon? St. Raphael?“
„Öl, þakka yður f.yrir “
„Æ.“ Hann varð örvílnaður á
svip „Ég á því miður ekkert
öl. Og ég sem hafði svo mikið
fyrir því að útvega eitthvað
franskt handa yður.“ Hann
horfði ásökunaraugum á Jean
Marie Andlitið var eins og lit-
111. krepptur hnefi. örmjött yf-
irskeggið minnti á naglann í
dökkum. knýttum hanzka
„Látið mig þá fá Dubonnet.“
sagði Jean Marie vingjarnlega
„Dubonnet?“
„Dubonnet er mjög franskur
drykkur,“ sagði Jean Maire.
„Það er einmitt. En þvi mið-
ur á ég það ekki“
,,Má ég bá ekki fá glas af
vatni Vatnið i Madrid er dá-
samlegt!“
.És þakka. En eruð þér vissir
um að þér viljið ekki Quin-
quina eða Amer Picon eða . . .“
„Þökk fyrir, aðeins vatn.“
Dr. Munoz hellti vatni j glas.
Höndip skalf lítið eitt.
„Jim,“ sagði hann vongóður.
„Hvað má bjóða þér?“
„Hvað sem er. Victorianot
hvað sem er!“
„Nei, nei. Jim. Vertu nú vænn.
Ég vil endilega að þú fáir það
sem þig langar í. Kannski ögn
af vodka? Beint frá Póllandi.
Úrvals drykkur."
„Þér hefðuð átt að vinna við
sjónvarpsauglýsingar. dr. Mun-
oz,“ sagði Eva
„Hvað segið þér?“
„Ég sagði að þér hlytuð að
hafa mjög góða rödd í sjón^
varp.“
„Ég þakka. Jæja, Jim, hvað
verður úr þessu?“
„Vodka. þökk fyrir. Með ögn-
af ís.“
Dr Munoz galdraði það fram
á augabragði. Eva spurði. hvað
hann hefði hugsað þér að drekka
sjálfur. Hann sagðist hvorki
reykja né drekka. Allir settust
og fóru að spjalla saman
„Ég hef lesið mikið um list
yðar, monsieur Calbert. Mikið
hrós.“
„Þökk fyrtr.“
„Ég mála eííki; sjálfur'. en’ ég?
státa mig af því að hafa sæmi-
legt vit á list Ég von.a að þú
sért sammála, Jim?“
„Þú ert mjög fær, Victoriano.“
„Hafið þér áhuga á list, frú
Bourne?“
„Geysilegan.“
„Meðal annarra orða,“ greip
Bourne fram í. „Þú minntist á
ný málverk sem þú hefðir náð
í. Við hlökkum mikið til að
| sjá þau.“
„Býsnin öll,“ sagði Eva.
„Seinna. Mér er mikil ánægja
að sýna ykkur þau seinna. Vin-
ur minn lítur hingað inn til að
ná i bók. Hann verður ekki
nema andartak. Eftir það verð-
um við ekki ónáðuð.“
„Hvaða málverk eru það?“
spurði Jean Marie syfjulega.
Spænsk. Mig langar til að
Jim sjái þau, áður en ég læt
herra Pickett sjá þau.“
„Pickett?"
„Pickett er sá sem valdið hef-
ur þegar spænsk list er annars
vegar.“ útskýrði Boume. „Hann
var í veizlunni um daginn.“
Jean Marie sneri sér að Evu.
„Er ég að hugsa um sama |
manninn?"
„Sennilega.“
Jean Marie yppti öxlum. „Við 1
hljótum að hafa talað um
franska list. Það var að minnsta
kosti ekki hans sterka hlið.“
„Hvemig líður yður í Madrid,
frú?“ sagði dr. Munoz.
„Alveg ágætlega."
„Er þetta í fyrsta skipti sem
þér komið hingað?“
„Nei, ég hef verið hér áður
sem blaðamaður. Ég lærði
spænsku hérna“
„Er það mögulegt? Kunnið þér
spænsku?" Hann sneri máli sínu
til allra i senn „Við ættum í '
rauninni að tala spænsku." Hann
talaði lýtalausa ensku.með mjög
brezkum hreim. „Talið þér
spænsku, M’sieu Calbert?“
„Að vissu leyti. Franskan mín
er talsvert betri.“
Dr. Munoz leit á hann kyn-
legu augnaráði fyrir þessa at-
hugasemd. „Auðvitað.“ sagði
hann. Svo lifnaði yfir honum og
hann sagði: „Já. þvi ekki það?“
„Því ekki hvað?“ spurði Jean
-Marie
„Því ekki að tala frönsku?“
Hann sneri sér að Evu: „Talið
þér frönsku, frú Bourne?“
„Eins og yður þóknast, dokt-
or. Öll tungumál sem þér ósk-
ið eftir.“
Hann beit á vörina og blóð-
ið þaut fram í kinnar honum.
Dyrabjallan kom honum til
hjálpar. Hann baðst afsökunar á
frönsku og flýtti sér útúr her-
berginu.
„Mig langar mest til að kyrkja
þennan kött.“ sagði Eva.
„Já. hann er viðbjóðslegur,“
samsinnti Jean Marie. „Púha,
hvað þurfum við að vera hérna
lengi. Jim?“
„Þangað til við erum búin að
dást að nýju málverkunum,"
sagði Boume þungbrýnn. „Og
það á að dást að þeim. Það er
eins og hvert annað starf, Eva.
Skilurðu það? Þú hefur ráðið
við það sem verra var“.
„Ég skal gera það eins vel og
ég get, elskan.“
Þau heyrðu að dr. Munoz kom
inn með gestinn. Hann ýtti
manninum næstum inn á barinn.
Gesturinn reyndist vera yfirtoll-
þjónninn af Barajas flugvellin-
um. Hann starði á Evu og brosti
síðan eins og hann hefði fundið
upp gervitennumar.
„Senorita Quinn!“ hrópaði
hann hrifinn. „Þetta var
skemmtilegt og óvænt!“
Dr. Munoz sýndist glaður og
ringlaður. „Jæja, þekkizt þið?
Það var gaman.“ Allir töluðu
spænsku núna — það er að
segja þeir sem máttu mæla.
■ „Hvenær komuð þér til baka?“
spurði yfirtollþjónninn og dr.
Munoz sagði — eins og það væri
skemmtilegt grin: „Senora
Boume, má ég kynna Gómez
ofursta, tollgæzlumann á Bar-
ajas?“
Bourne leit snöggt á Evu. Hún
laut höfði.
„Senora Boume? Sem ég er
lifandi! Það hefur gengið fljótt
fyrir sig. ha?“
Eva tók við sér og talaði
hressilega: „Þér hljótið að hafa
verið verndarengill minn, of-
ursti. Hann er ekki spænskur. en
hann á heima á Spáni.“ Hún
flýtti sér að útskýra þetta fyr-
ir eiginmanninum. „Ofurstinn og
ég eigum saman leyndarmál. ást-
in. En ég get þó frætt þig á
því, að við ræddum um blessun
hjónabandsins fyrir nákvæmlega
tíu dögum — daginn áður en ég
hitti þig.“
„Leyndarmál, hvað heyri ég?“
tókst Bourne að stvnja upp.
I Ofurstinn hló "’aðlega. „Það
j var ekkert alvarlegt. það full-
yrði ég. En Ijómandi notalegt.“
Dr Munoz dró Jean Marie til
\ ofurstans. „Þetta er M’sieu Jean
Marie Calbert mjög efnilegur
franskur málari.“
Þeir tókust í hendur og á með-
an hellti dr. Munoz sherrýi í
glas handa ofurstanum. Gómez
brostj út að evrum framaní ný-
siftn M'nin. „Jæja, svo að þið
hittust í París fyrir tíu dögum?
! Að hugsa sér. Þetta líkar mér.
Þetta er sveimér skemmtilegur
endir á Evrópuferð!"
„Á Spánarferð." leiðrétti Eva
kurteislega og lyfti glasinu.
„,Skál fyrir Spáni!“ sagði hún,
þegar ofurstinn fékk glasið sitt
frá dr Munoz. Allir drukku skál-
ina nema markgreifinn. Hann
stóð álengöar og var aulalegur
á svipinn.
„Hvernig hittust þið eigin-
lega?“ spurði hann á eftir „Þú
ert nú sjálfur hálfgerður brúð-
gumi. ofursti.“ Allir hlógu vand-
ræðalega.
„Senora Bourne kom til Spán.
ar með mjög góða Velazques-
stælingu. sem ég skrásetti.“
„Reglulega góða stælingu?"
spurði Munoz. Jean Marie ein-
blíndi' á hann.
„Ég get svo sem sagt ykkur,“
sagði ofurstinn, að hún var svo
7k 'fí'i
kií: ff
4r.
I dögun héldu Ross og Þórður aftur af stað. Til þess
að forðast verðina ætluðu þeir að reyna að komast yfir
fjöllin inn í dalinn. Tóku þeir með sér vistir til nokk-
urra daga. Ijósmyndavélar og litla sendistöð. Eddy hafð)
farið á njósn áður en þeir fóru en enginn var á ferli
á bryggjunni svo að þeim tókst að komast óséðir frá
skipinu.
Við þurfum nýja
heilbrigðislöggjöf
Alþýðusamband íslands er aS-
ili að Landsambandi gegn á-
fengisbölinu og á sína fulltrúa
i þeim samtökum, og í dag 14.
cktóber er landsbaráttudagur
samtakanna og því sendi ég
Þjóðviljanum þessar línur.
Baráttan gegn áfengisbölinu
er hógvær og hljóðlát. Menn
vita að musterið mikla, mað-
urinn sjálfur, er saurgað með
áfehgiseitrinu, en þó ræðst eng-
inn þar inn með keyri og rekur
brennivínsmangarana út. Slíkir
menn fá að vinna myrkraverk-
in í friði.
Ég gekk hér einn daginn
fram hjá hópi skólabama á
aldrinum 9—10 ára. Það var
fallegur hópur, fullur heil-
brigðrar lífsgleði, og mér flaug
í hug að eftir 4—5 ár verða
salar brennivíns og annarra
eiturlyfja í umsát um þessi
böm, að draga þau sem flest
r.iður í svaðið og vissulega er
það þyngra en tárum taki.
Á öðru leitinu stendur svo
hópur manna ofurölvi. Við
samborgararnir göngum fram-
hjá og stjáklum í bezta lagi
þessum mönnum bak við ó-
hreina dulu vorkunnsemi og
kæraleysis. Þeir em fullir, grey-
in, segja menn og bera við að
yppta annarri öxlinni. Og af
illri nauðsyn em þessir sjúkl-
ingar umgengnir á strætum og
i húsum inni.
Opinberlega er áfengisneyzla
viðurkennd sem böl, og lögger-
endur ganga með hreinar hend-
ur fyrir aftan bak og láta prenta
lög sem öll fela i sér brodd
refsiákvæða. Aðrir bera hirt-
ingarvöndinn í annarri hendi
en brennivínsgróða í hinni og
beygja hné fyrir fullnægðu rétt-
læti.
Og enn er spurt um manninn
sjálfan,.- má þjóðfélagið við„ því
að glata svo mörgum mönnum,
ýmist í hliðargöturnar eða
strætin sjálf? Flestir máske
allir, mundu svara neitandi,
jafnvel þó menn brenni sig á
eigin svari. Þjóðfélagið má eng-
um manni glata í tilbúin veik-
indi.
Um áfengið og skaðsemi þess
eru til lög og til er margskipt
almenningsálit. En ég fullyrði
að hvomtveggja, lögunum og
almenningsálitinu, er þörf gagn-
gerðra breytinga, og lögin eiga
að beina leiðina, í samráði og
samstarfi við bindindishreyf-
ingar landsmanna.
Þessi lög mættu heita Ný
heilbrigðislöggjöf. En til slíkrar
lagasmíði, sem yrði að veravöl-
undarsmíði, þurfa beztu menn
að húðbyrgja 'sig og þá helzt
mennimir úr þingsölunum.
Síðan mætti boða nýjan sið
í þessum málum, þar sem mað-
urinn sjálfur, allt frá æsku.
væri kjarni lagabóstafsins, l£f
hans og lífshamingja og stefnt
yrði að útrýmingu áfengis.
En þar sem siðferðileg stofn-
mál leita sér rúms og almenn-
ingsálit rennur í kjölfar réttar
og laga, er áhrifavald þess mik-
ið. Og því verðúr vel að hyggja
að almenningsálitinu, verði sú
lögdeild samin og lögleidd sem
hér er vakið máls á.
Heilbrigðislöggjöf vegna vín-
drykkju og neyzlu eituriyfja
þarf að eiga sakartök þar sem
sýkingin fer fram. En alveg
sérstaklega verða lögin að eiga
það höfuðhlutverk að koma . í
veg fyrir að áfengra drykkja
sé neytt og kæmi þá margt til
greina. L<eysa þarf f jölmarga
menn og skemmtisamtök úr
veðböndum vanans, þar sem nú
þykir sjálfsagt að vín sé haft
um hönd í mörgum eða flestum
samkvæmum. Og væri þá fyrst
að húsbændur höfuðstöðva
brytu af sér böndin.
Allsstaðar, þar sem almanna-
fé er grunnmúr stofnana, svo
sem skóla og annarra þjóðfé-
lagslegra sameigna, á að banna
með öllu neyzlu áfengra
drykkja í dagfari fullorðinna
sem unglinga. Skólamir eiga að
beina kennslunni að hugsjón-
irmi um manninn, það er til-
gangur lærdóms og mennta. Ó-
mannlegt er að drekka frá sér
vit og siðgæði, og því verður
að beita banni í núverandi á-
standi svo menn öðlist frelsi.
En víndrykkjumenn draga nið-
ur menn og menntir í sjálfum
sér og í samfélaginu.
Samkomuhús þar sem menn
koma saman sér til skemmt-
unar eða fróðleiks, eiga að
hverfa úr eigu einstaklinga,
sem reka þau í gróðaskyni, en
færast í hendur opinbers rekst-
urs eða félaga, og eiga það
markmið að vera stofnanir
skemmtana og gleði þar sem
hið mikla og fagra í litum,
orðum og tónum skipar önd-
vegi. Listaverkin, sem nú hvíla
mörg undir lásum, væru þá
frjógjafi augans og inntak hugs-
ananna. 1 þeim húsum á á-
fengi að vera með öllu hús-
rækt, enda samrýmist það
aldrei fegurðinni.
Ef litið er á áfenglsneyzlU;. á *
heimilum og utan þeirra* sem
skaðlegan, smitandi sjúkdóm —
; og vitað er að alluii ,.sormn
dregst inn á heimilin — þá er
vissulega lækninga þörf. Og á-
reiðanlega þarf nýja heilbrigð-
islöggjöf, svo kalla megi á að-
stoð sem í hverju einu tilfelli
færi læknandi höndum um
heimilið og hyrfi ekki frá fyrr
en meinið er upprætt og heim-
ilið aftur samboðið bömum að
alast þar upp.
Oft verður að sjálfsögðu að
þreifa á málum sem stinga vin-
berann í hjartastað og hafa
hvassa brodda í allar áttir. Og
því verða heilbrigðislög að fela
í sér þá mýkt að þeir sem
framfylgja þeim, geti borið
þau við brjóst sér og átt vísan
stuðning almennings.
Ef takast mætti að losa heim-
ilin við áfengi svo slíkt þætti
til eindæma, væri mörgum
manni gefin sú lífsaðlöðun, sem
heilbrigt mannlíf er svo ríkt af
og gefur allri daglegri fram-
þróun tilgang.
Ég hef í þessari grein skrifað '
um almenningsálit og ný heil-
brigðislög sem sameiginlega
vegbeinendur út úr áfengis- ;
vandamálinu.
Og ég held að mjög margir
menn sem áfengis neyta séu
bindindismönnum sammála um
að versnandi ástand, sérstaklega
hjá ungu fólki, kalli á einhverj-
ar þær aðgerðir sem hafa í
sjálfum sér möguleikann til að
snúa við blaðinu og stefna að
útrýmingu áfengis.
Tryggvl Emilssoh.
Ctgerðarmenn! Sjómenn!
Skipaviðgerðir — Skipasmíði.
Bátaviðgerðir — Bátasmíði — Bátauppsátur.
Vönduð vinna — Vanir fagmenn.
SKIPASMÍÐMTÖBIN BARAN
Hafnarfirði. Sími 51461 og 51460.
Á