Þjóðviljinn - 27.10.1962, Blaðsíða 1
U<m næstu helgi verð-
uar hleypt af stokkun-
um skyndihappdrætti
fyrir Þjóðviljann. Að-
alvinningarnir í happ-
dræfSinu verða Land-
Rover bifreið og góð-
hestur með öllum reið-
tygjum auk fleiri eigu-
legra vinninga. Heitir
blaðið á stuðnings-
menn sína að styðja
happdrættið eftir
föngum og tryggja
með því áframhald-
andi vöxt og viðgang
Þjóðviljans. — Nánar
á 2. síðu.
MeSan samningar standa yfír hjá SÞ
Ckki þverfótað fyrir hermönnum, vopnum
og öðrum hergögnum í höfnum á Fiorída
WASHINGTON og NEW YORK 26/10 — í kvöld, þegar horfur
höfðu batnað á því, að hægt yrði að forða mannkyninu frá þeirri
ógnarhættu, sem hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna á Karíhahafi
og hafnbann þeirra á Kubu hafa leitt yfir það, bárust þær fréttir
frá höfuðborg Bandaríkjanna, að allar líkur bentu til þess að
Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að ráðast á Kúbu og stofna friðnum í
heiminum þannig í enn meiri hættu en leitt hafði af hafnbanninu.
Fréttaritari brezka útvarpsins í Washington sagði að það mætti
ráða af orðum talsmanna Bandaríkjastjórnar að „beinar aðgerðir
gegn Kúbu gætu komið til greina alveg á næstunni“.
Fréttaritarinn segir að Banda-
ríkjastjóm sé staðráðin í að sjá
til þess að þær stöðvar á Kúbu,
sem hún kallar sovézkar árásar-
stöðvar, verði lagðar niður.
„Ef innrás reynlst nauðsynlcg"
Hann bætir við að ráð Amer-
íkuríkjanna hafi lofað Banda-
ríkjastjórn fullum stuðningi ef
innrás á Kúbu reynist nauðsyn-
leg. öll þau tuttugu ríki róm-
önsku Ameríku sem Bandaríkja-
stjórn hafi leitað til í þessu sam-
bandi hafi samþykkt þessa af-
stöðu og tólf þeirra hafi lofað
Bandaríkjunum aðstoð við inn-
rásina, hermönnum, vopnum eða
herstöðvum.
„Frekarl aðgerðir réttlætanlegar“
Blaðafulltrúi bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, Lincoln White,
gaf mjög eindregið í skyn á
fundi með blaðamönmim í dag,
að Bandaríkin kynnu að ráðast
á Kúbu. Hann var spurður að
því hvort innrás á Kúbu væri
yfirvofandi og benti þá strax
á þau ummæli Kennedys for-
seta í ræðu hans á mánudaginn
að „ef árásarundirbúningur héldi
áfram á Kúbu, myndu frekari
aðgerðir (en hafnbannið) vera
réttlætanlegar".
Talsmenn forsetaembættisins
hafa tilkynnt, að ekkert bendi
til þess að Kúbumenn hafi í
hyggju að leggja niður hinar
svonefndu flugskeytastöðvar eða
hætta vinnu við þær. Þvert á
móti sé vinnu við byggingu
stöðvanna haldið áfram af full-
um krafti.
Ekki þverfótað fyrir hermönn-
um í höfnum á Florída
Algert bann hefur. verið sett
á birtingu aUra frétta í Banda-
ríkjunum af liðsflutningum hers-
ins, en fréttaritari brezka út-
varpsins segir að svo mikið lið
hafi verið flutt til hafnarborga
á Florida, aðeins rúmlega 100
km frá norðurströnd Kúbu, að
þar verði hvergi þverfótað fyrir
hermönnum, vopnum og hvers-
kyns hergögnum.
Háværar kröfur um innrás
í blöðum og á þingi
Fréttir af þessum stríðsund-
irbúningi Bandaríkjanna gegn
Kúbu koma ekki alveg á óvart
Franska fréttastofan AFP sagði
í fyrradag að bandaríska herfor-
ingjaráðið hefði um daginn setið
á fundi til að leggja á ráðin um
innrás eða loftárásir á Kúbu.
Útbreidd bandarísk blöð. eins
og Daily News í New York
hafa krafizt þess að látið yrði til
skarar skríða gegn Kúbumönn-
um og í gær lýsti einn helzti á-
hrifamaður demókrata, leiðtogi
þeirra í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings og fulltrúi í flokks-
stjóminni, Hale Boggs, yfir þvi,
að ef hinar svonefndu árásar-
stöðvar á Kúbu yrðu ekki lagð-
ar niður, þá ættu Bandaríkin
SlökkviiiSsmenn brennast
við slökkvistarf - 12. síða
pl§H
■■ - ■- <-
wmm
;íí: :.
isíííí:
;::V:
iii
Bandaríkin hafa stórcflt her sinn í flotastöðinni í Guantanamo á austurströnd Kúbu síðustu daga.
Hér sjást hermenn úr landgönguliði flotans koma þangað. Verða þeir nú sendir gegn Kúbumönnum?
sjálf að sjá til þess að þær yrðu
eyði'lagðar.
Meðan samningar standa yfir
Þó munu fæstir hafa gert ráð
fyrir að Bandaríkjastjóm myndi
sýna Sameinuðu þjóðunum svo
algera fyrirlitningu að undirbúa
hemaðarárás á Kúbu og láta
talsmenn sína gefa í skyn að
slík árás sé yfirvofandi, ein-
mitt sama daginn og viðræður
hófust milli Ú Þants frám-
kvæmdastjóra og deiluaðila.
Ú Þant ræddi í dag við þá
Stevenson, fulltrúa Bandaríkj-
anna hjá SÞ, og Sorin, fulltrúa
Sovétríkjanna, til að reyna að
finna grundvölj fyrir samninga-
viðræðum um lausn deilunnar.
Sovétstjórnin verður enn við
tilmælum Ú Þants
Eftir miðnætti fékk Ú Þant
svar frá Krústjoff forsætisráð-
herra við tilmælum sem hann
hafði sent honum fyrr um dag-
inu. Hann hafði mælzt til þess
við Krústjoff að sovézk skip
yrðu um stundarsakir ekki lát-
in sigla inn á það hafsvæði við
Kúbu þar sem bandarísku her-
skipin eru. Krústjoff segir í svari
sínu að öll so.vézk skip sem vom
á leið til Kúbu hafi fengið fyrir-
mæli um að fara fyrst um sinn
ekki inn á hafnbannssvæðið.
Kennedy Bandaríkjaforseti
FramhaJd á 3. síðu.
★ Almenni borgarafundur-
inn um Kúbu, sem Sósíal-
istafélag Reykjavíkur hefur
boðað til í Háskólabíói á
morgun, hefst kl. 2 síðdegis.
Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Sýnd verður á fundinum
ný kvikmynd um bylting-
una á Kúbu, framúrskarandi
mynd, sem hinn heimskunni
sovézki kvikmyndagerðar-
maður Karmen hefur gert
Á 2. síðu blaðsins í dag ritar
Magnús Jónsson um kvik-
myndina, en Magnús hefur
stundað nám í kvikmynda-
gerð í Sovétríkjunum undan-
farin ár og Karmcn, höfund-
ur Kúbumyndarinnar sem
sýnd verður á morgun, verið
eimi kennara hans. Þess skal
getið, að Jón Múli Árnason
flytur skýringar á íslenzku
með kvikmyndinni.
★ Magnús Kjartansson fór
sem kunnugt er til Kúbu í
sumar í boði byltingarsam-
takanna þar. Dvaldist hann á
Kúbu um fimm vikna skcið,
ferðaðist um Iandið þvcrt og
endilangt, 6—7.000 kílómetra,
ræddi v5ð fjölda fólks, þar á
meðal ýmsa helztu forystu-
menn byltingarinnar og afl-
aði sér heimilda um sögu og
árangur byltingarinnar. Fyrir
noklcrum dögum íauk Magn-
ús við handrit að bók um
byltinguna á Kúbu og er hún
væntanleg í bókabúðir í
næsta mánuði.
★ Á fundinum í Háskólabíói
á morgun mun Magnús
greina frá ýmsu sem fyrir
augu og eyru bar á Kúbu og
fjalla sérstaklega um þau á-
tök Kúbustjórnar og Banda-
ríkjastjórnar sem náð hafa
hámarki með ofbeldlisverkum
bandaríska flotans í Karíba-
hafi.
HALDINN í HÁSKÓLABÍÓI Á MORGUN