Þjóðviljinn - 02.11.1962, Síða 5
'östudagur 2. nóVember 1962
ÞJÓPVILJINN
SÍÐA
Skattastefna stjórnarinnar er
ein aðalorsök verðbólgunnar
ÞINCSJÁ ÞJÓÐVILJANS
• í gær fór fram önnur umræða 1 efri deild
um framlengingu nokkurra laga og er þar fyrst
og fremst um að ræða framlengingu bráðabirgða-
ákvæða um tolla og skatta.'
• Björn Jónsson flytur þá breytingartillögu við
frumvarpið, að niður skuli falla 8% viðbótarsölu-
skatturinn, sem ríkisstjórnin lagði á innfluttar
vörur í febrúar 1960.
• I umræðunum í gær rakti Björn í megin-
dráttum stefnu núverandi ríkisstjórnar í skatta-
málum og fer fyrri hlutinn af ræðu hans hér
á eftir.
Stefna hv. rikisstjómar í
skattamálum liggur ákafléga
ljós fyrir, þegar athugaðar eru
aðgerðir hennar í þeim málum
og afleiðingar þeirra.
Söluskattur hækkað-
ur um 114%
Stjómin lét það verða sitt
fyrsta stórvirki næst á eftir
gengisfellingunni miklu í febr-
úar 1960 að leggja nýjan,
almennan, 3% söluskatt á sölu
allra vara og allrar þjónustu
í landinu og með sömu lögum
var söluskattur af innfluttum
vörum hækkaður um 114°/0 úr
7,7°/( í 16,5%. Á því sama þingi,
sem þessu var til leiðar komið,
yar svo hinn stighækkandi
tekjuskattur lækkaður, stig-
hækkunin minnkuð stórkostlega
til hagsbóta fyrir hina tekju-
hæstu jafnframt því sem óveru-
legustu upphæðir tekjuskattsins
af hinum tekjulægstu voru
skornar af.
Skattur félaga og fyrir-
tækja lækkaður
Á síðasta Alþingi var svo
tekjuskattstigi félaga og fyrir-
tækja lækkaður um 20°/( og
skattfrjálsar arðgreiðslur þeirra
auknar um 25°/( og ákveðnar
nýjar fymingarreglur þeim tii
hagsbóta. Jafnframt þessum
breytingum i skattalögum hefur
svo útsvarslöggjöfinni verið
breytt tvívegis í þá átt að
minnka stighækkunina í álagn-
ingu og taka upp söluskatta
sem tekjustofna fyrir sveitarfé-
lögin.
Horfið frá grundvallar-
s.iónarmiðum vel-
ferðarríkisins
Þessar stórfelldu breytingar
hafa allar stefnt í eina átt, þ.
e a. s. þá, að hverfa í stöðugt
ríkara mæli frá því að nota
skattkerfið að einhverju leyti
tii auðjöfnunar og tekjujöfnun-
ar, hverfa frá því að láta þá
bera þyngstu byrðarnar, sem
mést hafa gjaldþolið og létta
é þeim sem skarðastan hlut
bera frá borði í lífsbaráttunni.
hverfa sem sagt frá grundvall-
arsjónarmiðum velferðarríkis-
T>vrtfðarflóðið magnað
með skattastefnunni
Afleiðingar þessarar stefnu
liggja einnig nokkuð ljósar fyr-
ir. Hún hefur verið, næst geng-
isfellingunum, mikilvirkust til
þess að spenna upp í sífellt
auknum mæli og með vaxandi
hraða allt verðlag í landinu.
svo að dýrtíðarskriðan hefur
aldrei fallið hraðar en nú. Á
sl. ári hækkaði vísitala fram-
færslukostnaðar um 12 stig og
á þessu ári verður álíka hækk-
un. Vísitala vöru og þjónustu
stendur nú í 141 stigi, þ. e. a. s.
verðlag hefur hækkað í tíð nú-
verandi ríkisstjórnar um 41%,
sem er vafalaust met á jafn-
skömmum tíma. Og hvergi örl-
ar á því að hv. ríkisstjórn
hyggist hreyfa hönd að því að
hefja viðnám gegn þeirri óða-
dýrtíð, sem hún hefur hleypt
af stað.
Ekki áhusi fyrir kjara-
bótum í formi
^fífðlækkana
Áhugi hennar beinist allur að
því að halda launakjörunum
niðri og hindra það að almenn-
ingur fái dýrtíðina bórna uppi
með hækkuðum launum, en
lætur hins vegar sem vind um
eyru þjóta allar þær marggefnu
aðvaranir og óskir sem verka-
lýðssamtökin hafa beint til
hennar og borið fram við hana
um kjarabætur í formi verð-
lækkana, m. a. með lækkun
söluskatta, en að slíkum kröf-
um hafa launþegasamtökin hvað
eítir annað staðið algerlega ein-
huga og boðizt til að meta allar
slíkar ráðstafanir fullkomlega
ti' jafns við beinar launahækk-
anir.
TTækkun skat+heirat-
•itinnr "eraur rúmum
"í’linrði
Ég hygg að enginn, jafnvel
ekki hv. rikisstjóm, neiti því að
skattastefnan, sem hún hefur
mótað, eigi sinn mikla þátt t
þeirri geysilegu aukningu dýr-
tíðar, sem orðin er frá því áð
hún komst til valda, enda
naumast hægt um vik. Tölur
fjárlaga fyrir „viðreisn” og nú
tala þar of skýru máli, bæði
hvað snertir heildarupphæð
skattheimtunnar og þá ekki síð-
ur um þá gerbreytingu, sem
orðið hefur á tekjustofnum.
Meðal þeirra staðreynda. sem
þar blasa við eru þær, að hei’d-
arupphæð skatta og tolla hefur
hækkað frá 1959 til 1963 miðað
við fjárlög ’59 og framlagt fjár-
lagafrumvarp fyrir árið 1963
um hvorki meira né minna en
1.007 millj. kr„ — eða um 123%,
úr 778,6 millj. kr. í 1.785,6
niillj. kr.
bækka
’ira 319%
Á sama tíma hefur orðið sú
breyting á að söluskattar sem
lagðir eru jafnt á allar vörur.
nauðsynlegar sem ónauðsynleg-
ar, hafa hækkað um 484,2 millj.
kr., — úr 151,4 millj. kr. í
635,6 millj. kr„ eða um 319%,
þ. e. a. s. nærri þrisvar sinnpm
meir en heildarupphæð skatt-
heimtunnar hefur hækkað. <
Upphæð tekjuskattsins er nú
áætluð sem næst óbreytt að
krónutölu frá 1959, en hlut-
fall hans í skattheimtunni hef-
ur á tímabilinu lækkað þannig
að samkvæmt fjárlögum 1959
var hann áætlaður 17—18% af
heildarupphæðinni, en varð
í reynd rösk 20%, eða 1/5 hluti
hennar en nú er gert ráð fyrir
að hlutur tekjuskattsins verði
rösk 8%„ þ. e. a. s. miðað við
sama hlutfall og var 1959
væri tekjuskatturinn nú 350—
360 millj. kr. Hlutfallsleg lækk-
un hans nemur því röskum 200
millj. kr.
Gildasti þáttur verð-
benslunnar
Hækkun heildarskattheimt-
unnar um 1 milljarð á 4 árum
hækkun söluskatta um á 4.
hundrað % er svo augljóslega
einn gildasti þáttur verðþensl-
ur.nar, og þar með í rýrnun
almennra lífskjara á þessu tíma-
bili, að ekki þarf orðum að
því að eyða. Þegar svo er til
stofnað að öllum meginþunga
skattheimtunnar er beint yfir
á almenna neyzlu landsmanna,
þá getur afleiðingin ekki orðið
nema á einn veg: verðþensla.
dýrtíð, skertur kaupmáttur
launa, nema laun hækki hlut-
fallslega, en við því hefur ver-
ið spornað með öllum ráðum.
Kauphækkanirnar ná
ekki að bæta helming
''ækkananna
Þær kauphækkanir sém
verkalýðssamtökunum hefur
tekist að knýja fram á tíma-
bili viðreisnarinnar gera ekki
betur en að bera uppi helm-
inginri af verðhækkupinni og
er þá sleppt þeim kauphækk-
unum serri stjóm Alþýðuflokks-
ins gekkst fyrir og löfesti ár-
ið 1959.
Haldlaus kjörorð
Það leiðir svo af sjálfu sér að
launamenn tiafa algerlega verið
sviptir þeim eðlilegu kjarabót-
um sem aukning bjóðartekna
og framleiðslu hefur gefið til-
efni til á þessu tímabili. Kjör-
orðin um árlegar raunveruleg-
ar launahækkanir um 3—4%
á grundvelli aukinnar fram-
leiðslu og framleiðni hljóta að
vera beisk í munni þeirra, sem
Þingfundir í gær
Fundir voru í gær í báðum
deildum Alþingis. 1 efri deild
var til umræðu frumvarp tii
iaga um bráðabirgðabreyting
og framlengingu nokkurra iaga,
og er nánar vikið að þeim um-
ræðum hér á síðunni.
1 neðri deild voru til umræðu
eftirtalin mál: Hámarksþóknun
fyrir verkfræðistörf (staðfesting
bráðabirgðalaga). frumvarp til
laga um framlengingu skemmt-
anaskattsviðauka, frumvarp til
laga um staðfesting á Norður-
landasamningi um innheimtu
meðlaga, frumvarp til laga um
breyting á lögum um félags-
heimili og frumvarp til laga
um Búnaðarmálasjóð (fram-
lenging skatts af söluvörum).
Hámarksþóknun fyrir
verkfræðistörf
Ingólfur Jónsson, landbúnað-
arráðherra, (Ihald) fylgdi frum-
-varpinu úr hlaði. Taldi hann.
að brýn nauðsyn hefði verið á
að gefa út bráðabirgðalög bau.
sem hér lægju fyrir til stað-
festingar. bar sem gjaldskrá
Verkfræðingai-
félagsins hefði
ella tekið gildi.
Taldi ráðherr-
ann að það
hefði þýtt frá
109 til 320%
hækkun á
kaupi verk-
fræðinga og hefði leitt til stór-
aukinna útgjalda og jafnvel
vandræða. Einnig hefði hann
heyrt á mörgum verkfræðing-
um, að þeir væru óánægðir með
gjaldskrána og hefðu talið
bráðabirgðalögin eðlileg. Fækk-
un verkfræðinga af þessum
sökum hefði þó verið til nokk-
urs baga, en allar framkvæmd-
ir hafa þó gengið eðlilega,
þrátt fyrir þetta, sagði ráð-
herrann.
Málinu var vísað til annarr-
ar umræðu og nefndar.
Framlenging skemmtana-
skattsviðauka
Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra. (Alþfl.) mæl*'
fyrir frumvarpi um framleng-
Blokkþvingur til sölu
Upplýsingar að Ármúla 20.
Sími 32400.
ingu skemmtanaskattsviðauka.
Sagði hann, að
frumvarpið
gerði einungis
ráð fyrir að
heimila fram-
lengingu
skemmtana-
skattsviðauk-
ans um eitt
ár enn á sama hátt og gert
hefði verið undanfarin ár.
Málinu var vísað til annarr-
ar umræðu og nefndar.
Norðurlandasamningur
um innheimtu meðlaga
Frumvarpið um staðfestingu
Norðurlandasamnings um þetta
efni var samþykkt samhljóða
án umræðna og sent efri deild
til athugunar.
Breyting á lögum
um félagsheimili
Halldór Ásgrímsson, (Frams.)
fylgdi úr hlaði frumvarpi, sem
þingmenn Austurlandskjördæm-
is flytja um
breyting á lög-
um um félags-
heimili, er
gerir ráð fyrir
að heimila rík-
inu að greiða
allt að 50% af
byggingar-
kostnaði slíkrá
heimila undir vissum kringum-
stæðum (Nánar hefur verið
skýrt frá málinu í blaðinu áð-
ur). Mál þetta hlaut ekki af-
greiðslu síðasta þings vegria
þess hve seint það kom fram,
en menntamálanefnd mælti þá
einróma með samþykkt þess.
Málinu var vísað til annarr-
ar umræðu og nefndar.
Framlenging skatts til
Bændahallarinnar
Gunnar Gíslason, (Ihald)
mælti fyrir frumvarpi um
franilengingu skatts af söluvör-
um bænda
vegna Búnað-
''rbyggingar-
innar í Rvík.
Tók hann
fram, að mál-
ið væri flutt
af landbúnað-
amefnd eftir
tilmælum Búnaðarfélags ís-
lands o.fl. en nefndarmenn
hefðu óbundnar hedur um af-
stöðu til málsins.
Málinu var vísað til annarr-
ar umræðu og nefndar.
Dtgefandi: Sameiningarflokkur aiþýðu — Sósiaiistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Magnús Kjartanssön. Magnús Torfi Ölafsson.
Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjórar: tvar H Jónsson. Jón Bjamason.
Ritstjóm. afgreiðsla. augiýsingar. prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kr 65.00 á mánuði.
Ofbeldlstrú
J^eitun mun að ríkisstjórn sem komið hefur
. fram jafn klaufalega og óskynsamlega gagn-
vart launastéttum og launamálum og núverandi
stjórn íhalds og krata. Gagnvart alþýðu manna
hefur ekki gengið á öðru allt kjörtímabilið en
árásum á launakjör og lífskjör, hvað eftir ann-
að hefur verið ráðizt gegn gildandi launasamn-
ingum stéttarfélaga og þeir ómerktir með vald-
boði þingmeirihluta Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins, eða með ofbeldislegum bráða-
birgðalögum. Ríkisstjórnin hefur talið sig eins
konar herforingjaráð afturhalds og gróðabrall-
ara landsins í stríði þeirra gegn kjörum og rétt-
indum alþýðunnar. Þannig hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn alltaf komið fram, stjórn hans og
valdamenn hafa rekið flokkinn sem pólitísku
hliðina á samtökum hinna svonefndu atvinnu-
rekenda. Hitt er enn ýmsum undrunarefni að
Alþýðuflokkurinn skuli lána íhaldinu þá þing-
menn sem vantar í þinumeirihluta til að reka
slíkan hérnað' gégri alþýðufólki.
Afleiðingin af hernaði stjórnarinnar gegn al-
þýðu manna og raunar launastéttum almennt
hefur líka verið meiri ókyrrð í vinnumálum en
ofstast nær í seinni tíð. Ríkisstjórnin hefur lát-
ið skrifa óteljandi greinar og halda enn fleiri
ræður um blessun þess að „taka vísitöluna úr
sambandi", með því átti sem kunnugt er að
stöðva „kapphlaupið milli kaupgjalds og verð-
lags“. Með þessu var í raun réttri verið að svipta
verkalýðshreyfinguna árangri af langri baráttu
til að tryggja að nokkrum mæli umsamið kaup-
gjald verkamanna fyrir braski yfirvaldanna með
dýrtíð og verðhækkanir. Enda hefur steininn
tekið úr síðan ríkisstjórn íhalds og krata afnam
þetta ákvæði í kjarasamningum, ríkisstjómin
hefur sett met í skipulagningu óðadýrtíðar með
tvennum geneislækkunum, skattaráni og meira
og minna eftirlitslausri álagningu. Verkalýðs-
félög hafa neyðzt til þess að segja upp samning-
• um, stundum tvisvar á ári, til að reyna að verja
félaga sína fyrir þessum hernaðaraðgerðum rík-
isstjórparinnar.
j£nn er í minni að ríkisstjórnin sveik svo lengi
öll loforð um bætt kjör kennara og annarra
opinberra starfsmanna að kennararnir gripu
loks til þess örþrifaráðs að segja upp, svo við lá
alger kennaraskortur um allt land. Þá loks
neyddist ríkisstjórnin til að láta nokkuð undan.
Nú hefur þessi sama ólánsríkisstjórn stefnt mál-
um í algjört öngþveiti með bjánalegri s'tirfni
við lækna. Einnig hér virðist ríkisstjórn íhalds
og krata trúa á, að hægt sé að leysa öll vanda-
mál með valdboði og þjösnaskap. Hún mun einn-
ig í því máli, ekki síður en með gerðardómsof-
beldið í sumar, reka sig á að þannig er ekki
til frambúðar hægt að koma fram við íslenzka
þegna, og væri æskileg't að hún lærði þau sann-
indi áður en stórvandræði hljótast af. — ",
á *