Þjóðviljinn - 21.12.1962, Qupperneq 1
ÞRiR DAGAR
pið á Þórsgötu 1 fró ki. 10 til 10 (1. hœð)
Símar 19113 og 22396
Lífskiarabót Gylfa
I janúar 1959 var tímakaup
Dagsbrúnarmanns kr. 23.86 í
dagvinnu. Þá fengust 38
strætisvagnamiðar fyrir 50 kr.
og Dagsbrúnarmaður var 2
klukkustundir og 6 mínútur
að vinna fyrir þeim miðum.
Nú er tímakaup Dagsbrún-
arverkamanns kr. 24.80. Fyrir
50 kr. fást nú ckki nema 22
strætisvagnamiðar. Til þess
að kaupa 38 miða — eins og
fyrir tæpum fjórum árum —
þarf Dagsbrúnarverkamaður
því að vinna 3 klukkutíma
og 29 mínútur. Hann þarf
að bæta við sig nærri hálf-
um öðrum klukkutíma.
En auðvitað hefur Gylfi í».
Gíslason engar áhyggur af
þessari lífskjarabót. Hann er
nýbúinn að fá á kostnað rik-
isins dýrustu gerð af Buick
sem framleidd er í Banda-
ríkjunum. Bíllinn mun hafa
kostað nærri hálfa milljón, og
verkamcnnirnir sem kaupa
strætisvagnaspjöldin verða
auðvitað að leggja eitthvað i
sölurnar fyrir ráðherra sinn.
Fjárhagsóœtlun Reykjavíkurborgar afgreidd á löngum nœturfundi
Helmingur
borgarinnar
eigu
• Á fundi borgarstjórnar í gær fór fram síðari
umræða og afgreiðsla fjárhagsáætlunar Reykja-
víkurborgar fyrir árið 1963. Stóð fundurinn fram
á nótt og var ekki lokið er blaðið fór í prentun.
Alfreð Gíslason læknir
hafði framsögu af hálfu
borgarfulltrúa Albvðu-
Árekstrar og
slys á gler-
hálum götum
Mikil hálka var á götunum
í gær og allmikiið um árekstra.
Á þriðja tímanum síðdegis
í gær varð harður árekstur á
mótum Suðurlandsbrautar og
Miklubrautar en meiðsli urðu
ekki teljandi á mönnum, þó mun
kona sem var farþegi í öðrum
bílnum haía meiðzt eitthvað á
fæti. Skömmu síðar var ungur
drengur fyrir bifreið á Miklu-
braut en hann mun hafa slopp-
ið lítt meiddur. Bæði þessi slys
urðu vegna hálku. Þriðja slys-
ið í gærdag varð á fimmta tím-
anum á móts við húsið nr. 25
við Laugaveg. Þar varð þriggja
ára gamall drengur, Snorri
Pálmason, Lindargötu 28, fyrir
sendiferðabifreið. Hafði drengur-
inn hlaupið út á milli bifreiða
sem stóðu kyrrar á vinstri ak-
rein götunnar og lent á sendi-
bílnum sem ók í sama mund
eftir hægri akreininni. Lenti
Snorri litli á hlið bílsins, en
mun ekki hafa fallið undir hann
og við athugun á Slysavarðstof-
unni voru alvarleg meiðsl ekki
firmanleg.
bandalagsins fvrir brevt-
ingartillögum beirra við
fjárhagsáætlunina, en
helztu atriði beirra voru
birt hér í blaðinu í gær.
Miðuðu tillögurnar að
hækkun á tekjum borgar
sjóðs svo op snarnaði í
rekstri og skvldi bví fé
er bannig fengist til ráð-
stöfunar varið til auk-
inna bvcroincrafram-
kvæmda og til menning-
ar- og mannúðarstarf-
semi.
Gelr Hallgrímsson borgarstjóri
mælti fyrir breytingum, er
borgarráð samþykkti á fundi í
gærmorgun að mæla með að
gerðar yrðu á fjárhagsáætlun-
inni. Eru hinar helztu þeirra
þessar:
Framlag til sumardvalar fyrir
mæður og börn hækki úr 400
þús. kr. í 500 þús. kr. Til barna-
heimila verði varið kr. 7,5 millj.
í stað 6 millj Framlag til Bygg-
ingarsjóðs Reykjavíkur hækki
um 1 millj. kr. eða úr 9 millj.
I 10 millj. kr. Aðstöðugjald
verði áætlað 61 millj. kr. í stað
60 milljóna eða hækki um 1 millj
króna.
Þá lýsti borgarstjóri að hann
flytti þá tillögu, að framlag úr
Jöfnunarsjóði yrði áætlað 1
milljón króna hærra en gert var
fyrir í frumvarpinu að fjárhags-
áætluninni.
Alfreð Gíslason gerði því næst
grein fyrir breytingartillögum
fulltrúa Alþýðubandalagsins og
þeim ályktunartillögum er hann
flytur og birtar hafa verið hér
í blaðinu.
6,9 millj. kr. tekjuhækkun.
. Alfreð gerði fyrst grein fyrir
tekjuhækkunartillögunum. Er
þar annars vegar ura að ræða
hækkun nokkurra liða um sam-
tals 900 þús. kr. þar sem reynsla
undanfarinna ára sýnir, að þeir
eru of lágt áætlaðir. Hins veg-
ar er um að ræða hækkun að
eins og frá var skýrt hér í blað-
inu í gær,
10,2 millj. kr. sparnaður
Lækkunar- og sparnaðartil-
lögur fulltrúa Alþýðubanda.
lagsins nema aUs 10,2 millj. kr.
Miða þser að sparnaði í rekstri
borgarinnar og fyrirtækja henn-
ar, lækkun skrifstofukostnaðar,
aukinni hagkvæmni í störfum
og niðurfellingu liða er óþarfir
mega kallast, svo sem framlag
til kirkjubygginga og almanna-
varna Færði Alfreð rök fyrir
því, að meira væri um vert
eins o.g ástandið er nú í húsnæð-
ismálum að koma börnum sem
nú búa í heilsuspillandi húsnæði
í sómasamlegar íbúðir en að
byggja kirkjur og ennfremur, að
Ánceggah
skín af hverju
andlHi
stöðugjaldsins um 6 millj. króna framlag af bæjarins hálfu til al-
mannavarna á næsta ári væri
óraunhæft, þar eð málið væri
enn aðeins á athugunarstigi og
bærj ríkinu að kosta það.
17 millj. kr. hækkun til
framkvæmda.
Þá rakti Alfreð tiUögur Al-
þýðubandalagsins um aukin
framlög borgarinnr til menning-
armála og tilbyggingar skóla.
barnheimila svo og til Bygging-
arsjóðs Reykj avíkurborgar, en
þeim tillögum öllum var lýst
hér i blaðinu í gær. Nemur
hækkunin til menningar- og
mannúðarstarfsemi alls 3,7
millj. króna en fil byggingar-
frmkvæmdanna samtals 13,4
milljónum.
Alfreð benti á, að til heil-
Framhald á 4 síðu.
★
★
★
★
★
★
★
★
★
ir
★
★
★
-k
★
★
Það er greinilegt, að ungu
áhorfendumir á myndinni
fylgjast af mikilli athygli
og ósvikinni ánægju með því
sem fram fer. Myndin var
tckin í Vesturbæjarskóla við
öldugötu á dögunum, er
8—9 ára gömul böm sóttu
jólaskemmtun þar í skólan-
um. Frá þessari skemmtun
er nánar sagt á 2. síðu og
þar em birtar fleiri myndir,
en þær allar og þessa hér
á forsíðunni tók ljósmynd-
ari Þjóðviljans, Ari Kára-
son.
Hcekkar um
rúmar sjjö
millj. króna
Akureyri 19/12. — A fundi
bæjarstjómar Akureyrar 17. des.
var lögð fram • fjárhagsáætlun
bæjarins fyrir árið 1963. Niður-
stöðutölur eru upp á 44.5 millj-
ónir króna. (1 fyrra: 37,2 millj.j.
Útsvör og aðstöðugjöld eru á-
ætluð 33.8 millj. kr. (1 fyrra
28,5. Hækkun 18%), Vonir standa
Framhald á 4 síðu.
Ihald og kratar fella f járfram-
lag til öryggismála sjómanna
Við afgreiðslu fjárlaganna
hafa þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins og Alþýðuflokkslns tvíveg-
is fellt tillögu um nokkurt fjár-
framlag til að fylgzt verði dag
lega með ferðum íslenzkra fiski-
skipa. Svo illa voru menn hand-
járnaðir, að me'ira að segja
voru sex þlngmenn
íhaldsins, sem sjálfir hafa
flutt þingsályktunartillögur um
málið, látnir segja NEI við fjár-
veitúngu til þessarar sjálfsögðu
slysavarnaráðstöfunar.
Karl Guðjónsson flutti við 2.
umræðu fjárlaga tillögu um
fjárveitingu í þessu skyni, sem
íhaldið og Alþýðuflokkurinn
felldu. Nú við þriðju umræðuna
tók Karl tillöguna upp að nýju
en með nokkru lægri upphæð,
200 þúsund krónum.
Nafnakall var um tillöguna,
og kom fram að henni greiddu
atkvæði allir viðstaddir þing-
menn Alþýðubandalagsins og
Framsóknar, en hver einasti
viðstaddur þingmaður Sjálfstæö-
isflokksins og Alþýðuflokksins
greiddu atkvæði á móti þessari
sanngjörnu og sjálfsögðu tillögu.
(Guðm. I. var einn fjarverandi)
Meðal þeirra sem felldu þessa
tillögu voru, eins og fyrr segir,
flutningsmenn þingsályktunartil-
lögunnar um þetta efni, íhalds-
þingmennimir Pétur Sigurðsson,
Matthías Á. Mathiesen, Einar
Ingimundarson, Guðlaugur Gísla-
son, Jón Arnason og Gísli Jóns-
son.
Með því að samþykkja fjár-
veitingu í þessu skyni hefði mál-
ið getað komið til framkvæmda
þegar á þessum vetri, til stór-
aukins öryggis fyrir sjómenn.
Og fylgi þessara sex íhaldsþing-
manna hefði meira en nægt til
þess að þessi fjárveiting hefði
verið samþykkt í gær.