Þjóðviljinn - 21.12.1962, Qupperneq 2
2 SlÐA
ÞJÓÐVILJINN
Föstiidagur 21. desember 1962
bve gott og fagurt * l
A JÖLASKEMMTUN í
Skyrátiö.
Jólaleyfin í skólunum eru
haíin. Síðustu dagana hafa
yngri og eldri nemendur sótt
jólaskemmtanir hver í sínum
skóla Margar þeirra hafa
kostað mikinn undirbúning
nemenda og kennara, ekki
hvað sízt skrautsýningar í
báðum skólunum þar sem
húsrými er mest.
Við Þjóðviljamenn töldum
rétt að líta á „litlu jólum“
inn í einn bamaskólanna i
Reykjavík, þar sem þröngt
húsnæði sneið jólaskemmtun-
um stakk, en bömin skemmtu
sér engu síður en þar sem
húsnæðið var rýmra og íburð-
urinn meiri.
Þetta var í Vesturbæjar-
skóla, öðru nafni öldugötu-
skólanum í gamla stýri-
mannaskólahúsinu við öldu-
götu. Þangað komu skóla-
bömin til jólaskemmtunarinn-
ar á þriðjudag, hin eldri, 8
og 9 ára, árdegis, hin yngri, 7
ára og einn 8 ára bekkur,
síðdegis. Fyrst söfnuðust
bömin hvert í sína kennslu-
stofu, þar sem kennarinn
sagði sögu, en síðan kom all-
ur hópurinn saman í stærstu
stofunni í skóiahúsinu. Þar
voru sungin jólalög og farið
í leiki — og var hin mesta
kátína ríkjandi. Minnast má
á fáein skemmtiatriðanna:
Tvær telpur sýna leikþáttinn
„í búðinni": Kápuklædd kona
með hatt kemur í verzlun og
biður um kartöflur. — Já,
segir afgreiðslustúlkan, ég á
hér ágætar kartöflur og kost-
ar stykkið eina krónu. Ágætt,
segir viðskiptavinurinn, ég
ætla að fá hundrað kartöflur.
Síðan byrjar búðardaman að
telja kartöflumar í poka: 1. 2,
3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, — hvemig
er það, áttu ekki bráðlega
stórafmæli? spyr hún konuna.
Jú, svarar konan, ég verð 25
ára bráðum. Já einmitt, segir
afgreiðslustúlkan, og heldur
síðaná fram að telja kartöfl-
umar, en byrjar nú á tölunni
26 og heldur svo áfram. Með
því að koma að 45 ára afmæli
mömmu viðskiptakonunnar og
síðar níræðisafmæli ömmunn-
ar tekst búðarstúlkunni fljót-
lega að hækka töluna á kar-
töflunum og verða ekki marg-
ar í hundraði þegar talningu
lýkur, en viðskiptavinurinn
lætur það gott heita: — Þetta
er víst alveg rétt hjá þér, seg-
ir hún, ég fylgdist með þegar
þú taldir. — Þótti krökkun-
um gaman að þessum frum-
lega afgreiðslumáta á kartöfl-
unum, en fannst þeim við-
skiptavinurinn ekki of eftir-
tektarsamur. Þama gerðist
það líka, að stelpur kepptu
í skyráti, en skyrið urðu þær
að éta með hendur bundnar á
bak aftur og án þess að hafa
nokkuð til þess nema munn-
inn!
Þá var það atriði, að stelp-
ur reyndu með sér, hver
þeirra yrði snörust að klæðast
nnælonsokkum — með tvenna
eða þrenna þykka belgvett-
linga á höndum!
Búðarleikurinn.
!
I
Hollenzkar
kdpur
með skinnum
kvöldkjolar
Hattar
Töskur
Hanzlt^r
Tilvaldar jólagjafir
MARKAÐURINN
Laugaveg 89.
Muniö
gjafakortin
góð jólagjöf!
MARKAÐURINN
Laugaveg 89.
Sokkavafstrið.
• ISLENZKIR
• FRANSKIR
• ENSKIR
Karlmannaskór
nýkomnir í miklu úrvali
M JÖG
GOTT
VERÐ !
Skóverzlun Péturs Andréssonar,
Laugavegi 17 og Framnesvegi 2.