Þjóðviljinn - 21.12.1962, Qupperneq 5
♦
Föstudagur 21. desember 1962 --------------- *------------- Þ.TÓÐVIL.TINN
Vér getum með góðri samvizku mæit með þessum
bókum við þá sem vilja gefa vinum sínum fagra
gjöf, sem verður jafnverðmæt eftir jál og fyrirjól:
NÝJAR BÆKUR
Einar Olgeirsson: Vort land er í dögun —
Verð ib. kr. 240.00.
Magnús Kjartansson: Byltingin á Kúbu —
Verð ib. kr. 220.00
Friðrik Þórðarson: Grískar þjóðsögur og
ævintýri — Verð ib. kr. 220.00
Rannveig Tómasdóttir: Andlit Asíu. Ferðasaga
— Verð ib. kr. 260.00
Gunnar Renediktsson: Skriftamál uppgjaía-
prests — Verð ib. kr. 210.00
Stefán Jónsson: Vegurinn að brúnni
skáldsaga — Verð ib. kr. 350.00
Halldór Stefánsson: Blakkar rúnir. Smásögur
— Verð ib. kr. 190.00
Sverrir Kristjánsson: Ræður og riss —
Verð ib. kr. 240.00
Jóhannes úr Kötlum: Öljóð — Verð ib.
kr. 240.00
Tvær kviður fornar Völundarkviða og Atla-
kviða. Með skýrincrum eftir Jón Helgason —
Verð ib. kr. 240.00
Jón Helgason: Tuttugu erlend kvæði og einu
betur — Þýdd og stæld.— Verð ib. kr. 230,00
Þórbergur Þórðarson: I Unuhúsi. Skrásett eftir
Stefáni frá Hvítadal — Verð ib. kr. 180.00
Jónas Árnason: Sprengjan og pyngjan. Greinar
og ræður — Verð ib. 170,00.
Þorsteinn frá Hamri: Lifandi manna land
— Verð ib. kr. 120.00.
SfGILDAR BÆKUR eftir íslenzka höfunda
Jónas Hallgrímsson: Kvaeði og sögur
með fo.rspialli eftir Halldór Kiljan
Laxness, í bókinni eru tólf Ijósprent-
aðar myndir af eiginhandarritum Jón-
asar. — Verð í alskinni kr. 300.00.
Jóhann Jónsson: Kvæði og ritgerðir.
Halldór Kiljan Laxness sá um útgáf-
una 02 ritar formála. — Verð í skinn-
bandi kr. 160.00.
Jóhannes úr Kötlum: Ljóðasafn I—II.
Átta fyrstu Ijóðabækur skáldsins á-
samt hátíðalióðum. — Verð í skinn-
bandi kr. 220.00.
Guðmundur Böðvarsson: Kvæðasafn.
I safninu eru fimm fyrstu ljóðabæk-
Ur skáldsins. — Verð i skinnbandi
kr. 175,00.
Magnús Ásgeirsson: Ljóð frá ýmsum
löndum. Úrval gert af Magnúsi sjálf-
um með formála eftir Snorra Hjartar-
son. — Verð í skinnbandi kr. 170,00.
Snorri Hjartarson: Kvæði 1949—1952.
— Verð í skinnbandi kr. 235,00.
Þórbergur Þórðarson: Bréf til Láru.
— Ib kr. 120.00
Þórbergur Þórðarson: Ritgerðir I—II.
Með formála eftir Sverri Kristjáns-
s-on sagnfræðing. — Verð sh. kr. 450.00.
Skinnband 520.00
Halldór Kiljan Laxness: Alþýðubók-
in. Með inngangi eftir Jón Helgason.
— Verð ib. kr. 150,00.
Jón Helgason: Handritaspjall. Bók um
sögu og örlög íslenzku handritanna i
Árnasafni. — Verð ib. kr. 185,00,
pergament kr. 220,00.
Kristinn E. Andrésson: Islenzkar nú-
tímabókmenntir. — Verð í skinnbandi
kr. 250.00.
Kristinn E. Andrésson: Byr undir
vængjum. — Verð innb. kr. 370,00.
Bjöm Th Björnsson: Á íslendinga-
slóðum í Kaupmannahöfn. — Verð ib.
380,00.
ÞÝDDAR ÚRVALSBÆKUR
Shakespeare: Leikrit I—II. Helgi Hálfdanarson
þýddi. — Skinnb. kr. 340,00 • Maxim Gorki:
Endurminningar I—III. Kjartan Ólafsson þýddi.
Skinnb. kr. 480,00 • A. S. Makarenko: Vegur-
inn til lífsins I—II. Jóhannes úr Kötlum þýddi.
Ib. kr. 285,00 • Staníslavskí: Líf í listum I—II.
Ásgeir Blöndal Magnússon þýddi. Skinnb. kr.
230,00 • Carlo Levi: Kris.tur nam staðar í Eboli.
Jón Óskar þýddi. Ib. kr. 175,00 • Joseph Bédier:
Sagan af Tristan og ísól. Einar Ól. Sveinsson
þýddi. Ib. kr. 80,00 • Martin Andersen Nexö:
Ditta Mannsbarn I.—II. Einar Bragi Sigurðsson
þýddi. Skinnb. kr. 300,00 • Martin Andersen
Nexö: Minningar I—IV. Björn Franzson þýddi
Ib. í eitt bindi kr. 160,00 • Karen Blixen: Jörð
í Afríku. Gísli Ásmundsson þýddi. Skinnb. kr.
105,00 • William Heinesen: Slagur vindhörp-
unnar. Guðfinna Þorsteinsdóttir þýddi. Ib. kr.
125,00 ® William Heinesen: í töfrabirtu. Hannes
Sigfússon þýddi. Ib. kr. 150,00.
áls og menningar
Laugavegi 18 — Símar 15055 og 18106
SIBA 5
Otgefaodi: Samelningarf lokkui alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Magnús Torfi ólafsson.
Sigurður Guðmundsson (áb.»
Préttarítstjórar: tvar H. Jónsson. Jón Bjamason.
Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17-500 (5 linurV Áskriftarverð kr 65.00 á mánuði
Orö og
athafnir
Jjað hefur verið einkenni á öllum athöfnum ís«
lenzkra stjórnarvalda í utanríkismálum að
orð og gerðir hafa verið í algerri andstöðu,
stjórnarvöldin hafa sagf eitt en framkvæmt
annað. Þegar samið var um það við Bandarík-
in að þau héldu aðstöðu sinni hér á landi eft-
ir heimsstyrjöldina með Keflavíkursamningn-
um, var þjóðinni sagt að samningurinn fjallaði
um brottför Bandaríkjahers. Þegar ákveðið var
að taka upp opinskátf og stóraukið hernám á
nýjan leik með Atlanzhafsbandalagssamningn-
um 1949, birtu ráðamenn hernámsflokkanna
þriggja yfirlýsingu og sóru hátíðlega að hér
skyldi aldrei dveljast erlendur her á friðartím-
um; til enn frekari áherzlu var utanríkisráðherra
Bandaríkjanna látinn taka undir eiðstafinn.
Þegar núverandi stjórnarflokkar ákváðu að
semja við Breta um landhelgina hrópuðu þeir
í útvarpi og á mannfundum að aldrei skyldi
samið um neitt frávik frá 12 mílna línunni;
Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra
afneitaði samningnum meira að segja á þingi og
var þá með eintak af honum 1 vasanum.
^ sama hátf verður nú unnið að innlimun ís-
lands í Efnahagsbandalag Evrópu. Fyrir
rúmu ári héldu stjórnarflokkarnir að þeim væri
óhætt að hefja opinskáan áróður fyrir inngöngu,
en þeir ráku sig fljótlega á það að hreinskilnin
dugði ekki nú frekar en fyrr. Og þess vegna er
nú gripið til hinna gamalreyndu aðferða að
segja eit'f en gera allt annað. Stjórnarherrarn-
ir segja nú hver í kapp við annan að full aðild
íslands komi ekki til mála og er þá auðvitað
að bregða upp öfugri mynd af hinu raunveru-
lega markmiði sínu. Og á sama hátt mun verða
fjallað um hvern einstakan áfanga. Þannig má
lesa þessa furðulegu setningu í Morgunblaðinu
í gær: „Þótt íslendingar hafi nú ákveðið að bíða
á’fekta og sækja ekki um neinskonar aðild eða
tengsl á þessu stigi, er ré’tt að menn hafi það
hugfast að slík umsókn, þótt send yrði, opnar
aðeins umræður, en gerir engan að aðila.“ Þarna
er í sömu setningunni gert ráð fyrir því að senda
enga umsókn og senda hana þó og lögð áherzla
á það að því fari fjarri að s’t’jórnarvöldin óski
eftir aðild, þótt þau sæki um hana! Næst verð-
ur þjóðinni eflaust sagt að öruggasta ráðið til
að losna við innlimun í Efnahagsbandalag Evr-
ópu sé að sækjast eftir henni. Þannig mun
verða haldið áfram að reyna að villa um fyrir
landsmönnum stig af stigi unz þjóðin hefur
verið leidd til allt annars áfangastaðar en hún
ætlaði sér að halda.
All eru þessi vinnubrögð sönnun þess hvernig
^ verið er að ómerkja lýðræðið. í stað frjálsr-
ar skoðanamyndunar er kominn þaulhugsaður
áróðursiðnaður. í stað þess að vandamálin séu
lögð heiðarlega fyrir kjósendur og þeir láfnir
taka ákvörðun, beita valdamenn þjóðfélagsins
vísvitandi ósannindum og fölsunum og fara svo
sínu fram þvert gegn vilja landsmanna. — m.