Þjóðviljinn - 04.01.1963, Page 1
Föstudagur
januar
argangur
tölublað.
Sildveiðískipin í margföldum
bryggjur í Reykjavíkurhöfn í gærdag. — Lm. Þjóv. A.K.
Mikil síldveiði en
versnandi veður
Mjög góð síldveiði var
í fyrrinótt og fengu 71
skip 65.000 tunnur. Aðal-
veiðisvæðin voru í Mið-
nessjó og norðvestur af
norðri frá Garðskaga,
þar sem góð söltunar-
síld fékkst. Síldin úr
Miðnessjónum og eins
síld sem fékkst á Eldeyj-
arbanka og fyrir sunnan
land var ekki eins góð,
allmikið blönduð. Veður
var gott, en í gærkvöld
var það farið að spillast
og ekki gott að spá um
veiði af þeim sökum. T.d.
var orðið ófært undir
Jökli og virtist vera að
hvessa á syðri miðunum.
Til Reykjavíkur komu 20 bát-
ar með tæpar 20.000 tunnur. All-
margir þeirra voru með ágæta
síld, sem fer ýmist í verkun eða
til útflutnings. Hæstur þessara
báta var Sigurður Bjarnason
2.8 milljónum
uthlutað í 55
staði
Úthlutun sjóslysasöfnunarinnar
1961—1962 hefur fyrir nokkru
lokið störfum. Úthlutað var kr.
2.8 millj. í 55 staði og hefur
féð verið sent hlutaðeigendum
eða afhent þeim fyrir milli-
göngu sóknarpresta eða yfirvalda
á viðeigandi stöðum. Mun rík-
isstjórninni afhent greinargerð
um úthlutunina ásamt þar að
lútandi gögnum, þegar kvittanir
hafa borizt frá viðtakendum til
nefndarinnar. .
tunnur, Guðmundur
var með 1700, Pétur
1500, Björn Jónsson
voru með 1200 hvort
með 1800
Þórðarson
Sigurðsson
og Hafrún
og Heiga með 1300, Ólafur bekk-
ur og Sæfari voru með 1150,
Þráinn 1100, Hafþór og Nátt-
fari 900 hvor, Sæþór, Sigurfari
og Víðir SU með 800 hver, Hall-
dór Jónsson og Svanur með 750
hvor, Hallveig Fróðadóttir með
600, Ásgeir 500. Akraborg 450
og Hannes lóðs 400.
Akranesbátum gekk vel. Þang-
að komu 16 bátar með
14.000 tunnur. Þeir voru á sömu
slóðum og aðrir og sumir komu
með góða sí]d aðrir með bland-
aða Skirnir var aflahæstur með
1800 tunnur, Sigurður 1300, Ól-
afur Magnússon 1130, Haraldur
og Fiskaskagi 1000 hvor, Keilir
950, Anna 925, Náttfari og Sæ-
fari 900 hvor, Höfrungur og sig-
rún 800 hvort, Sveinn Guð-
mundsson 750, Reynir 600,
Heimaskagi 500. Ver 400 og Sig-
urvon 100.
Til Keflavíkur komu 16 bátar
með 16.000 tunnur og vitað var
um einn sem lá úti með 300, það
var Eldey. Hæstur var Gunnólf-
ur með 1700, Víðir II 16,00, Hilm-
ir og Ingiber Ólafsson með 1300
hvor, Bergvík 1200, Ámi Geir og
Manni með 1100 hvor, Ámi Þor-
kelsson og Vonin II með 1000,
Jón Finnsson, Jón Guðmundsson
og Jón Oddsson 800 hver, Kópur
og Sigurbjörg með 600 hvor,
Heimir og Steingrímur trölli
voru með 500.
Hafnfirðingum gekk ekki lak-
ar en öðrum, 11 bátar voru með-
tæpar 9000 tunnur. Aflahæstur
Eldborg með 1700, Fákur 1400,
Héðinn 1350, Fjarðaklettur og
Auðunn voru með 1000 hvor,
Álftanes og Hringur voru með
450, Ársæll Sigurðsson, Gísli
lóðs og Fram með 400 og Mána-
tindur með 250.
Sjá 2 og 12 síðu
Skrifstofa Happdrættis Þjóðviljans að
Þórsgötu 1 verður opin fyrst um sinn
daglega frá kl. 10 árdegis til 6 síðdcgis.
Símmn er 17514. Eigendur og handhaf-
vinningsnúmera (þau hafa verið birt
ar
í blaðinu
inganna í
undanfarna daga)
skrifstofuna.
vitji vinn-
Rannsókn lokið
a
Samkvæm.t upplýsing-
um saksóknara ríkisins,
Valdimars Stefánssonar,
lauk rannsókn Brimness-
málsins svonefnda í des-
ember sl. og var málið
þá sent til saksóknara til
athugunar og sagði hann
í viðtali við Þjóðviljann
í gær, að að henni lok-
inni yrði úrskurðað um
meðferð þess eftir því
sem efni og ástæður
þættu til. Kvað hann ó-
gerlegt að segja til um,
hve langan tíma þessi at-
hugun tæki.
Það var á sl. vori að dóms-
málaráðherra fyrirskipaði rann-
sókn á viðskiptum Axels í Rafha
og ríkissjóðs vegna Brimnessút-
gerðarinnar og var Logi Einars-
son yfirsaksóknari skipaður setu-
dómari í málinu. Átti Þjóðviljinn
stutt viðtal við hann í gær en
hann varðist allra frétta um nið-
urstöður rannsóknarinnar og vís-
aði til saksóknara sem einnig
varðist allra frétta um það efni.
Mun rannsókn málsins hafa
reynzt allumfangsmikil og taf-
samari en ráð var fyrir gert.
Áður en dómsmálaráðherra
fyrirskipaði rannsóknina á sl.
vori höfðu þingmenn Alþýðu-
bandalagsins oftar en einu sinni
flutt á Alþingi tillögu um opin-
bera rannsókn þessa máls og
Þjóðviljinn margsinnis krafizt
1 gærkvöld var slökkviliðið
kvatt að geymsluskúr við Háa-
leitisbraut. Skúrinn var alelda
er á staðinn var komið og eyði-
lagðist hann alveg og það sem
í honum var geymt, sófi og 2
djúpir stólar. Skúrinn var úr
timbri, jámklæddur.
Axel Kristjánsson
rannsóknar á því en árangurs-
laust þar eð forkólfar Sjálfstæð-
isflokksins héldu stöðugt hlífi-
skildi yfir Axel og komu í veg
fyrir að rannsókn yrði samþylskt.
I kosningahitanum í vor þegar
í odda skarst með stjórnarflokk-
unum í Hafnarfirði hafði dóms-
málaráðherra loks sjálfur frum-
kvæði um að fyrirskipa rannsókn
málsins, þótt hann og flokks-
bræður hans hefðu áður staðið
gegn því að hún yrði samþykkt
af Alþingi.
Nonni
í nota-
Jegum
fagnaoi
Blóðhundurinn Nonni er|
mikil skepna á velli og hreintl
ekki frýnilegur, en allt um|
það er hann þegar 1 miklul
afhaldi hjá þessum ungul
hafnfirzku skátastúlkum.|
Ekki er annað að sjá en dá-l
lætið sé gagnkvæmt. (Ljósm.l
Þjóðv. G.O.) — Sjá frétt á|
2. síðu.
4.019 sagt upp
SANTA MONICA, Kallfomíu 3/1
— Douglas-flugvélaverksmiðjum-
ar sem áttu að leggja til flesta
hluta Skybolt-eldflaugarinnar
sem nú hefur verið hætt við að
smíða, tilkynntu í dag að þser
myndu verða að segja upp 4.000
starfsmönnum stoum af þeim
sökum. Uppsagnirnar munu
ganga í gildi eftir einn mánuð.
Hér er um að ræða um tíunda
hluta alls verkafólks Douglas-
verksmiðjanna.
Sjúkrasamlags-
gjöld hækka
úr kr. 54
í kr. 60
Frá og með 1. janúar
1963 hækka iðgjöld Sjúkrar-
samlags Reykjavíkur og
verða þau nú 60 krónur á
mánuði í stað kr. 54.00 eins
og þau voru síðast liðið ár.
Þjóðviljinn snéri sér til
forstjóra Sjúkrasamlagsins
í gær og spurði hann um
orsökina fyrir þessari ið-
gjaldahækkun. Sagði hann,
að hún stafaði fyrst og
fremst að hækkun sjúkra-
húsagjalda er tók gildi nú
um áramótin en einnig
kæmi fleira til, m.a. að
vegna breytinga á
gjaldheimtufyrirkomulagsi
Sjúkrasamlagsins innheiimt-
ust iðgjöldin á þessu ný-
byrjaða ári mun síðar á
árinu en verið hefur og
væri samlagið af þeim sök-
um þurfandi fyrir hærri
gjöld en áður.
Gjaldheimtan heíur nú
tekið við innheimtu sjúkra-
samlagsgjalda og er fyrsti
gjalddagi þeirra 1. febrú-
ar n.k. og munu Skýrslu-
vélar þá útbúa ný skírteini
fyrir árið 1963 sem þeir
fá, sem eru skuldlausir fyr-
ir árið 1962, en þangað til
nýju skírteinin verða gef-
in út gilda gömlu skírtein-
in frá 1962 án þess greiðsl-
ur séu færðar inn á þau.
Nýju skírteinin gilda i
eitt ár. Reglur um réttinda-
missi og biðtíma eru ó-
breyttar frá því sem verið
hefur.
TT\r • rP •
loniir aieugis-
kassar finnast
VífilsstaSahranni
í
1 fyrradag fann lögreglan f
Reykjavík marga tóma kassa
undan áfengi í helli í Vífil-
staðahrauni, er hún gcrði þar
lcit cftir tilvísun skáta sem
höfðu orðið varir við að kass-
arnir voru þarna.
Alls var þama um 47 kassa
að ræða undan ýmsum tegund-
um áfengis og báru þeir all:r
merki Áfengisverzlunarinnar.
Ekki er vitað hvemig á því
stendur að kassar þessir vont
þarna niður komnir en engu
áfengi hefur verið stolið frá
Áfengisverzluninni. Kassamir
hafa hins vegar aðeins verið
skamma hríð í hellinum þar
eð skammt er síðan menn komu
bar og þá að tómum kofuml