Þjóðviljinn - 24.01.1963, Side 2
2 SlÐA
ÞJÓÐVTTLTINN
Fimmtudagur 24. janúar 1963
llt nTilili li' ’’
’ff . : ,. W8 III 1 T’llll.
Hp . &■- sj$y. i
WMkk
Sölusýning á Týsgötu
Fjmir skömmu var opnuð
sölusýning í Málverkasölunni
að Týsgötu 1. Það er allfjöl-
mennur hópur eða um þrjátíu
manns, sem á myndir á þess-
ari sýningu. Þama eru ólíkar
myndir frá ýmsum tímum:
Jón Engilberts er þarna.
Magnús Á. Árnason, Eyjólfur
Eyfells, en einnig Völundur
Bjömsson og Ragnar Lár.
Kristján Guðmundsson eig-
andi verzlunarinnar, segir að
þessi sölusýning verði opin
að minnsta kosti næsta hálfa
mánuðinn — eiginlega ætti
að vera sýning allt árið, bæt-
ir hann við. Á myndinni
sjást þrír þeirra sem myndir
eiga á sýningunni (frá vinsti):
Eyjólfur Eyfells, Helgi Berg-
mann og Snorri Halldórsson.
ásamt Kristjáni. (Lm. A.K.).
FurSuíréttír AlþýðubluSsins
uí Sjómcnnufélugsfundinum
Engu er líkara en fréttamaður
Alþýðublaðsins af aðalfundi Sjó-
mannafélags Reykjavíkur hafi
verið eitthvað brenglaður í koll-
inum. því fréttin er ein hrúga af
rangfærslum og vitleysum.
Það er fjarstæða að í laga-
breytjngum starfandi sjómanna
hafi faljzt að skjpta félaginu í
þrjár dejldir. þar var lagt tjl
að félaginu yrði skipt í fiskj-
mannadeild og farmannadejld.
Þrjðja deildjn hefur orðið tjl í
kolli fréttamanns Aiþýðubiaðs-
ins og hefur hann sjálfsagt reikn-
að með að til þyrftj að vera,
áuk deilda fiskimanna og far-
manna, ein landliðsdeiid,
þar sem hægt væri að
hafa þá verkstjóra. stýrimenn,
iögregluþjóna, ' strætisvagnabíl-
stjóra. skífulagningamejstara,
sútara og skóara, dægurlaga-
söngvara, húsgagnasmiði, bólstr-
ara. forstjóra og fiskmatsmenn,
póstmenn og fjsksala. beyki og
bændur. múrara og hótelstjóra
sem nú prýða félagaskrá og kjör-
skrá Sjómannafélags Reykjavík-
ur
Það er fjarstæða, að í tillög-
unum hafi falizt að reka gamla
sjómenn úr Sjómannafélaginu.
Þar var farið fram á það eitt,
að menn sem ekki hefðu stund-
að sjómennsku í tvö ár að stað-
aldri skyldu færðir á aukaskrá,
en nytu alira réttinda nema
kosningaréttar ef þeir óska að
vera áfram í félaginu.
Það er rangt að tillögurnar um
lagabreytingar væru felldar.
Þeim var vísað til stjórnarinnar
til frekari athugunar
Það kemur sannarlega úr hörð-
ustu átt þegar Alþýðublaðið seg-
ir. að erfitt hafi verið að fylg.i-
ast með máli þeirra starfandi
sjómanna sem töluðu á fundin-
um. þvj þeir fluttu mál sitt vel.
Sumir ræðumenn landliðsstjórn-
Skákkeppni stofnana
hefst 13. fehrúar n.k:
Ákveðjð sefur verið að Skák-
keppni stofnana hefjist 13 febrú-
ar n.k. og fer keppnin fyrsta
kvöldið að venju fram í sam-
komuhúsinu Lido. Þetta er í
fjórða sinn sem þessi keppni er
haldin en í fyrra tóku þátt í
henni nær 50 sveitir, og var það
langfjölmennasta skákmót sem
haldið hefur verið hér á landi.
Keppnin í ár verður með sama
sniði og áður. Keppt verður í
fjögurra manna sveitum og má
hver svejt hafa ailt að 3 vara-
menn. Verður sveitunum skipt í
flokka eftir úrslitum keppninnar
í fyrra en þá voru þeir 7 að töiu.
Má gera ráð fyrir að einhverj-
ar sveitir, er bátt tóku í kepon-
inni í fyrra falli nú úr en aðr-
ar nýjar komi í staðinn og verð-
ur þeim skipað i flokkana eftir
áætluðum styrklejka og einnig
hefur keppnisst.iórnin heimild til
að flytja eldri sveitir milli
flokka ef ástæða þykir tjl. svo
sem ef miklar breytingar verða
a skipan þeirra og styrkleika.
Keppni þessj er haldin á veg-
um Skáksambands íslands og
þurfa umsóknir um þátttöku að
hafa borizt í pósthólf 674 fyrir
4. febrúar n.k. Þátttökugjald
er kr. 300 og greiðist það um
leið og fyrsta umferð er tefld.
Stjórnandi keppninnar verður
Gísli ísleifsson
arjnnar voru hins vegar í öðru
formi en æskilegt er að menn séu
þegar menn koma fram á fund-
um og vilja að mál sitt skiljist.
Eftir þessu er annað ' frétta-
mennsku Alþýðublaðsins af að-
alfundj Sjómannafélags Reykia-
víkur. Væri von að menn spyrðu:
Var heimildarmaður blaðsins ryk.
ugur í kollinum?
De Gaulle hlýtur
stuðning í Belgíu
Forseti belgísku öldunga-
dcildarinnar, Paul Struve ritaði
nýlega grein í afturhaldsblaðið
„La Libre Belgique" og iýsti yf-
ir stuðningi sínum við sjónar-
mið de Gaulles varðandi inn-
göngu Bretlands í Efnahags-
bandalag Evrópu.
— Ef við lítum raunhæft á
málin verðum við að viður-
kenna að de Gaulle hafði rétt
fyrir sér á blaðamannafundin-
um fræga þegar hann sagði að
það væri enginn skaði skeður
þótt Bretland yrði utan Efna-
hagsbandalagsins og ekkert
hjndri Breta frá að semja um
aukaaðild eða gera einhverskon-
ar samninga vjð „litlu Evrópu“.
Að mótmæla þessu er sama og
að halda því fram að Efnahags-
bandalagið muni hefja efna-
hagsstríð gegn öllum þeim ríkj-
um sem ekki eru í bandalaginu.
— Það er því mjög erfitt að
áfellast de Gaulle hershöfð-
ingja fyrir að hafa látið í Ijós
þann vilja Frakklands að veita
Bretlandi ekki viðtöl nema því
aðeins að Bretar lofi að halda
Rómarsamninginn í einu og
öllu.
Samt sem áður lauk Struve
greininni með eftirfarandi:
— Þróun heimsmálanna er
þannig að Bretland verður fyrr
eða síðar meðlimur i Efnahags-
bandalaginu. Það mun styrkja
Evrópu gagnvart Bandaríkja-
mönnum en forystu þeirra ótt-
ast de Gaulle með réttu.
Hörð og jöfn keppni &
Skókþingi Reykjavíkur
Lokið er nú fjórum umferðum
á skákþingi Reykjavíkur. Voru
3. og 4. umferð tefldar sl.
sunnudag og biðskákir í fyrra-
kvöld. I meistaraflokki stend-
ur nú yfir undankeppni í þrem
riðlum og verða þar alls tefld-
ar 7 umferðir. Munu 2 efstu
menn úr hverjum riðli síðan
keppa til úrslita ásamt þeim
Friðriki Ólafssyni og Inga R.
Jóhannssyni og hefst sú keppni
um mánaðamótin. Er keppnin
enn svo jöfn að ógerningur er
að segja um hverjir muni kom-
ast í lokakeppnina ásamt þeim
Friðriki og Inga. Þó virðist Jón
Hálfdánarson standa næst þvi
að tryggja sér þar sæti, en hann
er nú efstur í C-riðli og hefur
unnið allar sinar skákir.
II. flokkur A:
1. Stefán Guðmundsson 3 v.
2. —4 Baldur Bjömsson, Gísli
Sigurhansson og Helgi Hauks-
son 2%.
5. Axel Clausen 1V2 v.
6. Jón Ólafsson 0 v.
II. flokkur B:
1. Björgvin Guðmundsson 4 v.
2. Þorsteinn Marelsson 3 v.
3. —4. Holger Clausen og Þór-
ketill Sigurðsson 2 v.
5. Bjöm Árnason 1 v.
6. Pálmi Eyþórsson 0 v.
5. umferð verður tefld annað
kvöld, föstudag, í Snorrasal á
Laugavegi 18, en þar fer allt
skákþingið fram.
Að loknum fjórum umferðum
er staðan á mótin'u þessj:
Meistaraf lokku r
A-riðiII:
1. —2 Björn Þorsteinsson og
Sigurður Jónsson 3 vinninga.
3. Jóhann ö. Sigurjónsson 2V2.
4. —5. Gylfi Magnússon og Þor-
steinn Skúlason 2 vinninga.
6. —7. Guðmundur Ársælsson
og Ólafur Einarsson 1%. v.
8. Egill Valgeirsson Vz v.
B-niðill:
1. Haukur Angantýsson 3V2 v.
2. —3. Jón Kristinsson og Júlí-
us Loftsson 3 vinninga. |
4. Bragi Björnsson 2% v.
5. —6. Gísli Pétursson og Magn-
ús Sólmundarson 2 vinninga. ,
7. —8. Helgi Guðmundsson og !
Jóhann Þ.' Jónsson 0.
C-riðiII:
1. Jón Hálfdánarson 4 v.
2. Jónas Þorvaldsson 3 v.
3. Bjarni Magnússon 2% v.
4. Benedikt Halldórsson 2 v.
5. Benóný Benediktsson IV2 v.
og biðskák.
6. Kári Sólmundarsön 1% v.
7. Geirlaugur Magnússon V2 v.
8. Hilmar Viggóson 0 v. og’
biðskák.
1. flokkur:
1-—2. Björgvin Víglundsson og
Haukur Hlöðvir 3. v.
3.—5. Gísli R. Isleifsson, Sæ-
var Einarsson og Vilmundur
Gylfason 2 v.
6.—7 Kjartan Júlíusson og
Þorsteinn Bjamar lVz v.
8. Jafet Sigurðsson 1 v.
Ungbörn
króknaí
Bretlandi
I Bretlandi er nú vetrarríki
mikið og hafa kuldarnir orðið
ungbörnum að fjörtjóni. 1
mörgum sjúkrahúsum hafa
börn dáið af þessum sökum og
í heimahúsum mun bað sama
vera upp á tenlngnum enda
bótt fólk geri sér ekki grein
fyrir bví.
Læknir einn í London sagði
nýlega í blaðaviðtali að fjöldi
barna hefði látizt úr kulda þar
í borg að unadnfömu. Hann
sagði að fólk héldi að bömin I
hefðu fengið inflúenzu eða ein- j
hverja slíka veiki en í raun og i
veru króknuðu þau úr kulda. i
Hann sagði ennfremur að j
börn sem látin vænx sofa i j
venjulegu brezku svefnherhergi 1
gætu- ekki haldjð á: sér hita i'
þessu tíðarfarj. Líkamshitinn j
lækkar. þau verða kyrrlát, and- í
lit og b»”dur vera ljósrauð og
þau Hta út fyrjr að vera sæmi-
lega hraust. Það lekur svolítið
úr nefi þeirra, rétt eins og þau
hefðu lítilsháttar kvef. Þau
verða kyrrlátari og kyrrlátari
og loks deyja þau án þess að
foreldrana hafi grunað að
nokku.ð alvarlegt gengi að beim.
Fyrir skömmu var komið með
barn á sjúkrahús þessa læknis
og var líkamshiti þess 21 stig.
Reynt var að koma hitanum í
eðlilegt horf en án árangurs.
SllBH
PJDNUSTAH
LAUGAVEG! 18®- STMI 19113
TIL SÖLU M.A.:
2- herb.
ný íbúð við Austurbrún i
skiptum fyrir 3—4 hp-’-
íbúð.
Einbýlishús
i Smáíbúðahverfj,
5 herb.
ný íbúð við Laugarásveg
5 herb.
góð íbúð í Hlíðunum.
3 herb.
íbúð á I. hæð í Kópavogj.
Lítil útborgun.
2, 4 og 5 herb.
íbúðir tilbúnar undir tré-
verk á árinu.
Járnsmíðaverkstæði
200 ferm. í fullum rekstri
með öllum vélum og áhöld-
um á mjög góðum stað.
Verkefnj geta fylgt.
Iðnaðarhúsnæði
ca. 220 ferm. á einum bezta
stað borgarinnar og margt
fleira.
HÖFUM KAUP-
ENDUR AÐ
2—3 herb.
íbúðum, mikil útborgun.
5—6 herb.
íbúð eða raðhúsi. mjög
mjkil útborgun.
Einnig kaupendur að:
Húsnæði
fyrir vélaverkstæði.
Húsnæði
fyrir rakarastofu á góðum
stað.
Verzlunar- og iðnað-
arhúsnæði
við Laugaveg eða í mið-
borginni. o.m.fl.
Hafið samband við
okkur ef þið þurfið
að selja eða kaupa
fasteignir.
Sóttl námskeíð I frosk-
köfun f Bandaríkjunum
Fréttamenn áttu í fyrradag tal
við Pétur Sigurðsson forstjóra
landhelgisgæzlunnar og Þröst
Sigtryggsson skipherra á Maríu
Júlíu í tileíni af því, að hinn
síðarnefndi sótti í nóvember s.l.
mánaðarnámskeið í froskköfun
á vegum landhelgisgæzlunnar
hjá bandaríska fiotanum.
Þröstur lærði froskköfun hér
hejma og hefur að undanförnu
séð um þjálfun froskmanna fyr-
ir Jandhelgisgæzluna og fór hann
utan á áðurnefnt námskejð til
þess að þ.iálfa sig og fullkomna
í því skyni að verða lejðbein-
andi um þessj mál hjá landhelg-
isgæzlunni í framtíðinni.
Á undanförnum árum hefur
froskköfun í ýmsum tjlgangi
aukizt mjög, t.d. til þess að
hjálpa bátum við að ná nntum
úr skrúfunnj. laga loftventla á
skipum o.s.frv. Er nú einn mað-
ur á hverju varðskipanna. sem
kann til froskköfunar en það
er of lítjð og er ætlunjn að
efna til námskeiðs í vor til þess
að bjálfa fleirj eða svo að
mi.r"’ '"rsti tveir frwVmenn
-verði A hverju skipi. Þá er
einnig ætlunjn að afla betri
tækja en landhelgisgæzlan á nú
5 froskmannabúninga sem not-
aðir eru í varðskipunum.
Námskeið það, er Þröstur sótti
í Bandaríkjunum, var haldið í
Key West. Hófst það í nóvember
Qg stóð yfir í einn mánuð.
SIÓMENN
Sjóstakkar og Iöndunarbuxur
fást enn fyrir Iítið verð.
Einnig siidarpils.
VOPN
Aðalstræti 16.
BUÐIN
KLAPPARSTlG 26
* Skattaframtöl
* Innheimtur
* Lögfræðistörí
* Fasteignasala
Hermann G. Jónsson. hdl.
lögfræðiskrifstofa.
Skjólbrsut l. Kópavogi.
Sími 1003J kl. 2—7.
Heima 51245.
1TipIutg€RB rikis»ns
Herðubreið
fer vestur um land í hringferð
29. þ.m. Vörumóttaka í dag og
árdegis á morgun til Kópaskers,
Þórshafnar, Bakkafjarðar. Vopna-
fjarðar, Borgarfjarðar, Mjóa-
fjarðar, Stöðvarfjarðar, Breið-
dalsvíkur, Djúpavogs og Horna-
fjarðar. Farseðlar seldir á mánu-
dag.
Esja
fer vestur um land í hringferð
30. þ.m. Vörumóttaka á föstudag
og laugardag til Patreksfjarðar,
Sveinseyrar, Bíldudals, Þingeyr-
ar, Flateyrar, Suðureyrar, Isa-
fjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar,
Húsavíkur og Raufarhafnar. Far-
6eðlar seldir á þriðjudag.