Þjóðviljinn - 27.01.1963, Blaðsíða 1
*
s
Sunnudagur 27. janúar 1963 — 28. árgangur — 22. tölublað.
Sá kann nú
SagiS á f»ví
Jónas Árnason
skrifar um bók
^Sverris Kristjánssonar
| — Sjá 7. síðu.
ANDRESOND
er á 10. síðu. Og
mynd af ,,föður“
hans, Walt Disney,
á 5. síðu.
Konansér
með
fingrunum
— Sjá grein á
9. síðu.
Lóranstöðitt
á Gufuskál-
um stækkuð
Fyrir nokkru birtist auglýs-
lýsing frá pósit- og símamála-
stjóminni, dagsett 8. janúar
SL, þar sem óskað var eftir
starfsmönnum að loranstöð-
inni á Gufuskálum. Sagði í
aug'lýsingunni að til greina
ksemu símvirkjar, símritar-
ar, útvarpsvirkjar og loft-
skeytamenn eða aðrir með
sambæriiega menntun.
Þurftu umsóknir að hafa
borizt fyrir 26. janúar.
I tilefni af þiessari auglýs-
ingu snéri Þjóðviljinn sér til
póst- og símamálastjóra,
Gunnlaugs Briem, fyrir helg-
ina og spurðist fyrir um það
hvort þessi mannaráðning
stæði í sambandi við aukn-
ingu á starfsemi loranstöðv-
arinnar að Gufuskálum og
lagði ennfremur fyrir hann
nokkrar fleiri spumingar
varðandi starfsemi stöðvar-
innar.
Svör póst- og símamália-
stjóra voru öll fremur óljós.
Þó skýrði hann svo frá. að
leggja ætti gömlu stöðina nið-
ur og setja upp nýja stöð
og stærra mastur. Sagði hann
að eftir sem áður yrðu tvenns
konar stöðvar á Gufuskálum,
millibyl'gjustöð sams konar
og er á Reynisf jalli í
Mýrdal og langbylgjustöð
eins og eru á Grænlandi, 1
Noregi. Færeyjum og víðar
en um mun á þessum tveim
tegundum ióranstöðva varð-
ist hann allra frétta, sagði
Þó að stærri og fullkomnari
tæki þyrfti fyrir langbylgj-
umar.
Póst- og símamálastjóri
kvaðst ekkert vita um fjölda
þeirra umsókna sem borizt
hefðu um þessi . auglýstu
störf. Nú væru 15 starfs-
menn á Gufuskálum en þeim
yrði væntanlega fjölgað eitt-
hvað, kannske upp í 25 eða
30. Um þjálfun nýrra starfs-
manna sagði hann, að þeir
myndu væntanlega þjálfaðir
að Gufuskálum og einhverjir
e.t.v. sendir út.
Um gagnsemi loranstöðvar-
innar fyrir okkur íslendinga
sagði póst- og símamálastjóri,
að flugvélar og millilanda-
skip svo og nokkur fiskiskip
hefðu móttökutæki en um
fjölda þeirra vissi hann ekki.
Hélt hann að landsíminn
myndi leigja um 20 slík tæki,
en auk þess væri hægt að
kaupa þau úti.
★
Aðspurður um byggingar-
framkvæmdir að Gufuskál-
um í sambandi við þessa
stækkun stöðvarinnar svar
aði póst- og símamálastjóri,
ið stækkun stöðvarinnar
sjálfrar myndi ekki krefjast
nikilla byggingaframkvæmda
sn eitthvað þyrfti að byggja
if starfsmannaíbúðum og
yrði það væntanlega gert
næsta sumar.
Á 12. síðu blaðsjns er nán-
ar saSt frá stækkun stöðvar-
innar á Gufuskálum
/ ár verða framkvæmdar gerbreyt-
ingar á vinnutilhögun á íslandi
Hlutur Dagsbrunarmanna
fer eftir samstöðu
þeirra í stjórnarkjörinu
• Stjórnarkjörið í verkamannafélaginu Dags-
brún hefst að nýju kl. 10 f.h. í dag á skrifstofu
félagsins í Alþýðuhúsinu og því lýkur kl. 11 í
kvöld. Þegar Þjóðviljinn fór í prentun síðdegis í
gær höfðu um 600 greitt atkvæði.
• Þessar kosningar eru ákaflega mikilvægar.
Augljóst er að verkamenn eiga nú kost á að ná
verulegum árangri í baráttu sinni fyrir stytt-
ingu vinnuvikunnar með óskerfu kaupi og fyrir
verðtryggingu kaupsins — m.a. vegna þess að
stjórnarflokkarnir óttast alþingiskosningar þær
sem framundan eru. En árangurinn er undir því
kominn að verkamenn sýni í stjórnarkjörinu meiri
samheldni en nokkru sinni fyrr.
1 dag fer fram stjórnarkjör ^
í Verkamannafélaginu Dagsbrún
og í tilcfni af því birtum við
þessa mynd frá höfninni sem
Ijósmyndari blaðsins tók af
verkamanni sem var að vinna
við uppskipun. Úrsljt kosninga í
Dagsbrún hafa jafnan haft á-
kvarðandi áhrif á kaup og kjör
alls vinnandi fólks í landinu.
Þetta á ekki síður við nú en áð-
ur. Þess vegna eiga allir Dags-
brúnarmenn að fylkja sér fast
undir merki A-listans og gera
sigur hans sem stærstan. Með
því tryggja þeir bezt hag sinn
og allra launastétta í landinu. —
(Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Kröfur verkamanna hafa aldrei
notið jafn almenns stuðnings og
nú. Meira að segja stjórnarblöð-
in viðurkenna — í orði — að
engin leið sé að lifa af því
kaupi sem greitt er fyrir dag-
vinnu. Meira að segja stjómar-
blöðin játa — í orði — að verka-
menn eigi rétt á raunhæfum
kjarabótum. Þær raunhæíu
kjarabætur sem enginn ágrein-
ingur á að geta orðið um er
stytting vinnutímans með ó-
breyttu kaupi og ráðstafanir sem
tryggja það að kaupgjald haldist
óskert á samningstímabilinu.
Aldrei fyrr hafa valdhaf-
arnir staðið jafn höllum fæti
og nú í umræðunum um
lífskjör verkafólks. Þcim yf-
irburðum þurfa vcrkamenn
að fylgja eftir. Ef andstæð-
ingar Dagsbrúnarstjórnarinn-
ar hefðu átt til félagsþroska
og hollustu, hefðu þeir að
þessu sinni falljð frá framboði
í félaginu. Þeir hafa ekki bor-
ið gæfu til þess — en félags-
Kjósið A-listann í Þróttil
Þróttarmenn! Stjórnarkosningin í Vörubíl-
stjórafélaginu Þrótti stendur í dag frá kl. 1 til
kl. 9 í kvöld og er þá lokið. Kosið er í húsi félags-
ins við Rauðarárstíg. — Listi stjórnar og trúnað-
armannaráðs er A-listi. Kjósið A-listann í Þrótti!
Hlíf krefst víðtækra
atvinnuframkvæmda
Verkamannaféaligið Hlíf í
Hafnarfirði hélt mjög fjölmenn-
an fund fimmtud. 24. jan. í Góð-
templarahúsinu.
Á fund þennan höfðu verið
boðnir allir bæjarfulltrúar í
Hafnarfirði og bæjarstjóri til um-
ræðu um atvinnumálin í bænum.
Er það fastur liður í starfi V.m.
f. Hlífar að fyrsti fundur fé-
lagsins á nýbyrjuðu ári sé helg-
aður atvinnumálum staðarins og
bæjarstjórn og bæjarstjóra boðið
til umræðu.
Framsögumenn af hálfu stjórn-
ar Hlífar hafði Hermann Guð-
mundsson og lagði að máli sínu
loknu fram eftirfarandi tillögur
frá stjóminni og voru þær sam-
þykktar einróma.
„Fundur haldinn í Verka-
mannafélaginu Hlíf fimmtud. 24.
jan. 1963, telur að leggja beri
áherzlu á eftirfarandi atriði til
aukningar atvinnulífinu í bæn-
um:
1. Hafnargarðarnir verði full-
gerðir. Gerð verði smábátahöfn,
athafnasvæði og bryggjur er
hæfa smábátaútveginum.
2. öll skilyrði til löndunar og
losunar vélbáta sem stærri skipa
verði stórbætt og beitt aukinni
tækni og fullkomnari tækjum.
3. Byggðar verði stórar vöru-
geymsluskemmur við höfnina.
4. Vélbátafloktinn verði aukinn
með bátum af hentugri stærð til
að afla hráefnis fyrir frystihús-
in og til síldveiða.
5. Hráefni sjávarútvegsins
verði gernýtt, bætt skipulag á
vinnu í frystuhúsunum, aukinn
verksmiðjukostur, og bætt við
nýjum verkunaraðferðum.
6. Gatnagerð verði stóraukin,
götur byggðar úr steinsteypu eða
malbikaðar. Bærinn komi sér
upp fullkominni steypustöð og
grjótnámi.
7. Kannaðir verði allir mögu-
leikar á lagningu hitaveitu til
Hafnarfjarðar frá Krísuvík. Þá
verði hafizt handa um að nýta
gufuorku þá sem Hafnarfjarðar-
bær á í Krísuvík til framleiðslu
rafmagns og iðnaðar aUskonar.
menn þurfa þá í staöinn að
hafa vit fyrir þeim.
Gerbreytingar íramundan
Þjóðartekjurnar á síðasta ári
hafa orðið miklu meiri en
nokkru sinni fyrr í sögu þjóSar-
irrnar; þær hafa tekið stöklc.
Þessa auðlegð vcrður að nota til
þess að tekin sé upp mannsæm-
andi vinnutilhögun á Islandi,
hófsamlegni vinnutími með ó-
skcrtu heildarkaupi og öryggx usn
afkomuna. Augljóst er einnig að
á þessu sviði verða miklar breyt-
ingar á þessu ári. Opinberir
starfsmenn hafa borið fram kröf-
ur um gerbreytingu á sínum hög-
um. Gunnan Thoroddsen fjár-
málaráðherra hefur lýst yfir þvi
í málgagni sínu að hann telji
kröfur opinberra starfsmanna í
heild jafngilda um 100% kaup-
hækkun og að á þessar kröfur
verði að fallast að verulegu leytL
Opinberir starfsmenn standa sem
einn maður að kröfum sínum,
þrátt fyrir allan stjómmálaá-
greining.
Það verða þannig fram-
kvæmdar gerbreytingar á
vinnutilhögun á íslandí á
þessu ári. Verkamenn verða
að tryggja að fullt tillit verði
tekið til hagsmuna þeirra í
þeirri endurskoðun. En það
tekst því aðeins að verkamenn
kunni að standa saman, þrátt
fyrir stjórnmálaágreining.
Dagsbrúnarmenn hafa oft sann-
að það í verkföllum að þá láta
þeir stjómmálaágreininginn
víkja fyrir sameiginlegum hags-
munum stéttarinnar. Á sama
hátt þurfa þeir nú að sameinast
um félag sitt og forustumenn til
þess að tryggja þeim sem sterk-
asta aðstöðu í þeim örlagaríku
samningum sem framundan eru.
Eftir samheldninni nú fer árang-
urinn í samningunum; með at-
kvæði sinu er hver verkamaður
að taka ákvörðun um kjör sín,
um öryggi sitt og fjölskyldu sinn-
ar.
Dagsbrúnasmeim.
Allir til starfa.
x A
«