Þjóðviljinn - 27.01.1963, Síða 2

Þjóðviljinn - 27.01.1963, Síða 2
2 S1ÐA -------------------------------------------- ÞJÓÐVILJINN Hvað var að gerast í Borgarnesi? Við sem einhverju sinni höí- um lagt leið okkar um Borgar- nes hljótum að geta orðið sam- mála um að Borgames sé víð- kunnanlegasti staður og — mjög friðsamur. Það kom mér því á óvart þegar ég enn einu sinni lagði leið mína um Borg- ames, á leiðinni norður í land til að eiga rólegt rabbkvöld með vini mínum Skúla á Ljót- unnarstöðum, að aðalumræðu- efni manna í Borgarnesi skyldi vera „orusta“ sem þar hefði átt sér stað og væri nýlokið. Af frásögnum manna kom líka í ljós að það voru ekki Borgnesingar sem komu af stað orustu þessari heldur var her- foringjaráðið sem undirbjó hana og stjómaði allt til loka að finna suður í Reykjavík — og vildu sumir telja yfirhers- höfðingjana að finna í Stjórn- arráðinu! Orusta þessi var háð í Verka- lýðsfélagi Borgamess og lá því beinast við að leita frétta hjá nýendurkjörinni stjóm félags- ins, sigurvegurum orustu þess- arar, og er það sem stjómin hafði að segja -birt hér á öðrum stað. Lestu Moggann! Til þess að skilja eðli þess- arar orustu bentu Borgnesingar mér á að lesa Morgunblaðið. Hinn 15. þ.m. birtist þar mikil svohljóðandi fyrirsögn: „Verka- lýðsfélagskosningarnar: Lýð- ræðissinnar í Borgarnesi í mik- illi sókn“. Samlívæmt „frjálsum“ frétta- flutningi Eykons þýða „lýð- ræðissinnar" stjórnarflokkana eina, og þá í þessu tilfelli í- haldið, því fáfr fnunu telja kratana til stjómmálaflokka í Borgamesi. Tatigarnar í ólagi? í grein þessari segir að „lýð- ræðissinnar“ — B-listinn, hafi aukið fylgi sitt úr 45 atkv. á s.l. hausti í 82 nú. og séu það rúmlega 44%. Morgunblaðið sem út kom daginn er ég kom til Borgamess segir frá seinni kosningunni í Verkalýðsfélagi Borgarness, og þá að B-listinn hafi aukið fylgi sitt úr 45 atkv. í 88 atkv. og sé það 95% aukning. Lesendur munu fljótlega sjá hvort reikningsdæmið er rétt — en óneitanlega bendir þetta til þess að taugar Mogga- manna hafi ekki verið í sem beztu lagi. Bjarni talar við Borgnesinga Daginn eftir að Mogginn birti sigurfréttina af fyrri kosning- unni í Verkalýðsfélagi Borgar- ness sagði Bjarni Ben. í Stak- steinum Moggans umbúðalaust, að fylgisaukning íhaldsins í Borgamesi væri sigur „við- reisnarinnar", bar hefðu verka- menn í Borgarnesi vottað fögn- uð sinn yfir þeirri dýrtíð og kjaraskerðingu, sem viðreisnin hefur leitt yfir þá sem annan verkalýð í landinu. Það voru þessi staksteina- skrif Moggans, sem vörpuðu ljósi á ýmislegt er gerzt hafði í kosningunum — og sýndu Borgnesingum að B-listinn hafði verið nokkurskonar ráð- herralisti viðreisnarstjórnar- innar! Tvennar kosningar Stjórnarkjör fór fram í Verkalýðsfélagi Borgarness 12. og 13. þ.m. Úrslit urðu þau, að báðir listamir, A- og B-listar, fengu jöfn atkvæði, 82. Kosningin var endurtekin viku síðar og fékk A-listi þá 94 atkv. en B-listinn 88. Rétt mynd? Er þetta þá rétt mynd af hug verkamanna til stjórnar sinnar? Fæstir Borgnesingar munu telja svo vera. Kosning- amar til Alþýðusambandsþings á s.l. hausti voru frjálsar kosn- ingar, þannig að hvorugur að- ilinn smalaði segja þeir. Þá fékk A-listinn 70 atkv. en B- listinn 45. Það er rétt mynd af hug verkamanna í Borgarnesi til stjómar sínnar. Hversvegna ekki? Hversvegna eru atkvæðatöl- urnar nú ekki rétt mynd? Vegna þess, segir fólk í Borg- arnesi, að það var kosningavél Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en ekki Borgnesingarnir cr að B-listanum stóðu sem stjórnuðu öllu framferði B-listamanna í þessum kosningum. Strax í fyrri kosningunni kom fljótlega í ljós að mönn- um var smalað víðsvegar að til að kjósa, en í seinni kosning- unni kastaði fyrst tólfunum, og var hún rekin eins og harðasta alþingiskosning. Þannig sendi íhaldið bíla eftir mönnum til verstöðvanna á Suðumesjum vestur á Snæfellsnes og austur yfir Fjall, allt upp í Hruna- mannahrepp. Kvaðst heita Gunnar 1 seinni kosningunum tók Borgnesingum er staddir voru í Reykjavík óvænt að berast boð um bíla til að skreppa upp í Borgarnes til að kjósa í Verka- lýðsfélaginu. Sjómaður einn fékk boð um bíl, en þar með að fyrst þyrfti að hafa sam- band við B-listann í Borgar- nesi. Bíllinn kom samt aldrei, hvort sem B-listamenn hafa heldur talið sig örugga um sigur, eða atkvæði mannsins vafasamt! Borgnesingur einn í Reykja- vík var kvaddur frá vinnu sinni í símann. Kvaðst sá heita Gunnar er í símanum var og tilkynnti Borgnesingnum að bíll kæmi til að flytja hann upp í Borgames til að kjósa. Kom bíllinn svo brátt að Borgnes- ingnum kvað ekki hafa gefizt tóm til að fara úr vinnufötun- um! Fengu aðrir sömu greiðslu? Ýmsar furðulegar sögur eru sagðar í Borgarnesi af fjár- austri íhaldsins í þessum kosn- ingum. Það er t.d. haft eftir varaformannsefni B-listans eft- ir fyrri kosninguna að hann ætti 4 þús. kr. „hjá þeim“. (Borgnesingar velta því fyrir sér hvort hann muni þurfa að leita til stjómar Verkalýðs- lagsins til að innheimta laun- in!) „Hjá hverjum var benzínið á kosningabila B-listans skrif- að?“ er almennur brandari í Borgamesi þessa dagana. „Þelr sjá um það fyrir sunnan!“ Að Borgnesingi sem á gamlan bíl kvað hafa vikið sér maður einn og spurt hvort hann þyrfti ekki að láta gera við bílinn sinn. Ekki bar Borgnesingurinn ó móti því. Hinn kvaðst skyldu láta gera við bílinn ef hann kysi B-listann og hann sigraði. En ekki átt þú neitt bílaverk- stæði, svaraði Borgnesingurinn. Nei, svaraði hinn, „Þeir sjá um það fyrir sunnan"!!! „Frjálsar" kosn'ingar íhaldsupphlaupið í Borgar- nesi mun vera það sem íhald og kratar kalla því fágrá nafni „frjálsar kosningar“. Boranesinear eru hinsvegar Guðmundur Sigurðsson. ekki í vafa um hvað þarna er að gerast. Sjálf „viðreisnar“stjórnin fyr- irskipaði herför'ina gegn alþýð- unni i Borgarnesi. Kosningavél íhaldsins í Reykjavík skipu- lagði og stjórnaði herförinni. Fé var ausið úr flokksjóðnum. (Þar er engin hætta á gjald- þroti. Braskararnir sem hækk- uðu vöruverð um 40% meðan verkamenn fengu 4% hækkun, ráðherrarnir sem skömmtuðu sjálfum sér tugi og hálft hundruð þúsunda í skattalækk- un þegar þeir réttu verkamann- inum 100 eð 1000 kr. eftirgjöf, útgerðarmennirnir sem stálu milljónum úr vösum síldarsjó- manna á s.l. sumri, hafa ráð á ríflegum framlögum í kosn- ingasjóðinn). Draumur afturhaldsins um „frjálsar kosningar“ á Islandi er sá, að kosningaskrifstofa í- haldsins í Reykjavík stjórnfi jafnvel kosningum í litlu verka- lýðsfélagi í fámennu þorpi úti á landi — og braskararnir borgi kostnaðinn með fé sem þeir hafa rænt af almenningi. „ViðrCisnin“ varð sér til skammar En hversvegna hófst þetta í Borgamesi? Vegna þess að fyrsta stjómarkjör ársins í verkalýðsfélagi mun hafa verið' þar. „Sigur Viðreisnarinnar" sem Mogganum varð svo tíð- rætt um, átti síðan að nota til áróðurs í öðrum félögum. En það var meira. Bjarni Ben. ljóstraði því upp í Stak- steinum, að þessar kosningar væru prófsteinn ó „viðreisn- ina“. Atför íhaldsins að Borg- nesingum átti að vcra upphafið að Alþingiskosningaslag í- haldsins. Kosningasigrar „við- reisnar“stjómarinnar áttu að hefjast í Borgarnesi! En „viðreisnin“ varð sér til skammar — tapaði. Róar það taugarnar, Eykon? Morgunblaðið segir að það hafi verið kommúnistar sem báru fram A-listann í Verka- lýðsfélagi Borgamess, — og sýni kosningaúrslitin hið mikla fylgistap kommúnista. Lofum Mogganum að halda sig við þessa vitleysu. Við síð- ustu hreppstjómarkosningar í Borgarnesi fékk Alþýðubanda- lagið 52 atkv. 1 Verkalýðsfélag- inu fékk A-listinn nú 94 atkv. — Við skulum lofa Mogganum að reikna þetta í prósentum. — En eru þessar tölur um „tap kommúnista“ nokkuð til að róa taugamar. Eykon sæll! Samcinizt gegn íhaldinu Það sem sigraði í Borgarnesi var samstaða almennings gegn íhaldinu. Fólk úr öllum flokk- um kaus A-listann. Það reis til vamar gegn því að kosninga- skrifstofa íhaldsins í Reykjavík hrifsaði verkalýðsfélagið undir yfirstjóm sína. (Það breytti hinsvegar ekki því að þeir Framsóknarmenn sem hafa baráttuna gegn kommúnistum enn að trúaratriði kysu íhalds- listann). Aðför íhaldsins að Verka- lýðsfélaginu í Borgarnesi er aðvörunarmerki til verka- lýðs alls staðar annarsstað- ar á landinu. Sigur verka- lýðsins í Borgarnsei er öll- um öðrum verkalýð fordæmi um að láta ekki sitt eftir Iiggja heldur sameinast gegn íhaldinu — og sigra. J. B. G^vmsluhúsnœði Bílskúr eða annað pláss á götuhæð ca. 30 til 40 íerm. óskast nú þegar. Mætti vera í Kópavogi. Góð aðkeyrsla nauðsynleg. Upplýsingar í síma 17500. SKYNDISALA í 3 DAGA Telpuúlpur vatteraðar á 1—14 ára og allskonar bamafatnaður. Hálfvirði. V»/W<| Austurstræti 12 „Þeir sjá um það fyrir sunnan" ■ —............. Sunnudagur 27. janúar 1963 Eiga slíkir að ann ast mál okkar Otsendarar B-listans segja okkur margt fagurt þessa dag- ana um hæfni B-listamannanna til að stjóma málum okkar Dagsbrúnarmanna. Fjórði maðurinn á B-listan- afhuguð s Rrðfnum Á fundi Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði á fimmtu- dagskvöld var samþykkt tillaga um að athuga möguleika á sam- einingu verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. Jón og Haukur standa sig vel á SkákþingÍHU Staðan á Skákþingi Reykjavík- ur eftir V. umferð. Meístaraflokkur A-riðill. 1— 2 Bjöm Þorsteinsson og Sig- urður Jónsson með 3Vs vinn- ing. 3. Jóhann ö. Sigurjónsson 2*/j v. 4—5. Gylfi Magnússon og Þor- steinn Skúlason 2 vinn. og biðskák. B-riðiII 1. Haukur Angantýsson 4Vs v. 2. Jón Kristinsson 4 v. 3—4 Gísli Pétursson og Júlíus Loftsson með 3 vinninga 5. Bragi Björnsson 2'A vinning og biðskák. C-riðill 1. Jón Hálfdánarson með 5 vinn- inga 2. Jónas Þorvaldsson 3 vinn. og biðskák 3. Benedikt Halldórsson 3 vinn. 4. Bjarni Magnússon 2‘A vinn. og biðskák 5. Kári Sólmundarson 2% vinn. I. Flokkur. 1. Björgvin Víglundsson með 4 v. 2— 4 Gísli R. isleifsson, Haukur Hlöðvir og Vilmundur Gylfa- son með 3 vinninga 5. Þorsteinn Bjarnason 21/, vinn. II. Fiokkur A. 1. Stefán Guðmundsson með 4 v. 2. Gísli Sigurhansson 3*A vinn. 3. Baldur Bjömsson 2Vj v. og biðskák 4. Helgi Haukssoh 2% vinn. II. Flokkur B. I. Björgvin Guðmundsson 5 v. 2—4. Holger Clausen, Þórketill Sigurðsson og Þorsteinn Mar- elsson 3 vinninga. VI. umferð fer fram í dag (sunnudag) kl. 2 í Snorrasalnum að Laugavegi 18. Ný stjórn Sósíal- istafélags Nes- kaupstaðar NESKAUPSTAÐ 25/1 — Hinn II. jan. s.l. var haldinn aðal- fundur Sósíalistafélagsins i Nes- kaupstað og kosin ný stjóm. Jóhannes Stefánsson var kos- inn formaður. varaformaður Gunnar Ólafsson, ritari Birgir Stefánsson. gjaldkerj Guðmund- ur Sigurjónsson og meðstjórn- endur þeir Stefán Pétursson Geir B. Björnsson og Aðalsteinn Halldórsson. — rs. um er Torfi nokkur Ingólfsson. Hann hefur stundum verið sett- ur einskonar gervireddari hjá Eimskip, og sl. fimmudag, sama daginn og Dagsbrúnarfundurinn var haldinn, komst hann í þá aðstöðu að hafa yfir vinnu- félögum sínum að segja. Einn vinnufélagi hans tafðist og mætti of seint til vinnu af þeim sökum. Venja er ef slíkt kemur fyrir að draga tímann af viðkomandi manni. En Torfi Ingólfsson rak manninn úr starfi umsvifalaust! Með því sýndi hann ekki að- eins hug sinn til vinnufélagá sinna, heldur og hitt að hann hefur ekki hugmynd um þær regiur sem hann á að starfa eftir sem verkstjóri. — Óþarft mun að geta þess að yfirverk- stjórinn varð að hafa vit fyrir Torfa og afturkalla brottrekst- urinn. Þetta er aðcins eitt lítið dæmi um hvers við mættum vænta ef B-listamenn kæmust í valda- aðstöðu. Eigum við að fela slíkum mönnum að fara með mál okk- ar? Við svörum því í dag og á morgun með því að kjósa A- listann. XA. Ilafnarverkamaðnr. 16250 VINNINGAR! Fjórði hver miði Yinhur að meðaltali! Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur. Lægstu 1000 krónur. Dregið 5. hvers mánaðar. sðiuæia PlOllSIIH LAUGAVEGl 18I£ SIMI 19113 Til sölu 2, 3, 4 og 5 herb. íbúðir á ýmsum stöðum í borgjnni. Ýmiskonar aðrar fastejgn- ir til sölu Höfum kaupendur með miklar útborganjr að flestum stærðum íbúða. Einnig að raðhúsi. Hafið samband við okkur ef þið þurfið að selja eða kaupa fasteignir. * Skattaframtöl * Innheimtur * Lögfræðistörf * Fasteignasala Hermann G. Jónsson. h<B. lögfræðiskrifstofa. Skjólbrsut 1. Kópavögi Sími 1003! kl. 2—?. Heima 5124R

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.