Þjóðviljinn - 03.02.1963, Side 2
2 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur 3. febrúarr 1963
, . '• •• •• •
% M
illli
/' . M s
11111111
:-x:v-b
< %
<•
:|ÍÍ||||
WMÍÍ
k-VS'M-M/ZV.-WS'íffi/Y’Í
\. gfg
:'íll
Félagshús
verkamanna
Þau eru orðin mörg húsin
sem reykvískir verkamenn og
iðnaðarmenn hafa byggt þa'ð
sem aí er tuttugustu öldinni,
furðu mörg hús og vönduð mið-
að við fámenni þjóðarinnar og
geitu.
Þó hafa þeir byggt alltof fá
hús handa sjálfum sér og fé-
lögum sínum. verkalýðsfélögun-
um. Húsmál fátækra verkalýðs-
félaga hafa orðið þeim býsma
örðug, ekki síður en húsnæðis-
mál fátækra fjölskyldna. En
verkalýðshreyfingin er nú orðin
svo öflug að það er skyldugt
að eimmig á þessu sviði bregði
hún stórum svip yfir starf
verkalýðsfélaganna og framtíð.
S tarfshei m.kynni og félagsheim-
illd verkalýðsfélaganna þarf að
einkenna reisn og myndarskap-
ur. Til þess að svo megi veirða
eetux verið nauðsynlegt að fé-
lög hafi samtök um húsbygg-
ingar, líka stóru félögin í
Reykjaviik, en séu ekki að bogr-
ast við siitt hvert í sínu homi.
Líkt og þar sem bezt er séð
fyrir þessum þörfum I grann-
löndunum þurfa að rísa í
Reykjavík. í öllum kaupstöðun-
um og víðar, falleg oe aðlað-
andi alþýðuhús, sem geta verið
hvort tveggja i senn, starfsmið-
stöðvar verkalýðsfélaganna og
heimkynni fræðslustarfsemi og
skemmtana félagsmanna og al-
þýðuæskunnar. Hér er mikið
verk óunnið enda þótt óþrotlegt
erfiði hafi löngum verið lagt í
húsnæðismál verkalýðsfélag-
anna, ailt frá því Rárufélögin
reistu Báruhúsið af miklum stór-
hug í lítilli Reykjaryík og af
ensrum efnum.
Það má því með sanni segja
að ekki hafi lengi heyrzt á-
nægjulegri fregn af starfi verka-
lýðsfélaga í Reykjavík en þegar
fréttist að Verkamarmafélagdð
Dagsbrún og Sjómannafélag
Reykjavikur hefðu keypt stór-
hýsi Sanitas við Lindargötu 9,
og hyggðust breyta húsinu í
starfsmiðstöð félaganna og fé-
lagsheim/illi reykviskra verka-
manna og sjóimanna.
Frá Lindargötu 9 hefur und-
amfarna mánuði heyrzt mikil
höggaraust og annar óhieyrileg-
ur hávaði, niðurrifsmenn frá
Reykjavíkurhöfn og víðar að
hafa verið stórvdirkir að velta í
rústjr hjnu gamla og úrelta, tug-
ir bíllhlassa af braki og brotum
hafa verið keyrð burt, og nú er
farið að byggja á ný.
Og þetta er óvenju forvjtni-
legt þegar um er að ræða fé-
lagsheimiili verkamanna og sjó-
manna, enda stikuðum við Ari
Kárason þangað í sólskinsdýrð-
inni á fimmtudaginn, og hittum
fyriir Kristján Jóhannsson, fjár-
málaritara Dagsbrúna-r sem ráð-
imn hefur verið framkvæmda-
stjóri við umbyltingaroar á
Lindargötu. Fylgdi hann okkur
um húsið allt. allar hæðir þess,
k.jailara og ris, og brátt hættum
við að sjá steypubrakjð og.járna-
ruslið og götin í gólfunum og
veggjunum eftir niðurrifsstarf-
semi undanfarinna mánaða, nýtt
hús reis og varð til fyrir aug-
um okkar, félagshús verka-
manna og sjómanna í Reykja-
vík.
Ljndargata 9 er ekkert smá-
ræðishús eins og hægt er að fá
Hér eru þeír komnir verkamennirnir og trésmiðirnir sem þessar vikurnar eru að vinna i stórhýsinu að Lindargötu 9, svo það geti
sem fyrst opnað dyrnar upp á gátt fyrir eigendum sínum, reykv ískum verkamönnum og sjómönnum, til margháttaðra félagsstarfa,
skemmtunar og tómstundadvalar. Þeir eru (frá vinstri) Jóhann Alexandersson, Óskar Guðmundsson, Kristján Jóhannsson, Guðjón
Jóhannsson, Ragnar Jónsson, Ásmundur Guðiaugsson, Andrés Bjarnason, Gunnar Gíslason.
hugmynd um af myndum þeim
sem hér fylgja, en ekki skulu
að sirani þuldar tölur um stærð
þess og rúmtak. Þó hefur at-
hygli umbyltingarmannanna þar
neðra ekki sízt beinzt að út-
byggingu norðan aðalhússins,
sem var geymsluhús og inn-
keyrsla í tíð iðnrekstursins í
húsinu. MiiWi útbyggingarinnar
og kjahara aða.ihú;«l'ns hefur
öflugur steinveggur verið brol
iinin niður og er ætlunin að fá
þar - aðals'amkomusal hússins
með tilheyrandi eldhúsi, snyrti-
herbergjum, fatagieymslu og
anddyrd, og verður inmgangur í
þá hæð af jafnsléttu úr Skugga-
sundi. en húsið stendur í mikl-
um hailla.
Útbyggingin er um 130 fer-
metrar, en með viðbótinni itnn í
aðaihúsið fæst þarna salur sem
getur tekið um 200 manns í
sæti. Þarna er ætlunin að hafa
margháttaða félagsheimilisstarf-
semi verkamanna og sjómann'a;
í salnum yrði hægt að dansa,
því sæti verða laus, og hafa þar
margskonar skemmtan og
fræðslu.
Inngangurdnn til hinna hæð-
anna al'lra verður frá Ljndar-
götu og núverandi inngangi í
húsið gerbreytt, eins og sjá má
af útlitsteikningunni sem birt
ei á 12. síðu. Einnig að öðru
leyti breytir húsið að utan um
svip, skipt verður um glugga
í tveimur neðri hæður.um, og í
stað risims sem nú er, kemur
inndregin rishæð með mikiu
glerí í hliðum og tveggja metra
svölum á brún allrar hús-
hliðarinnar að Lindargötu. Mikl-
ar breytir.gar verða nú begar
gerðar innanhúss, auk breyt-
inga á innréttingu verður skipt
um alllar lagnir í húsinu, raf-
lögn, vatnslögn, hitaleiðslur og
skolpleiðslur. Verður húsið búið
svonefndu Frenger-hitunarkerfi,
sem talið er einkar vandað og
hentugt. Meistaramir sem sjá
um verkið eru Halldór Jóhanns-
son trésmíðameistari, Svanþór
Jónsson múrarameistari, G<unn-
lauigur Óskarsson rafvirkjameist-
ard og Ásgrtímur Egilsson pípu-
laignin'gameistari.
★
Á fyrstu hæð hússins verða
Jrotínn hcfur verið stcinveggur milti útbyggingarinnar og kjail
,ra aöalhússins til að koma fyrir félagsheimilinu. Þar eiga að
•oma stálbitar og stálsúlur til að bera þann þunga sem veggui •
nn bar. En tál bráðabirgða er sett þétt röð af tréstoðum og hér
;r Óskar Guðmundsson að reka eina stoðina undir.
Þessi mynd er eins og myndin á forsiðunni tekin ofan af svölun-
vestur yfir útbygginguna, en í henni á aðaisamkomusalur húss-
ins að verða. — Mennirnir sem þarna eru að starfi eru þeir
Gunnar Gíslason trésmiður og Jóbann Aiexandersson verkamað
ur. — Ljósm. Þjóðv., Arj Kárason, tók allar myndirnar.
skrifstofur og sta.rfshcimili
beggja félagamna. Dagsbrúnar í
vesturendainum og Sjó mannafé-
lagsins í austurendamum, en
ekki vildi Kristj-án svara bví,
hvort sú ákvörðun væri gerð
vi-írnn jafnvægis í húsinu!
f’au>a verður kaffistofa og
, o.nyi t herb-rg.i fyrir srtprfsmenm
íélr.ganr a; 'I>? jj»> u úna,—-e-gin
verður »1——n.n n[yi--i^'u s‘órt
furidarb^rt>«-!-^ rí r fé'aijs-
stjórnina o. i . lier-
ber,"i. Sv puö b nvgiun mnn
verða í ai—o»~noiamv*»n hjá Sjó-
manniaíélag’ÍTi'i
Aðra og þriðju hæð hússins
hugsa félögin sér að leigja sem
skrdfstofuhúsnæði fyrst um sinn,
en hima nýju rishæð er ætlað að
nota fyrir bókasafn Dagsbrún-ar,
sem ætti að fá þama framúr-
skarandi skemmtilegt _ húsnæði
(í austurendanum). í vestur-
enda rishæðarinnar er ætlunin
að haf.a lítinn samkomu- og
fundasal. 50—60 mama.
Dagsbrún og Sjómannafélagið
fesitu kaup á Lindargötu 9 hinn
1. júní 1962, en vinnan við
breytingamar hófst um mánaða-
mótin október—nóvember. Hús-
ið er óskipt eiign beggja félag-
anna. Húsnefnd, skipuð tveimur
mönnum frá hvoru félagi,
stjóroar framkvæmdum öllaim
að breytingunum, og eiga sæti í
henni af hálfu Verkamannafé-
laigsins Dagsbrúnar Kristján Jó-
hannsson og Halldór Björnsson,
en af hálfu Sjómannafélags
Reykja'víikur Hilmar Jónsson og
Óli BárSdal. Er Hilmar formað-
ur húsnefndarinnar en Krist-
ján framkvæmdastjóri af hálfu
beggja félaganna. Formenn
Dagsbrúnar og Sjómannafélags-
dns, Eðvarð Sigurðsson og Jón
Sigurðsson, hafa setið flesta
fundi húsnefndarinnar og verið
með í ráðum.
— Hvenær heldurðu að verði
hægt að flytja í nýja húsnæðið?
spyr ég Kristján að lokum.
— Um það er ekki gott að
segja, það fer eftir peningunum
sem við getum í það látið. E.i
hugsanlegt ætti að vera að fé-
lögin geti flutt í skrifstofuhús-
næðið í vor og félagsheimáiið
niðri yrði tilbúið næsta haust.
— Tclur . þú ekki að húsnæð-
isleysi hafi háð starfsemi félag-
anna?
— Jú, tvímælalaust hefur það
háð félögunum að þau hafa búið
við of lítið og óhentugt hús-
næði. Það á við um sjálft skrif-
stofuhúsnæðið. um dagleg starfs-
skilyrði féla'ganna, og þá ekki
siður, að þau skuli ekki hafa átt
neitt félagsheimili til þess að
rækja fræðslustarf og skemmti-
starfsemi fynir félaga sina.
— Eru ekki vandkvæði á því
að breyta gömlu húsi í vandað
télagshús?
— Jú, auðvitað. Enda verður
þetta hús að skoðast sem áfangi
að því húsi sem félögin rieása
sér seinna frá grunni. En það
hefði orðið félögunum ofviða
eins og nú er að koma upp
nógu stórri nýbyggingu á
skömmum tíma og því var horf-
ið að því ráði ag kaupa þetta
hús. Að mínum dórni er staður
inn góður og vonandi verða fé-
lögin fær um að veita mönnum
sínum betri þjónustu á öllum
sviðum þagar húsið verður til-
búið.
Og þá er ekki annað eftir í
bili en að óska Verkamannafé-
laginu Daigsbrún og Sjómanna-
félagi Reykjavílkur allra heilla
með húsið, og hlakka til þess
að sjá þau eignast jafnmyndar-
legan samastað í hjarta Reykja-
vítour.
S. G.
SÍLU
PJOHUSTAH
LAUGAVEGI 18®- SÍMI 19113
TIL SÖLU
6. herb. ný og glæsileg
íbúð á Laugarnesvegi. Góð
kjör.
3—5 herb. íbúðir víðsvegar
um borgjna.
Einbýlishús í Gerðunum.
3 herb. ibúð í Kópavogi,
tækifærisverð.
í ÖLAFSVÍK
3 herb. stór og glæsileg
ný íbúð á neðri hæð í tví-
býlishúsi, allt sér. — Laus
«ú þegar, mjög hagkvæmir
skilmálar ef samið er strax.
ÍBUÐIR öskast
Höfum kaupendur með
miklar útborganir að 2—3
herb. íbúðum.
4 herb. íbúð, sem er laus nú
þegar óskast str.ax. Stað-
greiðsla ef óskað er.
Hafið samband við
okkur ef þið þurfið
að selja eða kaupa
fasteignir.
ft
i
i
1
f