Þjóðviljinn - 08.03.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 08.03.1963, Síða 1
Föstudagur 8. marz 1963 — 28. árgangur — 56. tölublað. Rannsókn á aðbúnaii í ver stöðvum og á vinnustöðum Gunnar Jóhannesson og Eövarð Sigurðsson flytja á Alþingi til- lögu til þingsályktunar um rann- sókn á aðbúnaði verkafólks í verbúðum og á vinnustöðvum. Tillagan er þannig: „Alþingi ályktar að kjósa fimm manna nefnd, sem rann- saki aðbúnað verkafólks í ver- búðum og á vinnustöðum mcð sérstöku tilliti til öryggis og heilbrigðiseftirlits. Sérstaklega skal nefndin rann- saka aðbúnað og alla aðstöðu VÍSIR þóknast vinnuveitendum EINS OG ÞJOÐVILJINN skýrði frá fyrir nokkru sömdu bif- vélavirkjar á Akureyri við verkstæðjn þar um 20% kaup- hækkun. VÍSIR skýrði rétti- lega frá þessu í fyrradag, í framhaldi af frétt um samn- ingsuppsögn járniðnaðarmanna í Reykjavík, en í gær ber blaðið þessi skrif sín til baka og segir að þau hafi verið byggð á röngum upplýsingum forsvarsmanna Félags járniðn- aðarmanna í Reykjavík. SANNLEIKORINN í þessu máli er sá einn sem VÍSIR greindi frá í fyrradag: bifvélavirkjar á Akureyri hafa samið við bifreiðaverkstæðin þar um 20% kauphækkun — og ættu Vísismenn að gcta fengið stað- festingu á þessu hjá Sveinafé- lagi járniðnaðarmanna á Ak- ureyri. Fimm ára SKlÐAKAPPINN á miöri mynd- inni er fimm ára gamall Seyð- firðingur, heitir Þorsteinn Bald- vinsson og var í hópi 76 þátt- takenda í skíðamóti, sem hald- ið var á Seyðisfirði fyrir skömmu. Þorsteinn sést hér koma í enda- mark eftir að hafa gengið 1,3 kílómetra á 9 mínútum röskum og þar með náð beztum tíma í göngukcppni 5 og 6 ára drengja. Frétt um mót þetta og fleiri myndir birtast á íþróttasiðu á morgun, laugardag. (Ljósm.. G. S.I. EN SKÝRINGIN á vjðbrögð- um VÍSIS í gær er augljós; Staðreyndirnar um kauphækk- un bifvélavirkjanna á Akur- eyri eru óþægilegar fyrir for- svarsmenn Vinnuveitendasam- bands íslands og þessvegna er íhaldsblaðið látið grípa til lyg- innar um leið og forysju- mönnum Félags járniðnaðar- manna er lýst sem ósanninda- mönnum, þótt þeir hafi ekki annað gert en Iátið frétta- manni í té upplýsingar sem eru á allra vjtorði og sann- leikanum samkvæmar! ANNARS ERU járniðnaðarmenn í Reykjavík vanir skrifum sem þessum úr Vísisáttinni og næg- ir f því sambandi aðeins að minna á skrif blaðsins meðan stóð á vinnudeilunni í fyrra. Þá reyndi betta íhaldsblað að stappa stálinu í vinnuveit- endur. Þá stóðu málin þannig, sem kunnugt er. að verkstæð- iseigendur höfðu samið við járniðnaðarmenn án þess til verkfalls kæmi, en Vinnuveit- endasambandið bannaði verk- stæðunum að standa við þá samninga! FRAMHALDI af þessu skal svo loks á það minnt, að járn. iðnaðarmenn sögðu upp samn- ingum sínum núna m.a. vegna þess að vinnuveitendur neit- uðu þeim algerlega um minnstu Iagfæringar á gildandi samn- ingum, meira að segja fimm prósentin sem fjölmörg verkalýðsfélög hafa fyrir nokkru samið um. þess fólks, sem sækja verður atvinnu sína til fjarlægra staða um sumar- og vetrarvertíðir. Nefndin skal gera ýtarlega skýrslu um störf sín og leggja fram tillögur til úrbóta varð- andi þessi mál, ef rannsóknir hennar upplýsa, að þess sé þörf. Nefndin kveður sér til aðstoð- ar fulltrúa frá Alþýðusambandi íslands, frá verkalýðsfélögum viðkomandi staða, frá Vinnuveit- endasambandi Islands og frá Vinnumálasambandi samvinnufé- laganna. Nefndin skal ljúka störfum fyriir ársbyrjun 1964. ■ýtarleg greinargerð fylgir til- lögunni. Askrífenda- söfnunin ALLIR sem safna 5 nýjum kaup- endum að Þjóðviljanum geta valið sér eina af neðantöld- um bókum í viðurkenningar- skyni: Byltjngin á Kúbu Tuttugu erlend kvæði Óljóð I f Unuhúsi Vegurinn að brúnni Blakkar rúnir Andlit Asíu Grískar þjóðsögur Tvær kviður fornar Vort land er í dögun Ræður og riss Skriftamál uppgjafaprests A Islendingaslóðum Hetjuleiðir og landafundir Við elda Indlands Hin hvítu segl Minningar Vigfúsar Guð- mundssonar, Þroskaárin Að duga eða drepast fslenzkt mannlíf FuIInuminn Ferðarolla Magnúsar Step- hensen Vefaradans Því gleymi ég aldrei Fortíð og fyrirburðir Sonur minn og ég Þjóðsögur og sagnir, F. Hólm Prjónastofan Sólin Saltkorn í mold Játningar Ágústínusar íslenzkar nútímabókmenntir. I LEIÐIN TIL rA SOSIALISMANS; 1 kvöld klukkan hálf níu flytur Einar Olgeirsson erindi í Tjarnargötu 20 um leið ís- lands til sósíalisma. Er það hið fyrsta i erindaflokki, sem fræðslunefnd Sósíalistaflokks- ins gengst fyrír. Tíðindamaður Þjóðviljans hitti Einar snöggvast að máli í gær og spurði, hvað hann mundi aðallega tala um. — Ætlunin er að ræða um þau verkefni Sósíalistaflokks- ins, sem fram undan cru í vaklabaráttu alþýðunnar. Um þetta efni er nú mikið talað og spurt. — Það er auðséð, að and- stæðingar okkar fylgjast líka af nokkrum áhuga með. Vísir var að ráðleggja okkur að halda okkur við byltingar- leiðina! Hann er líklega hræddur um, að við missum glæpinn? — Auðvitað eru það rang- færslur hjá Vísi, að við höf- um viljað byltingu með valdi. Lengi voru hins vegar lang- mestar Iíkur til þess, að við yrðum ofbeldi beittir, ef við næðum þingmeirihluta og fær- um að framkvæma sósial- isma. Við munum harmleik- inn á Spáni. En tímarnir hafa breytzt okkur í hag, og þvi nærtækara verkefni er nú að gera skýra grein fyrir, hvernig við ætlum að undirbúa fram- kvæmd sósíalismans á þing- ræðislegan hátt. Hitt cr svo annað mál, að umbreytingin úr kapítalisma í sósíalisma er og verður alltaf þjóðfélags- Ieg bylting. Kannski það huggi Vísi! Tíðindamaður Þjóðviljans vill bæta við þetta áskorun til allra sósíalista að koma í Tjarnargötu í kvöld og hlýða á crindi Einars. Það er sann- arlega ekki aðeins ástæða fyrir andstæðingana að fylgj- ast af áhuga mcð umræð- unum um þessa stefnuyfirlýs- ingu okkar, heldur er það sérstakt ánægjuefni allra ein- lægra vinstrí manna að kynna sér þetta mál sem rækileg- ast. ! i Afstaða (haldsins til borgarstarfsmanna: Neitar að fal/ast á 5 prósent launabætur þeim til handa Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær hindruðu íhaldsfulltrúamir og Óskar Hallgrímsson með atkvæðum sínum að eftirfarandi tillaga frá borgarfulltrúum Alþýðu- bandalagsins næði fram að ganga: „Borgarstjórnin samþykkir að greiða félags- mönnum Starfsmannafélags Reykjavíkur 5% á- lag á laun frá 1. febr. s.l. og þar til gengið hefur verið frá nýrri launasamþykkt fyrir starfsmenn borgarinnar. Borgarstjómin ályktar að greiða einnig sama álag á laun þeirra laustráðinna starfs- manna, er venjulega fá sömu launabætur og fastir starfsmenn.“ í framsöguræðu fyrir tillög- unni rakti Guðmundur Vifffús- son stuttlega aðdraganda þess, að verklýðsfélögin fengu 5% kauphækkunina í vetur. Riðu Akureyrarfélögin þar á vaðið og síðan fylgdi Dagsbrún og mörg önnur félög á eftir. 20. febrúar var svo lagt fram á borgarráðs- fundi erindisbréf frá launanefnd Starfsmannafélagj Reykjavíkur þar sem félagið fór fram á að félagsmenn þess fengju einnig 5% launahækkun frá 1 febrúar sl. að telja. Guðmundur benti á. að opinberir starfsmenn eru flestir hverjir að þvi leyti verr settir en verkamenn, að þeir eiga óhægara með að bæta sér upp lág laun með þvi að leggja á sig aukavinnu, en ýmsir borg- arstarfsmenn eru engu betur launaðir en verkamenn. Sagði hann, að borgarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins hefðu rætt með sér þetta mál og teldu, að einsýnt væri að Það bæri að verða við óskum borgarstarfsmannanna um kauphækkunina, enda væri nú þegar búið að hækka búvöru- verð um 3—i% vegna 5% kaup. hækkunarinnar og kæmi sú hækkun auðvitað jafnt niður á borgarstarfsmönnum og öðrum launþegum. Borgarstjóri sagði að mál þetta væri í athugun hjá borgar- ráði og taldi eðlilegt, að það gerði tillögu um afgreiðslu þess til borgarstjómar. Sagði hann, að 5% hækkunin hefði átt að vera uppbót til þeirra sem lægst væru launaðir og væri þörf á að athuga hvort eða hve mikill hluti borgarstarfsmanna féHi undir þann flokk. Taldi hann einnig, að mál þétta ætti að ræða af launanefnd borgarinn- ar og félags borgarstarísmanna. Lagði hann til, að tillögu Guð- mundar yrði vísað til borgarráðs Framhald á 2. síðu. Presturínn vill farga eignum Krists Á Alþingi stóð allhörð rimma í gær um eignir Krists og fá- tækra í Skagafirði, en það er guðsmaðurinn Gunnar Gíslason sem flutt hefur frumvarp um að rýra þær eignir og farga þeim. En í forsvari fyrir Krist og fátæka var enn sem fyrr Einar Olgeirsson og tók hann fast í strcnginn með Karli Guð- jónssyni, sem í landbúnaðarnefnd hefur lagt til að fellt verði frumvarp um sölu kristfjárjarð- arinnar Utanverðuness í Rípur- hrcppi í Skagafirði. Einar taldi með öllu óhæfu að taka þessa jörð úr eigu Krists og fátækra og selja hana ein- staklingum. Jörð þessi, Utan- verðunes, var gerð að kristfjár- jörð með gjafabréfi sr. Bene- dikts Vigfússonar prófasts að Hólum árið 1838, og svo fyrir mælt að afgjaldi jarðarinnar skuli varið til styrktar og fram- færslu munaðarlausum börnum i Skagafjarðarsýslu og skyldu börn í Hólahreppi sitja fyrir um slík- an styrk. Þessi ákvæði hefðu fengið að standa óhreyfð í meira en öld, og það er ósæmilegt að henda jörðinni nú í einstaklinga, sagði Einar. Það er ósvífin blekking að halda því fram að það sé eins verðmætt að eiga vexti af sölufé jarðarinnar og eiga jörðina sjáifa. Ef horft væri 125 ár fram í tímann en ekki aftur. er enginn kominn til með að segja hversu mikils virði jörð- in Utanverðunes verður orðin, þegar Island byggir milljónaþjóð og Skagafjörðurinn er orðinn á- líka þéttbýll og , Gullbringusýsla er nú. Og þó margt sé breytt eru enn fátækir menn á íslandi og enn munaðarlaus böm í Skagafjarðarsýslu. Einar tók eindregið undir þá tillögu Karls Guðjónssonar (sem minnihluta landbúnaðarnefndar) að frumvarpið um sölu jarðar- innar yrði fellt. Varamaður guðsmannsins á þingi, Jón Pámason og Ágúst Þorvaldsson vildu endilega láta farga þessari eignarjörð Krists og fátækra. Þetta er þriðja um- rseða málsins í deildinni. ••V

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.