Þjóðviljinn - 16.03.1963, Síða 3
Laugardagur 16. marz
HÓÐVILIINN
SlÐA 3
Óll járnbrautaumferð
lá niðri í Frakklandi
PARÍS 15/3 — Sífellt fleiri verklýðssambönd í
Frakklandi leggja niður vinnu um lengri og
skemmri tíma til að sýna samstöðu sína með 240
þúsund námuverkamönnum, sem verið hafa í
verkfalli síðan í byrjun mánaðarins. Segja má að
daglega berist fréttir um félög sem hefja samúð-
arverkföll.
í dag lá mestöll járnbrautarumferð um Frakk-
land niðri vegna verkfalls um 300 þúsund jám-
brautarstarfsmanna. Er verkfall þeirra samúðar-
verkfall með námumönnum, en jafnframt krefj-
ast þeir sjálfir hærri launa og bætts skipulags
ellilauna.
„Verkamenn verða ekki mcttir aí loforðum“, sagði ritari námumannafélagsins í Mcurthe-et-Mos-
eiie, Balducci, sem hér sést tala á fundi námumanna í Audun-le-Tiche. Við hiið hans stcndur
vararitari sambands námumanna, Leon Boef.
Enn hefja Frakkar
sprengjur í Sahara
Aðeins örfáum utanlandslest-
um var leyft að fara um land-
ið, en þær töfðust mjög vegna
verkfallsins og stóðust ekki áætl-
un. Lestarferðir milli Parísar og
útborga hennar, sem á hverjum
degi flytja fleiri þúsund manns
til vinnustaða sinna, lágu alger-
legi niðri. Yfirfullt var í neðan-
jarðarlestunum og strætisvögnum
vegna verkfallsins.
Jámbrautastarfsmenn ákváðu
að heyja verkfallið sem mótmæli
MOGADISHU 15/3 — Soma-
líuþing samþykkti í gærkvöld
með 74 atkvæðum gcgn 14 á-
kvörðun ríkisstjórnarinnar um
að slíta stjórnmálasambandi við
Bretland vegna deilunnar um
framtíðarlandamæri milli Kcnya
og Somalíulýðveldisins.
Eftir atkvæðagreiðsluna var til-
kynnt að kanski muni líða
nokkrir dagar áður en stjórn-
málasambandinu við Breta verð-
ur opinberlega slitið, þar sem
samningaumleitanir við Breta
um lausn á deilunni munu halda
áfram. En ekki er þó búizt við
við þeirri ákvörðun ríkisstjóm-
arinnar að senda launakröfur
þeirra til nýstofnaðrar nefndar
sem á að sjá um launakjör í
verksmiðjum og öðrum fyrirtækj-
um ríkisins. Segja verkamenn að
þetta muni tefja fyrir samning-
um sem annars fóru fram á
fundum fulltrúa þeggja aðila.
Nefndin, sem gengur undir
nafninu „vitringanefndin" var
stofnuð á miðvikudag og tók til
starfa strax á fimmtudag. Hafði
að samningar takist.
Mikil spenna hefur ríkt i
Somalíu síðustu daga og marg-
ar mótmælagöngur verið farn-
ar að brezkum ræðismanns-
skrifstofum víða um landið.
Einnig hefur verið íjölgað í
hemum ef til átaka skyldi koma.
I Deilan milli Breta og Somalíu-
manna reis vegna þess að Bretar
hafa ákveðið að stofna fylki
með sjálfstjórn í landamæra-
héraðinu milli Kenya og Somal-
íu. Meirihluti íbúa héraðsins eru
Sómalíumenn sem óska eftir að
sameinast Somalíulýðveldinu.
hún þá fundi með fulltrúum
námuverkamanna og verka-
manna í gas- og rafmagnsfram-
leiðslunni.
Ekki varð nein þreyting á
verkfalli kolanámumanna í dag.
Kaþólskir kirkjuleiðtogar sendu
í dag út áskorun til allra kaþól-
ikka um að aðstoða verkfalis-
menn í námunum. Kaþólska
kirkjan hefur frá upphafi veitt
verkfallsmönnum fullan stuðn-
ing.
Verkamenn við gasframleiðsl-
una í Suðvestur-Frakklandi, sem
hafa háð verkfall að nokkru
leyti síðustu tíu daga, hótuðu í
dag að leggja algerlega niður
vinnu, verði ekki gengið að
launakröfum þeirra. Verkfallið
sem þeir hafa háð hefur minnk-
að gasframleiðsluna um helming.
XJm 250 námuverkamenn komu
til Parísar í dag til að safna
peningum í verkfallssjóð og 140
eiginkonur námumanna komu
þangað einnig til að biðja þing-
ið og iðnaðarmálaráðuneytið um
aðstoð.
Verklýðssambönd kommúnista
og kaþólskra skoruðu í dag á
félaga sína innan pósts og síma
að hefja 24 tíma verkföll ýmissa
starfshópa til skiptist frá og með
næsta fimmtudegi. Lögðu þau
til að póstþjónar hefji fyrstir
verkfall á fimmtudag, síðan taki
tæknifræðingar í símþjónustunni
við á föstudag og á laugardag-
inn leggi skrifstofufólkið niður
HELSINKI 15/3 — Horfur
eru nú taldar á að brátt
muni takast að leysa verk-
fall finnskra ríkisstarfs-
manna sem staðið hefur tvær
vikur. Fulltrúar ríkisstarfs-
mannasambandsins og stjórn-
arinnar sem sátu við samn-
ingaborðið alla aðfaranótt
föstudagsins og föstudags-
morgun hafa gert samnings-
uppkast, en hingað til hefur
samkomulag strandað á
hvernig leysa skuli nokkur
smáatriði.
Stjóm starfsmannasambands-
ins samþykkti þó á fundi eftir
hádegi í dag að undirskrifa ekki
samning á gmndvelli þess ár-
angurs sem hingað til hefur
náðst á sáttafundunum. Fulltrúi
þeirra sagði að ekki þyrfti að
búist við úrslitum í dag.
Samningar finnsku stjómarinn-
ar og ríkisstarfsmanna halda á-
fram á morgun og er sátta-
semjari forseti stjómlagadóms-
stólsins, Reino Kuuskoski. Á
Kratar móti Bonn-
I París öxlinum
BRUSSEL 15/3 — Leiðtogar jafr-
aðarmanna í Efnahagsbandalags-
löndunum sex samþykktu i gær
ályktun þar sem þeir mæla gegn
fransk-þýzka samningnum um
samvinnu á ýmsum sviðum.
Segjast þeir ekki geta stutt
samninginn þar sem hann skapi
ótta í öðmm löndum vegna þess
vfirdrottnunarvilja sem komi
fram í honum og sem geti eyði-
’agt samstöðu Evrópulandanna.
Samningurinn grefur þar að
’ki undan gagnkvæmu trausti
innan Atlanzhafsbandalagsins og
veikir þar með einnig öryggi Ev-
rópu, segir í ályktun jafnaðar-
manna.
vinnu. Á með verkföllunum að
leggja áherzlu á kröfumar um
hærri laun og styttri vinnutíma.
Verkalýðssamband jámiðnaðar-
manna hefur ekki viljað standa
að þessu verkfalli.
Ekki kom til neinna átaka í
Frakklandi í dag, en í Sete í
Suður-Frakklandi neituðu krana-
verkamenn að losa kol úr skipi
frá Sovétríkjunum og í Le Havre
neitaði áhöfn á frönsku skipi
að sigla til Antwerpen með kol
sem franskir hafnarverkamenn
höfðu neitað að afferma.
Mikil samstaða ríkir meða’
verkamanna í öllum greinum í
Frakklandi og í París gera menn
sér ekki vonir um að verkfallið
leysist fvrr en í fyrsta lagi eftir
tíu daga til hálfan mánuð.
meðan heldur verkfallið áfram
af fulum krafti og eru jám-
brautarsamgöngur, póst- og toll-
þjónusta enn lömuð.
Ríkisstarfsmenn í verkfalli eru
um 20 þúsund, en verkfalli 53
þús. annarra opinberra starfs-
manna sem boðað hafði verið
frá og með miðnætti var aflýst
þegar samningar tókust 15 mín-
útur yfir tólf. Gera nú margir
ráð fyrir að verkfailsmenn muni
ganga að sömu kjörum og hinir,
en þó er ekki búizt við lausn
deilunnar fyrr en eftir helgina.
Það sem samið hefur verið
um eru launahækkanir, vinnu-
tími, eftirvinnu- og helgidaga-
kaup, verðlagsuppbætur og kerfi
sem á að tryggja að laun opin-
berra starfsmanna standi ætið
í réttu hlutfalli við laun á al-
mennum vinnumarkaði.
Þá var tilkynnt i Helsinki
seint í kvöld að samizt hefði í
verkfalli um 22 þúsund verka-
manna í vefnaðar- og prjóna-
iðnaði. Taka þeir aftur til starfa
á morgun.
Evrópu mun við-
urkennaA-ÞýzkaL
VÍN 15/3 — Alexei Adsjúbej,
tengdasonur Krústjoffs og aðal-
ritstjórj Moskvublaðsins ízvest-
ía, sagði á fundi með frétta-
mönnum i Vin í dag, að þess
væri nú ekki langt að bíða að
mörg Evrópulönd viðurkenndu
austurþýzku stjórnina.
Hann sagði ennfremur að
landamærunum i Evrópu og fil-
veru Austur-Þýzkalands yrði
ekki breytt nema með styrjöld,
en enginn ábyrgur þjóðarleið-
togi myndi vilja verða til þess
að hefja styrjöld.
Aðspurður kvaðst hann ekki
vtja nein boð frá Jóhannesi
oáfa til Krústjoffs, en Adsjú-
bei kom til Vínar frá Róm þar
sem hann ræddi m.a. við páf-
ann.
PARÍS 15/3 — Frakkar hafa
gert áætlun um kjarnasprengju-
tilraun neðanjarðar í Hoggar-
fjöllunum I Sahara, u.þ.b. 1400
km fyrir sunnan Algeirsborg,
segja áreiðanlegar heimildir í
París í dag.
Ekki reyndist mögulegt að fá
fregn þessa staðfesta af opin-
berum aðilum í dag, en blaðið
Le Monde segir að þetta verði
áttunda kjamorkutilraun Frakka.
Áður hafa Frakkar gert fjór-
ar kjamasprengjutilraunir í
andrúmsloftinu. Aðeins ein
kjamorkutilraun neðanjarðar hef-
ur verið staðfest, en óstaðfestar
fregnir hafa borizt um fleiri til-
raunir neðanjarðar að undan-
förnu.
Frá Alsfr berast' þær fréttir í
þessu sambandi að rikisstjómin
hafi ákveðið að koma saman í
fyrramálið til að ræða hvaða
afstöðu skuli taka ef Frakkar
hefja kjarnorkutilraunir í Sa-
haraeyðimörkinni.
1 Evian samningunum sem
undirritaður var milli Frakka og
Alsírmanna fyrir ári er gert ráð
fyrir að Frakkar hafi áfram um-
ráð yfir þeim hluta Sahara, þar
sem þeir hafa áður gert kjarn-
orkutilraunir. Viðurkennt er í
Algeinsborg að ekki séu í Evian
samningnum nein ákvæði sem
banni Frökkum kjamorkutilraun-
ir, en jafnframt er bent á að
þar séu heldur engin ákvæði
sem leyfi þær.
öll ríki sem eiga lönd að
Sahara eyðimörkinni hafa kraf-
izt þess að þar fari ekki fram
neinar kjarnatilraunir og mót-
mælt fyrri tilraunum Frakka
þar harðlega.
Litli drengurinn
Framhald af 1. síðu.
Sporhundurinn reyndist þó
stefna í þveröfuga átt við fund-
arstað og beindi leitarmönnum
aðallega á hálsinn milli Reyk-
holtsdals og Flókadals og verð-
ur að telja hörmuleg mistök.
Lík litla drengsins fannst á
bersvæði við ána Geirsá, sem
rennur fyrir neðan og sunnan
við Giljahlíð og var fundarstað-
ur um einn kílómetra frá bæn-
um. í fyrrinótt brá til verra
veðurs og var kalsaveður með
slydduéli og er talið sennilegt,
að drengurinn hafi króknað úr
kulda.
ORÐSENDING frá frysthúsinu
Isbjörninn h.f.
Starfsfólki okkar og verkafólki sem ætlar að vinna hjá okkur,
er bent á, að eftirleiðis verður flutningi starfsfólksins
til og frá vinnu hagað þannig: — Ekið verður frá Isbim-
inum kl. 7,15 árdegis og beint niður á Lækjartorg. —
Síðan inn Hverfisgötu, Borgartún, Sundlaugaveg, Laug-
arásveg, Langholtsveg, Suðurlandsbraut — inn í Blesu-
gróf. Þá upp Sogaveginn, Miklubraut, Lönguhlíð og niður
að verzl. Egils Vilhjálmssonar, Laugavegi 118. — Síðan
verður ekið eins og venjulega: vestur Snorrbraut og
Hringbraut, og þá stanzað á venjulegum viðkomustöðum.
— Starfsfólkinu verður svo ekið á sömu viðkomustaði
að vinnu lokinni.
Okkur vantar nú þegar
PÖKKUNARSTÚLKUR og KARLMENN
í fiskaðgerð.
GEYMIÐ AUGLYSINGUNA.
Námumenn í Frakklandi hafa nú verið í verkfalli í hálfan mánuð.
Kolanámumenn voru fyrstir til að Icggja niður vinnu, en síðan
komu málmiðnaðarmenn í Lorrine. Á miðvikudaginn sendu þeir
síðarnefndu tvö þúsund manna lið til Parísar til liðveizlu við
scndinefnd sem þeir höfðu gert út á fund Bokanowski iðnaðar-
málaráðherra. Þeir komu í ýmsum farartækjum og sést hér er
bílaröðin kemur til borgarinnar.
Somalfa slítur sam-
bandi við Bretland
Horhrálausn verk-
fallanna í Finnlándi
é
*