Þjóðviljinn - 23.04.1963, Page 6
g SfÐA
MÓÐVILJINN
Þriðjudagur 23. apríl 1963
Russell rekur sögu Kúbudeilúnnar og
afskipti sín af henni í nýrri bók
íftir tilkomu kiarna- Russell í blaðaviðtali að ræða sem siðmenntaður maður. Blöðin l>ögðu
Kennedys þegar hann til- Hættið þessu brjálæði“. 02 í
Eftir tilkomu kjarna-
sprengjunnar á mann-
kynið ekki annað úr-
kosta en algera afvopn-
un og friðsamlega sam-
búð allra ríkja. Þeim
mönnum fjölgar stöð-
ugt sem gera sér grein
fyrir þessu og þegar
Kúbudeilan stóð sem
hæs't’ og mannkynið
virtist vera komið fram
á heljarþröin reyndist
a.m.k. einn stjórnarleið-
togi vera í þeim hópi,
og sýndi það bæði í orði
og gerðum. Sá maðurj
var Krústjoff forsætis-1
ráðherra.
Þannig kemst brezki heim-
spekjngurinn Bertrand Russell .
að orði í síðustu bók sinni,
Unarmed Victory (Sigur án i
vopna), sem er nýkomin út.
Þar rekur hann atburðina í
október í haust. þegar við lá
að heimsstyrjöld hæfist út af
Kúbu, en þar átti Russell mik-
inn hlut að máli og lagði sig
allan fram við að koma viti j
fyrir ráðamann stórveldanna ;
til að forða mannkyninu frá '
ógnum kjarnastríðsins.
„Einn skynsamur maður“
Þegar svct virtist sem mann
kynið væri komið á heljar-
þröm, segir Russell, og ekkí
biði þess annað en tortíming
„spurði ég sjálfan mig hvort .
ekki mætti ætla að í valda-
stólum sætu skynsamir menn.
Á síðustu stundu fóikk ég
svarið: Jú, það reyndist vera
einn slíkur . . . Stjórnvizka
hans bjargaðj mannkyninu: og
þess vegna erum við á lífi“.
Hafði ekki mikla von
Boðskapur' sá sem Russell
sendi Kennedy og Krústjoff,
þótt hann að eigin sögn gerði
sér litla von um að hann
bæri nokkurn árangur, fékk
misjafnar undirtektir. Krúst-
joff svaraði um hæl, en Kenn-
edy virti hann að vettugi.
Sumir leiðtogar brezka Verka-
mannaflokksins roidduat svo
frumkvæði Russels og tóku
upp aftur kröfuna um að
honum yrði vikjð úr flokknum
„fyrir að hafa talað vjð
kommúnista".
„Aldrei fyrr á langri ævi
minni", segir hinn 91 árs
gamli heimspekingur, „hafði
ég lifað neitt sem værj sam-
bærilegt við geigvænlega ó-
vjssn þessara örlagaþrungnu
stunda. • • móðursýkisviðbún-
aðinn í Bandaríkjunum > .
herskáar ræður Bandaríkjafor-
seta . . . brottflutning fjöl-
skyldna embættismanna hans
frá Florida og herflutningana
þangað. Lengi vel gerðjst ekk-
ert sem mælti á móti því að
mannkynið væri á hraðrj leið
til glötunar"
Fram á barm kjarnastríðs
Að morgni 23. október sagði
Russell í blaðaviðtali að ræða
Kennedys .þegar hann til-
kynntí hafnbannið á Kúbu:
„leiddi mannkynið fram á
barm kjarnastríðs". Sama dag
sendi hann simskeyti sín til
Kennedys og Krústjoffs. I
skeytinu til þess fyrmefnda
sagði hann:
„Örvæntingaríull ráðstöfun
yðar ógnar tilveru mannkyns-
ins. Hver siðmenntaður maður
fordæmir hana. Við viljum
ekki múgmorð. Úrslitakostir
jafngilda stríði. Ég segi þetta
ekki sem valdsmaður, heldur
sem siðmenntaður maður.
Hættið þessu brjálæði“. Og í
skeytinu til Krústjoffs sagði
hann:
„Ég skora á yður að láta
ekki óafsakanlegt framferði
Bandaríkjanna gagnvart Kúbu
ögra yður til óhæfuverka.
Allur heimurinn vill að þér
sýnið stjllingu. Beitið yður
fyrir því að Sameinuðu þjóð-
imar fordæmi framferði
Bandarikjanna. Ef rasað verð-
ur um ráð fram getur það orð-
ið til þess að mannkynið liði
undjr lok“.
Blöðin þögðu
Þrátt fyrir heimsfrægð
Russels lávarðar sem jafnan
hefur tryggt að 'eftir orðum
hans væri tekið, þögðu lang-
flest brezku blöðin um skeyti
hans eða sögðu frá þeim stutt-
lega og þar sem lítið bar á.
Margir blaðamenn skildu þó
fréttagildi áskorana Russells,
og einn þeirra sagði upp
starfj sínu, þegar ritstjóri
hans neitaði að birta viðtal
sem hann hafði haft við Russ-
ell.
Framhald á 3. síðu.
Dóttir lofts
og vatns
Heiður og kaldur vetrar-
morgunn við Eyjafjörð. Innan
úr sveitinni líður frostbitran
hægt og sígandi, 20 stigum
fyrir neðan frostmark. Ferð-
inni er heitið til hafs. Þar
kvað vera aúðvelt að ryðja sér
til rúms, stjaka burt loftinu,
sem er orðið yljað og létt i
sér fyrir áhrif sjávarins. Lög-
málið, að hinn veikbyggði
þoki fyrir hinum sterka, er
hér í fullu gildi, sem von-
legt er. loftstraumarnir hafa
enn ekki orðið fyrir neinum
siðrænum áhrifum af mann-
kindinni sem þeir hafa leikið
um frá örófi alda, reyndar
ekki víst, að þau áhrif hefðu
alltaf orðið til hins betra.
Hlýja fjarðarloftið, það er
reyndar undir frostmarki,
verður nú annað hvort að
láta undan síga út með Hrís-
ey eða þá að það tekur hinn
kostinn að svífa í áttina til
himins svona rétt eins og olía,
sem leitar upp á yfirborð í
vatni. Frostbitran er komin
út á fjörð.
Sjórinn er nu tuttugu stig-
um heitari en loftið. og þess
er að vænta að þess hita-
munar gæti á sýnilegan hátt.
Hér myndast hinn svonefndi
sjóreykur. iðandi gufumekkir
og strókar, sem liðast upp í
loftið og hverfa, ekki ólíKt
gufu yfir potti á hlóðum.
Þetta sama fyrirbæri kvað
stundum sjást í kringum Vest-
mannaeyjar, og þar mun það
bera nafnið frostharður. 1
fjörðum Noregs er þetta al-
gengt á vetuma.
Eins og lesandinn getur
séð sjálfur, rýkur gufan upp
úr sjónum. en venjuleg sjó-
þoka myndast ekki á þennan
hátt. Hún sækir ekjti efnið
beint til hafsins. heldur fæst
það úr loftinu sjálfu. Og þá er
ekki loftið kaldara en sjórinn
eins og þegar sjóreykur verð-
ur til. Þvert á móti er venju-
leg sjóþoka heitari en hafið.
Hún myndast einmitt í hlýju
lofti, sem þolir ekki kæling-
una frá sjónum og fer að
gráta örsmáum tárum. Þau
tár eru tekin af forða loftsins
af hinni ósýnilegu vatnsgufu.
Mörg alræmd sjóþokusvæði
eru einmitt þar sem kaldir
hafstraumar liggja, við Ný-
fundnaland, við Austfirði og
nálægt ísbrúninni út af Vest-
fjörðum.
Kalt loft og hlýr sjór mynd-
ar sjóreyk. Hlýtt loft og kald-
ur sjór mynda sjóþoku. Hvort
sem er, er sú ættfærsla Eín-
ars Benediktssonar rétt, að
þokan er dóttir lofts og vatns.
Páll Bergþörsson.
„Þau héldu í austurátt
Þetta er nafn á kvikmynd sem nú er verið að gera í Moskvu, en hún er gerð I sameiningu af
ítöiskum og sovézkum kvikmyndamönnum. Hinn kunni itaski leikstjórí Giuseppc de Santis mun
sjá um töku myndarinnar og sést hann hér ásamt nokkrum sovézkum leikkonum
Indverska stjórnín neitar að semja
Herferi ai hefjast
gegn Naga-mönnum
Indverska stjórnin hcfur hat-
ið undirbúning að mikilli her-
ferð gegn Naga-þjóðflokknum
sem býr í norðausturhluta
Iandsins og hefur vcrið í upp-
reisn gegn sambandsstjórninni
í Nýju Dehli allt frá því Ind-
land fékk sjálfstæði. Tugþús-
undir eru sögð hafa iátið lífið
undanfarin ár í viðurcignum
indvcrskra hcrsveita og Naga-
manna. sem krefjast að fá að
stofna sjálfstætt ríki.
Brezki klerkurinn Michael
Scott, sem mjög hefur látið
málefni nýlenduþjóða til sín
taka, er nú staddur í Nýju
Delhi, en hann hefur gert sér
vonir um að fá indversku
stjórnina til að hætta við fyr-
irhugaða herferð sína á hend-
ur Nagamönnum, en taka í þess
stað upp við þá samninga.
Foringi þeirra, Phizo. sem
dvalizt hefur árum saman
landflótta í London, hefur boð-
izt til að hefja viðræður við
indversku stjórnina, en hún
hefur hafnað því boði hingað
til.
Ráðizt á járnbrautarlcst
Þeir róðherrar Nehrus sem
andvígir eru öllum samningum
við Nagamenn hafa fengið
betri aðstöðu eftir árás sem
Nagamenn gerðu í fyrri viku á
járnbrautarlest, en þá voru sex
menn drepnir, en 27 særðust.
Daginn eftir var róðizt á her-
flutningalest á sömu slóðum. en
ekki er vitað um mannfall í
þeirri árás.
Krafizt „útrýmingar"
Þessar áráir hafa vakið
mikla reiði indverskra blaða
sem ítreka kröfur sínar um. að
uppreisnarmönnum verði „út-
rýmt“.
Blaðið Indian Express skýrir
frá því að indverskar herflug-
vélár hafi verið sendar gegn
uppreisnarmönnum „vegna
þeirrar ákvörðunar ríkisstjórn-
arinnar að beita uppreisnar-
menn hörðu“. Blaðið segir einn-
ig að herdeild sem send hafði
verið tll kínversku landamær-
anna þegar skærurnar voru þar
í vetur hafi nú verðið send til
Nagalands.
Ómannúðlegar refsiaðgerðir.
Indverski landstjórinn í
Nagalandi, Shilu Ao, sem dval-
izt hefur að undanförnu i Nýju
Delhi hefur ítrekað þá ákvörð-
un sína að allir þeir landsmenn
sem hjálpa uppreisnarmönnum
muni beittir refsiaðgerðum.
Lokaö yrði skólum, spítölum og
lyfjaverzlunum í þeim bæjum
þar sem grunur • leikur á að
abúarnir styðji uppreisnarmenn.
Kvikmynd
gerð eftir
,Ðr. Sivago ’
ítalski kvikmynda-
framleiðandinn Carlo
Ponti hefur keypt rétt til
að gera kvi'kmynd e.ftir
skáldsögu Boris Pastern-
aks „Dr. Sivago" af hin-
um ítalska forleggjara
hans. Feltrinelli, og er
ætlunin að myndin verði
tekin á ensku. Ponti hef-
ur átt í samningum vjð
Feltrinelli um kvikmynd-
unarréttinn, en þeir hafa
fyrst nú borið árangur og
er búizt við að þeir verði
undirritaðir einhvern
næstu daga. Ætlunin er
að bandarískt kvikmynda-
félag eigi einnig þátt í
gerð myndarinnar og
Dontj segir að Burt Lanc-
aster hafi látið í ljós
mikinn áhuga á að leika
titilhlutverkið. Ponti hef-
ur einnig rætt við stjórn-
arvöld í Sovétríkjunum
og Júgóslavíu um leyfi
til að taka útiatriði
myndarinnar j löndum
þeirra.
TECT er ryðvörr YL í.
2—180 tonn
Allt það fullkomnasta.
Fæst hjá Leyland.
Meðal annars:
VÖKVASTÝRI
ÞRÍSTILOFTSBREMSUR
Fullkomnar
MÓTORBREMSUR
5, G eða 7 hraða GlRKASSI
Sérstakur DRATTARGlR
(gefur gírkassa 10—14
hraðastig)
TVÍSKIPT DRIF eða
NÝTT FULLKOMIÐ
STERKT NIÐURSKIPT
DRIF
BREKKUHALD
FJAÐRIR óvenju langar
MJÚKUR AKSTUR
Afborgunarskilmálai
Einkaumboð fyrir
LEYLAND MOTORS LTD.
Almenna verzl-
iinarfélauið h.f.
Laugavegi 168 — ReykjaviV.
Sími 10199.