Þjóðviljinn - 30.04.1963, Qupperneq 10
]{) SfÐÁ
ÞIÖÐVHJINN
Þriðjudagur 30. apríl 1963
— Ég held ég hafi aldrei
fyrr hugsað um landið mitt,
sagði Garnet. — í New York
var fjórði júlí ekki annað en
flugeldar og feitur maður sem
las sjálfstæðisyfirlýsinguna úr
ræðustól. En hér er dagurinn
bara eins Qg hver annar
venjulegur dagur — Hún þagn-
aði. — Ó, fyrirgefðu, þetta er
víst jafnslæmt fyrir okkur báð-
ar.
— Þú veizt að fólk getur snú-
ið heim aftur, sagði Florinda.
— Já, auðvitað. Kannski gæti
ég fengið einhvern skipstjór-
ann til að taka mig sem far-
þega. Eru konur með þessum
skipum?
— Það kemur fyrir. Stundum
hefur skipstjórinn kpnuna með
sér. Ef kona er um borð hefur
hann sjálfsagt ekkert á móti
annarri til. Þú gætir verið
henni til skemmtunar.
— Ég vildi borga hvað sem
væri fyrir það. sagði Gamet.
Eftir nokkra þögn spurði hún:
—• Myndir þú koma með?
— Nei, vina mín.
Gamet felldi þetta tal. En hún
horfði á stjörnurnar og hugsaði
heim og tárin voru á næsta
leiti.
Daginn eftir fóru þ®r til
Abbotts. Garnet var klædd ein-
um af svörtu mexíkönsku kjól-
unum og Florinda kenndi hérihi
að binda yfir höfuðið ræmu af
svörtu silki^ sem Kaliforníubúar
kalla rebozo. Þetfa var dýrðleg-
ur miðsumardagur. Þær gengu
eftir stígnum sem troðinn hafði
verið í villihveitið, hann bugð-
aðist til og frá á miHi húsanna.
HároreWo"
P E K M A. Garflsenda
sími 33968. Hárgreiðslu- os
snyrtistofa
Dömur, hárgreiðsla við
allra hæfi.
TJARNARSTOFAN,
Tjamargötu 10. Vonarstræt-
ismegin Sími 14662 ______
iárgreiðslu og snyrtistofa
TEINH OG DÓDÓ
.augavegi 11. simi 24616
Hárgreiðsluriofan
S Ó L E Y
Sólvailagðtu 72
Simi 14853
Hárgreiðsiustofa
ADSTURBÆJAR
(María Guðmundsc'óttir)
Laugavegi 13 sími 14656.
Nuddstofa á sama stað
Hundar og böm voru alls stað-
ar og stundum urðu þær að
víkja fyrir ríðandi manni.
Gönguferðin tók tíu mínútur.
Fyrir utan búðina lá stafli af
húðum. Þegar Garnet farin af
þeim þefinn, fitjaði hún upp á
nefið.
— Hvað hefðirðu sagt í New
York, spurði hún Florindu,
ef einhver hefði sagt þér hvað-
an skórnir þínir kæmu?
— Ég hefði sjálfsagt sagt:
— Guði sé lof að ég þarf ekki
að eiga þar heima. Jæja, það
er aldrei að vita, hvað komið
getur íyrir. Hérna undir ill-
gresinu er trappa, farðu var-
lega. Já. svona. Þetta er
Abbott, þessi feiti sem situr
bakvið borðið.
Abbott, kringlóttur, sköllótt-
ur og glaðlegur, brosti út að
eyrum þegar þær komu inn.
— Þetta var mikill heiður.
Hvernig líður yður. ungfrú
Florinda?
— Alveg prýðilega eins og
illgresinu. Má ég kynna fyrir
yður vinkonu mína, frú Oliver
Hale Hana langar til að ræða
viðskiptamál við yður.
Abbott Ieit ekki út fyrir að
ganga meira en hann mátti til,
en af virðingu fyrir sorgar-
klæðum Gametar og ásigkomu-
lagij brölti hann upp úr stóln-
sturium og erfiðsmun-
um, rétti henni stóra, mjúka
hönd og lét í Ijós samúð sína-
Hann dró fram stól handa
henni fyrir innan búðarborðið
og bauð henni að setjast.
Garnet þakkaði fyrir, gekk
inn fyrir borðið og settist á
stólinn. Abbott spennti greip-
ar utan um ýstruna og sagði
henni að Oliver hefði verið
afbragðs maður og honum væri
sönn ánægja að greiða fyrir
ekkju Olivers ef hann gæti.
Gamet langaði ekki til að
ræða um Oliver. Florinda
fann þetta. Hún greip fram í
fyrir Abbott með því að segja
að hún vildi gjaman máta skó
ef hann ætti einhverja fallega.
Auðvitað sagðist Abbott hafa
tii fallega skó. reglulega stáss-
skð frá beztu verksmiðjunni
í Connecticut. Hann kallaði, að
einhver yrði að koma og af-
greiða ungfrú Florindu og tveir
bandarískir búðarþjónar komu
fram úr bakherberginu. Flor-
inda setti upp sparibrosið og
þeir flýttu sér að koma ekki
aðeins með skó. heldur einnig
bönd og nærfatnað. Flórinda
settist á veggbekkinn til að
fara úr skónum. Hún spurði
hvort þeir héldu að hún væri
rancho-eigandi, fyrst þeir ætl-
uðu að pranga inn á hana
vörum fyrir þúsund húðir
svona í einu
— Svona, svona, þér megið
ekki stríða mér, sagði Abbott
og Ijómaði eins og sól í heiði.
— Ef allir hefðu eins góða
reglu á fjármálunum og þér
þá væri ekki erfitt að lifa.
Collins! Komið með krús af
víni handa frú Hale. hún er
dálítið þreytt. Já, líka krús
handa mér, já, já. Viljið þér
ekki sopa líka, ungfrú Flor-
inda? íhugið það, frú mín góð,
ekkert er betra fyrir kroppinn
en hóflega drukkið vín. Það
stendur í sjálfri biblíunni.
Florinda þakkaði gott boð
en afþakkaði. Hún dáðist að
vel löguðum fæti sinum í
svörtum geitarskinnsskóm
með rósettu og á meðan daðr-
aði hún við búðarþjónana. Á
meðan litaðist Garnet um í
búðinni. Það voru bekkir með-
fram veggjunum, og borðið
vissi að dyrunum, svo að
Abbott kallaði á þá. Þeir höfðu
vinunum um leið og þeir
komu inn. Á öðrum borðsend-
anum lá hlaði af gömlum dag-
blöðum sem notuð höfðu verið
ið til að pakka inn vörum.
Sumar síðumar. voru heilar,
aðrar rifnar, en það var slétt-
að úr þeim öllum svo að
baridarískir viðskiptavinir
gætu rýnt í þær ef þeir vildu.
Flest voru þessi dagblöð árs-
gömul, því að þau höfðu komið
sjóleiðina, en þetta voru síð-
ustu fréttir sem völ var á frá
Bandaríkjunum. Á veggnum
bak við búðarbo.rðið voru hill-
ur fullar af viðskiptabólíum.
Ranchó-eigendurnir komu með
húðir, létu færa þær inn í
bækur og tóku með sérkvittan-
ir, sem þeir skiptu yfir í vörur
smátt og smátt þegar þeir
þurftu á þeim að halda. Sala
gegn staðgreiðslu þekktist
varla.
Bak við þetta herbergi var
annað, þar sem búðariþjónarri-
ir höfðu verið að vinna þegar
Abbolt kallaði á þá. Þeir höfðu
bersýnilega verið að taka upp
vörur sem komið höfðu með
skipi, því að Garnet sá þarna
í opna kassa og katla og pönn-
ur, spegla og kjóltau og skó,
sem í þeim höfðu verið. Coll-
ins, búðarþjónninn setti rauð-
vínsflösku og tvær krúsir á
búðarborðið. Abbott bellti í
krukku handa Gametu og rétti
henni með hneigingu sem var
meira af vilja en mætti. svo
feitur og stirður sem hann var.
Abbott flýtti sér aldrei. Hann
dreypti á víninu og spurði
hvernig Garnetu litist á óeirð-
irnar fyrir norðan. Það voru
Ijótu vandræðin, ha? Slæmt
fyrir viðskiptin. Og hvemig
henni geðjaðist að þessu in-
dæla sumarveðri? Heitir dagar,
kaldar nætur, svona gött var
það ekki í Bandaríkjunum, ónei.
Það kom maður inn, þreklegur.
kjálkamikill náungi í rauðri
skyrtu og rykugum svörtum
buxum. Abbott kynnti hann
fyrir Gametu sem Bugs Mc-
Lane. Gamet hafði heyrt á
hann minnzt. hann var vel
þekktur í stofnun Silkys. Hann
verzlaði með whiský og annan
smyglvarnin,g úr skipunum.
McLane sagðist hafa þurft að
ræða dálítið við Abbott en sér
lægi ekkert á og hann gæti
beðið þar til frú Hale hefði
lokið erindum sínum. Hann
hefði séð konu selja heitar
tamales hjá kirkjunni. Ef Flor-
inda væri búin að velja sér
skó. þá hefði hann mikinn hug
á að fá hana með sér þangað
svo að hún gæti hresst sig á
heitum tamales.
Florinda sagðist raunar
þjást af skorti á tamáles og
hún þæði þetta boð með þökk-
um, ef Collins vildi taka þessa
skó frá fyrir hana. Hún og
Bugs leiddust út.
Abbott spjallaði um alla
heima og geima nokkra stund
enn, en loksins kom þó að því
að Gamet gat borið uPP erind-
ið. Hún sagði að Abbott hefði
haft reikningshald fyrir Oliver
og henni væri forvitni á að
vita hve mikið Oliver hefði átt
inni
Já, já, þó það nú væri, sagði
Abbott, og hann bað Collins að
rétta sér eina af viðskipta-
bókunum úr hillunni. Meðan
Abbott blaðaði í bókinni með
holdugum fingrunum var hann
mjög vingjamlegur og föður-
legur og um leið lotningarfull-
ur, eins og vera ber um kaup-
mann sem á viðskipti við ríka
konu. Tuttugu mínútum síðar
þakkaði Garnet hönum fyrir og
reis á fætur. Abbott gaf Coll-
ins merki. sem kom þjótandi
til að bjóða henni arminn og
leiða hana út fyrir. Neðar í
götunni sá hún Florindu og
Um netaveiði o.fl.
Framhald af 7. síðu.
En eru það ekki eftirtektar-
verðar fréttir að í einu sjáv-
arplássi hér í námunda verða
þrír sjómenn bráðkvaddir úti á
sjó á skömmum tíma? Er það
ekki verkefni fyrir lækna að
kveða á um hvað sé hæfilegur
vinnutími fyrir meðalmann til
sjós við þunga og hraða vinnu
eins og netaveiðar eru?
Sjómannastéttin er víst eina
státtin í landinu, sem ekki
þarf að gera upp við um ára-
mót og sjómaðurinn víst eini
þjóðfélagsþegninn sem' verður
að borga sekt eða frádrátt á
kaupi fyrir að mæta ekki i
vinnu. Ég man t.d. eftir þvi, að
sonur var hýrudreginn um 500
krónur fyrir að mæta nokkrum
mínútum og seint til skips, þar
sem hann var að fylgja öðru
foreldra sinna til grafar! Og
sjómaðurinn, sem fer á lögleg-
an hátt úr skiprúmi vegna
þess að hann veikist eða þolir
ekki hina ströngu vinnu fser
ekki uppgert fyrr en í vertíðar-
lok, ef hann á hlut inni. 1 slik-
um tilfellum verður að krefj-
ast þess að laun séu þegar
gerð upp.
Sjómannastéttin verður að
hugsa um sín mál og halda
vöku sinni í réttindabaráttunni.
Sjómenn verða að .gera sér
Ijóst, að þeir eiga kröfu á þvi
að litið sé á þá sem menn og
að þeir hafi sömu aðstöðu til
lífsins sem aðrir þegnar þjóð-
félagsins, bæði um aðbúð, ör-
yggi, vinnutíma og kaup í sam-
ræmi við raunverulega vinnu.
Broslegt má það heita dagana
fyrir 1. maí, þegar útgerðar-
menn leggja mikið kapp á það
hér f Reykjavík, að bátamir
sem venjulega eru í dagróðr-
um taki ís og séu þar með lög-
giltir til að vera í útilegu á
þessum hátíðis- og baráttudegi
verkalýðsins. Er ekki hægt að
fella þessa leikstarfsemi niður,
þessa ögrun við daginn og tákn
hans? Mál sjómanna eiga að
vera oftar á dagskrá en á sjó-
mannadaginn. Mál verkalýðsins.
eiga að vera sameiginleg, hvort
sem unnið er á sjó eða landi.
og því aðeins vinnum við sigra
að hinar vinnandi stéttir beiti
sameinuðu átaki, setji meiri
metnað í baráttu sína, vinni að
meira öryggi, betri aðbúð og
kjörum til sjós og lands. Þetta
á að vera kjörorð okkar á kom-
andi tímum.
Páll Helgason.
SKOTTA
0 1
z
0 1 3
LO r
LU
tí
O
z :
<
Mikið er Skröggur frændi
selgur.
Veiztu hvað Súsa. Hef fundið út nýja Ieið tdl
með löppunum.
að sprikla
Skrifstofustúlka
óskast nú þegar, 1
Mars Trading Company h.f.
Klapparstíg 20, — Sími 17373.
LOKAD
vegna jarðaxfarar þriðjudaginn 30. apríl
frá kl. 14.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
UTBOO
TilboS óskast í aS byggja 22 sumarhús fyrir
A.S.f. í Hveragerði.
Tilboð óskast 1 þrennu lagi: j ■
1. Jarðvinnu
2. Steypuvínnu
3. Trésmíði.
Uppdrátta og akilmála má vitja á skrifctofu
A.S.Í. Laugavegi 18 gegn 2000.00 kr. skilatrygg-
ingu.
ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANÚS.
Aðstoðar-
hiúkrunarkonur t
vantar á sjúkrahúf Akraness, 1 júní n.K. Upp-
Iýsingar veitir yfirhjúkrunarkona Rinnip vant-
ar liósmóður serr allrg fvr^
SJÚKRAHÚS AKRANEy ■
I
9
t