Þjóðviljinn - 07.06.1963, Síða 10
10 SlÐA -------------------------—-—---------------- --- ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 7. júni !Sf63
GWEN BRISTOW;
W
I
HAMINGJU
LEIT
Texas sagði ,að aðeins hið bezta
væri nógu gott handa barninu
sem hann hefði tekið á móti og
valið nafn á. Blessaður Texas,
hugsaði Gamet með angurværð.
Texas hafði elcki vikið frá
flöskunni dögum saman. Þessa
stundina sat hann niðri í veit-
ingstofunni með flösku fyrir
framan sig á borðinu og drakk
Sleitulaust til að ijúka bví af.
Hún fór niður. Það var tölu-
verð háreysti á bamum. Einn
sjálfboðaliðinn frá New York
hafði lenj i orðaskaki við einn
af angelenóunum. Hvorugur
þeirra kunni meira en svc? sem
tíu orð í máli hins, svo að ætla
mætti að rifriidi vaeri óhugs-
andi, en þeir voru of drukknir
til að athuga það. Til allrar
hamingju voru þarna tveir liðs-
foringjar frá aðalstöðvunum.
Þeir sendu menn með banda-
ríkjamanninn heina í búðimar
og barsveinninn José fylgdi inn-
fædda mótstöðumanninum heim.
t'-’«ar Gamet kom inn, var
um garð gengið. Hikki var
pf þurrka af borðinu og Flor-
inda var að enda við að gkenkja
á kollur handa kátum piltum
og var nú að raða flöskum.
Liðsforingjamir tveir, Lyndon
majór og Brown kapteinn. höll-
uðu sér upp að barborðinu með
glas í hendi.
Þeir voru að ræða um Fré-
mont, en Garnet tók eftir því að_
þeir sneru bakinu í barborðið,
svo að þeir gætu séð yfir sal-
inn, ef til frekari óspekta kynni
að koma. Hún leit á borðið sem
Texas sat við. Harin hafði sofn-
að fram á handlegg sér. Homið
var í skugga, en hann lá þann-
Hárgreiðslon
P E B M A. Garðsenda 21,
sími 33968. Hárgreiðsln- or
snyrtistofa
Dömnr, hárgreiðsla við
allra hæfl.
TJARNARSTOFAN,
Tjamargötu 10, Vonarstræt-
ismegin Siml 14662.
Hárgreiðslustofan
S Ó L E Y
Sólvallagötu 72.
Simi 14853
HárgTeiðslustofa
ADSTURBÆJAR
(María Guðmundsöóttir)
Laugavegi 13 sími 14656.
Nuddstofa á sama stað.
ig að andiitið sneri upp i ljós-
ið. Það virtist ekki fara vel um
hann. Gamet vonaði að José
kæmi fljótt til baka, svo að
hann gæti hjálpað Texas heim.
Hún heyrði á tai þeirra maj-
órs Lyndons og Brown kapteins.
Þeir ræddu um að Keamey
hershöfðingi væri farjnn land-
veginn frá Monterey fil Leaven-
worth-virkis og Mason ofursti
væri nú iandstjóri ; Kalifomíu.
Frémcint hafði fengið gkipun um
að fara til Leavenworth virkis
með hershöfðingjanum. Flestir
álitu að hann yrði kallaður fyr-
ir herrétt.
— Hve marga menn tók hers-
höfðinginn með sér? spurði
Brown kapteirin.
— Ég veit það ekki með vissu,
sagði majórinn, — en ég veit að
hann hafðj marga úr liði Fré-
monts í för með sér.
— Sem vitni? spurði Brown
kapteinn.
— Það er ekki ólíklegt.
Brown hristi höfuðið.
Liðsforingjarnir tveir höfðu
oft komjð á barinn, en hvorugur
þeirra drakk að ráði. Lyndon
majór var þreklegur maður með
úlfgrátt skegg og dökkt hár,
hæmskotið i vöngunum. Brown
kapteinn var yngri, að þvi er
virtjst- milli þrítugs -og fertugs,
sterklegur, vöðvastæltur mað-
ur, í meðallagi hár. Hann var
ekki^ bejnlínis Jríðyj^ en hann
var með dökíc viðfelldin augu og
þægilega framkomu. Hann tal-
aði aldrei við Gametu nema
hann værj að biðja um af-
greiðslu og framkoma hans var
mjög ópersónuleg, en hún var
þess fullviss -að henni myndi
geðjast að honum við kynningu.
Þegar hún leit á hann núna
hafði hann lyft hendinni til að
veifa manni sem fór út og talaði
eitthvað um leið um verkefni
næsta dags. Dymar iokuðust á
eftir manninum og höndin á
Brown kapteini stanzaði á miðri
lejð. Hann einblíndi á eitthvað
við dyrriar. Lyndon majór spurði
undrandi:
— Hvað gengur að þér,
Brown, hefurðu séð draug?
Brown kapteini varð hverft
við. þegar vinurinn ávarpaði
hann. Hann setti frá sér glasið
i skyndi, en svo tæpt að Gamet
þurfti að forða því frá falli,
en kapteinninn tók ekkert eftir
því. Hann hélt áfram að stara
út í homjð,
— Já, sagði hann við Lyndon
majór. — Draug — það er ekki
svo fjarri sanni. Líttu þangað,
Lyndon. Þarna út í skuggann.
Sérðu dauðadrukkna manninn
sem liggur fram á borðið?
Garnetu rann kalt vatn milli
skinns og hömnds. Hún hefði
átt að vita, að þetta myndi
koma fyrir einn góðan veðurdag.
Vesalings Texas. Vesalings Tex-
as sem hélt hann hefði getað
flúið fortíð sína. Lyndon majór
leit við og fylgdi augnaráði
Browns. Hann stundi Qg rödd
hans var hás af geðshræringu
þegar hann sagði: — Drottinn
minn, Brown! Þetta er þó ekki
— þetta getur ekki verið —
— Jú. reyndar, sagði Brown
kapteinn. — Það er Emst Con-
way.
Mennirnir tveir litu hvor á
annan. Þeir hristu höfuðin og
horfðu aftur á Texas. Garnet
Teit á hann líka. Hún sá úfið
hárið og skeggið, hálfopinn
munninn, skyrtuna ataða vín-
blettum, höndina á borðinu sem
ekki var alltof hrein, hún sá
hann í heild sem óhreinan,
rytjulegan fylliraft. Lyndon maj-
ór skellti fyrirlitTega í góm.
—• Jæja, þannig fór þá fyTÍr
honum. sagði hann. — Ég hélt
sveimér að hann værj dauður.
— Ég vildi óska að hann væri
það, sagði Brown kapteinn.
— Sá bezti — æ, guð minn
góður. Lyndon, ég gæti grátið.
Það var hvorkj fyrirlitning né
viðbjóður í röddinni. Það virt-
ist heizt sem hann væri hrygg-
ur. Gamet flaug i hug að hann
hugsaði um Texas á sama hátt
og hún. Að hann vissi að þetta
væri ekki hin rétta mynd af
Texas. Að hann skildi hann
ekki en vorkenndi honum án
þess að skilja hann.
Glaðlegur dáti bað Garnetu
um drykk. Hún afgreiddi fleiri
gestj, afþakkaði hjónabandstil-
boð og tilboð af öðru tagi.
Loksins kom José aftur, og
hann kom Texasi heim til sín.
Það leið að lokum og fækkaði
í veitingastofunni. Margir urðu
að vera komnir inn fyrir mið-
nætti. Lyndon majór var |ar-
inn. Brown kapteinn hafði tyllt
sér á borðið næst bamum.
Hann horfði dapur í bragði í
áttina þangað sem Texas hafði
setið, það var ei-ns og hann
gæti ekki hætt að hugsa um það
sem hann hafði séð þar. Annar
liðsforingj kom inn og sagði að
hann gæti farið. hann skyldi
sjálfur hafa auga með stofunni
þ.or. til .Jokað yrði. Brown kap-
teinn þakkaði honum fyrir og
reis á fætur. Áður en hann
komst tii dyra, ávarpaði Garnet
hann.
Hann leit undrandi við.
— Voruð þér að kalla á mig?
Garnet kinkaði kolli, undr-
andi á sínu eigin hugrekki. Það
sem hann vissi um Texas kom
henni ekki við og hún vissi, að
honum yrði ekki um að hún
hefði orð á þvi, en hún sá sig
samt tilneydda að gera það.
— Má ég tala dálítið við yður,
Brown kapteinn? spirði hún og
reyndi að sýnast ekki ! eins ó-
framfærin og hún var.
— Sjálfsagt. sagði Brown
kapteinn. Hann talaði kurteis-
lega, hann var sjálfsagt einn
þeirra manna sem sýndi konum
aldrei ókurteisi nema hann
vseri tilneyddur til þess, en
hann gekk aftur að barborðinu
án nokkurrar hrifningar. Gamet
talaði lágt til þess að vekja ekki
athygli.
— Brown kapteirin. rétf áð-
an vomð þér að tala við Lynd-
on majór. Ég var ekki að reyna
að hlusta, en ég komst ekki
bjá því að heyra sumt af því
sem sagt var.
— Það gerir víst ekkert til,
sagði hann uppörvandi. — Vlð
vomm ekki að ræða nein hem-
aðarleyndarmál. Haldjð áfram.
Hún varð hugrakkari. — Þér
þekktuð aftur mann sem var —
sem svaf þama fram á borðið
við dymar.
— Já, reyndar, sagði hann og
beið þess alvarlegur í bragði að
hún héldi áfram.
—• Ég veit að þetta kemur
mér ekki við. en viljið þér ekki
vera svo vænn að segja mér
hvort hér eru fleiri sem þekkja
hann.
Hann hugsaði sig um. — Ég
býst ekki við þvi. Lyndon majór
og ég vorum af tilviTjun í Leav-
enworth-vjrki veturinn sem Con-
way var þar. Brown kapteinn
var undrandi. — Má ég spyrja
hvers vegna þér viijið vita það?
— Það stendur þannig á því.
Þér gerið ráð fyrir að ég viti
hver hann er, en það veit ég
ekki. Hér veit enginn nein deili
á honum. Ég skal skýra það
út fyrir yður.
— Já, gerið það, sagði Brown
kapteinn.
— Hann kom hingað til Kali-
fomíu fyrir nokkmm ámm, hélt
Garnet áfram. — Hann hefur
aldrei sagt nejnum hvað hann
héti eða neitt annað um sjálf-
an sig. Við þekkjum hann bara
undir nafninu Texas.
— Við kölluðum hann Tíka
Texas, sagðj Brown kapteinn og
brosti. — Hann var alltaf að
tala um lýðveldið Texas. tala
um hve dýrlegt land það væri.
En látið mig ekki trufla yður.
Haldið áfram.
— Öllum geðjast að honum,
sagði Garnet, — en enginn hef-
ur reynt að komast að því hver
hann er.
Brown kapteinn hlustaði með
athyglj. Garnet hélt áfram:
— Sjáið þér til, áður en
stríðið hófst við Mexíkó komu
hundruð manna til Kaliforníu
frá Bandaríkjunum og öðmm
löndum. Til þess lágu allar
mögulegar ástæður. En smám
saman komst hér á eins konar
hefð. Það mætti kalla það ó-
skráð lög. Eitt var það að hrófla
ekki við fortíð manna. Enginn
var spurður þess hvað hann
hefði gert í heimalandinu. Það
var hægt að treysta manni eða
láta það vera, en meðan hann
gerði ekkert af sér, fékk hann
að vera í friði. Skiljið þér hvað
ég á við?
— Auðvitað, sagði Brown
kapteinn. Hann kinkaði kolli í-
hugandi á svip.
— Leyfið mér að segja yður
dálítið um Texas. Megið þér
vera að því að hlusta á mig?
Brown kapteinn horfði á hana
með áhuga. —• Mig langar mjög
til þess.
— Texas hefur einn galla,
sagði Garnet. — Þér vitið hver
hann er. En trúið mér, það er
hans eini galli. Hann er heið-
arlegur og grandvar og hjarta-
góður. Oftar en einu sinni hef-
ur hann veitt mér ómetanlega
hjálp þega.r ég þurfti á því að
halda. Og þess vegna bið ég yð-
ur núna; Komið ekki upp um
Texas. Leyfið fortíð hans að
vera í friði.
Brown kapteinn svaraði alv-
arlegur; — Þakka yður fyrir að
þér sögðuð mér þetta. Ég skal
ekki koma upp um hann.
— Það er fallega gert. sagði
Gamet, — og þér ætlið að skila
þessu til Lyndons majórs?
— Já, ég skal segja honum
það sem þér hafið sagt mér,
svaraði hann. Hann hugsaði sig
um andartak og spurði: — Ef
Nú pökkum við saman og
förum í nýjan stað.
Jón og Iísa voru síðustu
viðsldptavinir okkar.
Bíddu þangað til þú sérð
nýja staðinn.
Við hiiðina á slnirðlækni
með plastaðgerðum.
Hérna vill enginn láta
mynda sig.
S KOTTA
Pabbl. Þetta er Krummi. . . . Hann er fyrrverandi vinur
beztu vinkonu minnar f hitteðfyrra.
Sparíð viðha/dskostnað
Aukln þekking á gerð og réttri meðferð bílsins gerir
yður færari um að annast algengar viðgerðir. Þér kom-
izt hjá þreytandi bið eftir verkstæðisplássi og farar-
tækið endist betur
Við höfum nú fyrirliggjandi handbækur á ensku um
viðha'd og meðferð þessara gerða evrópskra bíla:
Volkswagen, allai- gerðir frá 1954 til 1962. Landrover
allt frá 1958. Fiat 1100 og 1200, fná 1953. Fiat 600 og
600D, frá 1955. Fiat 500 og 500D, frá 1957. Mercedes-
Benz 180a, 180b 190 og 190b, frá 1957. Mercedes-Benz
219, 220S og 220SE, frá 1956. Ford Taunus, frá 1957.
Opcl Olympia og 1200, frá 1953. Renault Dauphine og
Caravelle. Citroen 2CV, frá 1949. Simca Aronde, frá 1954.
Peugeot 203 og 403. Ford Zephyr og Zodiac, frá 1951.
Ford Consul, frá 1957 Ford Anglia, Prefect og New
Herald. Austin Seven, frá 1959. Austin A40, A50 og A55,
Popuíar. Hillman Minx og Husky, frá 1948. Morris Ox-
ford, frá 1959. Morris Mini-Minor, frá 1959. Triumph
írá 1954. Austin A30 eg A35, frá 1952.
AUar eru bækumar með fjölda mynda. Verð kr. 42.00
til 66.50.
Békabnð Máls og menningar
Laugnvegi 18, sími 18106.
Utvegum allar fáanlegar crlendar bækur, blöð eg
fímarlt.
Bifreiðar - Sala
Eftirtaldar bifreiðar eru til sölu:
6 tonna vörubifreið International, smíöaár 1955,
6 manna fólksbifreiö Plymouth, smíðaár 1957,
fi manna fólksbifreið Ford, smíðaár 1957.
Bifreiðar þessar verða til sýnis föstudaginn 7.
júni og laugardaginn 8. júní n.k. kl. Ú—18,
að Eleppsvegi 18.
;
Skriflegum tilboðum sé skilað til Áburðarverk-
smiðjunnar h.f., Gufunesi, fyrir kl. 4 e.h. briðju-
daginn 1. júní n-k.
ABURÐARVERKSMIÐJAN H.F.
i
\
t