Þjóðviljinn - 16.06.1963, Blaðsíða 3
Sunnudagur 16. júní 1963
HÖÐVIUINN
SÍÐA
Rambler Classic
vekur athygli hér
Rambler Classic er með sex
strokka 138 ha. vél, sem eyðir
u.þ.b. 11-12 lítrum a£ benzíni á
100 km.
Útvarp, sjálfskipting og vökva-
stýri verður að panta sérstak-
lega.
Fyrirtækið Jón Loftsson h'/i
hefur nýlega hafið innflutning
á Rambler Classic bílum frá nýj-
um samsetningarverksmiðjum í
Belgíu, en bílamir eru fram-
leiddir í Bandaríkjunum. 1 sam-
bandi við þessi viðskipti var
nýlega hér á ferðinni eftirlits-
maður frá Belgíu og á hann að
fylgjast með því, að varahluta-
og viðgerðaþjónusta fullnægi hin-
um ströngu kröfum verksmiðj-
anna.
Rambler bíllinn er nú í fyrsta
sæti sem útflutningsbíll frá
Bandaríkjunum og á innanlands-
markaði þar hefur hann verið
i öðru sæti.
Hingað til lands voru fyrir
skömmu komnir um 30 bílar og
von á um 40 til viðbótar og
verkstæðisrými er þegar fyrir
hendi fyrir fjóra bíla í einu, en
verður aukið um helming á næst-
unni auk þess sem fluttar verða
inn birgðir varahluta.
Rúmlega 30 leigubílstjórar hafa
nú fengið, eða eru í þann veg-
inn að fá Rambler bíla og verða
í framtíðinni ævinlega fyrirliggj-
andi um fimm bílar á lager til
tafarlausra afgreiðslu til leigu-
bílstjóra. Til leigubílstjóra kost-
ar Rambler bíllinn um krónur
210.000.
Það er til marks um ágæti
Ramblersins, að Motor Trend
tímaritið í Bandaríkjunum valdi
hann „bíl ársins 1963“. Sökum
þess hve verksmiðjunum hefur
tekizt vel með þessa gerð mun
hún litlum breytingum taka
næstu árin, en hinsvegar er
væntanleg á markaðinn í haust
ný gerð af Rambler American,
sem er aðeins minni.
Verð á Rambler classic til al-
mennings er krónur 270.000 mið-
að við að hann sé fluttur inn
frá Belgíu, hinsvegar væri verð-
ið 20-25.000 krónum hærra ef
hann kæmi frá Bandaríkjunum.
Veldur því hærri flutningskostn-
aður.
Fimmtugur á morgun
Kristján Jensson
50 ára verður á morgun 17.
juní Kristján Jensson. Ekki
mun til sá Ólafsvíkingur, að
hann þekki ekki Kristján Jens-
son. Svo mikið hefur hann
komið við sögu Ólafsvíkur og
svo oft hefur svarrað um hann
þar vestra. Ekki verður í stuttri
afmæliskveðju rakin ævisaga
Kristjáns, enda maðurinn á
miðjum aldri, en fæddur er
hann í Ólafsvík og komungur
missti hann föður sinn. Móðir
hans stóð ein uppi með fjölda
barna og varð að koma hluta
þeirra í fóstur. Kristján ólst
upp í Miklaholtshreppi, en vart
var hann kominn af unglings-
árunum, er hann flutti aftur
til Ólafsvíkur. Og síðan er
saga hans samgróin Ólafsvík
— og þar átti hann eftir að
láta til sín taka. Ólafsvík, þessi
staður, sem er steinsnar frá
beztu fiskimiðum heimsins, á
þessum stað var áður fátækt
meiri, en víðast annars staðar,
og aðstaða til útgerðar óvíða
verri. Ströndin á utanverðu
Snæfellsnesi var hafnlaus, allt
athafnalíf var á eftir tímanum
framkvæmdir ríkisvaldsins í
hafnarmálum voru með slíkum
endemum, að fólk var á hung-
urstigi. Það var enginn leikur
á þessum árum að heyja verka-
lýðsbaráttu í Ólafsvik. barátta
fyrir einfaldasta rétti kostaði
harðar sviptingar.
Verkalýðsfélag var stofnað
1938, Kristján Jensson var
fyrstu tvö árin varaformaður,
en síðan formaður i samfellt
20 ár. Það stóð oft styrr um
Kristján á þessum árum, en
það fylgdi honum líka hress-
andi gustur, og í höndum hans
varð Verkalýðsfélagið Jökull
forystufélag við Breiðafjörð.
Á Kristján hlóðust hin fjöl-
þættustu trúnaðarstörf, hrepps-
nefnd o.fl. En tvennt held ég
hafi verið honum hugstæðast,
baráttan í verkalýðsfélaginu og
störfin í haf'nannefnd Ólafs-
víkur. I 12 ár var hann í hafn-
amefnd Ólafsvíkur, þar af oft
formaður. Höfnin var skilyrði
allra góðra hluta, og í barátt-
unni fyrir henni naut sin vel
snerpa Kristjáns og málafylgja.
Enda sá á að um leið og hafn-
arskilyrði bötnuðu þá varð Ól-
afsvík á skömmum tíma einn
mesti uppgangsstaður á land-
inu. Ég efast um að mörg þorp
á landinu hafi átt öllu harð-
snúnari formann í verkalýðs-
félagi. Þetta er að verða saga
Ólafsvíkur, en svo samgróin
er Kristján Ólafsvík, að vart
er hægt að skýra frá Kristjáni,
án þess að nefna Ólafsvík um
leið. Eins og á má sjá, er Krist-
ján félagsmálamaður mikill og
ræðumaður með afbrigðum og
allra manna skemmtilegastur
í hópi vina og félaga. Menn,
sem staðið hafa í langri verka-
lýðsbaráttu verðskulda miklar
þakkir og ég hygg, að það hafi
orðið Ólafsvíkingum heilla-
drjúgt hið harðsnúna starf hans
í verkalýðsfélaginu og ötult
starf í hafnarmálum Ólafsvík-
inga, þótt ekki sé fleira upp
talið. Á síðasta ári flutti Krist-
ján til Reykjavíkur vegna
heilsubrests og býr nú á
Nökkvavogi 15. Um leið og ég
óska honum góðs bata, sendi
ég honum og hinni ljúfu konu
hans, Fríðu Bjömsdóttur, hlýj-
ar kveðjur á þessum góða degi.
Undir þær óskir munu margir
taka.
G. J. G.
Orðsending
Kaffi og heitar vöffiur og
pönnukökur verða veitt í Tjam-
argötu 20 þann 17. júní frá kl.
3 e.h. til ágóða fyrir styrktar-
sjóðinn. STJÓRNIN.
Geimfarinn
Framhald af 1. siðu.
tunglin sem send hafa verið
frá Sovétríkjunum undanfarið
rúmt ár voru stærri og full-
komnari en nokkur önnur gervi-
tungl sem skotið hafði verið á
loft.
Fyrsta sólarhringinn sem Bikov-
skí var á lofti gekk allt að ósk-
um og öll tæki geimfarsins störf-
uðu eins og til var ætlast. Víða
um heim hefur verið fylgzt með
ferðalagi hans og hann hefur
sent kveðjur til ýmissa landa
sem hann hefur farið yfir, þann-
ig m.a. til bandarísku þjóðarinn-
ar.
Áður en hann lagðist til svefns
á föstudagskvöldið hafði hann
neytt vænnar máltíðar, nauta-
seikur og kjúklings.
Vísitalan
Kauplagsnefnd hcfur reiknað
út vísitölu framfærslukostnaðar
í byrjun júnímánaðar og reynd-
ist hún vera 131 stig eða óbreytt
frá vísitöiunni í maíbyrjun.
Matráðskona
Síldarstúlkur —
Undirritaðan vantar síldarstúlkur á RAUFARHÖFN —
VOPNAFJÖRÐ og SEYÐISFJÖRÐ. Á stöðum þessum
voru saltaðar 35 þúsund tunnur s.l. sumar. — Stúlkumar
verða fluttar á milli staða. Upplýsingar á Hótel Borg —
herbergi .301.
Jón Þ. Árnason
bifrelðaleigan HJÓL
Hverfisgötu 82
Sími lfi-370
!
i
!
*
i
!
D A G S K R A
hátíðahaldanna 17. júní 1963
!
I. Dagskráin hefst:
Kl. 10,00
Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík.
Kl. 10,15
Forseti borgarstjómar leggur blómsvejg frá Reykvíking-
um á leiðj Jóns Sigurðssonar. Karlakór Reykjavíkur syng-
ur: „Sjá roðann á hnjúkunum háu“. Stjórnandi: Jón S.
Jónsson. Einsöngvari: Guðmundur Jónsson
Kl. 10,30
Lúðrasveitir barna og unglinga leika við EUiheimilið
Grund qg Dvalarheimili Aldraðra Sjómanna. Stjórnend-
ur: Karl O. Runólfsson og Páll Pampichler Pálsson.
n. Skrúðgöngur:
Kl. 13,15
Safnazt saman við Melaskóla, Skólavörðutorg bg Hlemm.
Frá Melaskólanum verður gengið um -Furumel, Hringbraut,
Skothúsveg, Tjarnargötu og Kirkjustræti.
Lúðrasveit Reykjavíkur og lúðrasveit bama. og ung-
lingaskóla Reykjavíkur leika. Stjórnandi: Páll Pampichler
Pálsson.
Frá Skólavörðutorgi verður gengið um Njarðargötu, Lauf-
ásveg, Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Skóla-
brú. Lúðrasveitin Svanur og lúðrasveit bama- og ung-
lingaskóla Reykjavíkur leika. Stjómendur; Jón G. Þórar-
insson og Karl O. Runólfsson.
Frá Hlemmj verður gengið um Laugaveg, Bankastræti,
Austurstræti og Pósthússtræti. Lúðrasveit verkalýðsins
leikur. Stjórnandi: Ólafur L. Kristjánsson. FyTÍr skrúð-
göngunum ganga skátar með íslenzka fána.
JII Hátíðahöldin við Austurvöll:
Kl. 13,40
Hátíðin sett af formanni Þjóðhátíðarnefndar, Ólafi
Jónssyni. Gengið í kirkju.
Kl. 13,45
Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prédikun: Vígslubiskup séra
Bjarni Jónsson. Einsöngur: Kristinn Hallsson. Organleik-
ari: Dr. Páll ísólfsson, tónskáld. Dómkórinn syngur. Þess-
ir sálmar verða sungnir: Nr. 43 Lát vom Drottinn .... Nr.
664 Upp þúsund ára þjóð .... Nr. 675 Faðir andanna.
Kl. 14,15
Forseti fslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, leggur blóm-
sveig frá íslenzku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðs-
sonar. Lúðrasveitirnar leika þjóðsönginn. Stjómandi Páll
Pampichler Pálsson.
KI. 14,25
Forsætisráðherra, Ólafur Thors. flytur ræðu af svölum
Alþingishússins. Lúðrasveitirnar leika „fsland ögrum
skorið". Stjómandi Karl O. Runólfsson.
Kl. 14,40
Ávarp fjallkonunnar af svölum Alþingishússins. Kristín
Anna Þórarinsdóttir leikkona flytur. Lúðrasveitimar leika:
„Yfir vom ættarlandi“. Stjórnandi Jón G. Þórarinsson.
IV. Barnaskemmtun á Arnarhóli-
Stjómandi og kynnir; Klemenz Jónsson, leikari.
Kl. 15,00
Lúðrasveit drengja: Stjómendur Karl O. Runólfsson og
Páll Pampichler Pálsson.
Ávarp: Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi. Flutt atriði
úr barnaleiknum Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjöm Egn-
er. Þar koma fram Mikki refur, Lilli Klifurmús og mörg
önnur dýr. Leikendur: Bessi Bjarnason, Ámi Tryggva-
son o.fl. Baldur og Konni skemmta. Barnakór Lauga-
lækjarskóla syngur undir stjórn Guðmundar Magnússon-
ar, skólastjóra. Stutt atriði úr „Pilti o.g stúlku“. Leik-
endur: Valur Gíslason og Klemenz Jónsson. Lúðrasveit
drengja leikur. Leikþáttur; „Pétur pylsa og Kalli kúla“.
Leikendur Bessi Bjamason og Árni Tryggvason. Savanna-
tríóið syngur. Undirleik annast Carl Billich.
V. Hljómleikar á Austurvelli:
KI. 16,15
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Stjórnandi; Páll Pampi-
chler Pálsson.
Stjómandi: Jón G. Þórar-
i
I
VI. A Laugardalsvellinum:
Kl. 16,30
Lúðrasveitin Svanur leikur,
insson.
KI. 17,00
Avarp: Baldur Möller, formaður í. B. R. Skrúðganga
íþróttamanna og skáta. Glímusýning; Glímumenn úr Ár- jú
manni og K.R. sýna undir stjórn Þorsteins Krjstjáns- "
sonar. Stúlkur úr Ármanni sýna akrobatik. Drengjaflokk- fe
ur Í.R sýnir fimleika undir stjórn Birgis Guðjónssonar. fe
Piltar úr Ármanni sýna júdó undir stjórn Sigurðar ®
Jóhannssonar. Karlaflokkar K.R. og Ármanns sýna fim-
leika undir stjórn Jónasar Jónssonar. Þjóðdanssafélag
Reykjavíkur sýnir þjóðdansa undir stjórn Svav-
ars Guðmundssonar. Boðhlaup stúlkna og drengja frá
íþróttanámskeiðum Reykjavíkurborgar. Keppni í frjáls-
um íþróttum: 100 m grindahlaup — 100 m hlaup — 400 m
hlaup — 1500 m hlaup — kúluvarp — kringlu-
kast — stangarstökk — hástökk —■ þrístökk — 1000 m
boðhlaup. Keppt er um bikar, sem forseti íslands gaf
17. júní 1954. Keppni og sýningar fara fram samtímis.
Leikstjóri: Jens Guðbjömsson. Atli Steinarsson og Örn $
Eiðsson kynna
!
!
VII Kvöldvaka á Arnarhóli:
KI. 20,00
Lúðrasveitin Svanur leikur. Stjórnandi Jón G. Þórarinsson.
Kl. 20,20
Kvöldvakan sett: Valgarð Briem, ritari Þjóðhátíðanefnd-
ar. Lúðrasveitin Svanur leikur: „Hvað er svo glatt“. Karla-
kór Reykjavíkur syngur. Stjómandi: Jón S. Jónsson. Ein-
söngvarar: Guðmundur Guðjónsson og Guðmundur Jóns-
spn óperusöngvarar. Borgarstjórinn í Reykjavík, Gejr
Hallgrímsson, flytur ræðu. Lúðrasveitin - Svanur leikur
Reykjavíkurmars eftir Karl O. Runólfsson. Höfundurinn
stjórnar. Einsöngur: Ólafur Þ. Jónsson. Undirleikari: Ól-
afur Vignir Albertsson. Kveðja frá Vestur-fslendingum.
Valdimar J. Líndal, dómari frá Winnipeg flytur. Tví-
söngur og kvartett; Jón Sigurbjörnsson, Erlingur Vigfús-
son, Sigurveig Hjaltested og Svala Nielsen. Gamanþáttur:
Koma Ingólfs eftir Svavar Gests. Leikendur: Árni .
Tryggvason, Herdís Þorvaldsdóttir, Bessi Bjamason og |
Gunnar Eyjólfsson. ■
VIH. Dans til kl. 2 eftir miðnætti:
Kynnir á Lækjartorgi: Svavar Gests. Að kvöldvökunni
lokinni verður dansað á eftirtöldum stöðum: Lækjar-
torgi: Hljómsveit Svavars Gests. Einsöngvarar: Anna Vil-
hjálmsdóttir og Bertj Möller. — Á Aðalstræti; Lúdó-
sextettinn. Einsöngvari: Stefán Jónsson. — Á Lækjargötu:
Hljómsveit Guðmundar Finnbjörnssonar. Einsöngvar-
ar: Sigríður Guðmundsdóttir og Björn Þorgeirsson. —
Hljómsveit Björns R. Einarssonar leikur til skiptis á
öllum dansstöðunum. Einsöngvari: Anna Kristjánsdóttir.
KI. 02,00
Dagskrárlok. Hátíðahöldunum slitjð frá Laekjartorgi.
I
*
I
!
J
Gæzla fyrir börn sem kunna að tapast verður |
í Alþýðuhúskjallaranum meðan á Barna- |
skemmtuninni á Arnarhóli stendur. Einnig við |
'f s*"'" ovrv. Útvegsbankann um |
I
SV.R.
afgreiðslu
kvöldið.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND