Þjóðviljinn - 16.06.1963, Síða 10
'■•■ •••• ■
•í | m - ■ -
• ■ * v/> *a
Hér er mynd af ungum reykviskum síldarsjóma nni og er asi á mínum niður bryggjuna með búss-
Þessar tvær íitlu systur voru staddar niður á Grandagarði og
sögðust ætla að verða kvenkokkar á síid í framtíðinni. Þær eru
bara svo iitlar ennþá og heita Iris og Sólbrún. Þær sögðust þekkja
hvern síldarbát og pabbi þeirra er sjómaður n» fnr kannski á síld
næstu daga.
Hér er verið að Ief;gja siðustu hönd á útbúnað skipsins fyrir brott-
för. Það er m.s. Pétur Sigurðsson UE og héldu þeir norður á föstu-
dagsnótt. Skipstjórínn er að stíga á skipsfjöl og tvær Iitlar dætur
hans standa á bryggjunni og kveðja pabba sinn. Gtgerðarmaðurinn
stendur til hliðar og fylgist með til síðustu stundar. Þetta er að
verða klappað og klárt, drengir.
Hér stendur Olafur Stefánsson kampakátur á bryggjunni á síðasta
degi fyrir brottför. Hann verður 2. vélstjóri á m.s. Guðmundi
Péturssyni í sumar og sagðist hverfa norður í hátíðaskapi. Hann
hefur verið önnum kafinn síðustu daga og bað fyrir kveðju heim
í dag.
Hér eru skipverjar á m.s. Asgeir KE að Ieggja ti 1 nótina fyrir brottför norður á síld. Þetta eru
snör og ákveðin handtök og blcssast vonandi, þegar til kastanna kemur. Kannski verða þeir
komnir í síldarfréttimar í dag og búnir að reyna hana í fyrsta skipti. Þeir héldu norður í fyrrinótt.
ÞEIR HÉLDU
NORÐUR
★ Sumir hafa fengi'ö síldina í bióöið og það er ekkert spaug. Nú er síldin farin
að veiöast fyrir 'norðan og atburðarásin færist þangað og hvernig líður þessum
mönnum á sunnienzkri fold? Þeir ókyrrast á fleti sínu og verða flöktandi til augn-
anna og órólegir til handanna og skamma kannski konuna sína.
★ Þetta er eins og að detta í þaö. Fram í hugskot þessarra manna bregöur fyrir
fíngeröu hvítfyssi á sléttum haffleti og miönætursól noröur við Meirakkasléttu og
{rull á banka og mörgum höndum á síldarnót.
★ Gömul veiðigleöi tendrast viö norðlenzka veðursæld. Niöri við Grandagarð er
þéttur skógur af siglutrjám og þarna liggja reykvískir síldarbátar hver utan á
dðrum og mynda jafnvel fimmfalda röö, og þessa daga er unnið af kappi um borð
í hverju skipi fyrr væntanlegar síidveiöar við Norðurland.
★ Högg trésmiöa og járnsmiöa berast um nágrenniö og þaö er létt yfir sjómönn-
tm á bryggjunum og síldarnætur eru halaöar um borð og hverskonar viðgerðar-
menn eru á þönum. Þaö er aö mörgu að hyggja fyrir langa útivist og hver hlutur
margfaldast aö notagildi, þegar stund v eiðigleðinnar rennur upp fyrir norðan.
Ótrúlega stjórnsemi þarf viö síldarútger ð og enginn minnist ógrátandi á milljóna-
verðmæti hverfa út í buskann, ef einhver hlutur klikkar í veiðiútbúnaði.
★ Slíkar vonbrigöastundir eru of tíðar. En reykvíska síldarflotanum fækkar með
hverjum degi hér í höfninni. Margir héldu norður í fyrrinótt og enn fleiri í nótt.