Þjóðviljinn - 30.06.1963, Side 1
Samningar verkakvennafél.
í Reykjavík og Hafnarfírði
1 fyrrakvöld tókust samningar
milli verkakvennafélagsins Fram-
sóknar í Reykjavik og verka-
kvennafélagsins Framtíðar í
Hafnarfirði annars vegar og
Vinnuveitendasambandsins og
vinnuveitenda í Hafnarfirði hins
vegar um almenna 7,5% hækkun
á öllum kauptöxtum verka-
kvenna.
Einnig náðist samkomulag um
nokkrar tilfærslur milli Uxta.
Samningum um ákvæðisvinnu i
síldarsöltun var frestað bar til
síðar.
Samningarnir gilda þar til i
haust, og voru þeir undirritaðir
með tilskyldu samþykki félags-
funda viðkomandi aðila.
Olafur Þ. Jónsson
Þeir sem enn hafa ekki
orðið sér úti uro miða á
skemmtunina atiiugi að
miðar verða afhentir við
innganginn í kvöld.
Meðal skemmtiatriða er
einsöngur Ólafs Þ. Jóns-
sonar og einnig koma
hinar þekktu Prince-syst-
ur þarna fram.
Skemmtun fyrir starfs-
fólk og stuðningsmenn G-
------------------------®
listans í nýafstöðnum Al-
þingiskosningum verður
haldin að Hótel Borg í
kvöld og hefst hún kl.
20,30.
Sunnudagur 30. júní 1963 — 28. árgangur — 144. ítölublað.
G-listaskemmtun að
Hótel Borg í kvöld
Hvalskurður í Hvalfirði
Það var heldur betur handagangur í öskj-
unni í Hvalstöðinni í Hvalfirði sl. föstudagskvöld
er fréttamenn renndu þar við á heimleið frá
bændaskólanum á Hvanneyri.
Einn hvalbátanna var nýkominn inn með
hval og unnið var af kappi við að skera hvalinn
á planinu eins og vel sést á stærri myndinni.
Minni myndin sýnir að það er beíra að stíga
varlega niður því að það er skreipt á hvalþjósun-
um. — ,(Ljósm. Þjóðviljinn. G. O.)
Þjóðviljinn náði snöggvast tali af Tryggva Helga-
syni, fulltrúa Alþýðu;|ambands íslands í Verðlagsráði
sjávarútvegsins, og innti hann eftir afstöðu hans til þeirra
ákvarðana, sem undanfarið hafa verð teknar varðandi
síldarverð fyrir norðurlandssíld í sumar.
Ákvörðun um saltsíldarverðið,
sem Þjóðv. skýrði frá í fyrrad.
var samþykí.t samhljóða í Verð-
lagsráðinu, sagði Tryggvi. En
ekki er þó úr vegi, að hafa það
sem sannara reynist í þessu máli
sem öðru. Ég sat hjá við at-
kvæðagreiðslu um ákvörðun salt-
síldarverðsins, lét bóka að ég
teldi verðið of lágt. Hins vegar
hefði ég ekki trú á jákvæðum
árangri, þótt málið færi til yfir-
nefndar, — en málið gengur til
hennar (þ.e. til gerðardómsá-
kvörðunar) ef mótatkvæði koma
fram í verðlagsráðinu sjálfu.
Og reynsla okkar af gerðadóm-
unum undanfarið er slík, að ég
taldi einskis að vænta með mál-
skoti þangað, þar sem engar lík-
ur voru á samkomulagi um
oddamann í yfimefndina að
mínu áliti.
— Og hver er þá skoðun þín
á verðlagningu síldarinnar að
þessu sinni?
Ég tel verðlagninguna núna ó-
bilgjarnari gagnvarj sjómönnum
og einnig útgerðinni, en hún hef-
ur verið allt frá því að Verð-
lagsráðið tók tii starfa. Þetta á þó
alveg sérstaklega við í sambandi
Artíð Hákonar gamla
Á þesgu ári eru 700 ár liðin
síðan Hákon konungur hinn
gamli Hákanarson andaðist í
Kirkjuvogi í Orkneyjum, þar
sem hann hugðist hafa vetur-
setu. En vestur um haf hafði
konungur farið til þess að reyna
að afstýra því að Skotakonung-
ur næði undir sig skozku eyjun-
um, sem þá höfðu lengi lotið
norskum yfirráðum.
f tjlefni af þessu sjö alda af-
mæli andláts hins mikilhæfa
konungs hafa bæjarstjórn
Kirkjuvogs (Kirkwall) og hér-
aðsráðs Orkneyja efnt til sam-
komu, sem sett verður j Kirkju-
vogi á morgun, 30. júní, og
stendur til 5. júlí. Verður sam-
koma þessi fyrst og fremst fund-
ur skozkra og norrænna. eink-
um norskra, fræðimanna. og
munu þeir flytja fyrirlestra um
sögu, fornleifafræði og bók-
menntir þeirra tíma. er Hákon
konungur var á dögum. Fund-
urinn hefst með. minningarmessu
i hinni frægu Magnúsarkirkju,
og verður þar meðal annarra
norskur biskup. Þegar á fund-
inn líður verður farið í margar
ferðir til þeirra staða, sem
norrænir menn gerðu fræga á
víkingaöld og á miðöldum,
merkilegir uppgreftir skoðaðir
og efnt til sýninga á söguleg-
um minjum.
Meðal ræðumanna á minning-
arhátíð þessari er Hermann
Pálsson, lektor í Edinborg, og
prófessor Jón Helgason er einn-
ig í þeim fræðimannahópi. sem
saman kemur í Kirkjuvogi
næstu daga.
við úrskurðinn um bræðslusíld-
arverðið.
— Þú skilaðir sératkvæði við
þann úrskurð, er ekki svo? Og
hver var rökstuðningur þinn fyr-
ir þeirri afstöðu?
— í fyrsta lagi tel ég, að áætlað
síldarmagn, sem gert er ráð fyrir
Tryggvi Helgason
að verksmiðjumar fái til vinnslu
á sumrinu, sé allt of lágt áætlað,
en það skiptir að sjálfsögðu mjög
miklu máli við mat á greiðslu-
getu verksmiðjanna. Það má
benda á, að í flotann hafa bætzt
mörg stór og velbúin skip, og
stöðugar framfarir eru í notkun
veiðitækjanna og vinnu með
þeim. Þá hafa afköst verksmiðj-
anna einnig aukizt allverulega,
einkum á Austurlandi, og síld-
arvertíðin byrjaði að þessu sinni
um það bil tveim vikum fyrr en
á s.l. sumri.
Ég tél einnig, að áætluð nýting
lýsismagns úr hverju máli og þó
alveg sérstaklega mjöl, sé of lógt
áætlað. Afskriftir af vélum verk-
smiðjanna eru einnig mikið
hærri en eðlilegt má teljast, eða
um 15 0/0, en í frystihúsum er
yfirleitt reiknað með 10 0/0 af-
skriftum.
Loks vil ég benda á það, að
verð á lýsi hefur stórhækkað
erlendis undanfarið og mun
markaðsverð nú vera um 63
sterlingspund tonnið, en á s.l. ári
var verð á lýsi fallandi og mun
jafnvel hafa komizt niður í 29
sterlingspund á tímabili. Ég vil
því að lokum endurtaka það,
sem ég sagði hér að framan, að
verðlagning síldarinnar er núna
óbilgjamari gagnvart sjómönn-
um, en verið hefur frá því Verð-
lagsráð tók til starfa.
Verður Ingi R.
alþjóðlegur
meistari?
1 daR hefst fyrsta umferð á
svæðamótinu í Halle í Austur-
Þýzkalandi og keppir þar Ingi
R. Jóhannsson fyrir Islands
hönd. Keppendur eru 20 tals-
ins, þar af 8 stórmeistarar og
5 aiþjóðlegir meistarar.
Á þessu móti hefur Ingi tæki-
færi til þess að vinna sér fitil-
inn alþjóðlegur meistari. Til
þess þarf hann að fá 8% vinn-
ing og hljóta 25% vinnings-
hlutfall gagnvart stórmeistur-
um, 50% hlutfall gagnvart al-
þjóðlegum meistunim og 80%
gegn hinum.
Þarna keppa meðal annarra
Larsen, Danmörku, Státberg,
Svíþjóð, Jóhannessen, Noregi,
Donner, Hollandi, Ivkov, Júgó-
elavtíu og Kortez, Ungverja-
landi. Er þetta stórt tækifæri
fyrir Inga.
Síðasta umferð verður tefld
25. júlí.