Þjóðviljinn - 14.07.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 14.07.1963, Blaðsíða 1
! Sunnudagur 14. júlí 1963 — 28. árgangur — 155. tölublað. Bræla á síldarmiðunum Lítil scm engin síldveiði hefur verið fyrir Norðurlandi undanfama sólarhringa vegna brælu á miðunum. Hafa sild- veiðiskipin Iegið í landvari. Varðskipið Ægir, sem er við sildarleit fyrir norðan, hefur síðustu dagana lóðað á tals- vert magn síldar á nokkmm ■ stöðum þar, t.d. vestur af Kolluál og út af Sporða- gmnni. ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■••■■■•■*■■ Bygging IbúSarhúsnœSis i SviþjóS: J Lánin eru 85til100% af áætluðum kostnaði, veitt til 40-60 ára Eins og lesendum Þjóðvilj- ans er kunnugt, er nýlokið hér í Reykjavík norrænu hús- næðismálaþingi, þar sem full- trúar Norðurlandanna gáfu upplýsingar um ástand í hús- næðismálum í hverju landi fyrir sig, þróun þyggingamála og þá einkum íbúðaþygginga, byggingakostnað, lánveitingar og vaxtakjör o.fl. sem að þessu lýtur. Svo sem vænta mátti komu þarna fram ýms- ar mjög merkar upplýsingar og er ekki hvað sízt athyglis- vert fyrir okkur Islendinga að kynnast því, hvemig tekið er á þessum málum meðal ná- granna okkar á hinum Norð- urlöndunum. ☆ ☆ ☆ Þjóðviljinn mun kynna les- endum sínum nánar ýmislegt það sem fram kom á þessari ráðstefnu. I dag birtum við upplýsingar, sem fram komu hjá sænska fulltrúanum á ráðstefnunni. Þróunin síðustu 4 ár Eftirspurn eftir húsnæði er geysimikil í Svíþjóð, einkum vegna fjölgunar fólks í borg- um og iðnaðarmiðstöðvum. Jafnframt gerir fólk kröfur til stöðugt hærra og betra húsnæðis. Ibúðahúsnæði í Svíþjóð má yfirleitt teljast heldur þröngt á okkar mæli- kvarða, og mikið byggt af mjög litlum húsum, 1—2ja herbergja. Síðast liðin fjögur ár hafa fullgerðar íbúðir skipzt sem hér segir eftir stærð: Tæplega fimmti hluti (19—20%) hefur verið 1 her- bergi og eldhús (23 ferm. til 41 ferm.), rúmlega fimmti hluti (22—23 %) hefur verið 2 herb. og eldhús (59 ferm.), um þriðjungur (29—32 %) hefur verið 3 herbergi og eld- hús (73 ferm.) og loks er um þriðjungur (28—30 %) 4 herb. og eldhús (92 ferm.) Tala fullgerðra íbúða í Sví- þjóð s.l. fjögur ár hefur verið sem hér segir: 1959 69.300 íbúðir 1960 68.300 íbúðir 1961 73.800 íbúðir 1962 75.124 íbúðir Á yfirstandandi ári mun ætlunin að ljúka við um 90.000 íbúðir en það er um 20% aukning frá síðasta ári. Lánskjör og vextir Ríkislán til íbúðabygginga nema frá 85—100% af áætluð- um byggingarkostnaði, en venjulega fer kostnaður þó eitthvað fram úr áætlun og verða húsbyggjendur þá sjálf- ir að sjá fyrir því fjármagni sem á vantar. — Lánin eru veitt til 40 og allt upp í 60 ára, og hafa vextir af ríkis- lánum yfirleitt verið 3.5% frá 1958, en voru áður 3,5—4.5%. ☆ ☆ ☆ Og nú geta menn borið þessar upplýsingar sem hér liggja fyrir saman við þá að- stoð, sem hið opinbera veitir mönnum hér til þess að koma sér upp íbúðarhúsnæði — og dregið sínar ályktanir af því. ! I ! Skáldverk norrænna sam- tímahöfunda gefin út vestra Skáldsögur eftir Laxness og Gunnar Gunnarsson á meðal verkanna Ári'ð 1954 samþykkti Norðurlandaráð að stu'ðla a'ð þýðingum og útgáfu norrænna samtíðarbókmennta á heimsmálunum, en ekki varð þó úr því að hefjast handa um þetta verkefni á vegum ráðsins. Nú hefur hins veg- ar náðst samkomulag viö bandarískt útgáfufyrirtæki um útgáfu á norrænum bókaflokki og er ætlunin aö í honum verði m.a. verk eftir Laxness, Gunnar Gunn- arsson, Jóhann Sigurjónsson, Guömund Kamban og Agnar Þórðarson. ÞJóðviljanum barst í gær fréttatilkynning frá menntamála- ráðuneytinu um þetta efni og fer hún hér á eftir: „A þingi Norðurlandaráðs árið 1954 kom fram tillaga um, að stofnað skyldi til útgáfu um- fangsmikils úrvals norrænna bókmennta í þýðingu á höfuð- tungur, fyrst og fremst ensku. Athugun sem fram fór á vegum Norrænu menningarmálanefnd- arinnar, þótti hins vegar leiða í Atvinnuleysi í USA - Sjó 6. síðif Ijós, að tillaga þessi væri naum- ast framkvæmanleg í upphaflegri mynd. Var talið vænlegast, að áfram yrði haldið af hálfu hvers lands að vinna að aukinni út- breiðslu bókmennta þess á heimsmálum og á þessu sviði stefnt að eins mikilli samvinnu Norðurlandaþjóðanna innbyrðis og fært þætti. Upp úr þessu hófust með at- beina Norrænu menningarmála- nefndarinnar, athuganir menn- ingarmálafulltrúa norrænu sendi- ráðanna í Washington á leiðum til samvinnu um útgáfu nor- rænna bókmennta á ensku fyrir bandarískan og e.t.v. einnig brezkan bókamarkað, og þá í smærri stfl en áður hafði verið xætt um. Hefur verið unnið að þessu máli síðan snemma á ár- inu 1959, og er nú svo komið, að samkomulag hefur tekizt við bandarískt bókaforlag, The Uni- versity of Wisconsin Press, um útgáfu norræns bókaflokks þar i landi. Var samningur þess efn- is milli fulltrúa Norðurlandaríkj- anna fimm og bókaforlagsins undirritaður í Washington í aprílmánuði s.l. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir, að gefnar verði út a. m. k. fimmtán bækur, þrjár frá hverju landi, á fimm ára tímabili. Hverju Norðurlandaríki er ætlaö að standa straum af þýðingar- kostnaði sinna bóka, svo og að inna af hendi tiltekna fyrirfram- greiðslu til höfunda, en annan kostnað af útgáfunnni er for- iaginu ætlað að bera. Gert er ráð fyrir, að forlagið semji sér- staklega við rétthafa hverrar bókar um réttindaatriði og höf- undarlaun, og svo fremi að þeir samningar heimili, skuldbindur forlagið sig til að leita sam- vinnu við brezkan bókaútgefanda tm sölu bókanna i Bretlandi. Valdar hafa verið bækur til útgáfunnar, og var um val ís- lenzku bókanna leitað ráða heimspekideildar Háskóla Is- lands. Er fyrirhugað, að Is- lenzku útgáfubækurnar verði þessar: 1. Heimsljós eftir Halldór Kiljan Laxness. ■' Svartfusl eftir Gunnar Gunn- arsson. Framhald á 2. síðu. A bryggjunni góðviðrisdag Farmenn fá 7,5% kauphækkun ★ Sjómannafélag Reykjavíkur hefur fengið fram 7,5% hækkun á kaupi farmanna, en hins vegar eru samning- ar enn lausir og verður viðræðum haldið áfram við fulltrúa skipafélaganna um kjör sjómanna. ★ Sjómannafélagi'ð lagði fyrir nokkru fram frumvarp að nýjum samningum og er það í athugun hjá sam- eiginlegri nefnd deiluaöila. Þessi undirnefnd er skipuð 3 mönnum frá hvorum a'ðila og er verkefni hennar aö kanna hvaöa breytingar verða á kjörum sjómanna sam- kvæmt tillögum Sjómannafélagsins og hve mikil út- gjöld það myndi hafa í för með sér fyrir skipafélögin. Tvö tilboð I framkvæmd- ir í Njarðvikurhöfnina Á góðviðrisdögum llggur Ieið margra, ungra og gamalla, nið- ur að Reykjavíkurliöfn, því að þar er venjulega ýmislegt skemmtilegt að sjá. Unga fólk- inu er þó ráðlegra að halda þangað aðeins í fylgd með full- orðnum og alltaf er sjálfsagt að ffæta fyllstu varúðar. — Mynd- in var tekin á dögunum á einni af gömlu bryggjunum í Reykja. víkurhöfn. — Ljósm. Þjóðv. A.K. í Kerling- arfjöllunt Á alþingi í vetur var sam- þykkt að heimila 70 milljón króna lántöku til fram- kvæmda við landshöfnina í Njarðvíkum, og var verkið boðið út snemma í vor. Reiknað hefur verið með, að framkvæmdir gætu hafizt í því mikill munur k þessum tveim tilhoðum sem sjá má. Ætlunin er að Ijúka fyrir. huguðum framkvæmdum við landshöfnina á næstu þremur árum, en í sumar he.fur verið ráðgert að vinna fyrir 6—7 milljónir króna. Fundur í blaða- mannafélaginu á morgun Blaðamannafélag Islanðs held- ur almennan fclagsfund í Nausti upp á morgun, mánudag, kl. 4 síðdegis. Launa- og samninga- málin verða til umræðu og er áríðandi að félagsmenn fjöl- nienni. Flestum fslendingum mun ekki þykja of mikið sólskinið eða veðurblíðan hér á landi á sumrin. en komið getur þó fyr- ir á stöku stað og einstaka sinn- um, að menn grípi til þess að búa sig í sumarliitanum likt og sá sem sést hér á myndinni, cn hún var íekin fyrir skömmu í Kerlingarfjölluni. Á 3. síðu segir frá skíðanámskeiðum oy dvöl á þessum stað. sem er ai> verða æ vinsælli sumardvala?- staður skíðaáhugamanna og fjallagarpa. sumar, og munu tvö tilboð hafa borizt í að vinna verk- ið. Bæði þessi tilboð eru frá ís- lenzkum fyrirtækjum, en einn- ig munu hafa borizt allmargar fyrirspurnir um verkið erlend- is frá. Fyrirtækið Efrafall, sem að undanförnu hefur séð um hafnarframkvæmdir í Þorláks- höfn, sendi tilboð upp á 38'—46 milljónir króna. Tilfooð frá Byggingarfélagjnu Brú h’.jóðaði upp á 80—86 milljónir. og er

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.