Þjóðviljinn - 14.07.1963, Blaðsíða 12
Hitaveitu-
kvikmyndin
verður sýnd
íMoskvu á
laugardag
Söltun Suluriandssíldar nam
137740 tunnum á s.l. ári
Á aöalfundi Félags síldarsaltenda á Suövesturlandi
sem haldinn var s.l. miövikudag í Reykjavík skýrði for-
maður félagsins, Jón Árnason alþingismaður á Akra-
nesi, frá því að síðast liðið ár hefði verið mesta söltun-
arár frá því félagiö var stofnað árið 1954. Nam söltunin
137.740 tunnum en þar af voru 31.766 tunnur flött og
flökuð síld. Var útflutningsverðmæti þessarar síldar
rúmlega 112.3 milljónir króna.
Á fundinum hélt Gunnar Flóv-
enz framkvæmdastjóri erindi um
síldarsöltun sunnanlands og vest-
an á undanförnum árum og um
horfur í þeim efnum á komandi
hausti og vetri.
Gunnar sagði, að söltun Suð-
urlandssíldar hefði upphaflega
algjörlega byggzt á veiðibresti
norðanlands en unnið hefði verið
að þvi jafnt og þétt undanfarin
ár að byggja upp sjálfstæða
markaði fyrir Suðurlandssíld og
hafi sú viðleitni þegar borið
árangur.
Gunnar sagði að á síðustu ver-
tíð hefði verið saltað og selt
meira af Suðurlandssíld, en
nokkru sinni fyrr, þrátt fyrir
metsöltun á Norður- og Austur-
landi. Gat hann þess, að Island
væri nú orðið mesta útflutnings-
land saltsildar í heiminum. Of
snemmt kvað hann að segja
nokkuð um sölumöguleika á
næstu vertíð en tók samt fram
að söluihorfur væru ekki góðar
í Beneluxlöndunum, Frakkiandi
og Israel, en þessi lönd hefðu
í fyrsta skipti keypt síld frá ís-
landi á s.l. ári. Ástæðurnar væru
þær, að síldveiðar Hollendinga
hefðu gengið óvenju vel undan-
farið, og söltun þeirra væri nú
u.þ.b. helmingi meiri en á sama
tíma s.l. ár. Á ísraelsmarkaði
lægi mikið af saltsíld frá fyrra
ári og væri algjörlega óvíst,
hvort unnt yrði að selja Suður-
landssíld þangað á næstu vertíð.
Gunnar gat þess, að fyrir
nokkrum árum hefðu fáir haft
ti'ú á því, að unnt yrði að byggja
upp markað fyrir íslenzka salt-
síld í Vestur-Þýzkalandi í sam-
keppni við v-þýzka saltsíldar-
framleiðendur. Þetta hefði þó
tekizt smámsaman og á s.l. ári
hefðu verið gerðir fyrirfram-
samningar um sölu á samt. 42
þúsund tunnum þangað, þar af
hefðu 32 þús. tunnur verið Suð-
urlandssíld.
í sambandi við hina geysiháu
innflutningstolla, sem v-þýzkir
kaupendur verða að greiða af
saltsíld frá Islandi, skýrði Gunn-
ar frá því, að íslenzk stjómar-
völd ynnu nú að því, að reyna
af fá tollfrjálsan kvóta í V-
Þýzkalandi fyrir saltaða síld,
eins og á sér stað um hraðfrysta
og ísaða síld. Segja mætti að á-
framhaldandi sala á fslenzkri
Munið 200m.
Norræna sundkeppnin stend-
ur yfir.
Ef 42 þúsund Islendingar
synda 200 metrana að þessu
sinni, jafngildir það boðsundi
5V2 sinnum kringum Island.
Verið með í boðsundinu og
stuðlið að sigri Islands.
Framkvæmdanefndin.
Fréttaritari Þjóðviljans í Moskvu hefur símað, að
ákveðið sé nú að sýna íslenzka kvikmynd um hita-
veituna í sambandi við aliþjóðlegu kvikmynda-
hátíðina sem stendur yfir þar í borg um þessar
mundir. Verður myndin sýnd á laugardaginn kem-
ur, 20. júlí.
Eins og áður hefur verið skýrt frá í Þjóðviljanum,
er hér um að ræða nýja kvikmynd; „Hitaveitu-
ævintýri“ nefnisf hún og er tekin á vegum Hita-
veitu Reykjavíkur og borgaryfirvaldanna. Var
myndin tekin og fullunnin seinni part vetrar og
í vqr. Höfundur tökuritsins og leikstjóri er Þor-
geir Þorgeirsson, en Gestur Þorgrímsson hefur
annazt framkvæmdastjórn við kvikmyndagerðina.
Aðalleikendumir eru ung systkin, börn Gests og
Sigrúnar Guðjónsdóttur, þau Ragnheiður Gests-
dóttir og Guðjón Ingi Gestsson. Þetta er svört-hvít
kvikmynd, sýningartími hennar milli 20 og 30
mínútur.
Svo skammt er síðan kvikmyndin ,,Hitaveituævin-
týri“ var fullgerð, að mjög var óvíst. hvort mynd-
in fengist sýnd á kvikmynda-
hátíðinni í Moskvu. Rússar, sem
hér voru staddir í vor, höfðu
séð ófullgerða kafja úr mynd-
inni, og var það ekki fyrr en
löiigu eftir að liðinn var frest-
ur til að skrá kvikmyndir til
sýningar á Moskvuhátíðinni að
leitað var fil forráðamanna há-
tíðarinnar um að sýna hitaveitu-
myndina. Allt að einu féllust
Rússarnir á að sýna kvikmynd-
ina og hún var send írá Lund-
únum 2. júlí og komst því til
Moskvu um líkt leyti og kvik-
myndahátíðin hófst. Nú hefur,
sem fyrr segir, verið ákveðið
að sýna myndjna n.k. laugar-
dag — og er það út af fyrir
sig umtalsverð viðurkenning.
,,Hifaveituævintýri“ mun svo
fr.umsýnt í Reykjavík áður en
langur tími líður. — Myndirn-
ar, sem fylgja þessum línum
voru teknar, meðan á kvifc-
myndatökunni stóð. — Ljósm.
Dónald Ingólfsson.
saltsíld, og þá sérstaklega sér-
verkaðri síld, til Vestur-Þýzka-
lands væri að verulegu leyti und-
ir því komin, að samkomulag
takist við vesturþýzk stjórnar-
völd um niðurfellingu þessa háa
tolls.
Markaðina í Austur-Evrópu
taldi Gunnar mjög þýðingar-
mikla fyrir síldarsöltunina á
Suðurlandi. Ræddi hann m.a. um
þau hagkvæmu viðskipti, sem nú
eiga sér stað við Rúmeníu og
kvað V-Þjóðverja og Norðmenn
sækja mjög fast á að selja Rúm-
enum saltsíld og hefðu undirboð
þessara landa á rúmenska mark-
aðnum og raunar fleiri mörkuð-
um, valdið töluverðum erfiðleik-
um á s.l. ári. Undirboð þessi
væru fyrst og fremst afleiðing
hinna háu framleiðslustyrkja til
saltsíldarframleiðenda í þessum
löndum.
Sunnudagur 14 júlí 1963 — 28. árgangur •— 155.
tölublað.
Friðrik í 4—6 sæfi
eftir sex umferðir
Þau urðu úrslit biðskákar
Friðriks Ólafssonar og Benkös
úr 6. umferð skákmótsins í Los
Angeles, að Friðrik vann. Er
hann þá í 4. til 6. sæti á mótinu
með 50% vinninga.
Biðskákir hafa nú allar verið
tefldar úr fyrri umferð og er
staðan þessi eftir 6 umferðir:
1.—2. Gligoric
Najdorf
3. Keres
4.—6. Friðrik
Petrosjan
4
4
vmn.
vinn.
31/? vinn.
3 vinn.
3 vinn.
Reshevsky
7. Panno
8. Benkö
3 vinn.
2 vinn.
I1/? vinn.
I 7. umferð mótsins teflir
Friðrik Ólafsson við Panno og
hefur svart.
VÍN 13/7 — Það var tilkynnt í
dag, að Ungverjaland hefði slitið
verzlunarsambandi sínu við Suð-
ur-Afríku. Er þetta gert i mót-
mælaskyni við stefnu Suður-
Afríku í kynþáttamálum.
Mót bindindismamw
haldið að HúsahiH
Ákveðið hefur verið að hið ár-
lega bindindismannamót verði
um verzlunarmannahelgina að
Húsafelli, 3. 4. og 5. ágúst.
Þetta er fjórða bindindis-
mannamótið í röð; tvö hafa áður
verið haldin að Húsafelli og eitt
að Reykjum í Hrútafirði.
Fengið hefur verið leyfi land-
eigenda til að halda mótið. Til
þess að standast óhjákvæmilegan
kostnað við framkvæmd mótsins,
verður nokkurt mótsgjald, en í
því eru innifalin skemmtiatriði
og dans bæði kvöldin.
Lagt verður á stað frá Reykja-
vík og Hafnarfirði eftir hádegi
á laugardag og mótið sett um
kvöldið. Verða þá ýmis dag-
skráratriði, varðeldur og dans.
Á sunnudag verður skoðað um-
hverfi Húsafells og síðdegis er
hugsað að hafa útileiki, varðeld
og dans.
Upplýsingar um mótið verða
Verður
viðrœðum
slitið?
PEKING 13/7 — „Dagblað fólks-
iris“ í Pekjng segir í ritstjórn-
argrein í dag. að svo kunni að
fara, að viðræðunum í Moskvu
verði slitið. Kveðst blaðið verða
að tilkynna það með þungum
hug, að viðræðurnar hafj öðru-
vísi snúizt, en Kinverjar höfðu
vonazt til. Segir blaðið enn-
fremur að enn reyni Kommún-
istaflokkur Sovétríkjanna að
vekja and-kinverskar tilfinning-
ar.
gefnar í Bókabúð Æskunnar í
Reykjavík og Góðtemlarahúsinu
í Hafnarfirði; nánari upplýsing-
ar tilgreindar í auglýsingu síðar.
Undanfarin mót hafa verið
vinsæl og vel sótt, sérstaklega
af ungu fólki. Öllum er heimil
þátttaka, sem fylgja settum regl-
um.
Höfuð-markmiðið með þessum
mótum er að gefa ungu fólki
tækifæri að skemmta sér án á-
fengis.
Ferðir verða frá B.S.l.
Svíar leggja fram
fé til Sameinuðu
þjóðanna
NEW York 13/7 — 1 dag lét Sví-
þjóð af hendi rakna 14800 dali
til Sameinuðu þjóðanna, og
rennur féð í Kongóaðgerðir sam-
takanna. Áður hefur Svíþjóð
greitt um það bil 1 milljón og
400 þús. dali í sama skyni.
Snúast gegn mét-
mælaaégerðum
NEW YORK 13/7 — Talsmaður
Sameinuðu þjóðanna lét svo um
mælf í gærkvöld að Sameinuðu
þjóðirnar myndu snúast gegn
öllum mótmælaaðgerðum gegn
Portúgal og Suður-Afríku. Einn-
ig kvað hann samtökin andvíg
sérhverri tilraun til að útiloka
lönd þessi frá stofnunum og ráð-
stefnum samtakanna.
Perutré bera ávöxt
/ Vestmannaeyjum
Peruræktun er ekki algeng
hér á landi — og þó fram-
kvæmanleg við hagstæð skil-
yrði eins og myndin sýnir.
Hún er tekin inni í tæpiega
20 fermetra stóru gróðurhúsi
í Vestmannacyjum, sem er t
eigu Þórarins Magnússonar
kennara, Pcrutréð blómstrar
nú í sumar í fyrsta sinn og
stendur mcð um 40 perum.
í gróðurhúsinu eru tvd
perutré og voru nokkuð á
annað hundrað perur að
byrja að vaxa, er hið eftir-
minnilega páskahret gerði, en
í því cyðilögðust milli 60 og
70 perur.
Þetta er mjög stórvaxin og
Ijúffeng perutegund og verður
fullþroskuð í ágúst—septem-
ber.
1