Þjóðviljinn - 04.09.1963, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 4. september 1063
ÞIÖÐVILIINN
SlÐA 3
Kennedy er orðinn vondaufur
um að sigra í Suður-Víetnam
En Iofar samt að haddið verði áfram að
veita harðstjóranum Diem fulla aðstoð
'V
WASHINGTON og SAIGON 3/9 — ÁstandiS í Suður-
Vietnam verður viðsjálla með hverjum degi og búast
má við miklum tíðindum þaðan hvenær sem er. Jafn-
framt er orðið ljóst að Bandaríkjastjóm er orðin von-
dauf um að henni og leppum hennar muni takast að
vinna sigur á skæruliðum þjóðfrelsishreyfingarinnar
í landinu. Þetta kom fram í sjónvarpsviðtali við Kennedy
forseta í gærkvöld.
Hann sagði m.a. í viðtalinu
að hann efaðist um að hægt
yrði að sigra kommúnista í Suð-
ur-Vietnam, ef stjómin í Saigon
iegði sig ekki alla fram til að
vinna þjóðina á e'itt banda.
únisminn ekki lagður að velli, hélt
hann áfram, og ég vona að
stjómin í Suður-Vietnam geri
sér það ljóst. En Kennedy bætti
því við að það myndi vera al-
rangt að hætta að /eita stjóm-
Aigeng sjón á götum Saigons þessa dagana.
— Bandaríkln eru fús til
að veita stjórn Diems forseta
aðstoð framvegis, en að mín-
um ,dómi licfur hún á síðustu
tveimur mánuðum misst
tengsiin við alþýðu manni í
Suður-Vietnam, sagði Kenne-
dy forseti.
Hann fór ekki hörðum orðum
um ofsóknir stjómar Diems á
hendur búddamönnum, en sagði
að þær væru mjög óviturlegar.
Aðstoð haldið áfram
— Á þann hátt verður komm-
Ossietzky loks
reistur varði í
VÞýzkalaiidi
DÚSSEHDOHF 3/9 — Friðarvin-
inum Carl von Ossietzky, sem
hlaut friðarverðlaun Nóbels
meðan hann var í fangabúðum
nazista, en úr þeim átti hann
ekki afturkvæmt, verður nú
loks reistur minnisvarði í Vest-
ur-Þýzkalandi. Það eru námu-
mehn í Ru'hrhéraði sem lagt
hafa fram fé til minnisvarðans,
en vesturþýzk stjórnarvöld hafa
látið sig litlu skipta að halda
minningu O&sietzkys á loft.
VerBhækkun
ásaltfíski
ÞÓRSIHÖFN, Færeyjum 3/9
— Nefndin scm ákveður
verðlag á fiskl sem lagð-
ur er á land til saltfisk-
.verkunar í Færeyjum kom
saman á Iaugardaginn til
a8 ákveða nýtt verð á fisk-
inum vegna þess háa verðs
sem greitt er fyrir hann
bæði í Noregi og Dan-
mörku. Ákvað nefndin að
hækka verðið um 35 aura
danska á kíló (um 2,20
ísl. kr.) til þess að tryf'" ''1
að færeyskir saltfis'k:''”-!-
endur fái nægiiegan fis’-
til að standa við gerða
söiusamninga.
inni í Saigon hemaðaraðstoð og
hann væri algerlega andvígur
þeim sem það vildu.
Á báðum áttum
' ' Allt bendir til þéss að Bandá-
ríkjastjórn geri sér ekki nokkra
grein fyrir því hvemig bregð-
ast_eigi yið hinu viðsjáverða á-
standi i Suður-Vietnam. Henni
virðist orðið ljóst að leppar
hennar eiga engu fylgi að fagna
meðál þjóðarinnar og öllu því
gífurlega fé sem hún hefur aus-
ið í stjóm Diems hefur verið
kastað á glæ. Hins vegar þorir
hún ekki að veitast beint gegn
Diem af ótta við að hún myndi
þá missa eina tangarhald sitt
á landinu.
Mikil tíðindi í vændum
Fréttaritarar segja að ummæli
Kennedys forseta í sjónvarps-
viðtalinu í gærkvöld hafi vakið
mikla athygli í Saigon. Tals-
menn stjómarinnar segir að þau
beri með sér að Kennedy viti
lítið um hvemig ástatt er í
landinu. Talið er að enn muni
versna sambúð Diems og Banda-
ríkjastjómar og menn búast við
miklum tíðindum alveg á næst-
unni. Aðrir eru þó þeirrar skoð-
unar að Bandaríkjastjóm muni
ekki ganga léngra en leggja að
stjóm Diems að breyta afstöðu
sinni gagnvart búddamönnum.
Þjóðin vill frið
Fréttaritari Reuters segir að
það veki hvað mesta furðu
hversu litlu almenningur í land-
inu og þó einkum í Saigon láti
sig varða deilur Diems og hinna
bandarísku vemdara hans. Á-
stæðan sé talin sú að fólk sé
orðið þreytt á stríðinu við
skæruliða kommúnista. Það hafi
nú verið barízt í landinu nær
óslitið í tuttugu ár og fólkið
viliji frið umfram allt.
Samsæri gegn Diem?
Blaðið „Saigon Times“ sem
gefið er út á ensku hélt því
fram í gær að bandaríska leyni-
þjónustan hefði lagt fram
fé til að standa undir kostn-
aði af samsæri um að steypa
Diem af stóli.
Það kvaðst hafa góðar heim-
ildir fyrir því að leyniþjónust-
an CIA hefði varið allt að 24
milljónum dollara til samsæris-
ins. Uppreisnina hefði átt að
gera í síðustu viku, en henni
hefði verið frestað á síðustu
stundu, af því að Diem hefði
fengið njósnir af því sem tíl'
stóð.
V-þýzkir bændur hóta gagnaðgerðum
Ekki horfur á sátt
/ kjáklingastríiinu
ÐRUSSEL 3/9 — Litlar horfur
eru nú á því að sættir ætli að
takast í „kjúkli|igastríðinu“ milli
Bandaríkjanna og Efnahags-
bandalags' Evrópu, en deila
þcirra um tolla bandalagsríkj-
anna á bandarískum kjúklingum
er erfiðasta ágreiningsmál sem
upp hefur komið milli þeirra.
Fréttaritari NTB í Brussel
hefur það eftir bandarískum
stjórnarfulltrúum þar, að því
fari fjarri að Bandaríkjastjórri
hafi skipt um skoðun í þessu
máli og hún hafi alls ekki í
hyggju að hætta við þær tolla-
hákkariir á'" vorúrri frá bárida-
lagsríkjunum. Hún hafi aðeins
ákveðið að fresta þeim hækk-
unum í einar tvær vikur til að
gefa EBE tóm til að lækka
kjúklingatollinri.
10 prósént lækkun?
Framkvæmdastjórn EBE á-
kvað í dag að mæla með því
við stjórnir bandalagsríkjanna
að tollur á hinum bandarísku
kjúklingum yrði lækkaður am
11 pfenninga á kíló, eða sem
svarar tíu prósentum. Með öllu
er óvist, og reyndar ósennilegt,
að öll aðildarríkin verði við
þessum tilmælum, en hitt nær
víst að Bandaríkjastjóm mun
ekki telja þessa lækkun nægi-
lega.
V-þýzkir bændur hóta
Vesturþýzka bændasambandið
hótaðí í dag gagri'aðge'rðurn ’ef
fallizt verður á kröfu Banda-
ríkjanna um lækkun kjúklinga-
tollsins.,. Stjói® sarriban.dsins-.seg-
ir í bréfi til Sehwartz landbún-
aðarráðherra að sambandið geti
ekki( sætt sig við tillögu fram-
kvæmdastjómar EBE um tiu
prósent lækkun tollsins, sem
myndi hafa skaðleg láhrif á
kjúklingaeldi v-þýzkra bærida.
Búizt er við að Erhard efna-
hagsmálaráðherra muni á morg-
un ákveða hvernig bregðast
skuli við tilmælum EBE um
tollalækkunina.
Ein síðasta Ijósmyndin af Georges Braque.
Ceorges Braque
iátinn, 81 árs
Á laugardag lézt á heim-
ili sínu í París hinn heims-
kunni franski málari Georg-
es Braque og hafði hann
einn um áttrætt. Banamein
hans var heilablóðfall, en
hann hafði verið heilsuveill
síðustu mánuði.
Kennedy forseti skundar heim úr orlofi
Enn eitt barns-
morð í Svíþjóð
STOKKHÓLMI 3/9 — Mörg
hundruð lögreglumenn leita að
manni þeim sem síðdegis í gær
nauðgaði og myrti fjögurra .ára
stúlku, Ann-Kristin Svensson, I
garði einum í Stokkhólmi.
Margt béndir til þess að þar sé
um sama mann að ræða sem
fyrir þremur vlkum myrti sex
ára gamla stúlku, Berit Glesing,
í öðrum garði borgarinnar.
Soint I gærkvöld hafði lög-
reglan haft upp á óþokkanum
og hafði hann játað á sig bæði
morðin.
Viðsjárvert ástand vegna
kynþáttamála í Alabama
WASHINGTON 3/9 — Bandaríkjastjórn hafði gert sér
vonir uni aö draga myndi úr átökunum milli kynþátt-
anna viö þau fyrirheit sem hún hefur gefiö leiötogum
blökkumanna um lagasetningu til aö tryggja jafnrétti
þeirra á við hvíta menn, en þær vonir hafa brugöist.
í Alabama er ástandiö nú svo viösjárvert aö Kennedy
Iforseti skundaöi í dag heim tii Washington frá Cape
Cod í Massachusetts þar sem hann dvaldist í orlofi.
Stérþjófnaðnr
enníLondon
LONDON 3'/9 — Enn 1 einn stór-
þjófnaður var framinn í London
í morgun. Grímuklæddir menn
stöðvuðu vörubíl í Isleworth-
hverfinu, bundu bílstjórann og
kefluðu, óku bílnum til West
Drayton og skildju hann eftir
þar, en höfðu farminn með sér,
en það voru sígarettur að verð-
mæti utrf 6 núlljónir knina.
Um 200 vopnaðir lögreglumenn
og aðrir úr riddaraliði lögregl-
unnar í Tuskegee í Alabama
meinuðu í dag bæði nemendum
og kennurum við gagnfræðaskól-
ann í borginni að koinast inn í
skólahúsið.
Kennsla átti að hefjast í skól-
anum í gær eftir sumarhléið og
meðal nemenda sem skráðir voru
í skólann voru þrettán þeldökkir,
þeir fyrstu sem skólann sækia.
Fylkisstjórinn í Alabama. Ge-
orge Wallacé. fyrirskipaði hins
vegar að fresta skyldi opnun
skólans. 'þar sem hætta væri á
kynþáttaóeirðum. Mikil ólga er
í borginni af þessum -sökum og
talin hætta á að þar fari eins
og í Little Rock í Arkansas um
árið. ,
1 kvöld bárust þær fréttir frá
Tuskegee að liðsauki sá er fylk-
ishernum sem Walace fylkis-
stjóri hafði sent til borgarinnar
hefði verið fluttur þaðan aftur
og sendur til Birmingham, þar
sem einnig stendur til að skól-
ar opni dyr sfnar fyrir þeldökk-
um nemendum næstu dagana.
Annars staðar í suðurfylkjun-
um hafa þeldökkir nemendur
byrjað skólagöngu með hvítum
Iþessa síðustú daga án þess að
tii átaka kæmi. Þannig hindraði
lögreglan í Baton Rouge í I,ouisi-
ana að uppnám yrði þegar fjór-
ar litlar blökkustúlkur hófu þar
nám í „hvítum“ skóla. Sömu
sögu er að ségja frá Cambridge
í Maryland.
Skrilslæti í Fíladelfíu
Um þúsund hvítar fjölskyldur
í úthverfinu Polchoft í Fíladelfíu
samþykktu í dag að hætta öllum
viðskiptum við þær verzlanir í
hverfinu sem ekki neituðu hin-
um ungu blökkuhjónum um af-
greiðslu sem fengu íbúð þar í síð-
ustu viku. Þegar hjónin fluttu
inn í íbúð sína, safnaðist hvítur
skríll fyrir framan hús þeirra og
kastaði í þau grjóti pg fúleggjum.
Þau urðu að fá aðstoð fjölmennr-
ar lögreglu til að komast inn i i-
búð sína og lögregla er enn á
verði við húsið.
Dómar í Louisiana
Dómstóll í Plaquemine í Louis-
iana dæmdi í dag James Former,
forseta iafnréttissamtaka blökku-
manna CORE. og fimmtán aðra
svertingjaforingja í 30 daga fang-
elsi fvrir óspektir á
19. ágúst s.l. þegar «■■■ ö'cin
efndu til mótmælagöngu í borg-
inni.
Nafn Georges Braque er 6-
rjúfanlega tengt mestu listbylt-
ingu okkar tíma, kúbismanum.
tír „vöggu
impressiónismans“
Hann var fæddur i Argent-
euil, sem nefndur hefur verið
vagga impressíónismans, 13.
maí 1882. Faðir hans og afi
voru húsamálarar og þá iðn
lagði hann einnig fyrir sig.
Aldamótaárið fluttist hann til
Parísar og komst þar í kynni
við listamenn og uppgötvaði
verk impressíónistanna. 1903 hóf
hann nám í Ecole des Beaux-
Arts. Þegar hann kom aftur til
Parísar 1905 eftir stutta dvöl
í Honfleur og Ee Havre kynnt-
ist hann verkum „villimann-
arina“ („les fauves“) á Salon
d’Autumne og þau urðu honum
opinberun.
Heildarsýning sem haldin var
i París 1907 á verkum Cezanne
varð ekki síður mikilvæg fyrir
þróunarbraut hans. Hann kynnt-
ist um það leyti ljóðskáldinu
Guillaume Apollinaire sem varð
hinn ótrauði forsvari kúbism-
ans og það var Apollinaire sem
kom Braque í kynni við Picasso
einmitt þegar hann var að mála
þá mynd sem átti eftir að verða
fræg í listsögunni: Les Demoi-
selles d’Avignon. Þau kynni sem
tókust með þeim jafnöldrunum
(Picasso var aðeins einu ári
eldri) mörkuðu djúp spor í list-
sögunni.
Það var haustið 1908 sem
Braque sýndi fyrstu mvndir sin-
ar málaðar að hætti kúbista og
má rekja uophaf kúbismans til
þeirrar sýningar.
Braque var iðinn og sfstarf-
andi alla ævi, en hann var
einnin einstakleea vandvirkur
og lét ekkert frá sér fara' nema
hanrt væri f.vllilega ánægður
með hað Hann bæði málaði,
mótnftj og sróf í stein og öll
hans verk bera vitni vönduðtt
handbragði og listrsenni fágun.
I