Þjóðviljinn - 10.09.1963, Síða 8
SlÐA
HðDVIUINN
Þriðjudagur 10. september 1963
Viðreisnin er að drepa
togaraútgerðina
Ég skrifaði um það hér í
þessum þætti þegar viðreisnar-
stjómin og hinir háskólalærðu
hagfræðingar höfðu ákveðið
sínar gengisiækkanir til bjarg-
ar útgerðinni. að hér væri ekki
um neina björgun að ræða,
heldur yrði þetta til bölvunar
útgerðinni, þar sem rekstrar-
vörur myndu hækka stórkost-
lega og að sjálfsögðu hlyti
verkafólk að knýja á um kaun-
hækkun til að hamla gegn
óðaverðbólgu sem í kjölfar
gengislækkananna myndi sigla.
Ég sagði þá að þessi úrræði
• -,,hæstvirtrar“ ríkisstjómar væru
áh'ka skynsamleg og ef göngu-
maður í frosti og stórhríð,
pissaöi í skó sinn. Hvorutveggja
væri álíka skammgóður vermir.
Nú hefur það komið fram sem
ég skrifaði um þessa hluti og
er því rétt að spyrja: Var rík-
isstjóminni og hennar háskóla-
lærðu hagíræðingum. fyrirfram
kimnugt um að gengislækkan-
imar myndu verða útgerðinni
til bölvunar, en hinu gagn-
stæða aðeins slegið fram í
blékkingarskyni? Eða var bjálfa-
hátturinn virkilega svona mik-
ill, þegar staðhæfingarnar voru
settar fram? Um þetta er nú
rætt út á meðal fólksins, og þá
ekki hvað sízt í hópi sjómanna.
Ú tgerðargrundvöllinn
vantar
Það er vegna þess að útgerð-
argrundvöllimtjvantar, að tekið
er nú að selja stórvirkustu
framleiðslutækin togarana úr
landi. Ríkisstjómin sama sem
. _________—-------—----------<»
Aðalf. S.Í.S.
Aðalfundur Sambands fs-
lenzkra rafveitna var haldinn
að Hólum í Hjaltadal 30. ágúst
til 3. september sl. Fundarstjóri
var formaður sambandsins, Ja-
kob Guðjohnsen, rafmagns-
stjóri.
Á fundinum var auk venju-
legra aðalfundarstarfa íluttur
fjöldi erinda um raforkumál.
Adolf Bjömsson rafveitustjóri
flutti erindi um virkjun Svart-
ár í Skagafirði, Tryggvi Sigur-
bjamarson rafveitustjóri erindi
um virkjun Fljótár í Skagafirði
og Knútur Otterstedt rafveitu-
stjóri erindi um virkjun Laxár
í Þingeyjarsýslu. Þá flutti Ja-
kob Gíslason raforkumálastjóri
og Eiríkur Briem rafmagns-
veitustjóri erindi um rafvirki-
unarrannsóknir Haukur Tómas-
son lýsti jarðfræðilegum að-
stæðum á virkjunarstöðum. Eð-
varð Ámason verkfræðingur
flutti erindi úr sögu raftækn-
innar. Þá voru rafveitumar á
Sáuðárkróki, í Siglufirði og
Ólafsfirði heimsóttar.
Loks flutti Hjalgrímur Winth-
er. rafveitustjóri í Færeyjum
erindi um rafvæðingu Færeyja.
Á þessu sumri eru. 20 ár liðin
frá stofnun Sambands íslenzkra
rafveitna og var þess sérstak-
lega minnzt á fundinum.
Steingrímur Jónsson var kjör-
inn heiðursfélagi sambandsins
í þakklætisskyni fyrir störf
hans í þágu þess, en hann var
formaður sambandsins óslitíð
frá stofnun þess til ársins 1962
Stjóm sambandsins skipa nú
Jakob Guðjohnsen, rafmagns-
stjóri, 'formaður. Baldur Stein-
grímsson, deildarverkfræðingur,
Guðjón Guðmundss. rafmagns-
veitustjóri. Kristján .Arnljóts-
son rafveitustjóri og Óskar
Eggertsson, stöðvarstjóri. Endur-
skoðendur voru kjömir beir
Gísli Jónsson, rafveitustjóri, og
Glúmur Björnsson, skrifstofu-
stjóri.
gaf norskum útgerðarmanni
togarann Ólaf Jóhannesson á
sl. vori. Togarinn var svo eftir
smávægilegar breytingar, sem
'tóku hálfan mánuð sendur til
síldveiða á Islandsmið. 1 viðtali
við nprskt blað sagði útgerðar-
maðurinn að togarinn yrði strax
að loknum sildveiðum settur á
þorskveiðar.
Nú er röðin komin að togar-
anum Frey, einu allra glæsileg-
asta skipi í íslenzka togara-
flotanum; hann hefur verið
seldur til Bretlands. Ég veit að
útgerðarmanninum Ingvari Vil-
hjálmssyni hefur fallið það
þungt að verða nú að selja
þetta mikla og glæsilega skip
úr landi. En hér þýðir ekkert
annað en horfast í augu við
staðreyndirnar og taka ákvarð-
anir í samræmi við þær. Ut-
gerðargrundvöllinn vantar und-
ir togaraútgerðina á Islandi f
dag. Hahn var ekki góður áð-
ur en viðreisnarstjómin tók við
völdum. en hefur þó versnað
mikið síðan. Gengislækkunin
sem framkvæmd var á meðan
nýju togaramir voru í smíðum
eyðilagði algjörlega rekstrar-
grundvöll þeirra. Ef svo horfir
áfram í þessum málum sem nú
þá munu fleiri togarasölur á
eftir fara, ef hægt verður að
selja. Hér þýðir engan um að
saka nema ríkisstjómina og
hina háskólalærðu hagspekinga,
sem eru að sliga hina gamal-
grónu íslenzku atvinnuvegi,
sjávarútveg og landbúnað.
Uppgripaafli hefur
haldið bátaútgerðinni
á floti
Það ætti ekki að þurfa neina
sérstaka reiknimeistara til bess
að sjá, að bátaútgerðinni hefur
aðeins verið haldið á floti með
metveiði þessi viðreisnarár.
Meðalveiði í meðalári væri al-
gerlega vanmegnug að halda
bátaflotanum úti. Um þetta þarf
ekki að deila, það liggur svo
ljóst fyrir öllum. En þetta sýn-
ir þá staðreynd. að útgerðar-
grundvöllinn vantar einnig hjá
bátaflotan*n í meðalári.
Það getur því svo farið að
eitthvað af hinum nýju og
glæsilegu línuveiðurum sem
keyptir hafa verið til landsins,
verði einnig seldir úr landi
þegar tímar líða, ef viðreisnin
stýrir sömu stefnu áfram sem
nú horfir.
Á íslandi er mönnum
bannað að sa/ta sild
Það er sagt að fyrirframsala
á austur- og vesturlandssíld sé
kringum 400 þús. tunnur af
saltsíld og sérverkaðri sfld.
Þegar þessum tunnufjölda var
náð fyrir stuttu, þá tilkynnti
Síldarútvegsnefnd strax, að bú-
ið væri að salta upp í samn-
inga og yrði því hver saltandi
að salta á eigin ábyrgð hér eft-
ir. Og margir héldu áfram að
salta. því að fáum dögum síðar
var söltunin komin upp í 425
þúsund tunnur. En þá skeður
það að Síldarútvegsnefnd gefur
út nýja tilkynningu, og tekur
sér það vald að banna alla sölt-
un. Að sjálfsögðu einnig þá sö!t-
un sem menn framkvæmdu á
eigin ábyrgð.
Ýmsir spyrja nú: Hefur Sfld-
arútvegsnefnd virkflega í hönd-
um sér lagalegt vald til þess-
ara athafna? Ef svo er, þá er
það mál margra að þessi lög
muni þurfa endurskoðunar við.
Með allri virðingu fyrir Sfldar-
útvegsnefnd, og þeim mönnum
sem hana skipa, þá held ég að
þeir líti of stórt á sig, ef þeir
slá því strax föstu að enginn
geti selt meiri síld úr landi. þó
þeim sjálfum hafi ekki tekizt
það til þessa. Ef Síldarútvegs-
nefnd treystir sér ekki til að
selja meira, því meiga þá ekki
aðrir reyna? Var nokkur ann-
ar vandi en að setjá lágmarks-
verð á útflutta síld til að koma
í veg fyrir undirboð? Og ef
menn treysta sér til að salta á
eigin ábyrgð, því þá að banna
það? Hvemig yrði t.d. með
þorskveiðarnar ef tekið væri
að banna verkun á aflanum
nema varan væri fyrirfram
seld? Ég hygg að mönnum þætti
það hæpnar aðfarir. Ef málið
hefði verið leyst þannig þegar
mikill þorskafli barst á land,
að vísa á fiskimjölsverksmiðj-
urnar í stað þess að verka afi-
ann í eðlilegar manneldisvörur
og leita síðan markaða fyrii
þær, þá er víst að við hefðum
ekki þá markaði sem við höf-
um í dag á þeim vettvangi.
En það gegnir alveg sama
máli með síldina sem þorskinn
í þessum efnum, að markaðir
koma ekki af sjálfu sér. En
þegar strax er vísað á bræðsl-
umar sem úrræði. og enga síld
má salta nema hún sé þegar
fyrirfram seld, þá er hætt við
að minna verði um sölu á síld
til manneldis, en ella gæti orðið
ef á dálítið annan veg væri
haldið á þessum málum.
S/ós/ysin og nauðsyn
rannsóknar
Nú nýlega var sa^t frá Því
í blöðum að sjávarútvegsmála-
ráðherra hefði skipað rannsókn-
amefnd vegna hinna tíðu oa
vaxandi sjóslysa hér við land.
Nefnd þessi mun skipuð sam-
kvæmt þingsályktunartillögu
sem samþykkt var á sl. Alþingi.
Blað ráðherrans Alþýðublaðið,
sagði frá því jafnhliða nefnd-
arskipuninni, að starf nefndar-
innar væri í því fólgið að rann-
saka, niðurstöður sjódóms á-
samt málskjölum. sem send
væru Skipaeftirlitinu, að af-
loknum sjóprófum. Að sjálf-
sögðu hlýtur það að vera í
verkahring nefndarinnar að
rannsaka nefnd skjöl, en varia
verður starfið einskorðað við
það eitt, enda þá varia um ná-
kvæma rannsókn að ræða.
Ég vil ekki trúa því að ó-
reyndu, að hér verði ekki um
alhliða rannsókn að ræða. 1
nefndinni eru ýmsir ágætir
memv og munu þeir að sjálf-
sögðu leggja sig alla fram, um
að leiða sannleikann í ljós eftir
þyí sem tök em á.- Ég vil t.d.
Togarinn Freyr, áður eitt glæsilegasta skipið í islenzka fiskveiðiflotanum, nú í eigu
, gerðarhring sins Iloss.
brezka út-
Eitt af nýjustu fiskiskipunum. — Verður gripið til þess óyndisúrræðis að selja þessi ágætu fram-
'eiðslutæki úr landinu eins og togarana?
ekki að óreyndu trúa því, að
það verði látið undir höfuð
leggjast af hálfu nefndarinnar,
að fá óháða sérfræðinga til að
framkvæma stöðugleika-rann-
sóknir á íslenzkum fiskiskipum
og þó sérstaklega þeim, sem
ennþá eru ofansjávar, en hafa
stundum vecið hætt komm
vegna vöntunar á stöðugleika
Þá ætti einnig að láta sömu
sérfræðinga rannsaka hvort
breytingar sem gerðar hafa ver-
ið á skipum í sambandi við
kraftblakkarútbúnað og fleira.
gætu orðið þess valdandi að
stofna öryggi skipsins í hættu.
Ég hef ekki trú á því, að án
slíkrar raunhæfrar rannsóknar
verði það leitt í ljós. sem nauð-
sjmlegt er í 'þessu tilfelli.
Eina athugasemd vil ég leyfa
mér að gera við skipun bessarar
rannsóknarnefndar, en hún er
sú, að ég tel skipun Skipa-
skoðunarstjóra og skrifstofu-
stjóra hans í nefndina óviðeig-
andi. Ég skal taka það strax
fram til að fyrirbyggja allan
misskilning að ég hef ekkert á
móti þessum mönmjm persónu-
lega, enda þekki ég hvorugan
og þeir geta báðir verið mestu
heiðursmenn. Það eru því ekki
mennimir sem slíkir, sem ég
hef á móti. heldur það að menn
í þeirra stöðum eiga ekki
heima í nefndinni frá mínu
sjónarmiði. Ég lít þannig á að
hver og einn og einasti nefnd-
armaður í slíkri nefnd þurfi og
verði að vera óháður því sem
rannsaka þarf. En að sjálfsögðu
er rannsókn sem þessi ekki fuli-
komin nema að störf Skipaeftir-
litsins, hvað við kemur sjó-
hæfni skipa, verði einnig rann-
sökuð. Ekki bara hvort settum
reglum hefur verið framfylgt,
heldur einnig hvort það hefur
verið látið undir höfuð leggj-
ast af hálfu Skipaeftirlitsins að
£á reglum breytt í samræmi við
breytta tækni við veiðar og
öðru því sem rýrt getur sjó-
hæfni skipa. Frá mínu sjónar-
miði átti nefnd sem bessi að
vera algjörlega óháð Skipaeftir-
litinu, en skipaeftirlitið átti að
gefa hepni allar þær upplýs-
ingar sem hún þurfti með frá
~þess hálfu. Það er vonandi að
þetta komi ekki að sök í þessu
tilfelli þó að svona hafi til tek-
izt um skipun nefndarinnar frá
hendi ráðherra.
Þvottahús Vesturbæjar
Ægisgötu 10 — Sími 15122 (áður þvottahúsið ÆGIR)
Húsmæður!
Látiö Þvottahús Vesturbæjar pvo pvottinn fyrir yður,
Tökum stykkjapvott — blautpvott og frágangspvott-
Sækjum — sendum um allan bæ.
Fljót afgreiðsla.
Þvottahús Vesturbæiar
Ægiggötu 10 Sími 15122.
L
I