Þjóðviljinn - 19.09.1963, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 19. september 1963
HÖÐVIUINN
SIÐA 7
Berliner Ensemble meinuð þátttaka
í alþjóðlegri leiklistarráðstefnu
Eftir kröfu frá vestur-
þýzku stjórninni neitaöi
brezka innanríkisráðuneyt-
ið meðlimum hins heims-
fræga leikflokks Bcrliner
Ensamble um vegabréfs-
áritun til þess að taka bátt
i alþjóðlegri leiklistarráð-
stefnu á Edinborgarhátíð-
innt
En svo er mál með vexti. að
í Elzholzstrasse í Schöneberg
i Vestur-Berlín er til „ferða-
skrifstofa": „Allied Travel
Board“ Hún var stofnuð af
Bandamönnum í stríðslok og
hafði þá því hlutverki að gegna
að veita þeim fáu Þjóðverjum,
sem fóru til útlanda á þeseum
tíma, vegabréf, þar, sem ekkert
þýzkt riki var til. í 14 ár hefur
tvö ríki verið að finna á þýzkri
grund. 15 ár eru liðin frá þvi
að vesturveldin brutu fjórvelda-
sáttmálann um Berlín. Samt
telur þessi ferðaskrifstofa sig
hafa umboð til að gefa út vega-
bréf fyrir alla Austur-Þjóðverja,
sem fara til vesturlanda. Slíkt
umboð telur hún sig hafa með
fulltingi Bandaríkjanna og á
síðari tímum vegna sívaxandi
þrýstings frá v-þýzku stjóm-
inni, sem berst s£ og æ „heilögu
stríði gegn kommúnismanum".
Engin slík skrifstofa telur sig
haía rctt til að gefa út vega-
bréf fyrir Vestur-Þjóðverja,
þótt friðarsamningur við V-
Þýzkaland hafi ekki frekar ver-
ið undirritaður en við A-Þýzka-
land.
Þessi skrifstc-fa er ein af eft-
irstöðvum 2. heimsstyrjaldar-
innar og notuð til afskipta af
innanrikismálum A-Þýzkalands.
V-Þýzkaland hefur lagt sig
mjög fram innan NATO-ríkj-
anna til að fá þau til að "taka
ekki gild a-þýzk vegabréf. held-
ur aðeins þau, sem bessi skrif-
stofa í V-Berlín gefur út fyrir
A-Þjóðverja. Þannig hafa Dan-
mörk, Noregur. Holland, Belgía.
Italía o.fl. beygt sig undir þá
kröfu, að aðeins vegabréf útgef-
BERLlNAR
BRÉF
in af „Alliiertes Travel Board-
Búro“, sem þau eiga þó engan
fulltrúa í, skuli gilda fyrir a-
þýzka borgara. i
Að vísu hélt Island sig utan
við þennan þátt kalda stríðsins.
V-þýzka sendiráðíð mun hafa
kvartað mikið yfir þv£, að Is-
lendingar veittu A-Þjóðverjum
vegabréfsáritun í a-þýzk vega-
bréf rétt eins og í þau v-þýzku.
<S>
f • •• ' m. \ ••• l'g •
Smjor i stao smjorlikis
vandamál þróunarlandanna
Hægt er að draga úr of-
framlciðslu á. mjólkurafurðum
með því að, auka smjörncyzl-
una. Það verður aftur á móti
á kostnað smjörlíkis, og þann-
ig er vandamáli offramleiðsl-
unnar í rauninni velt yfir á
þá scm framleiða smjörlíki og
hráefni til þess,. en það cru
fyrst og fremst þróunarlöndin,
segir í umsögn frá Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Smcin-
uðu þjóðanna, FAO.
í tíu Evrópulöndum þ.á.m.
I
Danmörku, Finnlandi, Noregi
og Svíþjóð, jókst smjömeyzl-
an aðeins um eitt kg. á mann
á tímabilinu frá því fyrir
stríð til 1960—’61 þ.e.a.s. úr
7,3 upp í 8,3 kg., segir £ gTein-
inni sem birtist í Júlí/ágúst-
, hefti hagtíðinda FAO um land-
búnað. Smjörlíkisneyzlan 'jókst
hins vegar um næstum helm-
ing frá því fyrir stríð i um-
ræddtum tíu löndum, eða úr
4,9 upp í 9.1 kg.
f greininni segir, að ein-
ungis hluti af þvi smjöri og
því smjörlíki, sem fari á
markaðinn, sé I beinni gagn-
kvæmri samkeppni. Að lang-
mestu leyti hafi báðar þessar
vörur óháðan markað, enda
geti þær ekki fyllilega komið
í stað hvor annarrar. Sam-
keppnin er hörðust, þegar um
það er að ræða að velja við-
bit ofan á brauð, og þó eink-
um þar sem breytingar á tekj-
um og Verðlagi hafa áhrif á
Framhald á 8. síðu.
Um tima var tekið tillit til
kvartana V-Þjóðverja og engin
vegabréfsáritun veitt i a-býzku
vegabréfin, en ferða- og íþrótta-
mönnum veitt landvistarleyfi
engu að siður, þ.e. þeim voru
veitt í reynd viss forréttindi um
skeið. En Bonnstjómin á kalda-
stríðs-vin þar sem NATO-krat-
inn Guðmundur I. er. og bann-
aði hann fyrir rúmu ári að við-
urkenna a-þýzk vegabréf á Is-
landi (öðrurri en verzlunarfull-
trúum). Þó vantar ekki, að Is-
land hafi viðurkennt A-Þýzka-
land í reynd. Það sajma öll
verzlunarviðskiptin milli land-
anna, formleg landskeppni milli
ríkjanna og efnahagsaðstoð sú,
sem Islendingar fengu í sam-
bandi við lán til skipakaupa i
A-Þýzkalandi.
Að sjálfsögðu viðurkennir a-
þýzka stjómin ekki, að einhver
skrifstofa í V-Berlín skuli á-
kveða það, hvort A-Þjóðverjar
skuli fá vegabréf eða ekki.
Þetta ástand hefur að mörgu
leyti slæm áhrif fyrir A-Þýzka-
land, sem getur ekki i reynd
gefið út vegabréf fyrir ferða- og
íþróttahópa sína og virkar það
þannig að A-Þjóðverjum er nær
ógjömingur að ferðast til
margra V-Evrópulanda eða
Ameríku. Fyrir vesturlönd hef-
ur þetta ástand eftirstöðva
striðsins lika kátlegar hliðar.
Hvað eftir annað hefur a-þýzk-
um íþrótta-i visinda-, lista- og
ferðamönnum verið meinað am
dvalarleyfi í þessum löndum til
keppni, listsýninga, vísindaráð-
stefna o.s.frv. Það hefur einnig
orðið til þess að mörg keppnin
hefur farið út um þúfur og
kröfur (t.d. Olympíunefndarinn-
ar) hafa komið upp, að þessi
mót skuli aðeins haldin í þeim
löndum, sem leyfa öllum ríkj-
um þátttöku.
Sem ástæða fyrir neitun um
„Das klcine Mahagonny“ í sviðsetningru Berliner Ensemble.
Sviðsmynd með (frá vinstri) Manfred Karge, Hilmar Thate,
Gúnter Neumann og Ekkchard Schall.
vegabréfsáritun er sú nú venju-
lega gefin, að a-þýzka stjómin
hafi styrkt landamæri sín með
byggingu múrsins. Áður en
múrinn kom til sögunnar voru
einhverjar aðrar ástæður pefn-
ar. Ástæðan fyrir neitun er
samt sú, að viss öfl innan
NATO berjast af öllum kröftum
fyrir þvi að viðurkenna' ekki
það sem er þó staðreyndin blá-
köld.
Og nú síðast var meðlimum
Berliner Ensemþle neitað jm
vegabréfsáritun af brezka inn-
anríkisráðuneytinu. Þar með
var girt fyrir að frgsgasti leik-
flokkur heims fengi að taka
þátt í alþjóðlegri leiklistarráð-
stefnu, sem haldin var á Edin-
borgarhátíðinni. Hinir 2000
þátttakendur ráðstefnunnar
samþykktu kröftug mótmæli
gegn þessari samþykkt brezka
innanríkisráðuneytisins.
Á ráðstefnunni var lesið bréf
frá Helenu Weigel, stjórnanda
Berliner Ensemble, þar sem
hún kom með þá tillögu, sem
vakti mikinn fögnuð áheyrenda,
að halda þegar á næsta ári
slika ráðstefnu í A-Þýzkalandí,
í Berliner Ensemble við Bert-
olt-Brechttorg. — Gág.
I
Eftir Heinz Czechowski:
Heinz Czechowski, höfundur þessara ljóða, er ungt 6káld
austurþýzkt. Hann er sonur embættismanns í Dresden og
fæddur þar árið 1935. Hann lærði fagteikningu, en lagði
þó ekki stund á það starf, heldur hóf hann nám i Rithöf-
undaskólanum í Leipzig árið 1958 og lauk þaðan prófi
1961. Síðan hefur hann starfað sem dósent í bókmenntum,
og meðal annars, sem birzt hefur frá hendi hans, er
ljóðasafn það, sem þessi kvæði eru þýdd úr: Nachmittag
eines Liebespaares (Síðdegi tveggja elskenda); en sú ljóða-
bók hefur hlotið svo góðar viðtökur að hún er nú að koma
út öðru sinni, nokkrum mánuðum eftir fyrstu útgáfu. Þau
tvö kvæði, sem hér birtast, gefa því miður ófullkomna
hugmynd um fjölbreytni hennar.
Rithöfundaskóli sá í Leipzig, er að ofan getur, og
kenndur er við Jóhannes R. Becher (stofnaður 1955), er
merk stofnun, sem ekki á marga sína líka, og hefur
þegar verið unnið þar brautryðjendastarf, sem víða fer
orð af. — (Þýðandi).
/ Teresuborg í
! ♦ ■ '•
Tékkós/óvakíu
Ó land, milli fjalls og lagar
ein blómabreiða á vori:
Blindur hlyti að ganga
sá sonur Þýzkalands,
til móts við ilm þinna skóga
og mýkt þíns elfarsands,
sem mætti ei kvölinni* er þjóð vor olli
í hverju spori.
Hvar sem vér fórum,
fór hauskúpan fyrir oss:
Með hryllingi skráir sagan
nafn þitt, Terezin,
— eins þótt vér leggjum blóm
á kuml og kross
og klökknum við harm þeirra mæðra,
er grétu hér börnin sín.
VoriB 1958
Það er apríl.
I aldingörðum brumandi vor.
Mannshöndin veifár atómsprengjunni,
refsivendi Guðs.
Skiptir nokkru,
hvort þú skrifar ljóð þitt til enda?
Granninn tottar sinn vindil;
yfir garðahverfinu sveima ský.
Þegar barnabörnin okkar
fara að lesa um þessa tíma
í mannkynssögunni sinni,
munu þau spyrja: Hvað er stríð?
Nema þau komi þá aldrei í heiminn-
Ahyggjulaust augnaráð,
sem fylgist með fari skýja,
karm að breytast í annað:
sem skimar eftir sprengjuþotum.
Flugritið gegn forsprökkum stríðsins
gengur þá fyrir mansöngnum.
Kvöldganga er unaðsleg
áhyggjulausum.
Ilmhöfgi boðar sumarkomu:
Akasíur að blómgast.
Kvöldgolan full fyrirheita.
En dagblaðið í vasa þínum
hefur viðrað nokkuð: Þeir,
sem gerðu föður þinn út til morða
(hann féll við Sjarkov),
eru aftur komnir á stúfana,
aldrei stæltari en nú.
Kvöldgolan (full fyrirheita)
kynni að vera geislavirk,
4 "
Elskendur leggja Ieð
um engidalinn:
Þeir vita þó um börnin,
sem eru að fæðast vansköpuð?
Og samt leggja elskendur
Ieið um engidalinn.
Og andspænis flugskeytum
á vesturþýzkri grund
er heimurinn fullur
af friðarvonum. —
En friðarhorfur
munu aðeins aukast
í þeim mæli
sem áhyggjulausum kvöldum vorum
fækkar.
Hve unaðsleg væri þó kvöldgangan
áhyggjulausum.
ÞORSTEINN VALDIMARSSON
íslenzkaði-
í
i
I
I
i