Þjóðviljinn - 03.10.1963, Síða 8
Fjöbðttasti aðaffuadur ísl.
rafvirkjameistara til þessa
Eins og skýrt var frá
hér í blaðinu í gær, var
aðalfundur Landssam-
bands íslenzkra rafvirkja-
meistara haldinn í Reykja-
vík dagana 6. og 7. fyrra
mánaðar. Var þetta fjöl-
mennasti fundur samtak-
anna til þessa, sóttur af
meisturum hvaðanæva af
landinu, landssambandið
telur nú 153 félagsmenn.
í skýrslu stjórnar kom fram,
að níu bókaðir stjórnarfundir
hefðu verið haldnir á árinu
auk margra viðræðufunda við
ýmsa aðila. Þá kom fram, að
formaður L. 1. R. hafði setið
60 stjórnarfundi hjá F. L. R. R.
á árinu og þakkaði hann for-
manni og stjórn F.L.R.R. fyr-
ir góða samvinnu, áhuga á
málum stéttarinnar. sömuleiðis
góða fyrirgreiðslu og forustu.
Þá gat formaður þess, að
hann hefði setið aðalfund „Fé-
lags eftirlitsmanna með raf-
orkuvirkjun" í boði félagsins.
Lét hann þá von í Ijós að betta
yrði upphaf að nánara sam-
starfi allra þeirra manna og
fyrirtækja er vinna að fram-
gangi raforkumála meðal þjóð-
arinnar.
Á árinu var eins og áður
hið bezta samband og samstarf
við hliðstæð samtök á hin-
Sið væðingarofsókn
gegn Svissiendingi
Upp eru komnar ákafar deil-
ur meðal kirkjumanna í Sviss.
Siðvæðingarhreyf ingin alræmda
hefur att fram tveimur prcst-
um til að ráðast gegn manni
einum sem annast forstöðu fyr-
í skrifstofu einni, sem kirkjan
rekur og cr fólki til ráðuneyt-
is í hjónabandsmálum. Maður
þessi heitir dr. Bovet. And-
stæðingar hans hyggjast varna
honum máls á fundi mótmæl-
endakirkjanna í Sviss og Þýzka-
landi, sem haldinn verður síðar
í þessum mánuði.
Glæpur Bovets er í því fólg-
inn að hann hefur lýst því yf-
ir sem sinni skoðun að kynvilla
sé ekki frekar synd en ástar-
líf ógiftra.
Basel-blaðið Nationalzeitung
hefur látið svo ummælt að yf-
irlýsing prestanna tveggja um
mál þetta sé rógburður og sví-
virðingar. Upplýsingaþjónus.ta
Siðvæðingarhreyfingarinnar
kom yfir lýsingu þessari á
framfæri.
sóknir gegn verulega göfugum
manni, segir prestur einn í
blaðinu. Læknir einn lýsir því
sömuleiðis yfir að aðförin á
hendur Bovet sé McCarthy-
ismi af venstu tegund. þar sem
andstæðingar hans höfða til
verstu fordóma sem því mið-
ur séu allt of útbreiddir.
Skemmtanalíf
unglinga...
Framhald af 7. síðu.
gæta í hvívetna lagafyrirmæla
um fcau.
Þingið skorar á æskulýðsfé-
lagsskap, hvern sem er. að
hafa skemmtiatriði á sam-
komum með menningarbrag,
hvað dagskráratriði snertir og
ytri aðbúnað allan. Þingið
bendir á Ungmennasamband
Borgarfjarðar í því sambandi,
sem nýlega hefur hafizt handa
um bætt skemmtanalíf ung-
linga í héraði sínu m.a. með
vegabréfaskyldu ungmenna.
Sambandsþingið fagnar
þeirri fyrirætlan menntamála-
ráðherra, að koma á sérstakri
löggjöf um æskulýðsmál og
telur að stofna beri sérstaka
deild innan menntamálaráðu-
neytisins, er fari með þau mál.
Þingið telur að vinna beri að
því, að allir unglingar eigi þess
kost, að vera í hollum æsku-
lýðsfélagsskap. við góð starfs-
skilyrði, sem keppir að því að
varðveita þá frá glapstigum.
Þingið telur aðkallandi, að
sérstökum námskeiðum sé
komið á fyrir æskulýðsleiðtoga
og séu þau í tengslum við
Kennaraskóla Islands og 1-
þróttakennaraskólann.
Þingið telur, að skemmtana-
líf unglinga eigi að vera óháð
fjárplógssjónarmiðum og koma
eigi í veg fyrir það, að beita
þurfi misjöfnum fjáröflunarað-
ferðum til þess að standa
straum af uppeldisstarfsemi
æskulýðsfélaga, sem ætti að
styrkja eins og skólastarf væri.
Þá telur þingið að keppa
beri að því. að reisa æsku-
lýðsheimili og sumarbúðir sem
víðast.
Þingið telur yfirleitt æski-
legt, að hið opinbera styrki
æskulýðsstarfsemi í landinu
svo sem framast má verða, en
láti hin ýmsu félagssamtök um
framkvæmdir undir hlutlausu
og sjálfsögðu eftirliti.
Þingið lýsir ánægju sinni
yfir samstarfi UMFl og ISt að
velferðarmálum íslenzkrrl'
æsku og hvetur æskuna til
starfs og dáða í þágu eigin
velferðarmála, andlegs og lík-
amlegs þroska, landi og þjóð
til blessunar.
VQMDUÐ
FALLEG
ODYR
Sjgurjxírjónsson &co
jiafnaistczrti 4-
um Norðurlöndunum.
Þá gat formaður þess, að
fjárhagur L.I.R. væri eftir öii-
um vonum m.a. að umsetn'.ng
söluumboðs L.t.R. hefði orðið
veruleg á sl. á.ri. Einnig. að
rafvirkjameistarar hefðu keyot
húseignina Hólatorg 2 að hálfu
móti Vinnuveitendasambandi
tslands og þar með hefði öll
aðstaða orðið betri hvað fé-
lagsstarfseminni viðviki.
Enn væru þó mörg mál ó-
leyst, þrátt fyrir góðan vilja,
svo sem iðnmenntun. útreikn-
ingar tilboða og þjónusta fé-
lagsmanna við fólkið í land-
inu. Vinna þyrfti ötullega að
framgangi þessara mála og
bæri öllum rafvirkjameistur-
um, hvar sem þeir væru, aii
reyna af fremsta megni að til-
einka sér nýjungar, betri fag-
þekkingu, heilbrigða viðskipta-
hætti og bæta þjónustuna við
viðskiptamenn.
Fundarmenn fóru að Sogs-
virkjun í boði rafmagnsstjóra
Jakobs Guðjónsen og R. R.
Voru virkjanirnar skoðaðar og
síðan þegnar góðgerðir. Var
þetta mjög ánægjuleg og fróð-
leg ferð.
Fundinum lauk með sameig-
inlegu borðhaldi með eiginkon-
um i félagsheimili R. R. við
Elliðaár. Voru gestir fundar-
ins þeir hr. disponent Viggo
Becker og frú frá Kaupmanna-
höfn og eftirlitsmaður Stefán
Þorsteinsson og frú. Hafnar-
firði.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa voru aðalmál fundarins:
Menntunarmál stéttarinnar, —
reglugerðarmál o. fl. Voru m.
a. gerðar um þau eftirfarandi
ályktanir:
„Fundur L. I. R„ haldinn 6.-
7. september 1963. er ánægður
með að nú eru tilbúin drög að
reglugerð um lágspennuvirki
og treystir því að málinu verði
hraðað svo sem föng eru á.
þar til því er lokið.
Fundurinn ítrekar fyrri á-
skorun Landssambandsfundar
dagana 21. til 22. september
1962 um að láta jafnframt fara
fram endurskoðun á kaflanum
um löggildingu til lágspennu-
virkja og leggja þar megin
áherzlu á að lögg. rafvirkja-
meistara beri skylda til að
reka sjálfstætt rafmagnsiðn-
fyrirtæki og hafa að aðalstarfi
forstöðu fyrirtækisins og cða
störf við það, enda hafi hann
vinnustofu. sem sé búin öllum
nauðsynlegum mæli- og próf-
unartækjum svo og verkfærum
til þess að hann geti starfrækt
fyrirtæki sitt á viðunandi
hátt“.
„Aðalfundur L. I. R„ haldinn
í Iðnó dagana 6. til 7. sept.
1963, skorar á Utboðs- og til-
boðsnefnd að hraða störfum
eins og tök eru á. þar sem nú-
verandi ástand er að verða ó-
viðunandi".
„Aðalfundur L.t.R. haldinn i
Xðnó dagana 6. til 7. sept 1963,
skorar á Iðnaðarmálastofnun
íslands að hraða uppbyggingu
ákvæðisvinnutaxtagrunns fyrir
rafvirkja".
„Aðalfundur L.I.R., haldinn
í Iðnó dagana 6. og 7. sept.
1963, telur að afskipti hins op-
inbera af verðlagi útseldrar
vinnu og þjónustu, þjóni síður
en svo þeim tilgangi að halda
niðri verðlagi. Slík ákvæði
verði hins vegar ávallt til þess
að hindra góða þjónustu og
virki gegn heilbrigðri upp-
byggingu og tækniþróyn at-
vinnufyrirtækjanna.
Skorar fundurinn á stjóm-
arvöld þjóðarinnar að afnema
núverandi verðlagsákvæði".
„Aðalfundur L.I.R. fagnar
þeirri breytingu, sem orðin er
á rafvirkjadeild Vélskólans í
Reykjavík, og lýsir fullum
stuðningi við það verk, sem
þar ér verið að vinna til efl-
ingar tæknimenntun i landinu.
Jafnframt telur fundurinn
stefnt í rétta átt með stofn-
un undirbúningsdeildar fyrir
tækniskóla á Akureyri“.
„Aðalfundur L.I.R. beinir
þeim tilmælum til mennta-
málaráðherra. að aðstaða til
kennslu rafvirkjanema verði
efld á þeim stöðum sem fyrir-
hugað er að reka iðnskóla í
framtíðinni.
Jafnframt telur fundurinn
nauðsynlegt að heimila ekki
skólagöngu rafvirkjanema í bá
skóla, sem ekki uppfylla lög-
legar lágmarkskröfur".
„Aðalfundur L.I.R. telur
mikla nauðsyn á að flýtt verði
endurskoðun iðnfræðslunnar og
samtökum rafvirkjameistara
verði gefinn kostur á að kynna
sér tillögur nefndarinnar, áður
en þær koma til framkvæmda".
Stjórnina skipa: Gísli J. Sig-
urðsson, Reykjavík. formaður,
Aðalsteinn Gíslason, Sand-
gerði, varaformaður, Gissur
Pálsson, Reykjavík. gjaldkeri,
Gunnar Guðmundsson, Rvík,-
ritari, Sigurjón Guðmundsson,
afnarfirði. meðstjómandi.
(Frá L.I.R.).
bridge
Hverjum góðum bridge-
spilara er nauðsyn að þekkja
lögin til hlítar. Hér er oróf-
steinn á lagaþekkingu ykkar
í spilini^ Eftir að norður
hafði opnað á einum tígli í
fjórðu hendi og suður sagt
spaða, þá varð lokasögnin
fjórir spaðar spilaðir af suðri.
A G-7-4
V A-6-5
♦ A-D-8-4-3-2
4> ekkert
A A-K A 10-8-2
¥ D-10-7-3 ¥ 9-4
♦ G-6-5 ♦ K-10-7
4> 9-8-3-2 * A-D-7-6-5
A D-9-6-5-3
¥ K-G-8-2
♦ 9
♦ K-G-4
Vestur spilaði út laufi og
sagnhafi kastaði hjarta úr
borði. Austur drap með ásn-
um og spilaði trompi. Vestur
tók tvo hæstu í trompi og
spilaði síðan hjarta, sem
sagnhafi drap með gosa
heima.
Þetta var kærkomið útspii
fyrir sagnhafa, en samt var
öllu lokið ef hjartað ekki
félli, því hann hafði aðeins
eitt tromp til þess að trompa
bæði laufin og hjartað. Á
þessu augnabliki henti hjálp-
samur áhorfandi laufatíunni
á borðið og sagði: „Hérna,
ætli þú þurfir ekki á þessari
að halda“.
Og það voru orð að sönnu.
Sagnhafi fór inn á hjartaás-
inn, spilaði laufatíunni og
svínaði gosanum, trompaði
hjarta, tók tígulás og aftur
tígul og síðan hæsta tromp.
Slétt unnið.
Mótmæli a-v voru all há-
vær, og þeir kölluðu á
keppnisstjórann. Hvemig
hefðir þú dæmt?
•Biiaupiai qb iSæii
js niAsuem isajQBis %0 '„Ilds
-isjaa BQ3 uinpuijq naj jids
uiii?+ Qsui aeq 'nuiQjoq B ddn
qij3a ejeq qSoj uibs ‘uiraq
jb pds jjnqnou i ejpj qb jjag
-O EJBI QB IAq Q3UI JJ3g J3
Qeq js 'um ddn anjsq jziuioq
UI3S ‘5IIASJBJII juAj IU3 3QI
-jhqia mgug" -gmura anpuajs
qp-P '9L 'J§ juiæAquiBS ug -,,j
QBq QIJ33 !>l>13 BJBq QB lA^
JB JBJBJS J9 ‘iqjASJBJU B QgjXq
-? J3q ‘ipusq B QBq BJBq QB
B UI3S ‘BS 30 Ijds JlA>ISBJOq
qtqjo jnjag qbcJ 'uids jnjaq
QPdBJ J3 ‘BJBJldS Uiraq IPUB
-jA&qiIJ JSBfiaj QB ‘JSUUJJ QBq
jBgsq ‘jnjaq jzbjbiS uiss 'pds
b“ BuuBSBisSpiJq uraag j?i
JUI9FA5IUIBR Qiuun J3 QHldS
:avAs
{ SÍÐA
MðÐVILIIMN
Fimmtudagur 3. október 1963
FRÉTTAM YNDIR
utan úr heimi
í ystrasaltsrikjunum eru bátasiglingar vinsælt sport. Myndin er
frá Litháen
Nýjar sambyggingar í íbúöahverfi Ulan-Bator, höfuðborgar al-
þýðulýðveldisins Mongólíu.
Frá þriðju alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Moskvu sl. sumar.
Sovézki leikstjórinn Grigori Sjúkhræ, formaður dómnefndar há-
tíðarinnar, sést hér ræða við ónafngreinda konu, ásamt hinum
vinsæla franska kvikmyndaleikara Jean Marais.
Stórbyggingarnar gnæfa við himin í Havana, höfuðborg Iýðveldis-
ins á Kúbu.
Þetta er eitt af mörgum heilsuhælum í þorpinu Amara, sem
stendur á bökkum stöðuvatns eins ekki fjarri Búkarest, höfuð-
borg Rúmeníu.