Þjóðviljinn - 17.10.1963, Page 1

Þjóðviljinn - 17.10.1963, Page 1
Fimmtudagur 17, október 1963 — 28. árgangur — 224. tölublað. Umræður um Hvulfjörð á Alþingi í gær ENN OSAMIЗMÆL- INGAR STANDA YFIR Ekkert að frétta Víxlamálið Þjóðviljinn snéri sér í gær til Þórðar Bjömssonar saka- dómara og innti hann frétta af rannsókn víxilmáls þcirra Ágústs Sigurðssonar og Jó- hannesar Lárussonar. Sagði dómarinn að ekkert væri cnn af því máli að frétta, Nauðgunarmálið Þjóðviljinn snéri sér einnig í gær til Ólafs Þorlákssonar sakadómara og spurðist fyr- um það hvað liði rannsókn nauðgunarmálsins er upp kom í sumar, er áhugaljós- myndari nokkur var kærðui fyrir að hafa nauðgað telpu úr Kópavogi. — Dómarinn kvaðst enn ekki hafa fengið í hcndur niðurstööur geð- rannsóknar cr framkvæmd var á sakborningnum og væri því ekkert markvert af mál- inu að frétta. ■ Nokkrar umræður urðu utan dagskrár sameinaðs þings í gær og var tilefni þeirra svohljóðandi fyrirspurn frá Eysteinj Jónssyni, formanni Framsóknarflokksins til utanríkisráðherra, Guðmundar í. Guðmundsson- ar: Hefur ríkisstjórnin í huga eða hefur hún gert, samninga við Atlanz- hafsbandalagið um mannvirkjagerð í Hvalfirði? Og ef svo er, hvernig eru þeir samningar? Eins og kunnugt er af frétt- um, lögðu fjórir þingmenn Al- þýðubandalagsins fram á mánu- dag þingsályktunartillögu ,,um íram'kvæmdir á vegum Atlanz- hafsbandalagsins í Hvalfirði" (sjá 7. síðu) og á fundi sam- einaðs þings í gær kvaddi Ey- steinn Jónsson sér hljóðs utan dagskrár og bar fram fyrir- spum til utanríkisráðberrans um þetta mál. Rakti Eysteinn sögu málsins eða frá því að tilkynning rík- isstjórnarinnar um að viðræður hefðu farið fram milli hennar og Atlanzihafsbandalagsins var birt 7. ágúst síðastliðinn. Gat Eysteinn mótmælasamiþykktar Framsóknarflokksins frá 9. ág- úst og fór hörðum orðum um útvarpið sem eins og kunnugt er neitaði að birta mótmæli Framisóknarflokksins en engin blöð komu út frá 1.—15. ágúst vegna verkfalls blaðamanna. Kvað Eysteinn þetta hafa verið freklegt hlutleysisbrot af hálfu útvarpsins og illa komið lýð- ræði í landi þar sem stjórnar- andstaðan gæti efcki komið á- róðurslausum yfirlýsingum um Áœtlun um sfórfelldar hernaSarframkvœmdir á Islandi gerS í marz '56 Frá Hvalfirði. Séð frá Hvítanesi, gömlu herstöðinni sunnan. meg- in f jarðarins. Ólafsvíkurennisvegur Það er hrikalegt vcgarstæðið undir Ólafsvíkurenni. Sjá fleiri mynd- ir og frásögn á 12. síðu. — (Ljósm. E. VJ. stærstu mál á framfæri opinber- Iega. Neitað að kalla utan- ríkismálanefnd saman Eysteinn skýrði einnig frá því að Alþýðubandalagið og Fram- sóknarflofckurinn hefðu krafizt þess strax eftir tilkyrmingu rík- isstjórnarinnar að utanríkis- málanefnd Alþingis yrði þegar kölluð saman til fundar en til vara fór stjórnarandstaðan fram á viðræður við utanríkisráð- iherra. Ríkisstjórnim neitaði að verða við fyrri kröfunni og bar því við að umboð utanríkismála- nefndar hefði fallið niður við þingslit en féllst aftur á móti á að ræða málið við fulltrúa st j órnarandstöðunnar. Eins og áður hefur verið skýrt frá, kom fram í þeim viðræð- um að ríkisstjómin hefði rætt við Atlanzhafsbandalagið um eftirtalda mamwirkjagerð í Hvalfirði: í fyrsta lagi: Stóra olíubirgðastöð [(25—28 geyma)', í öðru lagi: Hafskipabryggju og í þriðja lagi: Legufæri (múrn- inga) í firðinum en notkun þeirra skyldi háð sérstöku leyfi ríkisstjórnariirnar á ihverjum ..tírna. Þegar fulltrúi Alþýðu- 'bandalagsins í þessum viðræð- ium spurði utanríikisráðherra hvort þarna mætti leggja kaf- bátum, svaraði Guðmundur í. því til, að við legufærin mætti leggja vill. hvaða skipum sem vera Kemur Alþingi ekki við Guðmundur 1. Guðmundsson utanríkisráðherra tók næstur til máls. Skýrði hann svo frá að engir samningar hefðu enn ver- ið gerðir um framkvtsmdir í Hvalfirði en mælingar færu nú fram þar. Kom þó skýrt fram I i ræðu hans að rífcisstjómin teldi sig ekki þurfa samþykki Alþingis til að gera samninga um hernaðarframkvœmdir í Hvalfirði. Sagði utanríkisráð- herra að frá því að herinn kom hér 1951 hafi samningar um slíkar framkvæmdir aldrei verið bomar undir Alþingi. Sjóðurinn Hingað til hafa Bandaríkin borið allan kostnað af hervæð- ingu íslands en þessar fram- kvæmdir — ef til kemur — verða kostaðar úr sameiginlegum sjóði Atlanzhafsbandalagsins. Hlutverk sjóðsins er einkum að standa straum af kostnaði við flugvallagerð, birgða- og sprengjugeymslur. Samkvæmt reglugerð sjóðsins skal það ríki, sem byggt er í hverju sinni, leggja fram tiltekinn hluta af kostnaði á móti sjóðnum. Nú munu Bandaríkin af stór- mennsku sinni ætla að greiða hlut íslands við fyrirhugaðar framkvæmdir. Á þessari stað- reynd byggir síðan ríkisstjórn- in þá skoðun sína að hún sé enn að semja beint við Banda- rí'kjamenn en ekki Atlanzhafs- bandalagið sem slíkt. Sé hún því ekki samkvæmt þeirri hefð Framhald á 2. síðu. Járnsmiðirnir ein- huga um kröfurnar Kjarasamningar Félags jám- iðnaðarma-nna við Meistarafélag jámiðnaðarmanna féllu úr gildi 15. október, eins og hjá flestum öðrum verkalýðsfélögum. Á fundi í félagi járniðnaðar- manna mánudaginn 14. október voru samþykktar samhljóða til- lögur til breytinga á samningum félagsins vlið Meistarafélag járn- iðnaðarmanna. Þriðjiudagimn 15. október var svo haldinn viðræðufundur miUi • • MECINKROFUR VERKAMANNA AFHENTAR Verkamannafélagið Dag:sbrún sendi þegar á þriðjudag meginkröfur félagsins um breytingar frá fyrri samningum til atvinnurekenda, og kvaðst reiðubúið að hefja umræður um þær breyt- ingar ásamt fulltrúum Verkamannafélagsins Hlíf- ar, Hafnarfirði og Verkalýðsfélagsins Eining- ar, Akureyri. Umræður hafa enn ekki hafizt. Samningar félaganna runnu út 15. október eins og kunn- ugt er, en samkomulag er um það við vinnuveitenda- samtökin líkt og áður, þegar eins hefur staðið á, að farið skuli eftir samningum þeim sem giltu til 15. október þar til aunað verður akveðið. samnninganefndar Félags járn-'f- iðnaðarmaima og stjómar Meist- arafélagsins og voru tillögurnar þar afhentar og skýrðar. Hafa meistarar þær nú til yfii-veg- unar. Jámsmiiðir hafa 1750 kr. viku- kaup. Tillögur um breytingar á samn- ingum félagsins eru miðaðar við niðurstöðu ráðstefnu Alþýðu- sambands Islands og einnig við úrskurð kjaradóms um laun og vinnutíma starfsmanna ríkisins og kauphækkanir bæjarstarfs- manna. Kaup jámsmiðanna er fast vikukaup sem haast er eftir fimm ára starfstíma hjá sama fyrir- tæki og er þá 1750 kr. á viku. Ákvæðisvinna er nær engin í járniðnaði. SH heldur fund um vandamál frystihúsa Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna hefur boðað til aukafund- ar í Reykjavík þriðjudaginn 22. október n.k. Á fundinum mun m.a. verða rætt um reksturs- vandamál hraðfrystihúsanna, en afkomu þeirra hefur hrakað mikið að undanförnu vegna stöðugt hækkandi reksturskostn- aðar. Niðurstöður athugana á afkomu frystihúsa munu verða lagðar fyrir fundinn og fjallað verður um starfsgrundvöll hrað- frystihúsanna. Tolleringar 1 gær fóru fram hinar árlegu tolleringar í Menntaskólanum í Reykjavík og sést einn nýsveinn- inn fljúga í loft npp. Fleiri mynd- ir frá tolleningnnum eru á 2. síðu. Sleppt úr gæzlu- varðhaldi í gær ÞJÖÐVILJANUM tókst ekki að ná tali af Halldóri Þorbjörnssyni sakadómara í gær til að fá staðfesta þá frétt, að Sigurbirni Eiríkssyni veitingamanni hafi verið sleppt úr gæzluvarðhaldi í gærdag. Sigurbjörn hefur nú setið í varðhaldi nær þrjár vik- ur. Dómarinn hcfur tii þcssa verið sagnafár um málsrann- sóknina.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.