Þjóðviljinn - 17.10.1963, Blaðsíða 4
4 SlDA
ÞíðÐVIUINN
Fimmtudagur 17. október -1S63
Ctgcfandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.S,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórar: Jón Bjamason, Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 80 á mánuði.
MarkmiS rikisstjórnarinnar
l>jami Benedikísson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, hélt ræðu á Varðarfundi í fyrradag. Munu
ýmsir hafa beðið orða hans með nokkurri eftir-
væntingu og búizf við að þar yrði að finna ein-
hverja vísbendingu um fyrirætlanir ríkisstjórn-
arinnar í efnahagsmálum, en um þau efni ha'fði
ræðan fátt nýtt að geyma. Ráðherrann sagði að
yísu að gengisfelling væri ekki nein lausn með
þeim aðalrökum að hún mundi „stórskaða traus't
okkar erlendis“ og staðfesti með því að erlendir
aðilar hefðu bannað ríkisstjórninni að grípa fEil
þess ráðs sem hún h'efur þegar hagnýtt 'tvívegis
á örskömmum tíma. Sagði hann að eftir þau mála-
lok væri nú loks verið að vinna að því „að a’thuga
þær leiðir sem heppilegastar væru“ og minnt-
ist óljósum orðum á „vinnuhagræðingu“ og
„starfsmat“ í því sambandi. En þó kom eitt at-
riði fram í ræðu hans sem vert er að veita sér-
staka athygli. Hann sagði: „Öflugt alúminíum-
fyrirtækj í Sviss hefur, eins og skýrt hefur verið
frá, áhuga á að semja við okkur um orkukaup til
reksturs alúminíumvers. Úr þessu stormáli verð-
ur að skera í sambandi við ákvörðun um næstu
stórvirkjun“. Einnig minntist hann á kísilgúrverk-
smiðju og olíuhreinsunarstöð og sagði: „Ef að slík-
um rekstri yrði horfið yrði sjálfsagt að hafa sam-
vinnu við erlenda aðila fyrst í stað, bæði vegna
fjárútvegunar og tækniþekkingar“.
¥ hrunadansi viðreisnarinnar undanfarin ár hafa
stjórnarvöldin haft eina lífhöfn fyrir augum,
þátttökuna í Efnahagsbandalagi Evrópu. Ríkis-
stjórnin ætlaði að láta leysa öll okkar vandamál
með því að sameinast í stærri heild, með því að
gera okkur örlítinn hluta af ofurstóru kerfi, þann-
ig að lögmál þess skæru úr málum hér; framtíð-
arsýn hennar var að leggja niður sjálfstætt þjóð-
ríki á íslandi en gera okkur að útkjálkahreppi í
miklu vesturevrópsku ríki. Svo staðráðin var rík-
isstjórnin í því að stefna að þessu marki, að ráð-
herrarnir fengu andlegt áfall þegar Frakkar bundu
endi á áformin; þegar það gerðist hrópaði Gylfi
Þ. Gíslason í örvæntingu að ekkert verra he'fði
getað komið fyrir. En af ummælum Bjarna Bene-
diktssonar má sjá að ríkisstjórnin stefnir nú enn
að sama marki eftir öðrum leiðum. Fyrst ekki
var hægt að nota Efnahagsbandalagið til þess að
beygja okkur undir ofurvald erlends auðmagns,
skal samið beint við einstök fyrirtæki sem á ör-
skömmum tíma myndu gnæfa yfir íslenzku efna-
hagslífi og geta skipað málum að eigin geðþótfa.
Alúminíumverksmiðja á íslandi og aðrar smærri
verksmiðjur í erlendri eigu myndu binda endi á
e'fnahagslegt sjálfsforræði íslendinga; erlent fjár
magn myndi ásamt erlendri hersetu drottna
örlögum landsmanna.
Þetta er hin raunverulega „lausn“ stjórnarvald- •
anna hvernig svo sem þau klóra sig út úr
þeim vanda sem nú blasir við. Og því aðeins verð
ur þeirri lausn hnekkt að fólk geri sér þess grer
hvert stefnt er, að nú sem fyrr er miklu meira
húfi en hin tímabundnu efnabp«slegu vandamá1
jafn alvarleg og þau eru þó. — m. I
VERKAMANNAKAUP VERÐ-
STÓRHÆKKA
Á Dagsbrúnarfundin-
inum sl. mánudag hafði
Guðmundur J. varafor-
maður Dagsbrúnar fram-
sögu um kjaramálin og
mælti m.a. á þessa leið:
Það eru tvö höfuðatriði sem
verkamenn þurfa öðrum frem-
ur að líta á, hið fyrra er
verðlagsþróunin í landinu og
síðara atriðið ér kauphækkan-
ir annarra stétta.
Verðlagsþróunin
Ég vil aðeins víkja lauslega
að verðlagsþróuninni, þeim lið
vísitölunnar, sem kallaður er
A-liður. Á þeim lið er flest-
öll matvara, hiti, rafmagn,
álnavara og almennur fatnað-
ur. Ef við lítum aðeins á þessa
vísitölu sem er nú svona næst
sanni, þó þar vanti mikið á
að öll útgjöld verkamannafjöl-
skyldu séu mæld í þessari
vísitölu, þar er rafmagn og
hiti rösklega 400 kr., svo að
ekki er nú geyst farið í.
Ef við lítum á kaup í marz
1959, rétt eftir að það var
stórlækkað með lögum, þá
gerði 8 stunda vinnudagur hjá
Dagsbrúnarverkamanni yfir
árið kr. 49 608. Þessi liður vísi-
tölunnar var þá 48 310 kr.
Verkamaður átti þá eftir þeg-
ar hann var húinn að borga
það sem tilheyrir þessum lið:
einföldustu matvöru, hita og
rafmagn og svona almennasta
fatnað, þá átti hann eftir af
8 stunda vinnudegi 1290 kr.
eftir árið, En hvernig er þetta
núna? Nú kostar sama magn,
samkvæmt visitölunni 78 746
kr. en kaupið er 67 200 eða:
1959 átti hann 1290 kr. eftir,
nú vantar hann 11566 kr. til
þess að geta keypt þessa ein-
földustu vöru samkvæmt vísi-
tölunni sjálfri.
Þarna hallar á verkamann-
inn á þessu tímabili, bara á
þessum eina lið, að visu al-
mennasta Iiðnum, um 13 þús.
krónur.
Það mæti telja svona enda-
laust, en ég held þetta dæmi
sýni nokkuð vel hvernig hefur
hallað á verkamanninn og
kaupmátt launa hans. Síðan
að kaup var hækkað í sumar
um 7,5% hefur vísitalan hækk-
að um 6 stig og þá er eftir að
koma inn í hana landbúnaðar-
afurðum, sem hækka hana
um önnur 6 stig og þriðju 6
stigin eru greinilega framund-
an, Það gerir 18 stig, sem sam-
kvæmt fyrri vísitölu væru 36
stig, meðan kaupið hefur
hækkað um 73/2. Hér áður fyrr
var okkur sagt: höfuðorsök
dýrtíðarinnar er sú, að kaupið
hækkar um svo mikið í einu,
og vegna þess hvað kaupið
hækkar kemur dýrtíðin á eftir.
Þegar búið var að kyrja þetta
lengi var kaupið hækkað um
aðeins 5%, þó það væri að-
eins örlítill hluti af dýrtið-
inni, og síðar um 7,5%, allt
aðeins örlitill hluti sem hægt
var að sýna fram á að dýr-
tíðin hefði raunverulega auk-
izt. En hvað skeður þá núna,
eftir þessar hógværu kaup-
hækkanir. stendur þá eithvað
á dýrtíðinni? Hún hefur aldrei
verið magnaðri, aldrei stærri
kauphækkanir hiá öðrum stétt-
um, og dýrtíðarbálið orðið
slíkt. að það hefur aldrei
þekkzt annað eins um árabil
og erum við þó ýmsu vanir í
þeim efnum. Ég þarf ekki að
lýsa fyrir ykkur hækkun á
mjólk um 25%, kjöti um
40%, síma um 20%, betta er
aðeins rétt byrjunin. Á næsta
leiti eru hækkanir á strætis-
vögnum, hækkun á rafmagni.
sækkun á hitaveitu, tvöfóldun
’ sjúkrasamlagsgjöldum. Qg
•vona mætti lengi telja.
URAÐ
Húsaleiga
Ég þarf ekki að tefja tím-
ann með því að lýsa verð-
hækkkunum fyrir yikkur, en
ég held að hver maður viður-
kenni, að nú er skollið yfir
það dýrtíðarbál, að það brenn-
ir upp öll almenn laun og þau
hrökkva hvergi til. Á sama
tíma og hægt er að sanna með
óteljandi tölum, eins og ég
lýsti hér áðan hvernig kaupið
raunverulega er leikið, þá eru
þessa dagana að prédika rit-
stjórar dagblaða, sem sjálfir
stóðu í verkfalli og fengu upp
undir 40% kaupihækkun, nú
Skrifa þeir aðvörunarorð til
verkamanna og segja að þeir
megi nú ekki leiða þá ógæfu
yfir sjálfa sig að hækka kaup-
ið.
En hvað sem þvi líður. Tök-
um örfá dæmi, það er af nógu
að taka. Húsnæðisfulltrúi
Reykjavíkurborgar, mætur og
gegn starfsmaður, hefur sagt
í blaðaviðtali að í þau 5 ár,
sem hann sé búinn að gegna
þessu starfi hafi hann „aldrei
vitað til þess að húsaleiga
hækkaði jafn ofsalega og hún
Guðmundur J. Guðmundsson
hafi gert í sumar“. íbúð, sem
hefur verið leigð á frjálsum
markaði á 3 þús. í vor, eða
seinnipartinn í fyrravetur sé
nú komin upp í 5 þúsund, og
það er varla til sú gömul leiga,
að hún hafi ekki stórhækkað.
Húsaverð þýtur upp. Allt hefur
þetta stór og mikil áhrif. Ég
skal geta þess í þessu sam-
bandi, að í vísitölunni þá er
húsaleigukostnaður á fjöl-
skyldu reiknaður á 900 kr, og
það talið mæla nokkumveg-
inn húsnæðiskostnað á mán.
Skattar
Litum aðeins á skattana.
Fyrir nokkrum árum var
tekjuskattur lækkaður, en
skattstiginn, hann er alltaf sá
sami. Verkamaður sem vinnur
eftir- og næturvinnu, er kom-
inn upp í hátekjuskala og er
skattlagður samkvæmt því. Af
hátekjum, segjum 120 þús. kr.
fyrir 6—8 árum, má segja að
enginn sé ofsæll núna. En
eftir allt þetta verðbólguflóð
og gerbreyttar tölur, þá er
skattstiginn sá sami og þýtur
upp um leið og komið er yfir
90 þúsunr, Þetta kannizt þið
við sem hafið haft langan
vinnudag og verið hart leiknir
af sköttufn. En hitt er annað
mál, að í sambandi við skatt-
ana er áberandi, þegar maður
fer yfir skattskrá rekst maður
á að verkamenn og ýmsir op-
inberir starfsmenn eru aldeil-
is lygilega háir í sköttum os
útsvörum á móti ýmsum öðr-
um stéttum. Ég gerði það í
f.yrra, að þá tók ég 6 menn
sem vinna á vélskóflu. sem eru
með tekiuhæstu mönnum í
Dagsbrún, fyrst og fremst
vegna langs vinnudags, og
lagði saman útsvör og skatta
vélskóflumannanna 6 og tann-
lækna, — það mætti nefna
fleiri en tannlækna, en það er
sagt að þeir séu hvað tekju-
hæstir í bænum,— og með þvi
að leggja þessi útsvör saman
eru vélskóflumennirnir ögn
hærri. Þeir höfðu 30 kr. á tím-
ann, eftir þessu ætti tann-
læknirinn að hafa 29.
Svona má telja endalaust.
Það má taka forstjóra fyrir
stórum atvinnufyrirtækjum og
síðan má tína upp verkamenn
í þeirra þjónustu, sem eru rrjeð
mikið hærra útsvar og skatta.
Sannleikurinn er sá, að Það
þarf að gerbreyta skattstigan-
um og færa hann til samræm-
is við þann krónufjölda sem
nú er, en ekki miða hann við
tekjur sem voru kannski fyr-
ir 10 árum. Eftir að verka-
maður er búinn að leggja á
sig ofurmannlega vinnu, verð-
ur hann að gefa upp hvern
eyri, og þá er tekinn af hon-
um kúfurinn af öllum hans
tekjum. Á sama tíma og þetta
á sér stað, þá er áætlað að
innheimta á söluskatti hjá
kaupmönnum og verzlunum og
öðrum þvílíkum, sé í hæsta
lagi 70%, hitt rennur í vasa
kaupmanna og allskonar verzl-
unarhölda sjálfra, að ekki sé
minnzt á þá sem reka um-
fangsmikil viðskipti og eru
með þriðjung af útsvari verka-
manns.
Ég get ef óskað er á eftir
komið með óteljandi dæmi,
jafnt úr opinberum skýrslum,
sem einstök dæmi um ástand
í launamálum, en ég held að
hver og einn maður viður-
kenni, sem á annað borð vill
viðurkenna staðreýhdir, að
verkamannakaup, sem um ára-
bil og alltaf hefur verið of
lágt, hefur aldrei verið lægra
og er á góðrl leið með að
hrynja ennþá stórkostlegar.
Launahækkanir
Þá kem ég að hinum liðn-
um, það eru launahækkanir
hjá öðrum stéttum. Eins og þið
munið og minnzt var á hér
áðan, þá voru kjaramál opin-
bera starfsmanna leyst með
kjaradómi, kjaradómi sem
skipaður var af ríkisstjórninni
og hún sjálf sem því raun-
verulega ákvað þessi laun.
Hækkanir gegnumsneitt hjá
opinberum starfsmönnum, það
eru að vísu miklar tilfærslur
á milli flokka, eru reiknaðar
að séu til jafnaðar um 45%
og allt upp í 90%, en meðal-
tal er reiknað um 45%. Þar
er cinkennið það, að þcir sem
höfðu hæst laun fyrir, þeir
hækka mest, hinsvegar er
reynt að hækka minna þá sem
lægra eru launaðir, þá sem
vínna einhver hliðstæð störf
og verkamenn til þess að sam-
anburðurinn væri ekki auð-
veldur, fyrir t.d. Dagsbrún. Nú
ætla ég að skýra ykkur frá
nokkrum dæmum i því efni,
en vll i upphafi taka fram
að mcð þessum k.iaradómi cr
raunverulega verið að skapa
alveg nýtt þjóðfélag i landinu.
Skrifstofumenn og opinberir
embættismenn fara langt upp
fyrir menn sem hafa verið
svona 10—20% fyrir ofan
verkamenn, og ef þetta ástand
héldist lengi kæmi mjög fljót-
lega stórkostlegur munur á
verkamanni og manni sem t.d.
vionur einföld skrifstofustörf,
og það sem meira er, að
hærri launaflokkarnir fara
upp í tvöföld, þrcföld, fjór-
föld og jafnvcl fimmföld
verkamannalaun. Ég skal taka
nokkur dæmi til þess að þið
getið áttað ykkur á þessu, en
ég tek það skýrt fram að ég
tek menn sem eru í lægri
flokkunum, og ég er alls
ckki þar með að sjá ofsjónum
yfir þeirra tekjum eða telja
þá ofhaldna af því, síður en
svo, ég er aðeins að sýna hvað
þessi launalög raunverulega
gilda gagnvart kaupi verka-
manna.
: . i
Samanburður
Tökum fyrst stúlku sem 'ér
byrjandi á skrifstofu, er við.
vélritun og símavörzlu. Ef við
reiknum kaupið hennar, hvaði
hún hefur á tímann — hún
lendir í 4. launaflokki — þá \
hefur hún í dagvinnu 41 kr.
33 aura. Verkamaðurinn 28 kr. '■
í Eftirvinnu 66,13 kr., verka-
maðurinn 44,80 kr. í næt-
urvinnu 82,66, verkamaðurinn \
56 krónur. j
Ef við tökum aðra hlið-
stæðu, bréfbera, pósta, menn
sem alla tíð hafa verið illa
launaðir og vinna erfið störf,
og eru að mínu áliti sízt of
haldnir af þeim launum sem
þeir fá þarna. Og ef við tök-
um t.d. menn hjá togaraaf-
greiðslunni, sem ég held að sé
almennt viðurkennt að sé ein'
erfiðasta og óþrifalegasta
vinna sem hægt er að fá, og
afköst manna sem þár vinna
aldeilis geysileg, þeir komast
með því að vinna hvern virk-
an dag í mánuði þ.e. , 8 tíma {
upp í 6550 kr. á mán. Póstur- •
inn byrjar í 6110,00 og fer upp :
í 8040,00. Togaraafgreiðslu-;
maðurinn vinnur í 48 tíma,
pósturinn í 42 og hefu.r 1500 .
kr. hærra á mánuði eftir að f
hann er búinn að Vinna í full- ’
an starfstíma. Ef við tökum!
þennan opinbera starfsmann,
þá hefur bréfberinn í eftir-
vinnu 74,35 kr„ togaraaf-
greiðslumaðurinn 52,40 kr. í
næturvinnu hefur pósturinn
92,94 kr„ togaraafgreiðslumað-
urinn 65,50 kr.
Á sömu vél
Ef við tökum verkamenn á
þungavinnuvélum, krönum, því
í Reykjavíkurborg hagar þann- ;
ig til að 23 starfsrriannanna
eru Dagsbrúnarmenn en þriðj-
ungurinn opinberir starfsmenn. ,
í sumum tilfellum vinna þess-
ir menn hlið við hlið á sömu j
vél, annar opinber starfsmað-
ur hinn Dagsbrúnarmaður. j
Dagsbrúnarmaðurinn getur ;
komizt upp í 9770.00 fyrir dag-
vinnu, en ef hann er starfs-
maður bæjarins byrjar hann
með 6800,00 kr. og fer upp :
í 8360,00 kr. í eftirvinnu hef- j
ur Dagsbrúnarmaðurinp á í
vinnuvélinni 54,16, fasti sfarfs-
maðurinn við hliðina á hon- :
um 82,45. í næturvinnu: Dags- j
brúnarmaðurinn 67,70, á fastl !
starfsmaðurinn 103,06. Ef við I
tökum sorphreinsunarmenn,
Dagsbrúnarmenn og fasta I
starfsmenn þá hefur Dags-
brúnarmaðurinn 5690,00 kr.
starfsmaðurinn byrjar á 5880,00 ,
og fer upp í 7250,00. Dags- ,
brúnarmaðurinn hefur í eftir-
vinnu 45,52, en hinn hefur
71,57, næturvinnu 56,90, hinn
89,46.
Þarna tek ég menn j mjög
lágum launaflokkum. Skrif-
stofumaður, almennur skrif-
stofumaður sem lendir í svona
15. flokki, hefur háft ujn 20%
hærra en Dagsbrúnarmenn
venjulega, þetta er nú mjög
misjafnt, en þeir eru' býsria
margir í 14,—15. flokki. þeir
eru með fast á mánuði 8 þús.
Framh; á 8. síðu.
Úr ræiu GUÐMUNDAR J. á Dagsbrúnarfundi