Þjóðviljinn - 17.10.1963, Síða 8
3 SlÐA
HÖÐVILJINN
Fimmtuclagur 17. október 1963
Ræða Swðmundar J.
Framhald af 4. síðu.
og fara upp í 10 þús og 500. í
eftirvinnu hafa þeir 100 kr. á
tímann, í næturvinnu 125. En
ég vil aðeins með þessu benda
ykkur á hvað raunverulega
hefur skeð í þjóðfélaginu.
Ég held áfram, án þess að
vera að ráðast á viðkomandi
stéttir, skólastjóri hækkaði
um 7 þús. kr. eða hækkunin
ein var 1400,00 kr. meiri en
Dagsbrúnarmaður hefur í mán-
aðarkaup. Námsstjóri hækkar
um 8 þúsund, ráðherra hækk-
ar um 11 þúsund.
Ég dreg saman hækkanir
sem orðið hafa á kaupi frá
1950 til dagsins í dag, til að
sýna stöðu verkamannsins.
Verkamaðurinn hefur hækkað
í kaupi mjög nálægt 200%,
ráðiherrann hefur hækkað um
510%. Fulltrúi í stjórnarráð-
inu hefur hækkað um 396%,
barnakennari um 353%, lög-
regluþjónn um 310%. Ég held
að ég þurfi ekki að rekja þessa
sögu lengur, en ég vil aðeins
með þessu sýna ykkur hvað
raunverulega hefur skeð í
þjóðfélaginu og hvar kaup hins
almenna erfiðisvinnumanns
stendur í dag.
Ég dreg aðeins saman: Opin-
berir starfsmenn hafa hækkað
að jafnaði um 45%, starfs-
menn Reykjavíkurbæjar og
kaupstaðanna um svipað, ekki
minna, baníkastarfsmenn um
40—50%, blaðamenn um tæp
40% og kröfur verzlunarmanna
nálgast að vera um 50%.
Ef verkamenn gera ekki
stórar kröfur núna, þá sam-
þykja þeir að löggilda í
þjóðfélaginu um ókomin ár
að þeir séu sérstök lágstétt,
sem hafi ekki kaup nálægt
öðrum stéttum. Það er
hvorki meira né minna sem
er i húfi. Það er ekki að-
eins dýrtíðin, hcldur cr það
framtíðarstaða stéttarinnar
í heild, sem að þarna er í
veði.
Menn sem vinna, tökum
t.d. í frystihúsum, menn
sem vinna hafnarvinnu og
annað þvíumlikt, eru eft-
ir þessu dæmdir til þess að
vera 30—50—70% fyrir
neðan — ég vil segja hlið-
stæðar stéttir.
Kona sem er orðin þraut-
þjálfuð i frystihúsi getur
hæst náð 28,45 á tímann.
Ef hún skellir sér inn á
skrifstofu byrjar hún á
41,33. Ég held að það sjái
hver maður, að þjóðfélag
sem refsar öllum sem vinna
að framleiðslu og refsar öll-
um þeim sem vinna erfið-
isstörf, fái ekki staðizt.
200-510%
Ég hef rakið þetta lauslega
og ætla nú aðeins að nefna yf-
irborganir. Raunverulega má
segja að þegar rætt er um
verkamannakaup hafi yfirborg-
anir átt sér stað í ákveðnum
atvinnugreinum. Þá virðist
þjóðfélagið ekki vera að fara
á höfuðið. f byggingarvinnu
býst ég við að 30 og upp í
45 kr. sé töluvert algengt og
eins í verkstæðum hverskon-
ar og öðru þvílíku, en öllum
þorranum af Dagsbrúnarmönn-
um, í frystihúsum, bæjar-
vinnu, hafnarvinnu, er borg-
að á hinum lága taxta.
Á ráðstefnu Alþýðusam-
bandsins upplýstist að í Hvera-
gerði væri almennt hvergi
borgað lægra en 33 kr. og
yfirleitt 35. Á síldarplönunum
austur á landi í sumar var
borgað 35 og 40 kr. og frítt
fæði.
Eftirsókn atvinnurekenda í
næturvinnu og sunnudaga-
vinnu sýnir að þeir víla ekk-
ert fyrir sér hvort þeir láta
vinna á sunnudegi, meira að
segja segjast fremur vilja láta
vinna á sunnudögum, það sé
þægilegra að ýmsu leyti. En
á þessu sést að kaupið virðist
oft vera lítið atriði.
Arangurinn kom-
inn undir einhug
Nú mun kannski einhver
segja: Ástandið er orðið ein-
tóm vitleysa: dýrtið, kaúp-
hækkun, dýrtíð. En má ég
benda á að í samningum und-
anfarín ár hefur Dagsbrún
hamrað á, að ef ríkisstjórnin
og atvinnurekendur gætu boð-
ið vörulækkanir þá tækjum
við það frekar, — en þessu
hefur alltaf verið hafnað.
Verkamenn hafa aðeins ver-
ið að berjast við að reyna að
fá dýrtíðina uppbætta, því
dýrtíðin hefur hækkað mikið
meira en kaupgjaldið. Enginn
maður getur kennt verkamönn-
um með 28 kr. á tímann um
-------------------------<$
bridge
l>að er óalgengt í keppn-
um, að spilaður sé tromp-
samningur í sama lit, á öðru
borðinu á n—s spilin og á
hinu borðinu á a—v spilin.
Þetta kom þó fyrir á síðasta
Evrópumóti milli sveita Nor-
egs og Austurríkis. Spilið
var eftirfarandi, austur gef-
ur og allir á hættu.
Norður
A 9-6-2
¥ D-10-8-2
♦ 10-7-4
* K-8-5
Vestur
A Á-K-G-10-5 Austur
¥ 9-7-5-3 A 3
♦ 6 ¥ K-G-6-4
* G-4-2 ♦ Á-K-D-9-3-2
10-7-4 . * 10-9
Suður
A D-S-7-4
¥ Á
♦ G-8-5
* Á-D-7-6-3
Þar sem Norðmennirnir
sátu n—s, gengu sagnir
þannig:
A S V N
1 ¥ D P 1 G
2 ♦ 3 * 4 ¥ P
P P
Austurríkismaðurinn varð
tvo niður, en hefði vestur
doblað þrjú lauf sleppur
suður aldrei með minna en
þrjá niður.
Við hitt borðið, þar sem
Austurríkismennirnir sátu
n—stóku sagnirnar allt aðra
stefnu:
A s V N
1 ♦ D 1 A P
2 ♦ P P 2 ¥
P P P
Vestur þorði ekki heldur
að dobla á þessu borði og
var það heldur raunalegt,
þar sem norður varð fimm
niður og gat orðið sex.
Austur tók þrisvar tigul
og vestur losnaði við tvö
lauf. Enn kom tígull og
vestur henti síðasta laufinu.
Sagnhafi trompaði heima og
spilaði laufi, sem vestur
trompaði og trompaði síðan
út. Enn kom lauf, sem vest-
ur trompaði og hefði hann
nú spilað trompi fær sagn-
hafi ekki fleiri slagi. En
vestur tók tvo hæstu í spaða
og meiri spaða og þar með
slapp norður með „aðeins"
fimm niður.
dýrtíðina, þar eru aðrir aðilar
að verki.
Nú, þegar dýrtíðarbálið
blossar um okkur, vöruverð
hækkar daglega, aðrar stéttir
stórhækka sitt kaup — hvaða
leið á þá verkamaðurinn? Á
hann að standa kyrr með sín-
ar 28 kr. — meðan aðrir eru
helmingi hærri — og segja:
Ég tek ekki þátt í þessu? Sú
afstaða leiðir til eins, og að-^"
eins eins, að þá fyrst verður
verkamaðurinn að fullu und-
ir í dýrtíðinni.
Dýrtíð, fossandi dýrtíð leik-
ur um okkur og mun stærri
stéttir en Dagsbrún fá yfir
40% kauphældkanir — með
dómi ríkisstjórnarinnar sjálfr-
ar. Samtök verkamannanna eru
nú^ lífsvon þeirra.
í þessum kröfum okkar er
verðtrygging kaups ein aðal-
krafan. Við munum halda fast
við, eins og við höfum áður
reynt að gera, að verðtryggja
þá samninga sem við náum,
að vísitala eða önnur verð-
trygging komi á kaupið, þann-
ig að ef vöruverð hækki, þá
hækki kaupið, eða aðrar hlið-
stæðar ráðstafanir. Þetta er í
þriðja sinn á þessu ári, — slík
er dýrtíðin — sem Dagsbrún
stendur frammi fyrir því að
gera nýja samninga. Hraðinn
á þessu er slíkur.
Alþýðusamband Vestfjarða
og Alþýðusamband Norður-
lands hafa haldið sín þing.
Þau eru ekki með sama orða-
lag í ályktunum sínum, en
niðurstaðan er sú sama: kaup
verður að hækka og það verð-
ur að stórhækka. Á ráðstefnu
Alþýðusambands íslands voru
mættir íulltrúar víða að af
landsbyggðinni, um það var
enginn ágreiningur að kaup
þyrfti að stórhækka.
Hvaða leið á
verkamaðurinn?
Þó er ekki hægt að mimn-
ast svo á þessa ráðstefnu, þeg-
ar verkalýðsfélögin standa á
jafnaivarlegum tímamótum og
jafnörlagaríkum stundum og
nú fara í hönd. en að geta bess,
að þá skuli félög innan Al-
þýðusambandsins boða til ann-
arrar ráðstefnu sem fjallar
um kaupgjaldsmál. Það virð-
ast vera grimm örlög sem
þurfa að ganga yfir þessa
verkalýðsihreyfingu, að á slík-
um stundum skuli vera aðil-
ar innan samtakanna sem aug-
lýsa sig fyrir alþjóð — með
því að boða til sérstakrar ráð-
stefnu. — Að vísu var ekkert
andrúmsloft á þeirri ráðstefnu
til að mótmæla því að dýrtíð
væri mikil en samt, tilraunin,
að geta ekki einu sinni sam-
einazt á þessum punkti, hún
er ískyggileg. Og ég vildi mega
óska þess, á þeirri stundu sem
Dagsbrún stendur núna, ásamt
öðrum félögum, að slíkir tónar
ættu ekki eftir að heyrast í
þessu félagi.
Við studdum það mjög ein-
dregið á ráðstefnu Alþýðu-
sambandsins, að félögin mynd-
uðu landsnefnd og þá sér í
lagi verkamannafélögin sem
við teljum hvað harðast leik-
in og við treystum því að það
samstarf sem hafið er með
þessum fundi í kvöld milli
Dagsbrúnar, Hlífar og Eining-
arinnar á Akureyri, eigi eftir
að teygja sig til annarra fé-
laga og það verkamannasam-
band sem hér var til umræðu
áðan eigi eftir að verða þess
valdandi. að verkamenn haldi
á sterkari samstöðu og þjanoi
sér betur saman en verið hef-
ur. hvar sem þeir eru á land-
inu.
Þegar við leggjum út í slíka
kröfugerð sem er hærri, og
það mun hærri en við höfum
verið með um árabil og
kannski nokkum tíma, þá vil
ég minna ykkur á að það er
ekki einungis dýrtíðin, heldur
er það líka sú nýja stéttarskip-
an og sá sess sem verið er að i
ætla verkamanninum í þjóð-l
Athugasemd
félaginu, sem við þurfum að
berjast gegn. Ég vil engu spá
um þau átök og þá samninga
sem íramundan eru, og ég vil
engu spá um árangurinn, en ég
vil hinsvegar segja eitt: eftir
því sem Dagsbrúnarmenn bera
gæfu til að leggja allan á-
greining til hliðar og fylkja
sér um þessar kröfur, því létt-
ari og því meiri von er um
árangur, og ekki einungis
Dagsbrúnarmenn, lieldur er
það og von okkar að verka-
mannafélögin í landinu myndi
nú órjúfandi keðju og þar
verði sá samhugur ríkjandi
sem einkennt hcfur Dagsbrún
í hennar hörðustu átökum.
Vespu stolið
1 fyrradag milli klukkan 13.30
og 19.30 var stolið vespuhjóli,
R—11936 frá Langholtsvegi 88.
Vespan er Ijósgrá með dökkgrá-
um brettum og með skyggni en
varahjólbarða vantar. Þeir sem
kynnu að hafa orðið vespunnar
varir eru beðnir að gera rann-
sóknarlögreglunni aðvart.
Kólera breiðist
til Japan
Dauðsföll af völdum kóleru
í Suður-Kóreu eru nú komin
yfir 20, og spurzt hefur frá
Tókió, að pestin hafi breiðst
til Japan.
í höfuðborg Suður-Kóreu fer
fram bólusetning gegn sýkinni
og hafa þeir fengið yfir 500
þús. fersentimetra af bóluefni
frá Japan.
Meira bóluefni er væntan-
legt frá Kína, Filippseyjum og
Alþjóðlegu heilbrigðismála-
stofnuninni.
Jarðskjálfti á
Kúrileyjunum
TOKIO 14710 — Mikill iarð-
skjálfti varð á Kúrileyjum á
sunnudag og sýndu mælar að
þetta myndi hafa verið einn
mesti jaðskjálfti sem orðið hef-
ur á þessum slóðum. Óttazt var
að jarðskjálftinn myndi komaaf
stað flóðbylgju á Kyrrahafi og
voru aðvaranir gefnar út vxða
m.a. á Hawaii. Engar sögur fara
þó af henni.
Formaður stéttarsambands
bænda, Gunnar Guðbjartsson,
hefur sent Þjóðviljanum svo-
fellda athugasemd til birtingar:
„I leiðara í Þjóðviljanum í
dag, þar sem rætt er um al-
mennar kauphækkanir, er sagt,
að fulltrúar neytenda telji að
bændur hafi íengið verðhækk-
un, sem jafngildi 50°/r. kaup-
hækkun.
Þetta er ekki rétt túlkun á
úrskurði yfirnefndar um bú-
vöruverðið. Kaupliður bóndans
hækkar skv. úrskurðinum um
25,9%, frá því sem samið var
um í september 1962. Þetta er
heldur minni hæfckun en launa-
tekjur urðu hjá sjómönnum,
iðnaðarmönnum og verkamönn-
um á öllu landinu að meðaltali
á sl. ári, skv. launaúrtaki Hag-
stofu íslands, að viðbættum
taxtahækkunum síðan. En
vegna þess að í úrskurði yfir-
nefndar fá bændur ekki tek-
inn aukinn kostnað vegna
meiri fóðurbætis og áburðar-
notkunar, sem meðfram staf-
ar af lakara árferði, nú tvö
síðustu ár, fer fer alltað helm-
ingur þeirrar kauphækkunar,
sem þeim er reiknuð til að
mæta þeim aukna reksturs-
kostnaði.
Ég tel því að raunveruleg
kauphækkun geti ekki talizt
meir en 12—13%. Hækkun bú-
vöruverðs vegna hækkunar á
verði rekstrarvara er ekki hægt
að reikna neinum manni sem
laun.
Ég vil biðja yður að birta
þessa athugasemd í blaði yðar.
Skilningur á milli stétta er
nauðsynlegur og þeim stéttum,
sem er búinn lakastur kostur
svo sem bændum og verka-
mönnum, er brýn nauðsyn að
sýna hvor öðrum velvilja og
skilning.
Reykjavík, 10. okt. 1963.
Gunnar Guðbjartsson."
Þjóðviljinn hefur aldrei hald-
ið því fram að bændur séu of-
haldnir af þeim bótum sem þeir
hafa fengið fyrir óðaverðbólgu
ríkisstjómarinnar og birt rök-
semdir um það efni. Hins veg-
ar kom upp ágreiningur milli
fulltrúa bænda og neytenda í
sexmannanefndinni, m. a. um
þau atriði sem Gunnar Guð-
bjartsson ræðir um. og afleið-
ingin verður að sjálfsögðu mis-
munandi mat á því hver raun-
veruleg kauphækkun bænda
hafi orðið. En þótt slíkur á-
greiningur sé staðreynd má
hann að sjálfsögðu ekki spilla
velvilja og skilningi milli
bænda og verkamanna, sem
eins og Gunnar Guðbjartsson
tekixr réttilega fram er nú
brýnni nauðsyn en nokkru
sinni fyrr.
ULLARIÐNADUR
Duglegur og áreiðanlegur maður óskast til starfa í
Ullarverksmiðjunni Framtáðin, Frakkastig 8.
Viljum einnig ráða
pilt eða stúlku
til aðstoðar við litun og þvott á bandi og ýmiss konar
fyrirfallandi störf. Nánari upplýsingar í skrifstofunni,
Skúlagötu 20.
Sláturfélag Suðurlands
M
Ingvnr Helgnson heiI4ver*(un
Á TKY6CVA60TU 4 SÍMI 1465?