Þjóðviljinn - 24.10.1963, Blaðsíða 2
SIÐA
MÖÐVILJINN
Miðvikudagur 23. október 1963
Ályktun 21. þings I NSÍ um iðnfræðslumál:
Gerbreyta þarf skipulagi
iðnfræðslunnar í landinu
»01 þing X.N.S.Í. vill enn sem
íyrx vekja athygli á þeirri
staðreynd að núverandi skipu-
lag iðnlraeðslunnar er löngu orð-
ið .úrelt. Meðan aðrar þjóðir
kappkosta að auka tæknimennt-
un 'iðnnema, með aukinni verk-
legtí. kennslju, þá búa íslenzkir
iðnnemar. við úrelt meistara-
kerfi, sem heimilar iðnmeist-
nrujn að taka iðnnema á 4 ára
námssamning án þess að um sé
að ræða raunhæfa og skipulega
verklega kepnslu. í landinu eru
nú r um 20 iðnskólar, þar af
nokkrir kvöldskólar. Það er
augljóst að eikki er hægt að gera
alla þessa skóla svo vel úr garði
sera skyldi hvað snertir sér-
menntaða kennslu og vinnusali
til verklegrar kennslu.
21.
þing I.N.S.Í. telur að
gjörbreyta þurfi skipulagi
iðnfræðslunnar þannig, að hægt
verði að útskrifa mun betur
menntaða iðnaðarmenn en nú
er gert. Þingið telur nauðsyn-
legt að á næstu árum verði eft-
irfarandi tillögum um breytt
skipulag iðnfræðslunnar hrund-
ið í framkvæmd, samfara fullri
framkvæmd reglugerðar um iðn-
fræðslu, sérstaklega varðandi
eftirlit með iðnnámi.
IAllir þeir sem stunda vilja
• iðnnám skulu nema við sér-
staka verknámsskóla, sem sett-
ir verða á stofn í því augna-
miði. Þar skulu nemar læra
verfcleg undirstöðuatriði þeirrar
iðngreinar sem þeir ætla að
nema, ásamt bóklegu námi
sem svarar til 1. og 2. bekkjar
iðnskóla. Skóli þessi skal standa
yfir 8 mánuði og skulu nemar
ljúka hæfnisprófi frá skólanum
að þeim tíma liðnum. Lágmarks-
aldur nema skal vera 15 ár.
2Að loknu þessu skólanámi
• skulu þeir nemar sem feng-
ið hafa ákveðna lágmarkseink-
unn hafa rétt til þess að halda
áfram iðnnámi. Skal hafa hlið-
sjón af árangri þeirra frá verk-
námsskólanum, þegar nemar
eru ráðnir hjá meistara. Náms-
tími hjá meistara skal vera 2
til 3 ár eftir iðngreinum og þar
í skal vera tími til iðnskóla,
svo sem verið hefur.
3.
Laun nema meðan þeir
stunda nám hjá meistara
sfculu vera á 1. námsári 55%
af kaupi sveina í viðkomandi
iðngrein, á 2. námsári 65% af
kaupi sveina, á 3. eða síðasta
námsári 75% af kaupi sveina.
Þó skulu nemar aðeins hafa
50% af kaupi sveina þann tíma
sem þeir eru í iðnskóla.
4Meistarar skulu greiða 1%
• ofan á kaup nema í sjúkra-
styrktarsjóð sem nemar fá svo
greitt úr.
FRAMTIÐARSKIPULAG
IÐNFRÆÐSLU
21. þing I.N.S.f. telur þessar
tillögur spor í átt að framtíðar-
skipulagi iðnfræðslunnar. Þeg-
ar þessar tillögur hafa komizt
í framkvæmd telur þingið að
vinna beri að því að verklega
námið verði í enn rikara mæli
flutt í verknámsskólana eins og
fram kemur í eftirfarandi til-
lögum um framtiðarskipulag iðn-
fræðslunnar:
1.
Iðnskólar verði efcki fleiri
en einn í hverjum lands-
fjórðungi, og verði þeir heima-
vistarskólar. Rétt til skólavist-
ar hafa allir þeir er lokið hafa
miðskólaprófi.
2Í skólum þessum fari fram
• verkleg 0;g fræðileg kennsla
er nemi 75% af iðnnámi.
3.
Skólinn skal standa yfir 17
mánuði samtals, 9 mánuði
Gamlir,
góðir dagar
Gylfi Þ. Gíslason við-
skiptamálaráðherra gaf i út-
varpsræðu sinni í fyrrakvöld
þá skýringu á hruni við-
reisnarinnar að það stafaði
af því að efnahagskerfi þjóð-
arinnar hefði farið úr skorð-
um í heimsstyrjöldinni síðari;
vandamálin nú mætti rekja
beint eða óbeint til styrj-
aldaráranna og þeirrar rösk-
unar sem þá varð á efnabags-
lífinu öllu. Þannig geta menn
fundið margt sér til réttlæt-
ingar, og mun Gylfa ekki
skorta ræðuefni ef hann held-
ur áfram að fikra sig þannig
aftur í tímann, þar til hann
sannar að lokum að synda-
fallið sé raunar upphaflega
orsökin.
Það voru fyrst og fremst
kaupgjaldsmálin sem ráð-
herrann taldi hafa farið úr
skorðum á styrjaldarárunum,
og er ástæða fyrir launþega
að gefa þeim ummælum sér-
stakan gaum. Á stríðsárunum
varð einmitt stökkbreyting á
kjörum verkafólks, kaup-
gjaldið hækkaði mjög veru-
lega eftir harða baráttu al-
þýðusamtafcanna, og komið
var á vísitölukerfi til þess
að tryggja að kaupmáttur
launanna héldist sem stöðug-
astur, Síðan befur verið Þar-
izt um þetta kaupstig og
gengið á ýmsu, eins og al-
kunnugt er. Núverandi ríkis-
stjóm hefur einbeitt sér að
því verkefni að hnekkja þeim
árangri sem launþegasamtök-
in náðu á styrjaldarárunum,
m.a. með því að fella niður
vísitöluuppbætur á kaup og
skipuleggja sívaxandi óða-
verðbólgu í kjölfar þeirrar
breytingar. En ráðherranum
finnst ekki nóg að gert; nú
þarf að leiðrétta að fullu þá
„röskun“ sem varð fyrir
rúmum tveimur áratugum.
Það er-u auðsjáanlega fleiri
en forustumenn Sjálfstæðis-
flokksins sem líta á ástand-
ið fyrir stríð sem „gamla,
góða daga“.
Er
það ekki?
Tíminn víkur i gær að
deilum stjórnarflokkanna og
Framsóknarflokksins um her-
námsframfcvæmdir í Hval-
firði. Lýsir hann framkomu
stjómarflokkanna gagnvart
Framsóknarflokknum á þessa
leið: „Eru þeir nú eins og
þjófur sem hrópar að vamm-
lausum, er finna að fram-
ferði hans: Þegið þið, þið er-
uð þjófar líka!“
Þetta er mælt af miklum
skaphita. En eru þeir eikki
þjófar líka? —• Austri.
fyrra árið, en 8 mánuði það
seinna.
4.
Að loknu námi í skólanum
verklegt nám í 1 ár hjá meist-
ara og að þvi loknu gangast
-undir eveinspróf.
5Kaup nema skal vera 75%
• af kaupi sveina meðan
hann er hjá meistara".
Sinf óní utónleika r
næsta fimmtudag
Erling Blöndal Bengtson leikur einleik
Aðrir tónleikar Sinfóuíuhljóm-
sveitar lslands verða haldnir í
Háskólabíói næstk. fimmtu-
dag. Einleikari með hljómsveit-
inni verður Erling Blöndal
Bengtsson.
Á efnisskrá hljómsveitarinnar
eru að þessu sinni forleikur að
óperunni ,,Ruslan og Lúdmíla”,
eftir Glinka, Konsert fyrir cello
og hljómsveit eftir Sjostakovits
og Sinfónía nr. 1. eftir Brahms.
Cellokonsertinn eftir Sjostako-
vits er nýlegt verk, saminn 1959.
Hvor lýgur?
Framíhald af 1. síðu.
Hingað komu sendinefndir er-
lendis frá til athugunar og und-
irbúnings. Málið var rætt á
mörgum fundum í París og ótal
fréf fóru á milli. Hver trúir þvi
svo að Nato og utanríkisráðu-
neyti Islands hafi staðið í marga
mánaða viðræðum um fram-
kvæmdir í Hvalfirði, sérstakur
uppdráttur gerður af þeim að
ósk Islands, sendar hingað
sendinefndir o.fL ef utanríkis-
ráðherra Islands hefur þegar í
upphafi lýst því yfir, að engar
slíkar framkvæmdir kæmu til
mála. Því trúir auðvitað eng-
inn ....
Alþýðublaðið getur upplýst, að
því er kunnugt um. að Nato
gerði utanríkisráðherra Islands
grein fyrir því með bréfi í apríl
1955, að nauðsynlegt væri að fá
samþykki hans fyrir því að ráð-
ast mætti í Hvalfjarðarfram-
kvæmdimar áður en þær voru
teknar upp í fjárhagsáætlanim-
ar, ella væri ekki hægt að taka
þær með. Endirinn varð sá að
þær voru teknar upp í áætlan-
imar, sem dags. eru 1. marz
1955.“
Hvor lýgur?
Þama er um að ræða fram-
burð sem stangast algerlega,
annarhvor tignarmaðurinn fer
með meinsæri. Og hér er um að
ræða mjög alvarlegt mál, sem
snertir basði Alþingi Islendinga
og þjóðina í heild. Úr þvi verð-
ur að fást skorið til fullnustu.
1 nágrannalöndunum myndu
þjóðþingin þegar i stað skipa
rannsóknamefnd til þess að
komast að óyggjandi niðurstöðu,
ef hliðstæðir atburðir gerðust
þar. Er ekki sjálfsagt að Alþingi
Islendinga bregðist eins við,
skipi rannsóknamefnd, kalli
Kristin heim frá Moskvu, yfir-
heyri hann og Guðmund, ásamt
ráðheirum þeim sem voru með
Kristni i stjóm 1955 og þeim
yfirmönnum Atlanzhafsbanda-
lagsins sem um málið hafa fjall-
að?
Iðnþingið sett í
dag að Hótel Sögu
25. Iðnþing Islendinga verður
háð í Reykjavík dagana 24.—26.
október n.k. Iðnþingið verður
sett á Hótel Sögu en fundur
verða haldnir í samkomusal í
Iðnaðarbankahúsinu við Lækjar-
götu.
Helztu mál, sem rædd verða
á Iðnþinginu eru m.a.: Iðn-
fræðsla og tæknimenntun; al-
mennur lífeyrissjóður iðnaðar-
manna; lánamál iðnaðarins o.fl.
GENGUM EKKI
AF ÞINGINU
segir formaður Iðnnemafélags Akur-
eyrar í símtali við Þjóðviljann
1 róggrein um 21. þing Iðn-
nemasambands íslands, sem
birtist í Morgunblaðinu síðast-
liðinn þriðjudag, er þvi haldið
England vann
Framhald af 12. síðu.
Denis Law og Spánverjinn
Cento skárstir.
Mjög var það áberandi að
heimsliðið skorti samæfingu.
Einstakir leikmenn sýndu ágæt
tilþrif, og eins brá fyrir góðum
samleik, en snilldin nýttist ekki
vegna þess að samræmingu
vantaði í liðið.
Enska liðið var skipað mjög
jöfnum, mönnum og vel samæfð-
um, en enginn var öðrum betri
nema Jimmy Greaves, sem var
langfræknastl maður liðsins og
bezti maður á vellinum, eins og
áður segir.
Liðsmenn heimsliðsins höfðu
að baki samtals 663 landsleiki,
þar af hafði Puskas 89. Þeir
ensku áttu 198 landsleiki -.ð
baki, þar af átti Bobby Sharbon
46.
Talið er að 250 milljónir
manna hafi fylgzt með leiknum
í sjónvarpi og útvarpi um all-
an heim.
fram, að fleiri fulltrúar en full-
trúar Iðnnemafélags Vestmann-
eyinga hafi gengiift út af þing-
inu eða „allir lýðræftissinnar
nema tveir fulltrúar frá Akur-
eyri’' eins og blaftið orftar það.
Vegna þessara ummæla hringdi
Þjóðviljinn til Haralds Asgeirs-
sonar formanns Iðnnemafélags
Akureyrar en hann var einn
af fjórum fulltrúum þess félags
á þinginu.
„Þetta er alrangt,” sagði Har-
aldur, enginn okkar Akureyring-
anna gekk af þinginu og enginn
nema fulltrúarnir frá Vestmanna-
eyjum. Það er ekki fótur fyrir
því sem Morgunblaðið segist
hafa eftir okkur. Þó við frábiðj-
um okkur pólitískar merkingar,
vil ég taka það fram, að við
styðjum núverandi stjóm INSl.
Annars, sagði Haraldur að lok-
um, höfum við komið okkur
saman um að senda Morgunblað-
inu og e.t.v. fleiri dagblöðum yf-
irlýsingu til leiðréttingar á þess-
ari furðulegu frétt Morgunblaðs-
ins.
Auk tónleikanna í Reykjavík
mun hljómsveitin fara í hljóm-
leikaför til Akureyrar og Sel-
foss. Á fundi með fréttamönn-
um í gær kvaðst Erling Blönd-
al Bengtson bíða óþreyjufullur
eftir íslenzkum cellokonsert.
Héðan fer Erling aftur tií Hafn-
ar, en í vetur mun hann fara
hljómleikaför til Sovétrikjanna
og Svíþjóðar.
Hljómleikamir í Háskólabíói
hefjast kl. 21. Hljómsveitarstjóri
er Prcnnnsías O'Duinn.
SDlli
PJONUSTAH
LAUGAVEG! 18 SIMI 19113
TIL SÖLU:
2 herb. kjallarafbúð við
Holtsgötu, sér hitaveita.
sér inngangur, 1. veðr.
laus.
2 herb. íbúð við Fálkagötu,
sér hitaveita, sér inn-
gangur.
3 herb. góð kjallaraibúð á
Teigunum, sér hitaveita,
sér inngangur.
4 herb. góð kjallaraibúð í
Garðahreppi, sér hiti, sér
inngangur. Verð 300 þús.
krónur, útb. kr. 175 þús.
4 herb. hæð við Bergstaða-
streeti, sér hitaveita, 1-
búðin er í standsetningu,
verður sem ný.
I SMÍÐUM:
Glæsilegar 6 herb. enda
íbúðir á 1. og 2. hæð,
við Háaleitisbraut.
3 herb. jarðhæð og 6 herb.
hæð við Lyngbrefcfcu,
fullbúin undir tréverk,
allt sér fyrir hverja hæð.
Glæsileg einbýlishús í
Garðahreppi, fokheld.
Höfum kaupendur með
miklar útborganir að 511-
um tegundum íbúða.
Hlaut góða dóma í
tónleikaför vestra
Rögnvaldur Sigurjónsson, pí- skrifaði og bauð Rögnvaldi að
anóleikari er nýkominn heim úr
hljómlcikaferð um Kanada og
Bandaríkin. Rögnvaldur var mán-
uð í ferðinni og hélf alls Jjþra
tónlcika, í Winnipcg, Vancouver,
Seattle og Washiington.
Rögnvaldur Sigurjónsson
Hann hlaut mjög góða dóma
og segir tónlistargagnrýnandi
,,The Winnipeg Tribune” þetta
meðal annars í grein sem ber
fyrirsögnina „Píanóleikari með
snilldarbrag”: „Rögnvaldur Sig-
urjónsson reyndist vera snjall
og alvarlegur pianóleikari. Með-
ferð hans á viðfangsefnunum
sem voru eftir Schubert, Chopin
Liszt, auk tveggja verka eítir
danskan og íslenzkan höfund,
voru tæknilega fáguð og með
heiðarlegu listrænu handbragði.
Jafnframt sýndi hann snilldartök
á hljóðfærinu, og náðu þau há-
marki með Mefisto-valsinum
eftir Liszt.“ . . . Þá segir enn-
fremur að Rögnvaldur ráði yf-
ir þeirri óbilandi fingrafimi, sem
nauðsynleg sé til að ráða fram
úr þeim tækni'iegu vandamálum
sem úi og grúi af í þessari í-
burðarmiklu tónsmíð Liszts.
Upptök þessarar ferðar voru
þau að Richard Bales yfirmaður
tónlistardeildarinnar í Natíonal
Gallery cxf Art í Washington
koma og halda tónleika. Fyrir
milligöingu Þjóðræknisfélagsins
var ferðin afráðin og ákveðið
að hann skyldi einnig halda tón-
leika í Vestur-íslendingabyggð-
um í Kanada. Fyrstu tónleikarn-
lr voru 18. september í Winni-
peg og þar varð Rögnvalldur
þeirrar æru aðnjótandi að verða
gerður að heiðursborgara Winn-
ipeg. Féfck hann í þvi tilefni
skrautritað skj al nr. 975. Aute
Rögnvaldar hafa aðeins þrír Is-
lendingar orðið þessa heiðurs
aðnjótandi, en það eru Ásgeir
Asgeirsson forseti Islands, Guð-
rún SSmonar söngkona, og Sig-
urður Þórðarson tónskáld.
Tónleikamir í Vancouver voru
23. september, síðan hélt Rögn-
valdur til Seattle. Tónleikamir
þar voru 25. september og milli
atriða söng íslenskur karlakór.
Rögnvaldur lék í útvarpinu f
Seattle og haft var viðtal við
hann í sjónvarpi.
Síðustu hljómleikarnir voru f
Art, 6. október. Þar hefur Rögn-
valdur spilað áður, árið 1945.
Rögnvaldur kvað móttökur og
fyrirgreiðslu alstaðar hafa verið
hinar beztu. 1 Winnipeg tók á
móti honum ræðismaður Is-
lands, Grettír L. Jónsson, í Van-
couver Snorri Gunnarsson og í
Seattle Tani Bjömsson. 1 öllum
þessum borgum héldu þeir og
íslendingafélögin Rögnvaldi hin
glæsilegustu samkvæmi. ,
53ja sekúndna
fundur á Alþingi
í gær. Þar var fjárlagafrumvarpi
fyrir árið 1964 vísað samhljóða
til fjárveitinganefndar eins og
venja er til. Annað mál er á
dagskrá var, var tekið af dag-
skrá og fundi slitið er fimmtíu
og þrjár sekúndur voru liðnar
frá setningu hans.
VQ
M KHftlCT