Þjóðviljinn - 12.11.1963, Side 6
0 SÍÐA
ÞJÚÐVILIINN
Þriðjudagur 12. nóvember 18983
„Profumohneyksli" komið upp í Washington
Skjólstæiingur Johnsons varaforseta grunaður um að
hafa stundað mútugjafir og miðlun fyrir vændiskonur
Þessa dagana er um fátt meira talað í Washington en mál Bobby nokkurs Bakers
eða réttara sagt: Allt annað hefur horfið í skugga þess, eins og fréttaritari „New
Statesman“ í Bandaríkjunum, Karl E. Meyer, kemst að orði. Hann bætir við að sé að-
eins helmingur þess sem gengur manna á milli sannleikur megi búast við að stjórn-
málagengi Kennedys forseta verði minna en fram að þessu og óorð komist á banda-
risku öldungadeildina. I>að er til marks um hve mikið er gert úr máli Bakers þessa
að pistill Mayers er birtur undir fyrirsögninni: „Profumohneykslið í Washington“.
Það er erfitt að henda reið-
nr á ðllum þeim sögum sem
ganga af Baker og athöfnum
hans. enda hefur hann verið
umsvifamikill og haft mörg
jám í eldinum. Þrjár stafnanir
rannsaka nú mál hans: Ein af
nefndum öldungadeildarinnar,
dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna og sambandslögreglan
FBI, en ekkert hefur verið lát-
ið uppi um ndðurstöður þeirra
rannsókna.
Skjólstæðingur
Aðalpersónan í þessu hneyksl-
ismáli, Robert Baker, sem nú
er 36 ára að aidri. var ritari
meirihlutans í öldungadeildinni
frá því árð 1955 þangað tíl 7.
október s. L þegar hann sagði
lausu þvi starfi. Hann hafði
aldrei haft annan vinnuveit-
anda en öldungadeildina. Þar
hóf hann feril sinn sem þing-
Bveinn, las jafnframt lög og
komst undir vemdarvæng Lyn-
dons B. Johnsons, þáverandi
leiðtoga meirihluta Demókrata
f deildinni og núverandi vara-
fonseta. Johnson útvegaðj hon-
um ritarastöðuna og með þeim
hefur ævinlega verið mikið
vinfengi. Baker var öllum
hnútum kunnugur í öldunga-
deildinni og kunni að færa sér
það í nyt.
Baker með vemdara sínum, t.
B. Johnson varaforseta.
Milljónamæringnr
Árslaun hans voru tæplega
20.000 doUarar og kona hans
vann sér inn ,12.000 dollara hjá
einni af nefndum deildarinnar.
En þótt þau hjón hefðu þannig
rífilegar tekjur, hefðu þær
hrokkið skámmt til að skýra
allan þann auð sem honum
safnaðist: Gizkað erá, aðeignir
hans nemi nú tveimur miUj-
ónum dollara.
Auðsöfnun hans fór ekki
fram hjá neinum sem til hans
Aukakosningar í Bretlandi:
Miklar hrakfarír
Ihaldsflokksins
LONDON 8/11 — Auka-
kosnlngar til brezka þingsins
tórn fram f tveimnr kjör-
dæmum f gær. Forsætisráð-
herrann vann persónulegan
sigur f öðru kjördæminu og
jók nokkuð atkvæðamagn í-
haldsflokksins frá seinustu
kosningum, en Verkamanna-
tlokkurinn vann stórsigur f
hinu björdæminu og er það
talin örugg vísbending um
stóraukna sigurmöguleika
flokksins við bomandi þing-
kosningar.
Sir Alec Douglas-Home
ryrrum lávarður og núver-
sndi forsætisráðherra Breta,
bauð sig fram til þings í
aukakosningum í Skotlandi
og náði kjöri með rúmlega 14
þúsund atkvæðum og er það
nokkru meira atkvæðamagn
en seinasti frambjóðandi I-
haldsflokksins fékk. Fram-
bjóðandi Frjálslyndra fékk
4800 atkvæði og Verkamanna-
flokkurinn um 3700 atkvæði.
Úrslitin eru talin allmikill
persónulegur sigur fyrir
Home. en fréttaritarar virð-
ast sammála um, að kosn-
ingaúrslitin í Luton-kjör-
dæmi, þar sem Verkamanna-
flokkurinn vann stórsigur,
segi meira um fylgi flokk-
anna með þjóðinni.
Ihaldsflokkurinn hefur
fram að þessu verið í örugg-
um meirihluta í Lutonkjör-
dæmi. en í þetta sinn hreppti
frambjóðandi Verkamanna-
flokksins þingsætið með 3749
atkvæða meirihluta. Árið
1959 var meirihluti íhalds-
flokksins um 5000 atkvæði.
Þar sem kosningamar í Lut-
on eru taldar mjög áþekkar
því sem væri við þingkosn-
ingar í fjöldamörgum iðnað-
arkjðrdæmum, telja margir,
að við núverandi kringum-
stæður myndi Verkamanna-
flokkurinn hljóta yfir 200
þingsæta meirihluta, ef kosn-
ingar færu nú fram. Þessi
aukakosning er því mjög al-
varlegt hættumerki fyrir hina
nýju ríkisstjóm íhaldsmanna.
Mikið verðfall varð í kaup-
höllinni f Lundúnum á föstu-
dagsmorguninn. er kunnugt
varð um úrslitin f Luton.
Hlutabréf í stáliðnaðinum
féllu sérstaklega í verði, enda
er stáliðnaðurinn efstur á
blaði yfir þær atvinnugreinar
sem þjóðnýttar verða, ef
Verkamannaflokkurinn kemst
aftur til valda.
þekktu. Hann barst mikið á,
keypti sér 125.000 dollara hús
í einu snobbhverfi borgarinnar
og annað fyrir 28.000 dóllara
inni í borginni. 1 fyrmefnda
húsinu bjó hann með konu
sinni og fimm bömum. en hitt
húsið eftirlét hann einkarit-
ara sínum, fyrrv. fegurðar-
drottningu Carole Tyler. Hún
sagði lausu starfi sínu daginn
eftir að Baker baðst lausnar,
Mörg jám í eldinum
Baker var meðeigandi í mörg-
um fyrirtækjum sem öll gáfu
af sér góðan arð.
★ Eitt þeirra var sjálfsala-
firma sem kom upp sjálfsölum
sínum í verksmiðjum sem
höfðu samninga við landvama-
róðuneytið. Eitt þeirra atriða
sem nú er verið að rannsaka
er einmitt hvort hann hafi not-
að sér aðstöðu sína til að
tryggja þeim verksmiðjum á-
batasama samninga við ráðu-
neytið gegn því skilyrði að fyr-
irtæki hans sæti eitt að sjálf-
sölugróðanum — og efast eng-
inn um að svo hafi verið.
■Ar* Þegar tryggingafélag eitt,
Mortgage Guaranty Insurance
Corp., bauð hlutabréf til 6ölu,
fékk Baker kost á að karapa
stykkið á hálfan þriðja dollar,
enda þótt almennt markaðsverð
þeirra í upphafi væri 25 doll-
arar og hækkaði síðan upp í
50 dollara. Á þeim kaupum
græddi hann hundruð þúsunda
dollara. — og engum dettur í
hug að hann hafi ekki launað
greiðann með einhverjum
hætti. ,
Ellen Rometsch
Carole Tyler
Barinn í Quorum Club Bakers i Wasbington.
Þá rak hann ferðaskrif-
stofu sem sérilagi annaðist
ferðalög öldungadeildarmanna
sem stöðugt eru á flakki um
víða veröld á kostnað ríkisins.
* Þegar Baker hóf rekstur
gistihúss í Ocean City í Mary-
land efcki ýkja langt frá Wash-
ington, en það hafði kostað 1,2
milljónir dollara að reisa,
komu þangað tvö hundruð
þingmenn og aðrir máttarstólp-
ar þjóðfélagsins, þ. á. m. John-
son varaforseti og frú hans.
★) 1 næsta nágrenni við
þinghúsið kom Baker upp
klúbb, Quorum Club, sérstak-
Iega cetluðum þingmönnum og
vinum þeirra — og vinkonum.
Og er þá komið að þeirri hlið
málsins sem réttlætir að þvi
sé líkt við Frofumohneykslið í
Bretiandi.
Líf í tuskunum
I húsi því skammt frá þing-
höllinni sem Baker hafði leigt
Carole einkaritara sínum var
mikill gestagangur og líf í tusk-
unum. „New York Post“ sendi
fréttamenn að tala við ná-
grannana. Þeir sögðu, að þang-
að hefði verið stöðugur straum-
ur gesta, jafnt á nótt semdegi,
— en sumum þótti kynlegt að
margir gestanna kusu heldur að
ganga um bakdyr hússins. Þótt-
ust menn kenna þar ýimsa
mikilsvirta borgara. „fjóra öld-
ungadeildarmenn” og „ýmsa
starfsmenn Hvíta hússins”.
Þarna kcxmu einnig ýmsir
aðrir gesbir. Meðal þeirra var
27 ára gömul stúlka. fagrarlim-
uð og snoppufríð, Ellen Rom-
etsch að nafni, gift liðþjálfa í
vestur-þýska hemum sem hafði
verið sendur til Washington að
annast afgreiðslu á vopnasend-
ingum frá Bandaríkjunum til
Vestur-Þýzkalands. Ellen var
einnig tíður gestur í Quorum
Club og í gistihúsi Bakers í
Maryland, en sást sjaldan með
bónda sínum.
Með FBI á hælunum
Það voru ekki aðeins nágrann-
amir. sem fylgdust með ferð-
um hennar. Bandariska sam-
bandslögreglan FBI var á hæl-
Framhald á 8. síðu.
Karamanlis missti meirihlutann
Afturhaldið beið ósigur í
kosningunum í Grikklandi
Þingkosningar fóru fram í Grikklandi sunnudaginn 3.
nóvember. íhaldsflokkur Karamanlis (ERE) sem farið
hefur með völd síðustu ellefu ár beið mikinn ósigur í
þeim, fékk fjórðungi færri atkvæði en í kosningunum
1961 og tæplega þriðjungi færri þingsæti og missti
þannig meirihluta á þingi. Hinn frjálslyndi Miðflokkur
Papandreu vann mikið á,
hélt sínu.
Úrslit kosninganna urðu
þessi: Miðflokkurinn 1.921.577,
42,21% (30,8 1961), ERE
1.773.691, 38,96% (50,8 1961),
EDA 662.885, 14,56% (14,6
1961), Framfaraflokkurinn
170.239, 3,73% (3,8 1961).
Enginn hefur hreinan
meirihluta
Þingsætin (300) skiptust
þannig: Miðflokkurinn 140
(100), ERE 128 (176), EDA
30 (24), Framfaraflokkurinn 2.
Enginn einn flokkur hefur því
hreinan meirihluta á þinginu,
en Miðflokknum var falin
stjórnarmyndun og er henni
lokið.
Miðflokkurinn myndar
stjórn
Hinn aldraði Papandreu.
sem gegndi embætti forsætis-
ráðherra þegar fyrir stríð og
var forsætisráðherra grísku
útlagastjórnarinnar á stríðsár-
en vinstri flokkurinn EDA
unum, tekur nú aftur við því
embætti, en annar helzti leið-
togi flokksins, Sophokles Veniz-
elos, verður utanríkisráðherra.
EDA hefur þegar heitið stjórn
Miðflofcksins stuðningl sínum,
annaðhvort beinum eða óbein-
um, og því er víst að hin nýja
stjóm mun fá traust þingsins
begar það kemur saman 11.
desember.
Ósigur afturlialdsins
Úrslit kosninganna eru mik-
ill ósigur fyrir gríska aftur-
haldið og Karamanlis, foringja
þess, persónulega, enda hafði
hann við orð eftir að þau voru
kunn að hann myndi hætta
öllum afskiptum af stjórnmál-
um og jafnvel fara úr landi.
Kosningamar staðfesta einnig
þær ásakanir andstæðinga
hans að miklum svikum hafi
verið beitt í síðustu þingkosn-
ingum 1961. Kosningarnar nú
munu hafa verið einar þær
frjálsustu og heiðarlegustu
sem farið hafa fram í Grikk-
landi síðan stríði lauk, enda
þótt vafalaust hafi verið brögð
í tafli á einstökum kjörstöð-
um.
Sigur vinstrimanna
Þótt Miðflokkurinn hafi
unnið mest á í kosningunum,
er vinstri flokkurinn EDA
engu að síður sigurvegari
þeirra. Það er fyrst og fremst
fyrir baráttu hans og samtaka-
mátt í borgum landsins að
unnt reyndist að stemma stigu
fyrir vaxandi einræðishneigð
Karamanlis og annarra aftur-
haldsforingja. Það var fyrir
skipulagða baráttu EDA, ekki
sízt eftir morðið á þingmanni
flokksins, Lambrakis, í sum-
ar, að afturhaldið var neytt á
undanhald og sá sér ekki ann-
an kost en efna til nýrra kosn-
inga þrátt fyrir vfirgnæfandi
meirihluta á þingi.
EDA hélt kjörfylgi sínu og
bætti heldur við þingmanna-
töluna, en aðstaða flokksins i
kosningunum var erfið sökum
þess að andstæðingar Kara-
manlis hneigðust til þess að
veita heldur hinum sterkari
andstöðuflokki. Miðflokki Pap-
andreu, fylgi sitt.
t
I