Þjóðviljinn - 14.11.1963, Page 5
Fimmtudagur 14. nóvember 1963
ÞIÓÐVILIINN
SlÐA g
Heimsókn Sparfak Plzen
SANNAÐI STYRK HAND-
KNATTLEIKS Á ÍSLANDI
Heimsókn tékkneska liðsins Spartak Plzen
verður vafalaust einn merkasti viðburðurinn í
handknattleiknum hér þetta keppnistímabil. —
Vegna prentaraverkfallsins var ekki hægt að
skýra eins frá því sem var að gerast og ástæða
var til.
Heimsókn tékkneska liðsins
Spartak Plzen verður vafalaust
einn merkasti viðburðurinn f
handknattleiknum hér þetta
keppnitímabil. Vegna prent-
araverkfallsins var ekki hægt
að skýra eins frá því sem var
að gerast og ástæða var til.
Spartak er vafalaust eitt með
beztu handknattleiksliðum í
Evrópu, enda standa hand-
knattleiksmenn mjög framar-
lega í Tékkóslóvakíu, eins og
við höfum raunar séð hér í
leik tékkneskra liða sem hing-
að hafa komið. Áður en liðið
kom hingað var frá því sagt að
í æfingaleik hefði það unnið
tékkneska landsliðið. og ef það
er rétt, talar það sínu máli.
Það eru því engir smákarlar
sem hingað komu, og fyrir það
er athyglisverð frammistaða
handknattleiksmanna okkar í
viðureign sinni við þessa á-
gætu erlendu handknattleiks-
menn.
Reykjavíkurúrval sigrar
Þó að gestimir sigruðu gest-
gjafa sína IR í fyrsta leiknum
með miklum yfirburðum, kom
það ekki neitt á óvart. iR-liðið
er ekki það sterkt að búast
mætti við að það fengi ógnað
Spartak. og þegar það bættist
við að Gunnlaugur var „tek-
inn úr umferð“ af Tékkum
höfðu hinir ekki bolmagn til
að hamla upp á móti hraða og
leikni Tékkanna. Tékkar höfðu
ekki gleymt Gunnlaugi úr síð-
ustu H.M.-keppni í handknatt-
leik og vildu enga áhættu taka.
hvað hann snerti, og færðu
hann í tékkneskan „frakka“!
Það var ekki fyrr en í leikn-
um við úrval Reykjavíkur, sem
í alvöru var farið að ræða um
jafnan leik. en þó naumast um
þann möguleika að sigra liðið.
Á pappímum var þetta
sterkt lið, en spurningin var
hvemig það mundi falla sam-
an og einnig hvort þjálfun
liðsmanna væri komin í það
horf að þeir hefðu nægilegt út-
hald gegn svo góðu liði sem
hér var um að ræða. Úrvalið
byrjaði mjög vel og tók for-
ustuna, þannig að eftir 7 mín-
útur stóðu leikar 4:1 fyrir það.
Um miðjan fyrri hálfleikinn
höfðu Tékkamir þó jafnað 8:8.
en þá er eins og úrvalið falli
saman og gefi verulega eftir.
fremur en að Tékkarnir hafi
sótt með meiri ákafa. Stóðu
leikar í hálfleik 13:9 fyrir
Tékka, og rétt eftir leikhléið
bæta Tékkar fjórtánda mark-
inu við, en þá er það sem
Gunnlaugur skorar 3 mörk í
röð. og er sem úrvalinu vaxi
ásmegin.
Það nær nú betur saman,
leikur af meira öryggi og oft
með miklum hraða og leikflétt-
um sem ruglar hina ágætn
Tékka og þegar nokkuð var
liðið á síðari hálfleikinn höfðu
úrvalsmenn jafnað, og komizt
einu marki yfir 18:17! Og
úrvalið kemst í 22:18, en þá
taka Tékkar mjög skemmtileg-
an endasprett og minnkuðu
svo bilið að eitt mark vantaði
til þess að þeir fengju jafnað.
en leiknuth lauk með 24:23.
Úrvalið hafði í þrjá stundar-
féll liðið vel saman. og sýndi
mikinn vilja til að jafna, og
náði oft mjög góðum leik. Og
að ná jafntefli eftir að hafa
verið 5 mörkum undir í hálf-
leik gegn svo góðu liði sem
Spartak er, segir nokkuð til um
getu liðsins.
Það gerir frammistöðuna
ennþá betri að nú léku Tékk-
amir í stóru húsi. svipað og
þeir eru vanir.
FH nær því að sigra
Einna fjörlegasti leikurinn í
þessari heimsókn mun hafa
verið leikurinn við F.H., en
hann var mjög skemmtilegur
og yfirleitt vel leikinn. Hafn-
firðingar virðast í góðri æfingu
Góð frammistaða ísl.
handknattleiksmanna
Ef við veltum fyrir okkur
þessari frammistöðu íslenzkra
handknattleiksmanna við þetta
ágæta tékkneska lið, getum
við verið ánægðir.
Þama komu fram einstök fé-
lög, sem ýmist veittu þeim
jafnan leik meðan leikur stóð.
eða eins og t.d. Víkingar sýndu
sterkan leik í 50 mínútur af
þessum 60 sem hann stóð.
Við verðum að álíta að mark
sé takandi á samanburði við
þetta tékkneska lið, Það er
ekki efa bundið að það er gott.
Fyrir íslenzkan handknattleik
Frá hinum jafna og spennandi Ieik ísl. landsliðsins og Spartak Plzen í Iþróttahúsinu á Keflavíkur-
flugvelli. Sigurður áinarsson er að skora af línu Lengst til vinstri er Einar Sigurðsson. en varn-
armenn Tékka eru Herman (til hægri) og Duda.
íslandsmótið
hefst 14. des.
Islandsmótið í handknattleik
- i 1 * ,3^-,-.»-^ v. 1r T.oib-rt-
ar verða tvær umferðir í
meistaraflokki karla eins og í
fyrra. Þátttökutilkynningar
fvrir alla flokka þurfa að hafa
börizt til skrifstofu ÍBR fyrir
-3. nóvember n.k.
fjórðunga fallið mjög vel sam-
an og það virtist einnig sem
það hefði úthald með hraða
sem var í síðari hálfleik. Því
er ekki að neita að þessi
frammistaða úrvalsins kom
svolítið þægilega á óvart.
Það leyndi sér ekki að Spart-
ak var mjög gott lið, sem mað-
ur áleit að mundi varla njóta
sín í svo litlu húsi sem Há-
logaland er. Tékkunum tókst
ekki að ná því sem þeir ent
kunnir fyrir og það er að
brjótast í gegn með snöggum
óvæntum áhlaupum. Hin tvö-
falda vöm úrvalsliðsins hefur
sett þá svolítið út af laginu.
Stóra húsið breytti
ekki miklu
Það var því nokkur eftir-
vænting að sjá hvemig til tæk-
ist suður á Keflavíkurflugvelli.
er þeir léku í hinu stóra húsi
þar, en þar var það landsliðið
sem þeir áttu í höggi við.
Leikur landsliðsins var á
ýmsan hátt svipaður og Úr-
valsins kvöldið áður. Það átti
ágætan fyrsta stundarfjórðung-
inn. þar sem það hafði alltaf
heldur forustuna, en næsti
stundarfjórðungur var slappur
og notuðu Tékkar sér það og
höl'ðu 12:7 l háHMeik. En í ieik-
hléinu tókst landsjiðinu að
sameinast aftur og það snilld-
arbragð að jafna leikinn á síð-
ustu mín. leiksins, en hann
endaði 19:19. I þessum hálfleik
og betri en undanfarin ár um
þetta leyti.
Léku Hafnfirðingar með
miklum hraða og þá sérstak-
lega i síðari hálfleik, og var<í>.
sem Tékkar áttuðu sig ekki á
þessu óveðri. þvi að á fyrstu
10 mínútunum náðu þeir 5
marka forskoti. Stóðu leikar
þá 19:14 fyrir FH.
En er á leið tókst Tékkum
oft með sérstaklega góðum
leik, að jafna, og þó var einum
bezta manni Tékka vísað af
leikvelli þegar leikar stóðu
22:20. og sigur FH öruggur.
En Tékkar tóku fram sittbezta
og þótt 6 væru skoruðu þeir
3 mörk en FH aðeins 1 og lauk
leiknum með jafntefli 23:23.
Sannaði FH enn einu sinni
að liðið leikur mjög góðan
handknattleik, sem ógnar einu
bezta liði Evrópu.
1 tveim síðustu leikjunum
sem liðið lék að þessu sinni
voru mótherjarnir Víkingur og
Fram. Leikur Víkings var yf-
irleitt góður, nema síðustu 10
mínúturnar í fyrri hálfleik. en
þá stóðu leikar 11:11. en hálf-
leiknum lauk með 17:11, en
Víkingar komu tvíefldir eftir
leikhlé og unnu síðari hálfleik-
inn, og leiknum lauk með
70:21.
Leikur brain og Tékka vai
nokkuð harður. og var leik-
mönnum úr Fram vísað af
leikvelli. og komust Tékkar þá
uppi 10:5. en leiknum lauk
með 26:19 fyrir Spartak.
er þessi samanburður því mjög
hagstæður, og gefur til kynna
að handknattleikurinn á Is-
landi, miðað við það bezta. er
orðin býsna sterkur, bæði hvað
snertir tækni, skipulag, og
hraða. Þó er eins og manni
finnist að Tékkamir væru
mýkri í leikni sinni og svo-
lítið fjölbreytilegri.
Samanburður sem þessi er
okkur mjög hollur, og fyrir
landsliðið sem þegar er byrjað
að búa sig undir H.M. í hand-
knattleik í vetur er mikils
virði að fá að reyna krafta
sína á þessu augnabliki.
Sem sagt, handknattleikur sá
sem þetta tékkneska lið sýndi
er að kalla í sama flokki og
stór hópur handknattleiks-
manna hér sýnir. Það má því
til sanns vegar færa það sem
sagt hefur verið i gamni: Að
eini verulega frambærilegi út-
flutningurinn héðan væri:
Handknattleikur og fegurðar-
dísir!
ÍR má hafa þakkir fyrir að
hafa fengið þetta ágæta lið
hingað á þessu augnabliki fyrir
handknattleiksfólkið í heild
og landsliðið sem á nú fyrir
höndum að búa sig undir
harða heimsmeistarakeppni
síðar í vetur.
Skuggi á góðri heimsókn
Það er skuggi á þessari
ágætu heimsókn að gestimir
skyldu hafa í hótunum vegna
dómara. Að sjálfsögðu áttu
þeir, eins og góðum íþrótta-
mönnum sæmir. að virða úr-
skurði dómarans, og það þótt
þeir séu að einhverju leyti
öðruvisi og strangari en þeir
eiga að venjast. Allt fram að
þessu a.m.k. hafa Tékkar ekki
leikið þennan harða hand-
knattleik eins og t.d. Þjóðverj-
ar, og því virt þá stefnu að
fylgja anda laganna og leiks-
ins I umræddum leik, þegar
þeir reiddust Magnúsi Péturs-
syni fyrir dóma hans í leiknum
við Reykjavíkurúrvalið, var
það einmitt þessi harka sem
hann tók vægðarlaust, og frá
því sjónarmiði voru dómar
hans yfirleitt réttir. Hitt er
svo annað mál, að látbragð
Magnúsar og tilburðir voru á
þann veg, að ókunnugir gátu
misskilið manninn, og eru
vægast sagt fyrir mann í dóm-
arastöðu óheppilegir. I leikn-
um suður í Keflavík lagði
hann allt slíkt niður og dæmdi
eins og „engill", og höfðu
Tékkarnir ekkert við hann að
athuga sem dómara þar. eftir
að leikur hófst.
Frímann.
utan úr heimi
Kusnetsov
★ Sovézki tugþrautarmeist-
arinn Kusnetsov hefur á ell-
eftu stundu keppnistímabils-
ins komið á óvart með því að
kasta 85.11 m. í spjótkasti.
Þessum frábæra árangri náði
Kustnetsov í keppni í fyrri
viku.
★ Evrópumeistaraliðið f
handknattleik, Dukla Prag,
vann fyrir skömmu sigur yf-
ir vestur-þýzku meisturunum,
THW Kiel, með 18:7 (9:3).
Leikurinn var háður í Kiel,
en tékkneska liðið er á
keppnisferðalagi í Vestur-
Þýzkalandi um þessar mund-
ir.
LANDSLIÐ 0G PRESSU-
LIÐ KEPPA Á M0RGUN
Annað kvöld keppa bæði landslið karla og
kvenna við pressuliðin í handknat'tleik. Leikirnir
verða að Hálogalandi, og hefjast kl. 8.15.
Leikirnir verða háðir til á-
góða fyrir þau mörgu stórátök,
sem eru framundan í hand-
knattleik. Einnig verður þetta
styrkleikaprófun fyrir lands-
liðin, sem eiga ærin verkefni
framundan.
I landsliðsnefnd HSI eiga
þessir menn sæti: Fyrir lands-
lið karla: Frímann Gunnlaugs-
son, Bjami Bjömsson og Sig-
urður Jónsson. Landsliðið. sem
nefndin hefur valið til keppni
annað kvöld, er þannig skipað:
Hjalti Wnarsrr*' r":. ?"nTr>
Gústafsson (Þrótti), Birgir
Bjömsson (FH), Einar Sigurðs-
son (FH), öm Hallsteinsson
(FH). Gunnlaugur Hiálmarsson
(ÍR), Sigurður Einarsson
(Fram) Hörður Kristinsson (Á),
Sigurður Óskarsson (KR). Karl
Jóhannsson (KR) og Ámi
Samúelsson (Á).
Þess má geta að þeir Ragn-
ar Jónsson (FH) og Ingólfur
verið með vegna lasleika.
Óskarsson (Fram) geta ekki
Landsliðsnefndin sem velur
kvennaliðið er þannig skipuð:
Pétur Bjarnason Sigurður
Bjamason og Birgir Björnsson.
Kvennalandsliðið annað kvöld
verður skipað þessum stúlkum:
Jónína Guðmundsdóttir (FH),
Sigurlína Björgvinsdóttir (FH),
Sylvía Hallsteinsdóttir (FH),
Díana Óskarsdóttir (Á), Sigrún
Guðmundsdóttir (Val) Hrefna
Pétursdóttir (Val) og Sigrún
Ingólfsdóttir (Breiðablik).
Skipan pressuliðanna verður
væntanlega tilkynnt í blöðun-
um á morgun.
Skrífstofur vorar
verða lokaðar kl. 13—15 i dag vegna jaroaríarar.
SKIPAÖTGERÐ RÍXISINS.