Þjóðviljinn - 28.11.1963, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 28. nóvember 1963
HðÐVIUIHN
SIBA 3
Yfírlýsing Johnsons íorseta:
Fylgir kynþátta- og utan-
ríkismálastefnu Kennedys
ríska þjóðin yrði að vera reiðu-
búin til að vernda hagsmuni
þjóðarinnar og vinna saman að
sameiginlegum hagsmunum.
Sýnum þeim sem reyna á kjark
okkar að hann sé mikill og
þeim, sem leita vináttu okkar,
að hún sé traust.
„Eg get ekki borið byrðina
einn“
Morðingjakúla hefur lagt
þunga forsetaembættisins á
herðar mér. Eg er hér til að
segja ykkur, að ég þarfnast
hjálpar ykkar. Eg get ekki
Framhald á 2. síðu.
WASHINGTON 27/11 Lyndon B. Johnson, hinn nýi for-
seti Bandaríkjanna, hélt fyrstu ræðu sína fyrir þinginu
í dag og gerði grein fyrir stefnu sinni. Kvaðst hann munu
feta 1 fótspor Kennedys bæði í utan- og innanríkismálum.
Hvatti hann Bandaríkjaþing til að samþykkja frumvarp-
ið, sem Kennedy forseti barðist fyrir, frumvarpið um kyn-
þáttajafnrétti.
Ræðu nýja forsetans, Lyndon
B. Johnson, var tekið með
dynjandi lófataki, og varð hann
oft að gera hlé á ræðu sinni.
Fulltrúar Suðurríkjanna létu í
Ijós andúð sína á frumvarpinu
um kynþáttajafnrétti, með því
að taka ekki þátt í lófataki
hinna, er forsetinn hafði hvatt
þingið til að samþykkja frum-
varpið. Hins vegar þögðu allir
fultrúar Suðurríkjanna í þetta
sinn, er forsetinn kom inn í
salinn, en sumir þeirra eru van-
ir að gera hróp að forsetanum
og lýsa andstöðu sinni, er hann
gengur inn í þingsalinn.
Verðnm að rækja þá skyldn,
sem sagan hefur lagt okkur
á herðar
Bandaríska þjóðin hefur orð-
ið fyrir miklu áfalli, sagði
Johnson, og á þessu augnabliki
er það skylda okkar að sýna
öllum, að hinn skyndilegi missir
þjóðhöfðingja okkar veikir okk-
ur ekki, heldur styrkir. Við
eigum að feykja burt öryggis-
leysinu og hefjast handa, —
við megum ekki hika og ekki
binda okkur föst við þetta ó-
hugnanlega augnablik, heldur
verðum við að halda áfram á
þeirri braut, sem sagan krefst
af okkur. Við verðum að rækja
þá skyldu, sem sagan hefur
lagt okkur á herðar.
Frumvarp um kynþáttajafnrétti
Forsetinn hvatti þingmenn á-
kaft til að samþykkja frum-
varpið sem hinn látni forseti
Bandaríkjanna, Kennedy, barð-
ist fyrir alla sína forsetatíð.
Þetta er frumvarp um jafnrétti
allra kynþátta í Bandaríkjun-
um. Sagði hann, að ef þetta
frumvarp yrði samþykkt, mundi
það losa Bandaríkin við ljótan
blett, sem veikti þau bæði inn
á við og út á við.
Lækkun skatta
Johnson hvatti þingið enn-
fremur til að samþykkja frum-
varp um lækkun skatta. Stjóm
Kennedys lagði einnig fram
þetta frumvarp fyrir þingið og
er þar gert ráð fyrir. að
skattalækkunin nemi 11 millj-
örðum dollara. Þetta mundi, að
áliti flytjenda frumvarpsins,
hafa í för með sér aukið öryggi
fyrir hinar vinnandi stéttir í
landinu og aukna atvinnu.
Rækjum skyldu okkar gagnvart
bandamönnum okkar
Johnson lýsti því yfir í ræðu
sinni, að Bandaríkin muni
gegna öllum skyldum sínum við
bandamenn sína, allt frá Suður-
Víetnam til Vestur-Berlínar.
Einnig kvað hann utanríkis-
Cat Oswald skotii þrisvar
nteðan forsetinn ók framhjá?
NEW YORK 27/11. Sérfræðingar í meðferð skotvopna
hafa mótmælt því, að Oswald hefði getað hleypt af þrem-
ur skotum á þeim 5 sekúndum, sem bifreiðin var í skot-
færi. Austurríkismaðurinn Hubert Hammer, ólympíumeist-
ari í skotfimi fríhendis, hélt þessu meðal annars fram í
Vín í gær. Dagblaðið Corriere Lombardo í Mílano á Ítalíu
hélt því einnig fram i gær, að ómögulegt væri að skjóta
þremur skotum á 5 sekúndum af ítölskum riffli af gerð-
inni 38.
Herbert Hammer segir, að sér-
staklega sé ólíklegt að hann
hefði getað gert þetta með riffii.
sem er búinn kíki til miðunar.
Það krefjist nokkurs tima að
hlaða byssuna og miða aftur
milli skota.
Fonmaður bandaríska skyttu-
félagsins Leonard Davis sagði
fréttamönnum í gærkvöld, að
hægt væri að skjóta þremur
skotum á 5 sekúndum með þeirri
gerð af rifflum, sem Oswald var
Sagður hafa notað. En hann bætti
því við, að sá sem það gerði,
yrði að vera þaulvön skytta,
óg væiru þeir sennilega ekki
margir í heiminum, sem gætu
það. Davis sagði, að eftir því
að dæma hvernig Oswald hefði
staðið sig í sjóhernum, virtist
hann ekki vera nein afburða-
skytta. Nú eru 4 mánuðir síðan
Oswald hætti herþjónustu í sjó-
hemum. Davis segir. að hann
hafi mátt æfa sig af miklu
Kosningar í
Suður-Kðreu
SEUL, 27/11 — Svo virðist sem,
Park, forseti Suður-Kóreu og
herforingjaklíkan, sem þar hefur
verið við völd, hafi sigrað í
bingkosningunum. 1 dag var
búið að telja helming atkvæða.
Flokkur forsetans. Lýðveldis-
flokkurinn, hafði þá hlotið yfir
100 þingsæti af 175, en þátttaka
í kosningunum var mjög dræm.
kappi þessa fjóra mánuði til
þess að ná slíkri skotfimi. Menn
yrðu að vera afar snarir í snún-
ingum, því að til þess að hleypa
einu skoti af þessum riffli þyrfti
fjögur handtök.
Lögreglan í Dallas mótmælir
Seinna í gærkkvöld vísaði lög-
reglan í Dallas í Texas þeim
ummælum á bug, að Oswald
hefði ekki getað skotið þremur
skotum, meðan bifreið forset-
ans fór framhjá. Leynilögreglu-
maður nokkur heldur því fram,
að það taki aðeins örfáar sek-
úndur að hlaða riffilinn eftir
hvert skot, og kvikmyndin. sem
tekin var af bílalestinni hafi
sýnt, að bifreið forsetans var
20 sekúndur á þeim stað, sem
forsetinn var særður til ólífis.
Jim Bowie, varasaksóknari,
segist vel geta treyst sér til
að hlaða, miða og hleypa þris-
var sinnum af ítalska rifflinum,
á þeim 10 sekúndum, sem morð-
ið tók, Bowie sagði. að sann-
að væri, að skotið hefði verið
rólega og örugglega, og öllum
þremur skotunum hleypt af á
sjö til tíu sekúndum.
Frekari rannsókn
Saksóknari rík'sins í Texas,
Waggoner Carr, sagði í gær á
fundi með blaðamönnum í Dall-
as. að dómstóllinn. sem hefur
rannsókn málsins með höndum
muni sennilega koma saman i
Dallas. Dómstóilinn mun koma
saman innan skamms, úr því
Oswald er látinn og ekki er
hægt að höfða mál gegn hon-
um.
Herbert Miller. yfirmaður
sakamáladeildar bandaríska
dómsmálaráðuneytisins, var
einnig viðstaddur á blaðamanna-
fundinum. Hann sagði að Carr
saksóknari og dómsmálaráðu-
neyúð stefndu að sama marki,
og hefði Carr af fyrra bragði
efnt til fundar með fulltrúum
stjómarinnar í Washington, til
þess að tryggja að rannsóknin
færi fram í anda samvinnu.
Fulltrúar ríkisins og fulltrúar frá
Texas hafa komið sér saman um
að leyna hvem annan engum
upplýsingum, sem þeir fá.
Carr sagði, að hann áliti ekki.
að farið hefði veríð með rangt
mál að yfirlögðu ráði, eftir að
morðin á Kennedy og Oswald
fóru fram. Hins vegar sagðist
hann ekki sannfærður um að
allt væri rétt, sem komlð hefur
fram hingað til.
Er Texaslögreglan
samsek?
Haft er eftir talsmönnum rík-
islögreglunnar FBI, að rannsókn
málsins beinist nú að þremur
höfuðatríðum:
1) Var Lee Harvey Oswald
einn að verki eða var hann
þátttakandi 1 víðtæku samsæri?
2) Er lögreglan í Dallas með
í þessu samsæri og hefur hún
þá fómað Oswald eins og peði
í flókinni skák, þar sem höf-
uðpauramir eru andstæðingar
Kennedys í kynþáttamálum?
3 Og hver var hin raunveru-
lega ástæða til þess að Buby.
sem er í nánu sambandi við
undirheima glæpamanna í Tex-
as, myrti Oswald? Var það af
einskærri meðaumkun með fjöl-
skyldu Kennedys?
Bandarísk blöð fullyrða, að
ríkislögreglan hafi komist yfir
filmu, sem sýni, að tveir menn
hafi verið í herberginu, sem
skotið var úr. Texaslögreglan
hefur harðneitað þessum full-
yrðlngum.
verzlun eiga að aukast á næstu
árum. Bandaríkin muni halda
áfram að styðja Sameinuðu
þjóðirnar og sé unnið að áætlun
um aðstoð til þróunarlandanna
í Afríku, Asíu og Suður-Ame-
ríku.
Baráttu gegn þjóðfélags-
meinsemdum haldið áfram
Forsetinn lagði áherzlu á, að
baráttunni gegn ýmsum þjóðfé-
lagsmeinum, svo sem fátækt,
vesaldómi, menntunarleysi og
sjúkdómum, muni halda áfram.
Þessi barátta hafi verið háð
og verði háð bæði í sjálfum
Bandaríkjunum og utan þeirra.
„Vildi gefa aleiguna til að
standa ekki hér sem forseti“
Hinn nýi forseti minntist fyr.
irrennara síns, og sagðist vilja
gefa aleigu sína til að standa
ekki hér sem forseti. Hann sagði,
að John Kennedy lifði í hugum
og hjörtum landa sinna, vegna
ódauðlegra orða sinna og verka.
Sagði hann, að engin orð
fengju lýst tilfinningum Banda-
ríkjamanna yfir þeim sára
missi, sem þeir hefðu orðið fyr-
ir. Engin orð fengju heldur lýst
þeim ásetningi þjóðarinnar ,að
halda áfram þeirri stjórnmála-
þróun, sem hinn látni forseti
hennar hefði komið af stað.
Þær hugsanir og hugsjónir, sem
hann var göfugur fulltrúi fyrir,
yrðu nú að veruleika. Undir
stjórn Kennedys hefði banda-
ríska þjóðin sýnt, að hún hefði
kjark til að leita friðar og
styrk til að hætta á stríð. For-
setinn sagði, áð Bandaríkin
muni halda áfram að vinna að
friði og leita samninga við þá,
sem þau séu ósammála. Banda-
Lyndon B. Johnson hinn nýi forseti Bandaríkjanna, er frá Texas>
— ríkinu, þar sem Kennedy var myrtur. Texasbúar kusu hann
í fulltrúadeild þingsins 1937 og síðar í öldungadeildina. Kennedy
valdi hann sem varaforsetaefni einmitt af því að hann var Suður-
ríkjamaður og töldu ýmsir að val hans hefði gert gæfumunlnn,
því að mjög litlu munaði á Kennedy og Nixon í forsetakosnlng-
unum. Hér sést Johnson forseti I þjóðbúningi Texasbúa á búgarði
NY BOK
Heimsfræg bók sem
segir frá því hvernig
ljónskettlingur er tek-
inn í fóstur og alinn
upp af mönnum.
„Bókin er meistara-
verk í fullum skiln-
ingi orðsins. Sem frá-
sögn er hún ómót-
stæðilega fögur, sem
rannsókn á hegðun
dýra hefur hún mikla
þýðingu, og sem
dæmi um nærri því
fullkomið samkomu-
lag milli manns og dýrs er hún einstæð,“ segir náttúrufræð-
ingurinn Peter Scott.
Höfundurinn, Joy Adamson, hefur dvalizt í 25 ár
þar sem maður hennar hefur verið veiðimálastjóri.
í bókinni eru 80 myndasíður, þar af 7 í litum.
Verð kr. 270 + söluskattur.
BORIN
FRJÁLS
Ljónynja meðal manna og dýra
eftir JOY ADAMSON
Gísli ölafsson þýddi
Kenya,
HEIMSKRING L A