Þjóðviljinn - 03.01.1964, Blaðsíða 5
Föstudagur 3. janúar 1964
ÞJðÐVILIINN
SÍÐA g
▼
sitt af hverju
Smekklegt
dagatal
Oliufélagið Skeljungur h. f.
hefur gefið út dagatal fyrir árið
1964 og er þetta 6. dagatalið í
röðinni sem fyrirtækið gefur út.
Að þessu sinni er dagatalið helg-
að íslenzkri leiklist og fylgir
hverjum mánuði mynd úr ís-
lenzku leikriti. Fyrri dagatöl
Skeljungs hafa verið helguð ís-
lenzkum fuglum (1959). þjóðleg-
um minjum (1860). göblum þjóð-
lifsmyndum (1961), íslenzkum
gróðri (1962), og islenzkri skóg-
rækt (1963). Dagatalið er hið
smekklegasta að öllum frágangi.
Það er prentað hjá Hilmi h.f.
myndamót gerði Rafgraf h.f., en
Hörður Ágústsson listmálari
hefur annazt uppsetningu.
Auglýsið
í Þjóðviljanum
Hayes Jones
Sovétmanna taldar i þeim
Grisjin á 500 og 1500 m.,
Boris Stenin á 1500 m. og
Kositjkin á 5000 og 10000 m.
★ Frábær árangur náðist á
úrtökumóti Bandaríkjamanna
fyrir vetrarolympíuieikana.
500 m. karlar: T. McDermott
39.6 sek., Tom Gray 40.1 sek
1500 m. R. Wallace 2.14,9
mín. 500 m. konur: Jaine
Ashworth 44.4 sek., sem er
2/10 sek. betra en heimsmet
sovézku stúlkunnar Skobli-
kovu.
★ Bandaríska hnefaleika-
tímaritið „Ring Magazine"
liefur útnefnt Cassius Clay
hnefaleikara ársins. Keppni
Clay við Doug Jones var úr-
skurðuð „hnefaleikakeppni
ársins".
★ Bandaríski spretthlaupar-
inn Hayes Jones vann s.l.
Iaugardag 49. frjálsíþrótta-
sigur sinn í röð, er hann
vann 60 jarda grindahlaup á
7.2 sek. á innanhússmóti í
San Francisco. John Thomas
sigraði í hástökki — 2.16 m.
Jeff Chase vann stangar-
stökk — 4.87 m., en Formósu-
maðurinn Jang varð annar.
Phil Shinnick sigraði í Iang-
stökki — 8.09 m.. en Ralph
Boston varð að láta sér
nægja annað sætið. Parry
O'Brian varpaði kúlunni
18.31 m.
-A-l Valeri Brumel, heims-
methafi í hástökki, hefur
af sovézkum íþróttafréttarit-
urum verið kjörin „íþrótta-
maður ársins 1963“ í Sovét-
ríkjunum. Þetta er þriðja ár-
ið í röð, sem hann hlýtur
þennan titil. Annar á listan-
um í ár var hinn heimskunni
markvörður Lev Jasín 3) Juri
Vlasov, heimsmeistari og
methafi í lyftingum, 4) Lidia
Skoblikova, heimsmeistari í
skautahlaupi kvenna 5) Tigr-
an Petrosjan, heimsmeistari
í skák.
★ Japanir hafa nú valið 8
manna flokk til kcppni í
skantahlaupi á vctrarolymp-
íuleikunum. Þó er aðeins
einn þeirra talinn hafa mögu-
leika á verðlaunum — Fum-
io Magakubo, sem hlaupið
hefur 500 m. á 40.4 sek.
Jevgeni Grisjin, Sovétríkjun-
um, hefur hlaupið sömu
vegalengd tvisvar undir 40.0
sek. i ár.
SÁ BEZTI 1963
Lev Jasín
Aðalknattspyrnusérfræðingur
sænska íþróttablaðsins, sem
tók þátt í atkvæðagreiðslunni,
segir að Jasín sé til sóma fyr-
ir sovézkar iþróttir, og sé þá
mikið sagt.
Reynir Unnsteinsson HSK 9.30
Halldór Ingvarssotn IR 9.09
Kúluvarp:
Ólafur Unnsteinsson ÍR 12.98
Valbjöm Þorláksson KR 12.82
★ Á sovézku úrtökumóti í
skautahlaupi fyrir olympíu-
leikana sigraði ungur maður
óvænt í samanlögðum ár-
angri á öllum vegalengdum.
Það var Eistlendingurinn
Ants Antsson. Hann sigraði
í 3000 m.. varð annar í 1500
m. og þriðji í 5000 m. Ann-
ar lítt þekktur maður, Muak-
hidd Kabibulin, sigraði í 1500
m. á bezta tíma í heimi í ár
— 2.14,3 min. Þrátt fyrir
þessi úrslit, em helztu vonir
ÞANNIG STÖKK VALERI BRUMEL
2,28 M. í HÁSTÖKKI
Myndirnar að neðan sýna nákvæmlega
heimsmetsstökk Valeri Brumels s.l. sumar.
V. Djatsjkov, hinn heimsfrægi þjálfari
Brumels, skrifar eftirfarandi skýringar við
myndirnar:
Á myndinni er sýnt met-
stökk Valerís Brúmel, 2,28 m.
er hann náði á landskeppni
Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna í júlí 1963.
Valerf Brúmel er nú tuttugu
og eins árs. Hann er 1,85 cm.
á hæð, vegur 79 kg. Hann
hefur hvorki meira né minna
en tuttugu og fjórum sinnum
stokkið 2,20 m og þar yfir.
Þessi ágæti árangur og það
mikfla öryggi sem hann hefur
hvað eftir annað sýnt í keppni
eiga sér ýmsar forsendur: frá-
bæra almenna líkamlega þjálf-
im, hámákvæma framkvæmd
vel unninnar stökktækni, ein-
stakan viljastyrk og þrjózku-
fullt kapp í leið að settu marki.
Stökktækni Brúmels er
byggð á mjög hraðri atrennu
(7,5 m. á sek.). Á fyrstu sex
myndunum sjást frjálslegar ög
rösklegar hreyfingar íþrótta-
marmsins á síðustu skrefum
tilhlaupsins. Búkurinn hallast
þá lítið eitt framávið. Næst-
síðasta skrefið verður gleiðast.
1 þvi skrefi nær neðri hluti
búksins öxttum um leið og
hægri fótur er settur fram.
Tökum eftir hinni frjálsu stell-
ingu búksins. Það að bakvöðv-
ar eru ekki spenntir leyfir
Brúmel að ,,taka saman” lík-
amann um leið og hann stíg-
ur yfir á hægri fót. (Myndir
6—8).
Um þetta leyti taka hendurn-
ar að undirbúa sveiflu og upp-
stökk. I upphafi stöðu á hvílu-
fót (8. mynd) vísa báðar hend-
ur framávið og axlir eru enn
framar mjaðmagrind. Stökkv-
arinn ..veltur yfir“ sveiflufót-
inn og tekur að skjóta
mjaðmagrind fram á við (9.—
10. mynd). Stökkfætinum er
skotið langt fram á við. Hér
skiptir milclu máli að flýta sér
ekki um of við að setja stökk-
fótinn á jörðina. Lengd síðasta
skrefsins í beztu stökkum
Brúmels nær tveim metrum.
Þetta, ásamt hreyfingu mjaðm-
argrindar framávið, gefur bæði
langvinnan stuðning í upp-
stökki og varðveitir um leið
hraða líkamans framávið.
Undir áhrifum „þrýstings-1
líkamans og réttingar fótarins
í mjaðmagrind bognar hnjá-
liðurinn en þó svo að rétting-<$-
arvöðvar í læri eru enn í full-
um gangi. (myndir 12—13).
Áframhaldandi álag á stökk-
fótinn fer saman við að það
er rétt úr honum og frjálsa
fætinum og höndum sveiflað
(13.—16. mynd). Tökum eftir
hinni frjálsu en um leið ein-
beittu stellingu búksins, sem
er mjög „saman dreginn" á
meðan á öllu stökkinu stendur
og tekur því betur við krafti
stökksins. Á 17. mynd sést
lofttak stökkvarans. Einbeitt
hreyfing upp á við sameinast
hreyfingum sem færa stökkv-
arann i lárétta stöðu.
Sveiflufóturinn, sem hefur
verið sendur upp með rösklegri
hreyfingu, dregur með sér
neðri hluta búksins. Um leið
snýst stökkvarinn um lengdar-
ás sinn að ránni (18. mynd).
Síðan reynir hann að fara yf-
ir rána með sem mestri og
beztri nýtingu stökkkraftarins.
Flug Brúmels yfir rána er
ekki ávirðingalaust: hér má <$>
nefna óvirkni stökkfótarins
sem stökkmaðurinn dregur upp
til vinstri axlar samfara
hreyfingu hnésins framávið.
Þessi hreyfing lengir leið
stökkfótarins og þvi verður
hann heldur lengi yfir ránni.
Réttara væri að draga hæl
stökkfótar á áttina til sveiflu-
fótar án þess að skjóta hnénu
framávið.
Lev .Tasín, markmaður sov-
ézka landsliðsins og knatt-
spyrnuliðsins Dynamo í
Moskvu, hefur verið kjörinn
„bezti knattspyrnumaður í
Evrópu árið 1963“. Það er
franska knattspyrnutímaritið
„France Football", sem skipu-
leggur þessa atkvæðagreiðslu
árlega og taka þátt i henni
kunnustu knattspyrnufréttarit-
arar og sérfræðingar í flestum
löndum Evrópu. í fyrra var
það Tékkinn Masopust sem
hlaut þennan heiðurstitil.
Lev Jasín hefur vakið al-
þjóðlega athygli nú á annan
áratug, og enn er hann í fullu
fjöri. í keppni „heimsliðsins“
gegn enska landsliðinu s.l.
haust vakti Jasín mesta at-
hygli, en þá varði hann m.a.
vítaspyrnu.
Hann segist ekki ráða yfir
neinum leyndardómi, sem sé
lykillinn að frábærum árangri.
Hann segir að einbeitni og vilji
séu höfuðatriðin hjá hverjum
góðum markmanni. Á eftir
koma svo hæfileikar eins og
lipurð, fimi, viðbragðsflýtir o.
s.frv. Ennfremur sé það stórt
atriði að kynna sér andstæð-
inginn og skotaðferðir hans.
Innanhússmót í
frjálsíþróttum
Gáður árangur náðist
á Innanhússmóti ÍR í
frjálsum íþróttum s.l.
laugardag.
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
Langstökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson 3.38 m.
(Jafnt Islandsmetinu)
Halldór Ingvarsson IR 3.19
Reynir Unnsteinsson HSK 3.11
Halldór Jónsson ÍR 3.03
Hástökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson 1.70
Halldór Ingvarsson lR 1.60
Valbjörn Þorláksson KR 1.60
Hástökk með atrennu:
Jón Þ. Ólafsson 2.00
Valbjörn Þorláksson KR 1.80
Halldór Ingvarsson ÍR 1.75
Erlendur Valdemarsson 1.70
Þrístökk án atrennu
Jón Þ. Ólafsson 9.30