Þjóðviljinn - 18.01.1964, Page 1
Laugardagur 18. janúar 1964 — 29. árgangur — 14. tölublað.
CERIÐ SKIL IDAG!
Þeir sem ekki eru enn búnir að gera skil í Happdrætti Þjóðviljans 1963 eru
vinsamlega beðnir að gera skil í dag svo að hægt verði að birta vinningsnúm-
erin í happdrættinu. Skrifstofan að Týsgötu 3 verður opin í dag kl. 9—12 og
1—3 e.h.
Happdrætti Þjóðviljans.
JT
Arekstur á hættusvæði
Ungir Panamaoúar með fána sinn á lofti.
— Sjá erlend tíðindi á 7. síðu
Tvö alvarleg um-
ferðarslys í gær
Tvö alvarleg umfcrðaslys urðu
f Reykjavík í gær. KI. 16.15
varð Magnús Jakobsson fyrír
bíl í Suðurgötu, og meiddist ai-
varlega. Þá varð Karl Laxdal
fyrir bíl við Miklatorg síðari
hluta dags, og eru meiðsli hans
einnig talin alvarleg.
Magnús Jakobsson er 68 ára
að aljjri, fæddur 1896. Magnús
var að virrna við að sópa Suður-
götuna, er slysið varð. Segist
bílstjórinn ekki hafa séð Magn-
ús fyrr en hann varð fyrir bíln-
um. Magnúg var fluttur á Landa-
kot. Er hann tvílærbrotinn, en
hefur auk þess hlotið höfuð-
meiðsl. Magnús var meðvitund-
arlaus í gærkvöldi.
Karl hlaut alvarleg höfuð-
meiðsl og var einnig fluttur á
Landakot.
Féll niður í bát
og hryggbrotnaði
■ í fyrrinótt um kl. hálf tvö varð það slys við höfn-
ina að tveir menn féllu út af Grandagarði. Annar maður-
inn féll í sjóinn og var honum bjargað frá drukknun
fyrir snarræði leigubílstjóra og lögreglumanns en hinn
maðurinn lenti á borðstokk báts er lá við garðinn og hrygg-
brotnaði. Var hann fluttur 1 sjúkrahús.
Nýr ásfeyfingarsfeinn i sambúSinni viS Bandarikin
Frakkastjórn ákveður að
viðurkenna
Alþýðu-Kína
PARÍS 17/1 — Það er haft eftir góðum heimild-
um í París að franska stjómin hafi tilkynnít þeirri
bandarísku að hún hafi ákveðið að viðurkenna
alþýðustjórnina í Peking. Engin opinber tilkynn-
ing hefur verið gefin út um þetta og talsmaður
Bandaríkjastjómar varðist í gær allra frétta.
Þessi ákvörðun frönsku stjómarinnar kemur ekki
á óvart, en búizt er við að það kunni að dragast
nokkuð að formlegu stjómmálasambandi verði
komið á milli ríkjanna.
Ljóst er af viðbrögðum Banda-
ríkjastjómar að hún er lítt. hrif-
in af þessari ákvörðun frönsku
stjómarinnar. Talsmaður John-
sons forseta sagði í gær þegar
fréttamenn báru undir hann tíð-
indin frá París, að Bandaríkja-
stjóm hefði ekki fengið neina
opinbera tílkynningu um fyrir-
ætlanir Frakka. en tók þau um-
mæli síðar aftur og sagði í stað-
inn að stjóm hans vissi ekki til
þess að Frakkland hefði viður-
kennt stjómina í Peking. Frétta-
menn töldu að svarað væri út
Framhald á 3. síðu.
Um kl. 1.30 i fyrrinótt kom
leigubílstjóri á lögreglustöðina
og skýrði svo frá að hann hefði
séð mann detta í sjóinn út af
Grandagarði. Hafði hann ekið
tveim piltum út á Grandagerð
og voru þeir að fara til skipg. og
sá hann er hann var að aka
burt að annar þeirra féll út
af garðinum. Ók hann beina leið
á lögreglustöðina og tilkynnti
um atburð þennan.
Ármann J. Lárusson glímu-
kappi og lögregluþjónn fór þeg-
ar á vettvang með bifreiðastjór-
anum. Kastaði Ármann sér þeg-
ar í sjóinn eftir manninum op
Framhald á 2. síðu
Ágúst Ilafberg forstjóri Landleiða við stýri eins Hafnarf jarðar-
vagnsins í gærdag. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Brunaliðsmenn að slökkvistarfi að Klömbrum í gær. ■— (Ljósnv
Þjóðv. A.K.).
Kveikt í heygeymslu
að Klömbrum?
Kl. 12.39 í gær var slökkvilið-
ið kvatt að klömbrum við Rauð-
arárstíg. Hafði komið þar upp
eldur í útíhúsi sem notað er fyr-
ir hesthús og heygeymslu. Virð-
ist hafa kviknað í vegg hey-
geymslunnar. Fjórir hestar voru
inni i hesthúsinu er eldurinn
kom upp og var a.m.k. einn
þeirra orðinn allilla haldinn
af reyk er þcim var hleypt út.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar virðast allar
líkur benda ti'l þess að hér hafi
verið um íkveikju að ræða.
Nokkru áður en eldsins varð
vart að Klömbrum sást til 12
til 13 ára drengs er var að reyna
að kveikja í bréfum í ösku-
tunnum við húsin nr. 64 og
66 við Hringbraut. Hljóp dreng-
urinn siðan yfir á Klambratún-
ið og í átt að Klömbrum. Um
það bil 10 mínútum síðar sást
að kviknað var í þar. Biður
rannsóknarlögreeglan alla þá
I sem kynnu að geta gef ið ein-
Samþykkt frumdrög
að sáttmála um að
skerða landhelgina
Sjó síðu
VIÐTÆKT VERKFALL SER-
LEYFISBÍLSTJÓRA HAFIÐ
hverjar upplýsingar í
sambandi að gefa »ig fram.
Talsverðar skemmdir urðu á
heyinu af eldi og vatni og eirm-
ig skemmdist heygeymslan tals-
vert. Hestana mun hins vegar
ekki hafa sakað. Eigandi hús-
anna er Ólafur H. Pálsson og
átti hann einnig tvo hestanna
en tveir menn aðrir áttu hia
hestana.
Verkfall bílstjóra á sérleyfis-
bifreiðum hófst á miðnætti 1
fyrrinótt, aðfaranótt föstudags-
ins. Stendur kaupdeilan í raun-
inni um kaup og kjör sérleyfis-
bílstjóra um allt land, en snert-
ir þó fyrst og fremst bflstjórana
á leiðinni milli Reykjavikur og
Hafnarfjarðar, Suðurnesjaleið-
irnar, austurleiðir frá Reykjavík
og norðurleiðina.
Á þessum leiðum hefur sér-
leyfisakstur verið stöðvaður.
Forstjóri Land'leiða. Ágúst Haf-
berg, ók sjálfur eitthvað á leið-
inni milli Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar í gær, og höfðu bíl-
stjórar við orð að raunar hefði
forstjórinn gott af því að kynn-
ast hvað það væri að aka á
þeirri leið.
Landleiðir höfðu uppi í gær
ýmsa tilburði til verkfallsbrota,
sem voru stöðvuð, og gekk fram-
kvæmd verkfallsins yfirleitt vel,
að því er blaðið frétti.
•k Meðlímur í Frama!
Frá Norðurle'ð var Þjóðviljan-
um tilkynnt í gær að á þeirri
leið yrðu óbreyttar ferðir, tvær i
viku, á þriðjudögum og föstu-
dögum, og myndi Birgir Ágústs-
son. framkvæmdastjóri Norður-
leiða aka.
Sá hængur mun þó á þeirri
fyrirætlun að nefndur Birgir
Ágústsson mun enn vera með-
limur í Bifreiðastjórafélaginu
Frami, sem í verkfallinu stend-
ur, og hefði því ekki samkv.
vinnulöggjöfinni leyfi til að
vnna í verkfallinu, og verður
væntanlega haldið að réttum
lögum.
Borgarstjóm sam-
þykkir tillögu
Öddu Bám:
Aukin skólu-
fræðslu um
bindindismál
Á fundi borgarstjórnax
Reykjavíkur í fyrrakvöld
var cinróma samþykkt eft-
irfarandi tillaga um aukna
bindindisfræðslu, sem
Adda Bára Sigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins bar fram:
„í því skyni að vinna
gcgn áfengis- og tóbaks-
notkun unglinga ákveður
borgarstjórnin að auka
notkun kvikmynda við
bindindisfræðslu í skólum.
Jafnframt felur borgar-
stjórnin borgarlækni og
fræðslustjóra að kanna
möguleika á því að fá
lækna tíl að taka upp kerf-
isbundinn þátt í fræðslu
skólanna um áfengi og
tóbak”