Þjóðviljinn - 22.02.1964, Síða 1
Laugardagur 22. febrúar 1964 — 29. árgangur — 44. tölublað.
Aðvörun til
foreldra
30-40
hvellhettum
stolið
★ Milli klukkan 12 og 12.30
í gær var stolið 30-40 kveikju-
þráðum með hvellhettum úr
bíl er stóð hjá grunninum
vestan við Xðnskólann en þar
er nú unnið að sprenging-
um.
★ Grunur leikur á um það
að krakkar hafi verið hér að
verki og eru foreldrar aðvar-
aðir um að gefa því gætur
ef þau verða vör við að böm
þeirra hafi slíka hluti undir
höndum því að stórslys getur
af þvi leitt. Hvellhetturnar
eru ca sex sm langar og lík-
ar blýanti í lögun og fylgja
þeim eins og áður segir
kveikjuþræðir.
Hefndarverðhækkanirnar
dynja yfir daglega:
Viðræium SAS og
Loftleiða lokið
| | í fyrradag lauk viðræðum fulltrúa SAS og Loftleiða
sem staðið höfðu yfir í tvo daga hér í Reykjavík og héldu
SAS-ménnirnir utan aftur í gærmorgun.
| | í gær barst Þjóðviljanum svohljóðandi tilkynning frá
Loftleiðum um viðræðumar:
ARNE WICKBERG forstjóri Sví-
þjóðardeildar SAS og einn af
mestu áhrifamönnum félagsins
hafði forustu fyrir samninga-
nefndinni sem hingað kom. —
LÍFSNAUÐSYNJAR HAFA NU
HÆKKAÐ UM ÞRJÁ FJÓRÐU
□ Hefndarverðhækkanir ríkisstjórnarinnar dynja nú yfir daglega.
janúarmánuði hækkaði vísitala framfærslukostnaðar um fjögur stig og er
komin upp í 153 stig.
„Fulltrúar Ixjftleiða og SAS
hafa dagana 19.-20. fébrúar hald-
ið fundi í Reykjavík í þeim til-
gangi að kynna sér sameiginlega
annars vegar verðlagsgrundvöll-
inn og kostnaðarhlið norræn3
flugs yfir Norður-Atlanzhaf, og
hins vegar til þess að rannsaka
möguleika fyrir samvinnu.
Umræðumar fóru fram £
hreinskilni og vinsemd og hefur
árangurinn orðið sá, að báðir
aðilar hafa gert ljósa afstöðu
sína til vandamálanna.
Fulitrúar flugfélaganna munu
nú láta flugmálastjómum í té
greinargerðir. Flugmálastjómir
Islands og Norðurlandanna munu
hittast í náinni framtíð til þess
að halda áfram viðræðum“.
Allir Iiðir vöru og þjónustu
hækkuðu í janúarmánuði.
Vísitalan fyrir ,,matvörur“
hækkaði um hvorki meira né
minna en sjö stig og er nú
komin upp í 187 stig. Það
vantar þannig ekki mikið
upp á að niédvæli hafi tvö-
faldazt í verði í tíð viðreisn-
arstjórnarinnar.
Vísitalan fyrir „hita, rafmagn
o. fl.“ hækkaði um tvö stig
og er nú 148 stig.
Visitalan fyrir „fatnað og
SIGURBJORN HLAUT 20
MÁN. FANGELSISDÓM
□ í gær var kveðinn upp í Sakadómi Reykjavíkur af
Halldóri Þorbjörnssyni sakadómara dómur í máli Sigur-
bjarnar Éiríkssonar veitingamanns og tveggja fyrrverandi
gjaldkera við Lanasbankann. Sigurbjöm var dæmdur í 20
mánaða fangelsi fjrrir fjársvik en gjaldkeramir vom báð-
ir sakfelldir fyrir hirðulcysi i opinbem starfi. Var ann-
ar dæmdur í 30 daga varðhald skilorðsbundið en refsing
hins var látin falla niður.
I forsendum fyrir dóminum
6egir að Sigurbjöm E'ríksson sé
dæmdur fyrir brot á 248. grein
almennra hegningarlaga en hún
fjalla um fjársvik. Er honum
Dræm síidveiði í
Meðallandsbugt
Síldveiði í fyrrinótt var með
dræmara móti og fengu uítján
skip um átta þúsund tunnur.
Stór Ioðnugangur gékk á síldar-
miðin á Meðallandsbugt £ gær
og torveldar síldveiði. Er nær
ógerlegt að greina á milli loðnu
og síldar á lcitartækjum bát-
anna og erfitt að fá Ioðnu í síld-
arnót.
Afli einstakra báta fer hér á
eftir:
Ófeigur II 400, ögri 200, Guð-
mundur Þórðarson 100, Harald-
ur 500, Höfrungur II 600. Reynir
200, Sólrún 700, Vigri 900, Helgi
Flóventsson 800, Mánatindur 100,
Ólafur Magnússon 1100, Kópur
500. Guðmundur Pétursson 700,
Engey 250, Bára 200, Þorgeir
200, Guðbjörg 300, Jón á Stapa
200., Vonin KE fékk 1800 tunnur
af loðnu í nótt og landaði henni
1 bræðslu í Keflavík.
Flokkurinn
Deildarfundir verða á mánu-
dagskvöld. Formannafundur
verður klukkan sex síðdegis
i dag. — Sósíalistafél. Rvíkur.
verjenda sinna Amar Clausen
og Gunnlaugs Þórðarsonar.
Verjendur Sigurbjarnar og
Garðars áskildu sér rétt til að
áfrýja dómnum til hæstaréttar
innan tilskilins tíma.
álnavöru" hækkaði um þrjú
stig í janúar og er nú 150
stig.
★ Vísitalan fyrir „ýmsa vöru og
þjónustu" hækkaði um sex
stig og er nú 177 stig.
* Að meðaltali hækk-
aði vísitalan fyrir vör-
ur og þjónustu um
sex stig í janúarmán-
uði og er nú 174 stig.
Almennar nauðsynj-
ar vísitölufjölskyld-
sfinnar hafa þannig
hækkað um því sem
næst þrjá fjórðu af
vöídum viðreisnar-
stjórnarinnar.
Sex innbrot voru
framin í fyrrinótt
1 fyrrinótt voru framin sex
innbrot hér i borg og benda all-
ar líkur til þess að sami maður
eða menn hafi verið að verki á
fimm staðanna.
Fyrst hefur þjófurinn brotizt
inn í Áhaldahús Reykjavíkur og
braut hann þar og bramlaði allar
læsingar er á vegi hans urðu en
hafði ekki annað upp úr krafs-
inu en eina flösku af brennslu-
spritti. Næst hefur hann brotizt
inn f Ræsi og mölvaði hann þar
tvær hurðir og braut upp borð-
peningakassa og stal úr honum
200 krónum í peningum. Einnig
fór hann inn í herbergi verzlun-
arstjórans og réðist þar á skjala-
skáp og eyðilagði efstu skúffu
hans en gafst síðan upp. I næstu
skúffu var hins vegar geymdur
talsverður sjóður af peningum.
Þá brauzt þjófurinn inn í tvö
fyrirtæki að Skipholti eitt og
braut þar alls fjórar hurðir. Náði
hann 500 krónum í peningum
í öðru fyrirtækinu en nokkrum
gömlum nælonsokkum í hinu.
Loks brauzt hann inn í fyrir-
tækið Chemia að Höfðatúni 10.
Braut hann þar upp þrjár hurðir
og sprengdi upp gamlan pen-
ingaskáp er notaður var sem
skjalaskápur.
Sjötta innbrotið var framið í
Borgarþvottahúsið en ekki er vit-
að fyrir víst hvort einhverju
hefur verið stolið þar.
gefið að sök að hafa dagana 19.
20. og 21. september sl. selt
Landsbankanum sex innstæðu-
lausa tékka samtals að upphæð
kr. 1.925.000.00. Hann er hins
vegar sýknaður af ákæru um
hlutdeila í brotum hinna með-
ákærðu gjaldkera. Til frádráttar
20 mánaða fangelsisvist harys
kemur 19 daga gæzluvarðhalds-
vist. Engar fjársektarkröfur á
hendur Sigurbimi voru hafðar
uppi fyrir dómnum enda hefur
Landsbankinn sótt bótakröfur
sínar á hendur honum í saka-
máli og koma þær því ekki til
greina í sambandi við refsimálið.
Honum var hins vegar gert að
greiða málsvamarlaun, krónur
4500.00 til verjanda síns, Jóns
Magnússonar lögmanns.
Eins og áður segir voru hinir
meðákærðu gjaldkerar báðir
fundnir sekir um brot á 141.
grein almennra hegningarlaga
fjrrir stórfellt hirðuleysi í opin-
beru starfi. Var annar þeirra,
Garðar Sigurgeirsson dæmdur í
30 daga varðhald skilorðsbundið
en refsing hins gjaldkerans, Mar-
inós Hafsteins Sveinssonar var
felld niður þar eð brot hans
var eigi talið stórfellt.
Báðir voru þeir sýknaðir af
ákæru um misnotkun á aðstöðu
sinni í eiginhagsmunaskyni. í
forsendum dómsins kemur það
fram að litið er á gjaldkerana
sem opinbera starfsmenn. Þá er
brotvikning þeirra úr starfi höfð
til hliðsjónar við ákvörðun refs-
ingarinnar. Þeim var oc báðum
gert að greiða málsvarnarlaun til
I
*
TRESMIÐIR! KJ0SIÐ DUGMIKLA
0G SAMHENTA FÉIAGSSTJÓRN!
| | Trésmiðirnir ganga í dag og á
morgun til stjórnarkosninga, og
munu staðráðnir að tryggja félagi
sínu farsæla og samhenta stjórn
með því að stuðla að sigri A-list-
ans, Jóns Snorra Þorleifssonar og
félaga hans.
| | Kosið er á skrifstofu félags-
ins Laufásvegi 8, í dag (laugardag)
frá kl. 2 e.h. til kl. 10 en á morg-
un (sunnudag) kl. 10-12 og kl. 1-10.
Q] B-listamennirnir í Trésmiðafé-
laginu fóru hinar mestu hrakfarir
á kosningafundinum í Tjarnarbæ á
dögunum og fengu aðeins 4 at-
kvæði með tillögu, sem átti að
kanna undirtektir fundarmanna við
gagnrýni þeirra á starfi stjórnar-
innar. Grobb þeirra í Mogga og
Vísi um frammistöðu sína á fund-
inum minnir því einna helzt á
hann sem sagði: Sáuð þið hvernig
ég tók hann!
Sjá nánar viðtal við Jón Snorra á 2. síðu
I
I
I
I
V