Þjóðviljinn - 22.02.1964, Side 3
Laugardagur 22. febrúar 1964
ÞJÓÐVILJINN
- SlÐA 3
Ný bandarísk kaf-
bátastöð á Spáni
HOLY LOCH 21/2 — Bandaríkjamenn hafa ákveðið að
koma sér upp nýrri pólaris-kafbátastöð á Spáni. Kafbáta-
stöðin verður í Cota á strönd Atlanzhafsins. Var áður
meiningin að nýju kafbátamir hefðu bækistöð á Skotlandi,
Holy Loch, en síðan hafa nýir samningar náðst með Spán-
verjum og Bandaríkjamönnum.
Ótryggt ástand við Miðjarðar-
hafið
Bandaríkin skýra þessa nýju
fyrirætlun sína með því, að „á-
Kúbönsku sjó-
mennirnir
komnir heim
HAVANA 2172 — Kóbönsku
sjómennirnir, sem nýlega voru
dæmdir í Bandaríkjunum fyrir
ólöglegar veiðar, komu til Hav-
ana í dag. Þeir höfðu greitt
skaðabæturnar, sem þeim voru
dæmdar. eða 500 dollara hver.
Fidel Castro var niðri á hafn-
arbakka til þess að taka á móti
þeim. ásamt miklum mannfjölda.
Síðan var haldinn blaðamanna-
fundur og skýrðu sjómennimir
frá því, að fánunum hafi verið
stolið af öllum bátunum og ýmsu
tauslegu, einnig hafi bátar þeirra
orðið fyrir tjóni á meðan þeir
tágu við. Sagði einn sjómann-
»nna. að Bandaríkjamenn væru
gannkaliaðir sjóræningjar. Ann-
ars sögðust beir ekki hafa sætt
slæmri meðferð, en hins veg-
ar hefði þeim verið boðnir 300
dollarar. ef þeir vildu verða eftir
í Bandaríkjunum.
standið við Miðjarðarhafið sé af-
ar ótryggt". Nú þykir kafbáta-
stöðin á Skotlandi of langt frá
Miðjarðarhafinu. Fyrir einu ári
síðan tilkynnti Bandaríkjaher
spönsku stjórninni, að hann
hefði ekki lengur þörf fyrir
spönsku herstöðvamar fyrir pól-
ariskafbáta, heldur mundi haldið
Nœsti maður?
LOS ANGELES 21/2 — Lögregl-
an f Los Angeles sneri sér til
leyniþjónustunnar vegna nokk-
urra unglinga, sem handteknir
voru af hreinni tilviljun og
reyndust þá vera með fullan bíl
af nazistabæklingum. Ungiing-
arnir voru stöðvaðir af umferða-
lögreglunni, sem þá sá, að þau
voru með heilt bílfermi af naz-
istaáróðri, myndum af Hitler og
riffil og 500 skot. Á einum bækl-
inganna var mynd af Johnson.
þar sem riffli var miðað á hann.
Undir myndinni stóð: Næsti mað-
ur?
Hafði fimm nýru
þegar hún lézt
PORTLAND, Oregon — Enn
einu sinni hefur bandarískum
læknum mistekizt að bjarga
lífi nýrnasjúklings með því að
græða í hann heil nýru. Fer-
tug kona lézt á sjúkrahúsi f
Portland fyrir helgina og var
þá með fimm nýru.
Hún gekkst undir fyrstu að-
gerðina 21. janúar, þegar bæði
nýru hennar biluðu. Tvö apa-
nýru voru þá grædd í hana,
en hennar eigin ekki tekin úr
henni. Apanýrun unnu ekki
eins og vonir höfðu staðið til,
og var þá grætt f hana nýra
úr manni, sem vegna meiðsla
hafði ekki gagn af nema öðru
nýra sínu. Þessi aðferð mis-
tókst líka og lífi sjúklingsins
varð ekki bjargað.
Skátahátíð
1 dag, 22. febrúar, verður
Lady Baden Powell, alheimsfor-
ingi kvenskáta 75 ára.
Lady Baden Powell hefur þris-
var heimsótt íslenzka skáta og
nú síðast 1962, þegar haldið var
upp á 50 ára afmæli skátahreyf-
ingarinnar á íslandi.
Lady Baden Powell var kona
Lord Baden Powell of Gilwell,
sem var stofandi skátahreyfing-
ingarinnar.
Lady Baden Powell hefur frá
fyrstu tíð helgað starfskrafta
sina skátahreyfingunni og enn
í dag er hún á stöðugum ferða-
lögum.
Sýningu Þórðar lýkur annað kvöld
áfram að stjóma þeim frá Holy
Loch Er hér um þrjá pólariskaf-
báta að ræða, sem nota á á Mið-
jarðarhafssvæðinu.
Lúta ekki stjóm NATÓ
Það var yfirmaður bandarísks
birgðaskips, sem fór frá Holy
Loch í morgun, sem fyrstur
skýrði frá þessu. Sagði hann, að
birgðaskipið væri að flytja birgð-
ir til Cola og væri tilgangurinn
að koma þar upp kafbátastöð.
Stjóm bandaríska flotans
skýrði síðan frá því, að nýju
kafbátamir muni ekki lúta
stjórn Atlanzhafsbandlagsins, —
heldur aðeins Bandaríkjanna.
Kafbátastöðin verður við strönd
Atlanzhafsins í herbækistöð
Bandaríkjamanna, Cota.
Inönu varsýntbana-
tílræði í dag
ANKARA 21/2 — Forsætisráðherra Tyrklands, Ismet In-
önu, slapp naumlega í dag, er gerð var tilraun til þess
að ráða hann af dögum. Skotið var á ráðherrann á 3ja
metra færi en ekkert skotanna hæfði í mark. Inönu er
áttræður að aldri.
Forsætisráðherrann var á leið-
inni til þings í bifreið, þegar
skotið var að honum fjórum
skotum. Maðurinn, sem skaut
hafði bersýnilega ekki fengið
slíka þjálfun, sem þekkist í
Texas. því þótt hann væri ekki
nema í þriggja metra fjarlægð
frá bifreiðinni geiguðu öll skot-
in.
Inönu hélt ferð sinni áfram
eins og ekkert hefði í skorizt
og talaði síðan til þjóðarinnar
í sjónvarpi skömmu síðar.
Maðurinn, sem skaut að ráð-
herranum var þegar í stað hand-
tekinn og kom í ijós, að hann
var rafvirki, Suma að nafni.
Kvaðst hann andvígur stjóm
Inönu, og hafa verið ákveðinn
í að drepa ráðherrann frá því
hann steypti Menderes af stóli.
Kvikmyndasýning
Umferðaröryggi — Bifreiðatækni
Laugardaginn 22. febr. 1964 kl. 15 efnir Fél.
ísl. bifreiðaeigenda til kvikmyndasýningar
í Gamla Bíó, um umferðarmál og bifreiða-
tækni. Þessar myndir verða sýndar:
•
1. Akstur í hálku, íslenzkt tal '(20 mín.)
2. Afmælisflýtir, enskt tal (15 mín.)
3. Blöndungurinn, íslenzkt tal ( 8 min.)
4. Hindrun óhreininda í blöndungi, isl. tal ( 8 mín.)
5. Kertin, íslenzkt tal ( 8 mín.)
6. Kveikjan, íslenzkt tal '( 8 mín).
7. Rafkerfið, íslenzkt tal ( 8 min.)
Munið: Sýningin hefst kl. 15 í Gamla Bíó.
Félagsmenn fjölmennið, fræðist um bif-
reiða tækni og umferðaröryggi. — Aðgang-
um ókeypis. Stjórn FÍB.
Ödýrar
kvenkápur
með eða án skinna
til sölu. —
Sími 4-11-03.
Málverkasýningu Þórðar Hall-
dórssonar í Bogasal Þjóðminja-
safnsins lýkur kl. 10 sunnudags-
kvöld. Hafa um 40 myndir selzt
af þeim 54 sem voru á sýn
ingunni og yfir 2.000 gestir sótt
sýninguna, að því er Þórður
tjáði Þjóðviljanum í gær. Kvað
hann Kjarval hafa verið meðal
sýningargesta í gær, hefði hann
staðið lengi við og verið hinn
ánægðasti.
Myndin liér fyrir ofan er af
einu málverki Þórðar.
Pólskt þakjárn
fyrirliggjandi.
Verð kr. 13,99 fetið.
HELGI MAGNÚSSON & Co.
Hafnarstræti 19. — Símar 13184 og 1722’!.
— Elsta byggingavöruverzlun landsins. —
Vélstjóra vantar
á 70 lesta bát sem rær með net frá Hafnar-
firði. — Upplýsingar í síma 3-66-53.
Vörugeymslu- og
verkstœðishurðir
Smíðum allar stærðir af bílgeymslu- og porthurð-
um. Hagkvæmt verð. Stuttur afgreiðslufrestur.
Hurðirnar eru leikandi léttar í meðförum. Allt
járn sandblásið og galvaniserað.
Getum framleitt upp í 30 ferm. að stærð.
Leitið upplýsinga og tilboða.
VélsmiSjan JÁRN h/f
Síðumúla 15. — Símar 34200 og 35555.
Stimplar og stimplavörur
BLEKPUÐAR:
5 stærðir, 5 litir, 2 tegundir.
BLEKGLÖS
2 stærðirt 5 litir.
DAGSETNING ARSTIMPL AR:
5 gerðir.
VASASTIMPLAR:
3 stærðir, 2 tegundir.
VERÐSTIMPL AR:
4 stærðir, 2 tegundir.
TÖLUSTIMPLAR:
4 stærðir, I tegund.
ENDURSKOÐUN ARSTIMPL AR:
1 stærð. — Og margar tegundir af
stimplavörum.
GUMMÍST AFRÓF:
2 stærðir.
STIMPLAGERÐIN
Hverfisgötu 50 — Sími 10 6 15.
ATH: Önnumst einnig alla PRENTUN.
Umboðsmenn óskast úti á landi.
Auglýsið í
viljanum