Þjóðviljinn - 15.03.1964, Síða 3
Sunxiudagur 15. marz 1964
ÞJÓÐVILJINN
SlÐA 3
Á
HVÍLDAR-
DAGINN
ER ÞETTA RÆKTARSEMI?
I minningu
Hallgríms
Biskupinn yfir Islandi, séra
Sigurbjöm Einarsson, hefur
mælt svo fyrir aö í dag skuli
þess minnzt í öllum kirkjum
landsins, að hálf fjórða öld sé
liðin frá feeðingu Hallgríms
Péturssonar. Raunar veit eng-
inn hvaða dag Hallgrímur
fæddist, og fæðingarárið er
ekki öldungis ótvirætt heldur,
en það skiptir ekki meginmáli,
allir dagar eru vel til þess
fallnir að minnast manns sem
átti svo öfluga skáldgáfu að
hún brúar bilið milli ólíkustu
kynslóða sem lifað hafa í þessu
landi. I hirðisbréfi sinu til
presta býður biskup þeim að
halda messu í dag „er sér-
staklega sé helguð þakkargjörð
til Guðs fyrir hinn blessaða
boðbera, Hallgrím Pétursson,
og fyrir ómetanlega leiðsögn
hans um þriggja alda skeið.
Sjálfsagt er að þá verði ein-
göngu sungnir sálmar eftir
hann. Prédikunin ætti að vekja
til umhugsunar um þann vitn-
isburð og andlega arf, sem
hann hefur eftir sig látið meö
verkum sínum.” En jafnframt
varar biskup klerka sína við:
,,En ekki væri það í anda hans
að aðdáun á honum sjálfum,
gáfu hans og skáldlegri íþrótt,
yrði aðalatriðið”, heldur eiga
prestar í staðinn „mínum
Drottni til þakklætis” að minna
söfnuðinn á Hallgrímskirkju
,,og veita viðtöku bæði þá og
endranær huésanlegum fram-
lögum til þeirrar kirkju. sem
rísa á í hjarta höfuðborgar ls-
lendinga.” Og biskupinn heldur
áfram með undarlegu sam-
blandi af kristilegu málfari og
peningjahyggju: „Stærð fram-
laga skiptir ekki máli i þessu
sambandi, heldur hitt, að
kristni landsins standi saman
og votti einhug sinn, þakklæti
og hollustu við helgustu verð-
mæti sin.”
Tákn um
veraldarvald
Biskupinn virðist þannig
telja það næsta veraldlegt at-
hæfi að dvelja um of við skáld-
gáfu Hallgríms Péturssonar, þá
innblásnu snilld sem gerði
honum ekki aðeins kleift að
ná eyrum sautjándualdar-
manna, sem sáu í lútherstrú og
pyndingarsögu Krists tákn-
mynd örlaga sinna, heldur og
að skírskota eins innilega til
efnishyggjufólks sem gersam-
lega hefur týnt niður öllum
lútherskenningum. Minningar-
dagurinn um Hallgrím á fyrst
og fremst að vera kærkomið
tilefni til fjársöfnunar, það á
aðeins að nota skáldið til fram-
dráttar hinu járnbenta stein-
steypubákni á Skólavörðuholti.
Þannig telur séra Sigurbjöm
að Hallgríms Péturssonar verði
bezt minnzt „Drottni til þakk-
lætis”, enda þótt margir hinir
dómbærustu menn hafi frem-
ur flokkað þessa kirkjubygg-
ingu undir guðlast. Einnig
hefur biskup beitt sér mjög
fyrir því að kirkjan verði reist
með almennri skattheimtu, að
svo sem hundrað miljónir
króna verði teknar af lands-
lýðnum í því skjmi, vantrúuð-
um ekki síður en játningar-
mönnum. Þannig á Hallgríms-
kirkja fyrst og fremst að vera
vottur um veraldarvald kirkj-
unnar, og jafnt sýndarmennska
oddborgaranna sem valdboð
ríkisins eru taldir traustir
homsteinar. Þá skortir mig
gersamlega réttan skilning á
hinni tæru og kröfuhörðu trú
Hallgríms Péturssonar ef því-
lík framkvæmd er í anda hans.
Furðuleg
staðreynd
Þau ummæli biskupsins að
ekki megi gera aðdáun á Hall-
grími Péturssyni, gáfu hans og
skáldlegri íþrótt að aðalatriði
er mjög i samræmi við það
ræktarleysi sem kirkjan hef-
ur sýnt þeim trúarskáldskap
sem rís ekki aðeins hæst hér
á landi heldur er að sögn
Halldórs Kiljans Laxness ,.tind-
ur sérstakrar öldu í heims-
bókmenntunum . . . Það er
vafasamt, hvort Jesú-viðfangs-
efninu hafa nokki-u sinni verið
gerð þvílík skil í skáldskap
sem í Passíusálmum Hallgríms
Péturssonar, að guðspjöllunum
fráskildum”. Það er furðuleg
staðreynd að enn hafa skáld-
verk Hallgríms Péturssonar
ekki verið gefin út á viðhlít-
andi, fræðilegan hátt,- Enda
þótt sjálfir Passíusálmamir
hafi komizt á prent meira en
60 sinnum, hafa þeir ekki enn
verið gefnir út með nægilega
vísindalegum vinnubrögðum.
greitt úr samhengi textanna
innbyrðis og rakinn orðamun-
ur sem stundum skiptir veru-
legu máli. Þjóðkirkjan íslenzka,
sem hefur haft á að skipa
herskara af ríkislaunuðum
embættismönnum og sérstakri
deild við æðstu menntastofn-
un þjóðarinnar, hefur sneitt
hjá þessu verkefni, og er það
þó undirstaða allra rannsókna,
ályktana og útlegginga í kirkj-
um um Passíusálmana. Það er
athyglisvert að langgagnleg-
asta útgáfa Passíusálmanna
var unnin af Finni Jónssyni
prófessor, en hann. var svo
gallharður heiðingi og and-
stæðingur kirkjunnar að hon-
um fannst hann verða að taka
það fram að hann hefði ekki
valið sér viðfangsefnið af nein-
um trúfræðiáhuga; hann lýkur
formálanum að Passíusálmaút-
gáfu sinni 1924 með þessum
orðum: „Að siðustu skal þess
getið, að ég hef fengizt við
passíusálma sjera Hallgríms —
og annars önnur kvæði hans
—, af því að þeir eru hið helzta
ritverk vort frá þeim tímum,
bæði fyrir skáldskapar og mál-
færis sakir.” Það hefur reynzt
Hallgrimi betur að eiga arf-
inn sinn undir trúnaði heiðins
manns en þ.ióðkirkjunnar ís-
lenzku.
Enginn áhugi
Miklu verr er þó ástatt um
útgáfu Hallgrímsljóða að öðru
leyti. Handrit þeirra hafa aldrei
verið rannsökuð á vísindaleg-
an hátt, né gefin út fræðileg
heildarútgáfa. Eru til fjölmörg
handrit með ljóðum hans og
kemur þar fljótt fram mjög
mikill orðamunur, auk þess
sem mikið af kveðskap er bæði
eignað honum og ýmsum höf-
undum öðrum. Veigamestu út-
gáfuna af verkum Hallgríms
annaðist Grímur Thomsen og
kom hún út í tveimur bind-
um 1887 og 1888, en þriðja
bindi sem átti að geyma rím-
ur Hallgríms og rit í óbundnu
máli kom aldrei út. Þetta var
mjög myndarleg útgáfa á sín-
um tíma en því fer mjög fjarri
að hún hafi verið unnin á vís-
indalegan hátt eða að texti
hennar sé óyggjandi. Segir
Grímur í formála að hann
hafi „sleppt sumu, sem minn-
ingu hans væri enginn sómi
að, þó hann kunni að hafa ort
það”. Einnig segir hann um
veraldlegan kveðskap Hall-
gríms: „Að prenta allt af
þeirri tegund sem honum er
eignað, værí ógjömingur, þvi
það er deginum Ijósara, að
hann á ekki helminginn af því,
enda er margt af því svo af-
lagað í meðferðinni, að það
er ekki prentandi. Ekki er
heldur mögulegt, að byggja á
heimildum, því þær komast
víða í bága hver við aðra . . .
er margt eignað til skiptis
Hallgrími og Stefáni Ólafssyni.
Höfum vér yfir höfuð fylgt
þeirri reglu, að taka hér ekki
það sem prentað er í útgáfu
dr. Jóns Þorkelssonar yngra
af kvæðum ens síðamefnda .. .
Raunar er það álitsmál, hver
þeirra höfundurinn er.” Skil-
in milli Hallgríms og Stefáns
eru óljós og fullvíst að Hall-
grími er eignað margt sem
Stefán orti og öfugt. En ef-
laust væri hægt að leysa úr
ýmsum þeim vandkvæðum sem
Grímur Thomsen bendir á með
vísindalegum vinnubrögðum og
sannreyna hversu ömggri vitn-
eskju er hægt að ná, en þjóð-
kirkjan sem ætti þó að telja
sér málið skyldast hefur ekki
sýnt þvf verkefni neinn áhuga.
Þess vegna er ógn hætt við
því að þegar Hallgríms Péturs-
Málverk eftlr séra Hjalta Þorsteinsson í Vatnsfirði, geymt í Þjóð-
minjasafni. Hjalti var aðeins níu ára þegar Hallgrímur lézt og
hefur trúlega aldrei séð hann, en hugsanlegt er að hann hafi
farið eftir annarri mynd.
p ■ - — V-*-l
HiÍTOIÍi
^ittm
nmnz
COZrnPg. ij.
Titilblað eiginhandarrits Hallgríms Péturssonar af Passíusáimunum. Handritið var gefið út Ijósprent-
að af Lithoprent 1946.
sonar verður minnzt í kirkjum
landsins í dag kunni af þess-
um ástæðum að vera farið
rangt með kveðskap hans og
honum jafnvel eignaður skáld-
skapur sem öðrum ber.
Að skilyrði
Grimur Thomsen segir svo í
formála um tildrögin að út-
gáfu sinni á Sálmum og kvæð-
um Hallgríms Péturssonar:
„Þegar við Snorri heitinn Páls-
son 1879 byrjuðum að safna
til samskota til minnisvarða
yfir Hallgrím Pétursson. varð
það, eptir áskorun frá ýmsum
þeirra, er fé gáfu í þessu skyni,
ofaná, að kostað væri, auk
varðans sjálfs og svo sem á-
bætir á hann, vönduð út-
gáfa af sálmum skáldsins og
kvæðum. Gjörðu sumir gef-
endur, og það þeir sem mest
gáfu. þetta jafnvel að skilyrði
fyrir tillögum sínum. Þannig
er þessi útgáfa í fjrrstu undir
komin.” Minnisvarði sá sem
reistur var 1885 var eins og
örsmá arða í samanburði við
Hallgrímskirkju; samt þótti
mönnum ekki sæma að ráðast
í þvílíkt verkefni án þess að
tryggt væri að skáldskapur
Hallgríms væri gefinn út um
leið á eins vandaðan hátt og
tök voru á um þær mundir;
þá skildu menn að verk Hall-
gríms eru það minnismerki sem
öllu varðar og að hann lifir í
skáldskap sínum en engum
hégómaskap. Gagnger vísinda-
leg könnun á þeim heimildum
sem til eru um skáldskap
Hallgríms Péturssonar og ná-
kvæm fræðileg útgáfa á verk-
um hans myndi kosta innan
við einn hundraðshluta af
þeim verðmætum sem ætlunin
er að festa í jámbentri stein-
steypu á Skólavörðuholti.
Hvemig væri að setja nú það
skilyrði að þjóðkirkjunni væri
bannað að byggja nokkra kirkju
á Islandi, fyrr en hún hefur
sannað í verki að ræktarsemi
hennar við minningu Hall-
gríms Péturssonar sé annað og
meira en orðaskvaldur og hé-
gómleiki?
Ekki kirkja
Hallgríms
Sú ógnarlega kirkjubygginga-
ástríða sem tröllríður Reyk-
víkingum um þessar mundir er
ekki til marks um sókn þeirra
kenninga sem Hallgrímur Pét-
ursson aðhylltist; öll þjóðfé-
lagsþróunin að undanfömu
sýnir öllu heldur að siðgæðis-
reglur hans eru á stöðugu und-
anhaldi hjá valdhöfum og odd-
borgurum. Sífellt fleiri tómar
kirkjur eru einskonar tákn-
mynd af tómleik sálarlífsins,
og það er auðvitað engin til-
viljun að áhuginn fyrir bákn-
inu á Skólavörðuholti magn-
ast í réttu hlutfalli við fjár-
svik og annan óheiðarleik í
efnahagsmálum og stjómmál-
um. Þegar einn æðsti embætt-
ismaður þjóðarinnar var dæmd-
ur í hæstarétti fyrir nokkrum
árum gaf hann kirkju nokkurri
úti á landi veglegar klukkur,
og margir stjómmálamenn og
fjármálamenn þurfa á þvi að
halda um þessar mundir að
kaupa sér syndkvittun á hlið-
stæðan hátt. Það er engin ný-
ung að musteri séu reist fyrir
þess háttar lausnargjald. en
þannig kirkju á sízt af öllu að
kenna við Hallgrím Pétursson
sem vissi manna bezt að guð
býr „ekki í musterum sem
með höndum eru gjörð”. Bygg-
inguna á Skólavörðuholti ber
að kenna við einhvem mann
sem er ímynd þjóðfélagssið-
gæðisins á okkar tímum, og
þar er um marga að velja.
— Austri.
Innilequstu þakkir flyt ég öllum þeim, sem
á margvíslegan hátt hafa sýnt mér vinsemd og
virðingu í tilefni áttræðisafmælis míns hinn
21. febrúar síðastliðinn.
Jörundur Brynjólfsson.
Aðstoðarlæknisstaða
Staða 1. aðstoðarlæknis við lyflækningadeild Borgarspft-
jalans er laus frá 1. júlí 1964.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og störf,
sendist Sjúkrahúsneínd Reykjavíkur, Heilsuverndarstöð-
inni, fyrir 20. apríl n.k.
Reykjavík, 13. marz 1964.
SJÚKRAHÚSNEFND reykjavíkur.
Staða byggingarfulltrúans '
í Reykjavík
er laus til umsóknar. Samkv. 3. gr. byggingarsam-
þykktar er áskilið, að byggingarfulltrúi sé húsa-
meistari (arkitekt).
Laun eru samkvæmt 26. flokki kjarasamnings
Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar.
Umsóknum skal skilað í skrifstofu borgarstjóra
ekki síðar en 31. marz n.k.
Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík,
15. marz 1964.