Þjóðviljinn - 15.03.1964, Blaðsíða 8
3 SÍÐA
Út vtrrpsgagnrýni
HÖÐVIUINN
Sunnudagur 15. marz 1964
Framhald af 6. síðu. 1
um hætti. Menn vita ]:rað mæta
vel að þótt þeir játie.t undir
einhverja skoðun eða kunningu,
sem lofar þeim frelsi ;að fylgd-
arlaunum, ber ekki að taka
slíkt bókstaflega. Menn > vita, að
t.d. kirkjan hefur ekki - skilyrði
til þess að fullnægffa þrá
mannsins eftir frelsi.. Hún
leggur mönnum þvert .á móti
margar skyldur á heröiar sem
þeim getur verið Ijúft a>ð rækja
eftir því sem þeim endisd'. hæfi-
leiki til. En það á ek ki að
segja fólki, sízt af ölluá ungu
fólki, að hlutimir séu cidiruvísi
en þeir eru í raun.
I nútímaþjóðfélagi er áróð-
urinn sú plága, sem hver ein-
stakur maður stynur und ir og
gildir þar einu, hverrar tejtund-
■HHHB
Skrifstofan (
er opin klukkan 5-7 virka ckiga.
Félagsheimilið er opið á hvy>rju
kvöldi.
ar áróðurinn er, hvort við höf-
um goldið honum jákvæði, eða
reynum að hamla gegn honum.
Og því er það, að mér finnst,
sem við myndum komast nær
því að njóta raunverulegs frels-
is, ef við gætum, þó ekki væri
nema endrum og eins velt af
okkur reiðingi áróðursins og
smokkað fram af okkur beizli
isma, skoðana, kenninga, vís-
inda og trúar og reynt að verða
það sem við erum, venjulegir
menn. Svo að betur skiljist,
hvað ég á við, skal ég endur-
taka það á mjög vondri ís-
lenzku: Að slappa af.
Daginn áður en biskupinn
talaði um frelsið, talaði Páll
Bergþórsson um góða veðrið og
hafði það meðal annars til
marks um veðurgæðin, að hann
hafði séð böm í mömmuleik á
teppi út í garði.
Og ef þér getið ekki fundið
frelsið og notið þess á sama
hátt og bömin hans Páls
fundu veðurblíðuna og nutu
hennar, munuð þér ekki finna
það eftir öðrum leiðum.
Skúli Guðjónsson.
Þ VOTTA VÉ
Mjög lítið notuð og wil með farin Seva-þvottavél
til sölu. Verð kr. 7500,/)0. Upplýsingar í síma 38238
milli kl. 1 og 3.
¥ I P P U - bilskúrshurðir
Knattleikir í Tékkóslóvakíu
Framhald af 5. síðu.
inn og þurftu að leika sér.
Æfingin fór fram í ágætu í-
þróttahúsi, sem er aðallega
æfingasalur en er þó með
töluverðu af áhorfendabekkj-
um. Hús þetta var fyrir nokkr-
um árum aðeins geymsluhús,
fyrir ýmsan varning. En þá
var hafizt handa að breyta þvi
og gera úr því íþróttahús, og
var það gert af áhugamönnum
í þegnskaparvinnu.
Milli klukkan 7 og 8 var
svo æft í húsi því sem leikir
H.M. keppnimar fara fram í
og er það stórt og mikið hús
aðeins eins árs gamalt.
Rúmar það milli 5 og 6 þús-
und áhorfendur. Er þetta hið
glæsilegasta mannvirki, sér-
kennilegt í lögun, ogþaðmerki-
lega við byggingarlagið og
fyrirkomulag þess er að und-
ir þakið er komið fyrir sver->S>
um vírstrengjum sem halda því
uppi. Þakið kemur niður um
miðjuna, og er hærra út við
veggina sem koma niður til
endanna. en húsið er spor-
öskjulaga. og mjúkar heildar-
línur í byggingunni.
Líkaði Jiðinu vel að æfa
þama, og munu hafa þar aðra
æfingu á morgun.
Hér í Bratislava er flokkn-
um veitt hin bezta fyrirgreiðsla
og allt gert til að láta tímann
líða sem skemmtilegast án
þess að um neitt erfiði sé að
ræða. Samheldni piltanna er
með miklum ágætum og „húm-
or“, og ætti það að lofa góðu
þegar í keppnina kemur, ef
ekkert óvænt kemur fyrir.
Spádómar miklir,
Miklir spádómar ganga hér
manna á milli og í blöðum
um væntanleg úrslit og úrslit
einstakra landa. Formaður
nefndar þeirrar sem veitir
blaðamönnum upplýsingar, lét
þau orð falla um íslenzka lið-
ið að það ætti að vinna Egypt-
ana auðveldlega, að vísu yrði
að gæta varúðar, því Þjóðverj-
ar hefðu sent þangað hand-
knattleiksþjálfara sem hafa
dvalið þar alllengi undanfarið.
Ungverjar eru sterkir, en tak-
ist Islandi að ná hraða gegn
þeim ætti þeim að ganga vel,
en ef þeir færu rólega í sak-
imar væri þeim hætta búin
það væri gott fyrir Ungverj-
ana.
Svíar eru sterkir og naumast
að íslandi takist að sigra þá;
þó er aldrei að vita, þið leik-
ið yfirleitt fast, en drengilega,
og séuð þið ekki lakari en þið
voruð síðast er aldrei að vita
hvernig fer.
Spilakvö/d Sósía/istafélagsins
Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur spilakvöld í
kvöld (sunnudagskvöld) kl. 8.30 að Tjarnargötu 20.
Til skemmtunar verður auk spilamennskunnar það að:
Páll Bergþórsson veðurfræðingur flytur erindi.
Verðlaun og veitingar að vanda.
Sósíalistafélag Reykjavíkur.
Og svo brosti maðurinn og
sagði: En við Tékkar getum
aldrei gleymt leiknum við Is-
land: 15:15. og sá leikur vai
mikil landkynning fyrir Is-
land
Yfirleitt munu aldrei hafa
verið eins mörg lönd sem tal-
in eru að koma til greina um
efstu sætin. Þó hallast rnenn
almennt að því að meðal efstu
liðanna verði. Tékkóslóvakía,
Svíþjóð, Rúmenía, Sovét og
Austur-Þýzkaland.
Þegar þetta er skrifað eru
öll fjögur löndin sem leika
eiga hér í Bratislava komin
til borgarinnar og búa allir
leikmennimir hér á sama hót-
elinu „Carlton" í hjarta borg-
arinnar.
Allir piltamir eru hressir
og glaðir og biðja fyrir kveðj-
ur heim. Frímann.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 5. síðu.
Drengir:
Tryggvi Guðmundsson, ö
langst. 2.85. þríst. 8.31.
Sveinar: (Hástökk)
1. Svanur Baldursson H 1.71
2. Hjörtur Hjartar G 1.62
3. Erlingur Óskarsson S 1.56
4. Þór Sigurjónsson Sk 1.56
Sveinar: (Langstökk)
1. Sigurður Jónsson M 2.78
2. Daði Ingimundarson ö 2.75
3. Guðmundur Pálmas. G 2.74
4. Sveinn Arason Sk 2.73
Sveinar: (Þrístökk)
1. Sigurður Jónsson M 8.39
2. Daði Ingimundarson ö 8.06
3. Sveinn Arason Sk 7.60
4. Hjörtur Hjartar G 7.59
Stúlkur: (Langstökk)
1. Anna Jensdóttir Sk 2.28
2. Arnfríður Ingólfsd. S 2.28
3. Regína Höskuldsd. H 2.28
4. Þórdís Bjamad. Sk 2.26
Stúlkur: (Hástökk)
1. Regína Höskuldsd. H 1.45
2. Þórdís Bjamad. Sk 1.35
3. Amfríður Ingólfsd. S 1.32
4. Anna Jensd. Sk 1.26
Júníorar: (Hástökk)
1. Jón Sigurmundss. G 1.62
2. Björgv. Guðmundss. ö 1.48
3. Kjartan Rafnss. G 1.35
4. Tryggvi Pálsson Sk 1.35
Júníorar: (Langstökk)
1. Aðalbj. Jóakimss. Sk 2.68
2. Jón Sigurmundss. G 2.57
3. Björgv. Guðmundss. ö 2.49
Júníorar: (Þristökk)
1. Jón Sigurmundss. G 7.92
2. Aðalbj. Jóakimss. Sk 7.74
3. Sveinbjöm Jónss. S 6.60
DRALON
SÆNGIJR
Ullarsængur
Dralon-koddar
Sængurver
Koddaver
Lök
KRON
Skólavörðust. 12
10% 30%-40%-50% 10%
afsláttur afsláttur
af AFSLATTUR af
Kvenkuldaskóm AF KVENSKÓM Kventöfflum
Barnaskóm GERIÐ GÓÐ KAUP Barnaskóm
Skóverzlun Péfurs Andréssonar- Skóverzlun
Laugavegi I 7S Framnesvegi 2.
ALÞINGI
Framhald af 4. síðu.
eftir sem áður, en það er
þjóðfélagið sem slíkt sem verð-
ur að ráða því, hvar þau eru
sett niður eða hver sé þörfin
á hverjum tíma þ.e. hvaða fyr-
irtæki eigi að leyfa að reist
séu og hvar.
Ekki sérstakt íslenzkt
fyrirbrigði
Einar sýndi síðan fram á
með dæmum bæði frá sósíalisk-
um ríkjum og auðvaldsrík.jum
að þessi þróun er ekkert ein-
angrað íslenzkt fyrirbrigði þó
hér sé glundroði ugglaust meiri
en í nokkru sambærilegu
landi og benti á hvað ýmsar
aðrar þjóðir gerðu til að hafa
einhverja heildarstjóm á fjár-
festingunni. Loks vék Einar að
skipulagsleysinu í íslenzkri
fjárfestingu og þó fyrst og
fremst í iðnaðinum og nefndi
mörg ljót dæmi þar um. Að
endingu. eða stuttu áður en
hann varð að fresta máli sínu
til næstu umræðu, sneri hann
sér að viðhorfi og stefnu ís-
lenzku stjómmálaflokkanna til
áætlunarmála og verður þeirri
skilgreiningu væntanlega gerð
skil hér á síðunni þegar frum-
varpið um áætlunarráðið verð-
ur næst tekið á dagskrá Al-
þingis.
Asvallagötu 69.
simi 33687, kvöldsimi 33687.
TIL SÖLU:
2 herbergja íbúð í Köpa-
vogi. Ný og teppalögð.
Húsið stendur við Hafn-
arfjarðarveg. Strætis-
vagnar á 15 mínútna
fresti. I. hæð. Utborg-
un 350 þúsund.
4 herbergja góð kjallara-
íbúð. Allt sér. Tvöfalt
gler, teppi á stofu og
holi. Gott eldhús. Mjög
gott hús.
3 herbergja nýleg íbúð í
steinhúsi við Njálsgötu.
III. hæð, suðursvalir sér
hiti.
2 herbergja íbúð í smíðum
á Seltjamamesi. Til-
búin undir tréverk. Sam-
eiginlegt fullgert. Eldhús-
innrétting mun þó fylgja.
Góð kaup.
3 herbergja stórglæsileg
hæð á efstu hæð f há-
hýsi. Tvennar stórar
svalir. Aðeins örfáar
fbúðir til f allri borg-
inni af þessari gerð.
3 herbergja jarðhæð við
Kvisthaga.
2 herbergja fbúð við Hjalla-
veg. I. hæð, bflskúr.
5 herb. stór íbúð í nýlegu
húsi f Vesturbænum. Sér
hitaveita. harðviðarinn-
réttingar.
5 herb. efsta hæð í Grænu-
hlfð. Verð 900 þús. Hita-
veita, rækbuð lóð.
TIL SÖLU I SMIEHDM:
4 og 5 herb. íbúðir í smíð-
um f Háaleitishverfi.
Lúxushæð f Safamýri. Selst
fullgerð til afhendingar
eftir fáa daga: Allt sam-
eiginlegt fullgerð. Þar á
meðal bílskúr. 4—5 svefn-
herbergi. Harðviður og
plast f öllum skápum.
Þvottahús á hæðinni, tvö
snyrtiherbergi. Kaupandi
getur ráðið mosaik og
málun.
ALMENNA
FflSTEIGN ASAt ftN
UNDARGATA9 SÍMI 21150
T I L S ö L U :
Steinhús í Holfcunum, tvær
hæðir. 2ja herb. íbúð á
hvorri hæð, stórt útihús,
hitaveita, útb. samtals kr.
300 þús.
3ja herb. góð kjallaraibúð
í Högunum, sér inngang-
ur, sér hiti.
2ja hcrb. góð fbúð við
Blómvallagötu.
3ja herb. hæð með allt
sér í gamla bænum, ný
standsett og máluð með
harðviðarhurðum. eignar-
lóð. Laus strax.
3ja herb. íbúð við Mið-
stræti. sér hitaveita.
3ja herb. risíbúð við Lauga-
veg, sér hitaveita, þvottur
og geymsla á hæðinni. góð
kjör.
3ja herb. íbúð á jarðhæð
við Safamýri, fullbúin und-
ir tréverk, lán kr. 150
þúsund.
4ra herb. ný íbúð við Holts-
götu, fullbúin undir tré-
verk, 1. veðréttur laus.
lán kr. 150 þús.
4ra herb. ný og glæsileg
fbúð í háhýsi við Sól-
heima, útborgun kr. 400
þúsund.
Ný og glæsileg efri hæð við
Fálkagötu, 120 ferm, sér
þvottahús, sér hiti. teppi.
Glæsileg efri hæð 136 fer-
metrar við Hlíðarveg, fok-
helt með allt sér. tæki-
færisverð.
Hef kaupendur með miklar
útborganir að 2ja, 3ja og
4ra herb. íbúðum, bæði
nýjum og eldri.
Að einni til tveim hæðum
og kjallara, nýlegu eða {
smíðum.
TÍ/sölum.a.
2 herb. íbúð með sér inn-
gangi og sér hita, i stein-
húsi við Marargötu.
2ja herb. góð fbúð á 2. hæð
við Ljósheima.
2ja herb. kjallaraíbúð f
nýju húsi f Laugamesi.
2ja herb. góð kjallaraíbúð
við Blönduhlíð.
3ja herb. íbúð á 2. hæð i
Stóragerði. Herbergi fylg-
ir f kjallara.
3j herb. íbúð f timburhúsi á
eignarlóð f Skerjafirði. —
Lágt verð, lág útborgun.
3ja herb. fbúðir á hæðum í
steinhúsum við Hverfis-
götu.
4 herb. íbúð við Lokastfg.
Laus strax.
4ra herb. vandaðar fbúðir
við Háaleitisbraut.
4ra og 5 herb. fbúðir f
smíðum við Háaleitis-
braut og Fellsmúla.
Einbýlishús, nýleg og
vönduð við Hlíðagerði,
Sogaveg, Hlíðarveg.
Digranesveg og Alfhóls-
veg.
Fallegt timburhús með 7
herb. íbúð, við Geitháls.
Auk ofangreinds, höfum
við íbúðir á ýmsum
stöðum f bænum. stór-
ar og smáar. Leitið
upplýsinga.
Fasteignasalan
Tjarnargötu 14
Símar: 20625 og 23987.