Þjóðviljinn - 15.03.1964, Page 4
4 SlÐA
Otgefandi: Sameiningarfloklcur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Préttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19
Sími 17-500 (5 linur). Áskriftarverð kr. 80 á mánuði.
Vansæmandi fyrir sfá/fstæða
menningarþjóð
það hefur tæpast farið fram hjá neinum að undanfar-
in ár hefur orðið vart 1 sívaxandi mæli breytingar á
afstöðu herstöðvaflokkanna íslenzku, eða a.m.k. á því
hvernig afstaða þeirra flokka til herstöðva á íslandi er
túlkuð. Sú var tíðin að um þann verknað þeirra að kalla
erlendan her inn í landið á friðartímum var talað í afsök-
unartón, herstöðvar á íslandi á friðartímum væri böl sem
ekki yrði þó undan vikizt af illri nauðsyn. Nú gerist það
æ oftar að forvígismenn herstöðvaflokkanna þriggja og
aðalmálgögn þeirra, að maður ekki tali um hina heila-
þvegnu Varðbergsmenn, telji það vel farið að hér skuli
vera erlendur her og herstöðvar, það sé æskilegt að hafa
herstöðvarnar, íslendingar eigi ekki að telja eftir sér það
framlag til hernaðarmála „lýðræðisþjóðanna“ og helzt
leggja meira fram.
Finna Iengst hefur þessi áróður þó gengið í sambandi við
bandaríska hermannasjónvarpið á Keflavíkurflugvelli.
Útvarp hersins þar og sjónvarp eru í trássi við íslenzk
lög. ísTenzk stjórnarvöld'hafa leyft lívörtr tveggja undir
því yfirskyni að það ætti að vera til dægradvalar her-
mönnum í herstöðinni. Hitt dylst engum að bæði útvarpi
og sjónvarpi Bandaríkjahersins er að langmestu leyti beint
til íslendinga, beinlínis haft sem áróðurstæki. hinna er-
lendu hernámsyfirvalda gagnvart íslendingum, það er
vísvitandi tilraun að brjóta niður íslenzkt viðnám, vísvit-
andi reynt að gera íslenzka æsku gegnsósa af dreggjum
bandarískrar ómenningar. Blöð hemámsflokkanna, eink-
um þó Vísir, Alþýðublaðið og Morgunblaðið, hafa nú um
skeið flutt blygðunarlausan áróður fyrir því að íslend-
ingar tækju þetta hermannasjónvarp inn á heimili sín,
eitt þeirra, Vísir, t.d, tekið að birta dag hvern dagskrá
stöðvarinnar eins og um íslenzka stöð væri að ræða,
Þessi áróður herstöðvaflokkanna, ásamt leyfi til stór-
felldrar stækkunar stöðvarinnar, hefur þegar haft veru-
leg áhrif í þá átt að leggja íslenzk heimili undir þetta
bandaríska afsiðunartæki, sjónvarpsloftnetunum fjölgar
daglega um Suðvesturland, og áhrif hermannasjónvarps-
ins em orðin uppeldisvandamál íslenzkra barnafjöl-
skyldna.
•
Pkki er kunnugt um dæmi þess að stjórnarvöld nokkurs
^ sjálfstæðs ríkis hafi lagzt jafnlágt í hliðstæðum mál-
um og íslenzkir ráðherrar og stjórnmálaflokkar í þessu
sjónvarpsmáli. Ástandið í sjónvarpsmálunum hér mun
einsdæmi í heiminum. Mótmæli á Alþingi og blöðum hafa
verið kölluð þjónusta við Rússa. Tillöguflutningur á Al-
þingi um að sóma þjóðarinnar sé gætt og stöðvarnar
bannaðar hefur verið talin andstaða við lýðræðishugsjón-
ina. Svo virðist þó, að í þessu máli hafi herstöðvamenn
gengið feti framar en þeim var óhætt. í áskorun til Al-
þingis, sem birt var í gær, segja hinir sextíu undirritend-
ur að þeir telji það á ýmsan hátt varhugavert, „auk þess
sem það er vansæmandi fyrir fslendinga sem sjálfstæða
menningarþjóð, að heimila einni erlendri þjóð að reka
hér á landi sjónvarpsstöð, er nái til meirihluta lands-
manna“, og skora á Alþingi að hlutast til um „að heimild
til rekstrar erlendrar sjónvarpsstöðvar á Keflavíkurflug-
velli sé nú þegar bundin því skilyrði, að sjónvarp þaðan
verði takmarkað við herstöðina eina“. Með áskorun þess-
ari og væntanlegri baráttu hinna sextíu áskorenda, sem
margir hverjir eru hinir mikilhæfustu, hefur málstað
íslenzku þjóðarinnar bætzt dýrmætur liðsauki í þessari
grein baráttunnar gegn spillingaráhrifum erlendra her-
stöðva á íslandi. — s.
MÖÐVIUINN
Surmudagur 15. marz 1951
ÞINCSJA Þ|ÓDVIL|ANS
■ Frumvarp Einars Olgeirssonar um áætlunarráð rík-
isins kom til annarrar umræðu í sameinuðu Alþingi á
fimmtudag. Að þessu sinni fór frumvarpið ekki til nefnd-
ar eftir fyrstu umræðu en hingað til hefur þetta brýna
mál oftast verið svæft í nefnd.
■ Einar flutti alllanga ræðu við upphaf þessarar um-
ræðu og fékk ekki lokið henni og var umræðunni frest-
að. Hér verður drepið á það helzta, sem Einar vék að í
máli sínu.
Hann hóf mól sitt á því að
fagna því að nú gæfist kostur
á að fá úr því skorið hver
er afstaða þingmanna til þessa
móls; hvort þeir vilja sam-
þykkja það breyta þvl eða
fella. Þá drap hann á allar
þær tillögur sem liggja fyrir
þessu þingi sem miða að því
að skipa nefndir til að athuga
allskyns sérsvið og nefndi til
dæmis tillögu um nefnd til
að atfruga, hve marga tækni-
menntaða menn við þurfum,
nefnd til að athuga hvaða iðn-
að við þyrftum, tillögur um
að útbúa aflskonar áætlanir
um tiltekin svið þjóðarbú-
skaparins; jafnvel er til 10 ára
áætlun um túnrækt og áætl-
anir um allskonar framkvæmd-
ir, vegagerð t.d. o.fl. o.fl.
Kák
En það er óhugsandi, sagði
Einar, að þessar áætlanir
standist því til þess þarf á-
ætiun um þjóðarbúskapinn í
heild, allt annað er kók. Sama
sagan endurtekur sig oftast:
sett er niður einhver óska-
nefnd frá Alþingi til að út-
búa einhvem óskalista um
óskaiðnað í einhverjum þorp-
um. Nefndin starfar í tvö til
þrjú ár, leggur svo niðurstöð-
ur sínar fyrir ríkisstjórnina,
og síðan ekki söguna meir.
Það sem þarf, hélt Einar á-
fram er nefnd er hafi ákveðið
vald og taki tillit til allra sviða
þjóðfélagsins, leggi álit sitt
fyrir ríkisstjómina, en síðan séu
það lög að fjárfestingarstofn-
anir og Seðlabankinn fram-
kvæmi þá áætlun. sem gerð
hefur verið.
Mark auðvaldsskipulagsins
Einar rakti síðan í stuttu
málj þá gerbyltingu sem orð-
:ð hefur í landinu síðan auð-
valdsskipulag tók að myndast
hér og orsakað hefur þá ó-
hemju miklu , fólksflutninga er
átt. hafa hér stað frá alda-
mótum fram á þennan dag.
Nefndi hann tölur, sem sýna,
að veruleg fækkun. bæði tölu-
lega og hlutfallsiega, hefur
orðið sumstaðar f dreifbýlinu
(Vestfirðir), en annars staðar
staðið i stað tölulega eða lít-
ið aukizt, og í heild fækkað
allsstaðar hlutfallslega nema í
þéttbýlinu við Faxaflóa. Er nú
svo komið að á svæðinu
Reykjavík, Kópavogur, Hafnar-
fjörður að meðtöldum Garða-
og Seltjamameshreppum, býr
nú helmingur íslendinga eða
rúmlega 90 þúsundir. Það er
ákveðið þjóðfélagslegt fyrir-
brigði sem þama hefur gerzt,
auðvaldsskipulag hefur skapazt.
Það þýðir, að fjármagnið í
þjóðfélaginu ræður því fyrst
og fremst hvar atvinnutækin
eru sett niður. Og miðstöð fjár-
magnsins í landinu hefur
Reykjávík verið en fyrsti vísir
að borgarastétt myndaðist þar
og hefur vaxið upp við gull-
kistu Faxaflóa. Við hana eru
flestir möguleikar hennar til
að græða tengdir, gróðinn verð-
ur fyrst og fremst hér.
Blint lögmál
peninganna
Þeir menn sem ráða í hvaða
fyrirtæki lagt er fé eru hér
og þeir leggja einkum fé í fyr-
irtæki í kringum sig en það
þýðir að atvinnulífið þjappast
saman á þessu litla svæði út
frá sjónarmiði þeirra sem ráða
fjármagninu. Það er blint lög-
Einar Olgeirsson
mál peninganna, sem veldur
því að atvinnutækin eru reist
hér og þar sem atvinnutækin
eru þangað flytur fólkið. Einar
minnti á að fyrstu 30—40 tog-
aramir sem Islendingar eign-
uðust voru staðsettir í Reykja-
vík og Hafnarfirði og drap á
tilraun Nýsköpunarstjórnarinn-
ar til að hamla gegn þessari
þróun með fyrstu tilraun til
að ýta undir stórútgerð ann-
arsstaðar á landinu.
Þjóðfélagið verður að ráða
Og það er einmitt þjóðfé-
lagið sem verður að ráða hvert
fjármagninu er beint og taka
yfirráðin á því úr höndum ein-
staklinga. Með því er ekki ver-
ið að taka neitt eignamám hjá
þeim, þeir eiga sín fyrirtæki
Framhald á 8. síðu.
S>-
CONSULCORTINA
Fjórum sinnum
sterkari en venju-
legt er.
Áætlunarráð ríkísins til annarar umræðu í sþ.:
SVEINN EGILSSON H.F. S'M'L252
Verða að taka afstöðu
Það er mjög nauðsynlegt,
sagði Einar, að einstakir þing-
menn og flokkar taki endan-
lega afstöðu til þessa máls.
Þetta er það mál í íslenzkum
stjórnmálum sem ekki er leng-
ur hægt að ganga fram hjá.
Stjórnmál á íslandi eru fyrst
og fremst efnahagsmál og
stjómin á íslandi er fyrst og
fremst stióm á efnahag lands-
ins.
Val um gírskiptingu
í gólfi eöa á stýri.
i .1.
FORD tryggir gæðin.
100 ára gamlar
kennisetningar
Einar minnti á yfirlýsingar
viðreisnarstjómarinnar þegar
hún tók við völdum um það
að hún ætlaði að láta afskipta-
laust hvað gerðist í íslenzk-
um efnahagsmálum þ.e. í
samningum milli verkamanna
og atvinnurekenda og ekki
skipta sér af því þótt allt
atvinnulff stöðvaðist I landinu.
Það hefur sýnt sig, sagði hann,
að stjórnin treystir sér ekki
til að framfylgja slíkri stefnu
enda er hún byggð á hundrað
ára gömlum kennisetningum
sem í heila öld hafa verið for-
dæmdar í reynd. Það er því
kominn tími til að draga rétt-
ar ályktanir af staðreyndum
sem nú blasa við að ríkið verð-
ur að taka að sér stjórn á
atvinnulífinu, en ekki skipta
sér aðeins af þv1 ":n-
hverju smákáki.
nann er metsölubíll á
Norðurlöndum
Stílhreint, fóðrað
mælaborð.
Vegna hins glæsilega útlits og mörgu góðu eig-
inleika, hefur CONSUL CORTINA verið met-
sölublll á Norðurlöndum.
Hann er stærsti bíllinn í bessum verðflokki —
rúmgóður og þægilegur, með góðu bili milli
sæta, sem gefur gott rými fyrir fæturna.
Hann er gæddur dæmafáum styrkleika í bygg-
ingu, eins og ótal akstursprófanir hafa sýnt —
og því vel valinn fyrir íslenzkar aðstæður.
Hann er ótrúlega sparneytinn, hefur rúmgóða
farangursgeymslu, og er búinn margs konar
þægindum, sem aðeins fæst í dýrari bílum.
Kynnið yður álit hinna f jöl-
mörgu CONSUL CORTINA-
eigenda.
Heildaráætlun um fjárfest
inguna er óhjákvæmileg