Þjóðviljinn - 15.03.1964, Síða 7
Stmnudagur 15. mar?. 1964
ÞIÖÐVIUINN
SIÐA 7
SANNLEIKURINN UM MORÐIÐ Á KENNEDY
Jack Ruby hefði getað séð morðingj-
ann sem skaut á Kennedy frá brúnni
17íð höfum nú kynnt okk-
* ur „sönnunargögn“ lög-
reglunnar, vegið þau og
metið, en víkjum nú að
okkar eigin tilgátum um
atvik morðsins og met-
um sjálf líkurnar. Við
reynum á þennan hátt að
gera okkur grein fyrir
hvemig líklegast sé að
morðið hafi verið framið.
Við höfum þegar rekið okk-
ur á að allt bendir til þess
að annar maður hafi verið á
morðstaðnum. Við munum
kalla hann vitorðsmann núm-
er 1. Hann hefur komizt inn
í bókageymsluhúsið einhvem
tíma frá lokun þess kvöldið
áður þar til það var aftur
opnað um morguninn þegar
morðið var framið. Hann hef-
ur haft með sér matarbita.
Hann hefur falið Oswald að
koma með riffilinn í húsið,
því að það hefur verið miklu
minni áhætta fyrir Oswald að
koma með stóran pakka í
vinnuna.
Oswald var á verði allan
morguninn og hélt vinnufélög-
um sínum burtu frá herberg-
inu þar sem vitorðsmaður nr.
1 faldi sig. Þegar félagar Os-
walds fóru út á götu að horfa
á bílalestina, aðstoðaði hann
vitorðsmann nr. 1 að hlaða
pappaöskjunum upp við glugg-
ann. Síðan fór hann niður 3
matsalinn og var kominn þang-
að nokkrum andartökum eftir
morðið. Honum hefur e.t.v. ver-
ið sagt að vitni sem kynnu
að sjá hann þar, nær því á
sömu stundu og skotin riðu af,
myndu útiloka hann frá hlut-
deild í morðinu.
Um manninn sem varð eftir
í herberginu á sjöttu hæð og
okkur er nú óhætt að kalla
morðingja nr. 1 vitum við að
hann hafði þegar verið þar
lengi; einnig að hann reykti
ákveðna sígarettutegund og
að hann var sennilega með
hanzka á höndum og þaulvan-
ur vegna atvinnu sinnar að
fara með skotvopn.
Meðan morðingi nr. 1 beið
eftir bílalestinni, kom morð-
ingi nr. 2 sér fyrir á iárn-
brautarbrúnni sem liggur yf-
ir leiðina sem bfli Kennedys
átti að fara. Eins og sjá má
á myndum er grindverk á
þessari brú, sem auðvelt er
að skýla sér á bak við. Göt
eru á grindverkinu sem hægt
hefði verið að skjóta gegn-
Bílarnir stefndu beint í átt
að brúnni og voru því ákjós-
anlegt mark fyrir skotmann
sem lá þar í leynum. Bæði
vegna lítillar fjarlægðar og
hæðar var þetta auðvelt skot-
mark fyrir miðlungsskyttu.
Morðingi nr. 2 skaut fyrsta
skotinu. Kúlan hæfði í háls
forsetans að framanverðu og
sat föst í brjósti hans. Morð-
ingi nr. 1 skaut öðru skotinu
svo til samtímis. Hann hæfði
ekki forsetann, en sœrði
Connally ríkisstjóra.
Morðingi nr. 2 sem sá að
hann hafði hæft nákvæmlega í
mark, tók nú annaðhvort til
fótanna eða hleypti af öðru
skoti, en missti algerlega
marks. En morðingi nr. 1 sem
vissi að honum hafði brugð-
izt skotfimin hélt áfram að
skjóta. önnur kúla hans hæfði
hnakka forsetans.
Þriðjihluti
skýrs/u
Buchununs
Morðingi nr. 1 hafði þannig
þreföldu hlutverki að gegna:
A Þótt vitorðsmaður hans
hefði af einhverjum ástæðum
ekki komizt upp á brúna, hefði
banatilræðiö samt ekki þurft
að fara út um þúfur.
A Skot hans ollu ringul-
reið til að auðvelda skotmann-
inum á brúnni undankomu.
Menn myndu nefnilega beina
athyglinni fyrst að þeim stað
sem síðustu skotin komu frá.
CU Skotin urðu fyrir hvern
mun að koma úr húsinu þar
sem sá vann sem síðar skyldi
kennt um morðið.
Það er leitt að aðeins skyldi
sjást aftan á morðingja nr.
2, rétt áður en hann hvarf.
Lögreglumaður sem klifraði
upp á brúna strax eftir að
síðasta skotið reið af sá á
bak honum. En það er þó
eitt vitni sem hefði getað séð
framaní skotmanninn á brúnni.
Ef til vill gæti það þekkt
hann aftur. Þetta vitni er
Jack Ruby.
Ruby var staddur í bygg-
ingu blaðsins „Dallas Morn-
ing News“, þar sem hann var
að útbúa auglýsingar fyrir
nektarsýningarklúbb sinn. Það
er ósköp leitt til þess að vita
að honum skyldi liggja svo
mjög á að koma þessu í verk.
að hann gat ekki gefið sér
neinn tíma til að horfa, á-
samt nær öllum starfsmönn-
um blaðsins, á bílalest forset-
ans fara framhjá; og það þrátt
fyrir aðdáun hans á Kennedy,
sem var svo mikil að sögn
lögmanna hans að hún jaðraði
við geðbilun. Ruby var nefni-
lega einn eftir í einu her-
bergi blaðhússins, þaðan sem
sjá mátti samtímis bæði brúna
og bókageymsluhúsið.
Síðar skýrðu fjórir starfs-
menn blaðsins frá því að þar
sem þeir voru staddir hefði
greinilega heyrzt hvaðan fyrsta
skotið kom: Það kom frá
brúnni. Ef Ruby hefði litið
út um gluggann, á þessari
stundu, hefði hann áreiðanlega
séð skotmanninn á brúnni.
En ef skotmennimir voru
tveir, þá hljóta rifflamir
einnig að hafa verið tveir.
Hvemig gat annar riffillinn
gersamlega horfið? Staðreynd-
in er að það eru veigamiklar
sannanir fyrir tilvist hans.
Skömmu eftir handtöku Os-
walds afhenti lögreglan í Dall-
as Wade héraðssaksóknara
skotvopn, sem hann úrskurðaði
að lokinni gaumgæfilegri rann-
sókn, að væri „þýzkur Maus-
er“. Hann skýrði blaðamönn-
um frá því afdráttarlaust að
þetta væri „morðvopnið".
Hann var ekki að lýsa áliti
sínu, heldur skýra frá stað-
reynd.
Wade hefur gegnt embætti
sínu 1 þrettán ár. Áður hafði
hann verið í fjögur ár lög-
reglumaður í FBI. Honum ætti
því ekki að vera skotaskuld
úr því að greina á milli þýzks
Mauser-riffils og ítalsks Car-
cano-riffils. Hann hefur líka
í þjónustu sinni um fimmtíu
starfsmenn sem allir eru fær-
ir um að lesa úr áletrunum
sem grafnar eru á skotvopn.
Wade gaf yfirlýsingu sína
um morðvopnið daginn eftir
tilræðið. En næsta dag var það
uppgötvað í spjaldskrá FBI
að Oswald hefði { marz 1963
keypt riffil undir fölsku nafni
og hefði riffiilinn verið send-
ur í pósthólf í Dailas. Wade
tók þá strax aftur yfirlýs-
ingu sína og sagði að morð-
vopnið hefði reyndar verið
það sem Oswald hafði pant-
að. Mauserinn gleymdist.
Allir rannsóknarmennirnir
voru á einu máli um að ,.morð-
vopnið“ hefði fundizt í bóka-
geymsluhúsinu; en þeir voru
á hinn bóginn ekki sammála
um hvar 1 húsinu það hefði
fundizt: bað var ýmist á
sjöttu hæð eða fimmtu.
En sagan er ekki öll sögð
með því. Það er sannað mál
að tveir Carcano-rifflar frek-
ar en einn komu við sögu.
Skotvopnasali í íþróttavöruverzl-
un Irvings rétt hjá heimili Os-
walds skýrði frá því eftir til-
ræðið að þremur vikum áður
hefði viðskiptavinur fengið
sett sjónaukamið á ít.alskan riffil
sinn. Hann fann m.a.s. pönt-
unarseðilinn, sem hafði núm-
erið 13 374. Og á seðlinum stóð
nafn viðskiptavinarins: „Os-
Wald“.
T-ögreglan taldi að eftir
'mtta þyrfti ekki frekar vitn-
anna við: Oswald var morð-
inginn.
En skömmu síðar sagði skot-
vopnasalinn, að þótt hann gæti
ekki munað eftir viðskipta-
manninum, myndi hann eftir
öðru: Hann hefði fest sjón-
aukamiðið með þremur skrúf-
um. Á moi’ðvopni iögreglunn-
ar voru hins vegar aðeins tvær
skrúfur.
Lögreglan í Dallas sneri
þegar við blaðinu. sagði nú
að þessi „Oswald“ sem komið
hefði til Irvings hefði vafalaust
verið nafni morðingjans, sem
einnig hefði átt riffil af ít-
alskri gerð. Hin „óvéfengjan-
lega sönnun" fyrir sök Os-
walds var ekki nefnd framar.
En erlendir blaðamenn voru
orðnir tortryggnir. Bi'ezka
blaðakonan Jean Campell fann
annan skotvopnasala { nágrenni
við heimili Oswalds. Ilún
spurði eiganda verzlunarinnar,
frú Edith Whitworth. spjörun-
um úr og konjst að því að
sama daginn og .,Oswald“,
nafninn, kom til Irvings, hefði
ungur maður komið í verzlun
frú Whitworth til þess að
panta hjá henni sjónaukamið.
Að sögn frúarinnar voru i
fylgd með þessum unga manni
— sem lögreglan vill ekki að
hafi verið Oswald — ung kona
og tvö böm; konan hélt á
öðru barninu, hvítvoðungi, en
hitt barnið var tveggja ára.
Frú Whitworth sem benti
unga manninum á að fara til
Irvings segir að kona hans
hafi ekki svarað spumingum
og hún hafi virzt e:ga bágt
með að skilja ensku.
Lýsing frú Whitworth á al-
gerlega við fjölskyldu Oswalds
og hún er staðfest af öðrum
viðskiptavini, frú Hunter, sem
stödd var í verzluninni.
Það eru þannig mjög sterk-
ar líkur fyrir því að tvö vopn
sömu tegundar hafi farið um
hendur Oswalds; þessi vopn
voru svo lík hvort öðru, að
m.a.s. lögreglan í Dallas villt-
ist á þeim um stundaxsakir.
Þessi tvö ítölsku skotvopn, af
mjög óvenjulegri gerð, voru
sjálfsagt valin í ákveðnum til-
gangi: Hægt var að villast á
kúlum úr þeim, a.m.k. ef rann-
sókn kúlnanna væri yfirborðs-
leg. Það væri því hægt á
þennan hátt að leyna rann-
sóknarmennina því, að tvð
skotvonn hefðu verið notuð við
tilræðið: tækist það ekki,
myndi hægt að láta annað vopn
sömu gerðar í staðinn fyrir bað
sem morðið var framið með.
um.
Ruby með tveiniur neklardansmeyjum sínum.