Þjóðviljinn - 23.04.1964, Síða 1
Þjóðviljinn er 3 blöð í dag - 28 síður
í dag koma út þrjú blöð af Þjóðviljanum, tvö átta síðna auka-
blöð. Flytur annað sögu eftir bandaríska skáldið Edgar Allan Poe
og nýtt kvæði eftir ungt íslenzkt skáld, Baldur Ragnarsson, en í
hinu blaðinu er fjallað um sumarleyfisferðir.
GLEÐILEGT SUMAR
Eru síldarleitar-
tæki Ægis ónýt?
I framsögu með fyrirspurn sinni um síldarleit
og fleira þar að lútandi, á fundi sameinaðs Al-
þingis í gær, sagðist Gils Guðmundsson hafa
það eftir góðum heimildum að öll fiskileitar-
tæki varðskipsins Ægis væru nú stórskemmd,
jafnvel gjörónýt.
I Eins og menn muna féll Ægir á hliðina er ver-
ið var að færa hann í slipp fyrir nokkrum vik-
um og sagði Gils að þá hefðu tækin orðið fyrir
þessu hnjaski.
I Ekki gat sjávarútvegsmálaráðherra gefið nein-
ar upplýsingar um þetta mál, en þess má geta,
að um borð í Ægi voru saman komin einhver
fullkomnustu og dýrustu tæki til fiskileitar
sem til eru.
Xarlakór Reykjavíkur
^eldur fímm samsöngva
Karlakór Reykjavíkur heldur
timm samsöngva fyrir styrktar-
félaga sína í Austurhæjarbíói í
næstu viku eða dagana 27.—30.
apríl og 2. maí. Stjórnandi er
Jón S. Jónsson og einsöngvarar
þau Svala Nílsen, Guðmundur
Jónsson og Guðmundur Guð-
jónsson. Pianóundirleik annast
Ásgeír Beinteinsson.
Efnisskrá er fjölbréytt og efu
á henni lög eftir innlenda og
erlenda höfunda, svo sem
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Sig-
urð Þórðarson, Jón Ásgeirsson,
Stefán Ólafsson, Kuula. Shapor-
Gosfrétt
gýs upp
I gær bárust þær fréttir
vestan af Snæfellsnesi að eld-
goss hefði orðið vart í hafinu
út af Rifi. Mögnuðust þessar
fréttir mjög hér í borg og fór
svo að Alþýðublaðið sendi flug-
vél á vettvang og tók jarðfræð-
ing með í förina.
Þegar til kom, reyndist þó
hér aðeins vera um sérkenni-
legar skýjamyndanir að ræða,
sem í fljótu bragði liktttst gos-
mekki. Sneru leiðangursmenn
aftur til Reykjavíkur við svo
búið.
Brýn nauðsyn að fá sér
stök skip til síldarleitar
in, Williams og einnig eru ensk,
amerísk og rússnesk þjóðlög.
Samsöngvarnir hefjast kl. 7.15
alla dagana nema laugardaginn
2. maí kl. 3,15. Aðgöngumiðar
verða seldir að þeim samsöng.
Nvtt sjúkrahús
HÚSAVlK 22/4 — I dag hófst
bygging á nýju sjúkrahúsi hér
í Húsavik. Fyrstu rekustunguna
stakk Daníel Daníelsson, héraðs-
læknir.
Húsbyggingin verður upp á
tvær hæðir með kjallara og er
það 620 ferm. að grunnfleti.
Það á að rúma þrjátíu sjúkra-
rúm.
Áætlaður kostnaður er 15,5
miljónir króna. Áformað er að
steypa upp kjallara og eina hæð
á þessu ári. Sigvaldi Thordar-
son. arkitekt teiknaði húsið og
yfirmenn við bygginguna verða
Sveinn Ásmundsson og Ásgeir
Höskuldsson, — Á.K.
Slökkvilið Reykjavkur var á
sjöunda tímanum í gær kallað
að Ljósheimum 14—16 en þar
var kominn upp eldur í vinnu-
skúr. Tók klu'kkustund að ráða
niðurlögum eldsins og var
skúrinn þá all mjög brunn-
inn, segir í skýrslu slökkvi-
liðsins.
■ Nokkrar umræður urðu^
í sameinuðu þingi í gær
vegna fyrirspurnar Gils Guð-
mundssonar til sjávarútvegs-
málaráðherra um hvaða ráð-
stafanir hafi verið gerðar til
þess að hægt verði að fram-
kvæma síldarleit á vorver-
tíð fyrir Suður-og Vestur-
landi og á sumarvertíð fyr-
ir Norður- og Austurlandi
svo og hvort gerðar hafi ver-
ið ráðstafanir um öflun var-
anlegs skipakosts til síldan-
leitar.
■ í framsögu sinni lagði
Gils höfuðáherzlu á nauðsyn
þess að fengin verði sérstök
skip til þessarar sí þýðinv-
armeiri þjónustu við útgerð-
ina.
TillögUr
Jakobs Jakobssonar
Emil Jónsson sjávarútvegs-
málaráðherra varð fyrir svörum
og skýrði svo frá að Jt, kob Jak-
obsson hefði gert tillögur að
síldar. og fiskileitaráætlun og
lagt fyrir ráðuneytið. Sam-
kvæmt þeim hefðu nú verið
le'gð fjögur skip til leitar á
þessu ári. Þau eru: Fanney (frá
20. marz til 30. s.eptember). Pét-
ur Thorsteinsson (frá 1. júní til
ársloka), Ægir (frá 20. maí til
30. október) og botnvörpungur-
inn Þorsteinn Þorskabítur til
fiskileitar fyrir togaraflotann.
Kostnaður 15,7 miljónir
Ráðherran sagði að kostnaður
við leitina á þessu ári væri á-
ætlaður 15.7 miljónir en sam-
tals væru veittar af Alþingi til
þessara mála 13 miljónir króna.
Þá gat hann þess að árið 1962
hefði kostnaðurinn verið 7 milj-
ónir rúmar, 1963 rúmar 10 milj-
ónir. Um endanlega lausn
og framtíðarskipan fiski-
leitar hafði ráðherran aft-
ur á móti fátt að segja.
Leitin falli aldrei niður
í framsögu sinni benti Gils
Guðmundsson á að nú mætti
Framhald á 9. síðu.
Gleðilegt
sumarI
I dag er sumardag-
urinn fyrsti en sá dag-
ur hefur á undanförn-
um árum jafnan verið
helgaður börnum og
svo verður enn. Verð-
ur að venju efnt til
f jölbreyttra hátíðahalda
fyrir börn hér í
Reykjavík og víðar um
land í tilefni dagsins.
•fr Liðinn vetur hefur
vcrið einn hinn bezti
scm komið hefur í
manna minnum og
vonandi fáum við einn-
ig gott vor og sumar.
Myndin sem hér fylg-
ir er tekin í góða veðr-
inu nú í vikunni af
uiigum veiðimönnum.
Þeir eru raunar ekki
að veiða golþorsk úti á
miðum heldur bara
hornsíli í Tjörninni en
hver veit nema ein-
hverjir þeirra eigi eft-
ir að setja aflamet í
,.alvöruveiði”. Mynd-
ina tók Ijósmyndari
Þjóðviljans Ari Kára-
son.
-á Þessari fallegu
mynd látum við fylgja
beztu sumaróskir til
allra lesenda Þjóðvilj-
ans. Gleöilegt sumar
BÆTT ÚR SALTSKORTINUM
I VERSTÖÐ VUNUM SYÐRA
■ Saltskorturinn í verstöðvunum hér sunnanlands er
nú líklega úr sögunni með tíðum skipakomum á næstunni
og mega nú heimsmetin falla í gríð og erg, sagði Geir
Borg, forstjóri í Kol & Salt í viðtali við Þjóðviljann í gær.
13 DACAR EFTIR
7 deildir skiluðu í gær og
þó nokkuð kom utan af
landi. Við þökkum þau vin-
samlegu bréf sem við höfum
fengið utan af landi. Margir
hafa pantað hjá okkur sinn
skammt í næstu flokkum og
sumir heldur meira og auð-
vitað erum við ekki sízt á-
nægðir með það.
Nú fer óðum að styttast
tíminn fyrir þá sem eru úti
á landi að senda okkur upp-
gjör. Við minnum ykkur á
að hægt er fyrir þá sem
ekki hafa samband við um-
boðsmenn okkar að póst-
leggja skil til Happdrættis
Þjóðviljans, Týsgötu 3,
Reykjavík. Á morgun höf-
um við opna skrifstofuna að
Týsgötu 9 frá kl. 9—12 og
1—7 e.h.
Við þökkum svo öllum
góðan stuðning á þessum
vetri og óskum ykkur gleði-
legs sumars.
Deilda og héraðasam-
keppnin stendur nú þannig:
1. 15. deild, Selás 145%
2. 11. deild, Háaleiti 45 —
3. 6. deild, Hlíðar 27 —
4. 9. dcild, Kleppsh. 26 —
5. 8. A deild, eTigar 25 —
6. 1. deild, Vesturb. 24 —
7. 4. A deild Þingh. 24 —
8. 5. deild, Norðm. 23 —
9. 4.B d. Skuggaliv. 21 —
10. 10.B deild, Vogar 19 —
11. 7. d., Rauðarárh. 18 —
12. Kópavogur 18 —
13. 8. B deild, Lækir 16 —
14. Austurland 14 —
15. Suðurland 14 —
16. Vestfirðir 14 -
17. 2. deild, Skjól 12-
18. Hafnarf jörður 9 -
19. 12. deild, Sogamýri 8-
20. Norðurland vestra 7 -
21. 3. deild, Skerjafj. 5 -
22. Reykjanes 5-
23. Norðurland eystra 5 ■
24. 10. A deild, Heimar 4 ■
25. Vesturland 4 ■
26. Vestmannaeyjar 2 ■
SKILADAGUR Á M0RGUN
„Við eigum von á fjórum
skipum frá Spáni á næstu sex
dögum og losa þau aðallega í
Vestmannaeyjum, Keflavík og
ei-u 5400 tonn í þessum fjór-
um skipum. Fyrsta skipið
kemur á morgun til Vestmann-
eyja með 1700 tonn. Þá kemur
saltskip á vegum Ólafs Gísla-
sonar til landsins á föstudaginn
og losar f Reykjavík. Keflavík
og á Akranesi. Er það með
2300 tonn til viðbótar þeim 5400
tonnum, sem við eigum von á
á næstunni. Þetta skip átti að
fara til Færeyja og fékkst hing-
að á síðustu stundu.
Við vorum með saltskip hér i
lck marzmánaðar og fórum þá
bónleiðir til búðar hjá fisk-
vinnslustöðum á Suðurnesjum
og var þá ekki reiknað með
þessari sumarhrotu. Það er ekki
að sjá að útgerðarmenn hafi
gert sér grein fyrir þeirri tækni-
byltingu í veiðum með hring-
nótinni og þeim mikla afla, sem
komið hefur á land síðustu daga.
Afleiðingin varð saltskortur i
tvo sólarhringa í verstöðvunum
! sunnanlands. sagði Geir Borg að
lokum.