Þjóðviljinn - 23.04.1964, Blaðsíða 5
f
Fimmtudagur 23. -apríl 1964
H&DVILIINN
SlÐA g
kínverskt
hunang
mm
§p MAYA
cornfla!
cornflakes
á
|| hverjum
á morgni
1
Kynniz.t
vörunum
kynnizt
verðinu.
GLEÐILEGT
SUMAR!
Bezti leikur norskú gestanna:
REDENS
REYKJAVI
ANN LID
16:14
Hinir norsku gestir Víkings léku þriðja leik
sinn á þriðjudagskvöldið við úrval úr Reykja-
vík. Var þetta líflegur leikur og harður frá upp-
hafi til enda, og mjög jafn þar til í lokin að Fred-
ensborg náði betri endaspretti og vann með 2ja
marka mun.
FH sigraði
i 1. flokki
FH og Fram léku til úr-
slita í 1. flokki á tslandsmót-
inu í handknattleik sl. laug-
ardag. FH sigraði — 11:8, og
hafði ótvíræða yfirburði í
leiknum allan tímann.
1 marki FH var hinn gam-
alkunni markmaður Kristófer
Magnússon, og var hann án
efa bezti maður á vellinum í
þessum leik.
Hafnarfjörður
Víðavangshlaup Hafnarfjarð-
ar hefst kl. 4 við Barnaskól-
ann í dag og eru skráðir þátt-
takendur beðnir að mæta kl. I
3,30.
Þetta var langbezti leikur
Norðmannanna, og er auðséð
að þeir eru farnir að átta sig
á hinu litla húsi. Sérstaklega
var það þó hraði þeirra, og
kraftur sem nú komu betur
fram en í leikjunum á undan.
Langskot voru þó ekki
þeirra sterka hlið, því að þá
brenndu þeir mjög af, en
skoruðu flest mörkin af
stuttu færi, eða af línu.
Þeir léku þannig í vörn að
Reykvíkingum reyndist erfitt
að komast í gegn eða inn á
milli. Markmaður þeirra,
Stein Gruben, varði líka mjög
vel, hvað eftir annað. Leikur-
inn í heild var hraður af
beggja hálfu.
Framhald á 9. síðu.
avangshiaup
ur í dag
Víðavangshlaup ÍR fer fram
í dag, sumardaginn fyrsta,
eins og venja er til. Það er
sorgteg staðreynd að aðcins 3
menn höfðu skráð þátttöku
sína í gær.
Við ræddum við Reyni Sig-
urðsson, formann IR í gær, og
kvað. hann ekki annað koma
til mála en . að - láta hlaupið
Gott skíðafæri í Jésepsdaf
■
Þessi mynd var tekin í Jósepsdal um síðustu helgi. Þar cfra er
nú ákjósanlegur skíðasnjór, og ættu scm flestir að nota þctta ó-
vænta tækifæri til að bregða scr á skíði í góða veðrinu. Ferðir
verða upp í Jósepsdal frá BSR kl. 10 árdegis'í dag, og um hclg-
ina verða fcrðir í dalinn. Skíðalyftan verður í gangi og veitingar
í skíðaskálanum. — (Ljósm. Árni Kjartansson)
Þróttur og KR á Melavellinum
KNATTSPYRN-
AN HEFST í DAG
fara fram. þrátt fyrir þessa
litlu þátttöku. Víðavangshlaup
IR væri það íþróttamót sem
ætti sér einna lengsta erfða-
venju að baki. og það ætti
að vera kappsmál allra iþrótta-
manna og íþróttaunnenda að
standa vörð um framtíð þess.
Iþróttasíðan tekur undir
þessi ummæli formanns IR.
Víðavangshlaupið hefur alltaf
vakið verðuga athygli í íþrótta-
lifinu, og það væri skarð fyrir
skildi, ef það aetti að leggjast
niður vegna lítillar þátttöku.
Hjá nágrannaþjóðum okkar
eru viðavangshlaupin einhver
fjölmennustu mót sem haldin
eru. F-urðulegt má það teljast
að sami áhuginn fyrir þátttöku
skuli ekki vera fyrjr hendi
hér. Vitað er að beztu lang-
hlauparar okkar hafa æft vel
í vetur, og maður skyldi ætla
að þeir tækju þetta fyrsta
tækifæri til keppni á sumrinu
fegins hendi. Einnig ætti það
ekki að vera ofraun fyrir
knattspyrnumenn okkar og
aðra íþróttamenn, sem æft
hafa í vetur að hlaupa 3 km
í keppni.
Þetta er Vals-liðið sem sigraði í 2. fl. Islandsmótsins. — (Ljósm.
Bj.Bj.).
Valur meistari í
2. flokki karla
tírslitaleikur í 2. fl. karla
íslandsmótsins í handknatt-
leik fór fram s.l. laugardag.
Valur vann KR — 17:8, og
hlaut þar með meistaratitil-
inn.
Sigur Vals í þessum flokki
kom ekki á óvart. Liðið hefur
sýnt mjög góðan handknatt-
leik í mótinu, og hefur innan
sinna raða allmarga mjög
efnilega handknattleiksmenn.
KR og Valur höfðu unnið
hvor sinn riðilinn í keppninni.
í úrslitaleiknum hafði Valur
mikla yfirburði. Kom þar
bæði hraður og góður leikur
Valsmanna, og hinsvegar var
vörn KR mjög götótt og
sóknin með linasta móti. 1 liði
Vals eru þeir Hermann og Jón
Carlsson sterkustu stoðirnar,
en annars er liðið jafnt og
samstillt.
í dag hefst fyrsta
knattspyrnumót sum-
arsins í Reykjavík. Það
er knattspyrnumót
Reykjavíkur. Verður
fróðleg að sjá hvernig
knattspyrnumennirnir
hafa búið sig undir á-
tökin í sumar.
Mótið hefst í dag kl. 4,30 á
Melavellinum. Fyrsti leikut
mótsins verður milli KR og
Þróttar, tslandsm^istaranna í
1. og 2. deild.
í Reykjavíkui’mótinu taka
þátt öll Reykjavíkurfélögin 5.
Fram, KR. Valur, Víkingur og
Þróttur. Næstu leikir verða:
Fram:Víkingur á sunnudag kl.
14.00 og KR:Valur á mánudag
kl. 20.00. Mótinu lýkur 14.
maí með leik Vals og Þróttar.
Á vegum K.R.R. og K.S.t. er
komin út skrá yfir alla knatt-
spyrnuleiki í Reykjavíkur- og
tslandsmótum sumarsins og
fæst hún í veitingasölunni á
Melavelli og í bókabúð Lárus-
ar Blöndal, Vesturveri,
BARNAVIN AFÉLAGIÐ SUMARGJÖF
Fjölskyldan fer út
◦ð skemmta sér
Til ágóða starfsemi Sumargjafar heldur Dansskóli Hermanns Ragnars, skemmtun sína
fyrir alla fjölskylduna i Hótel Sögu, súlnasalnum, fimmtudaginn 23. apríl 1964, SUM-
ARDAGINN FYRSTA, klukkan 3 eftir hádegi.
■ Meðal skenimtiatriða: Ganianvísur, danssýningar,
tízkusýning á barna og unglingafatnaði. B Úrslit
fara fram í spurningakeppni barnaskólabarna 12 ára
deilda. Þessir fjórir skólar keppa: Hlíðaskóli, Lang-
holtsskóli, Laugalækjarskóli og Mýrarhúsaskóli.
■ Sýndir verða hringdansar og leikir auk þess sem
bæði börnin og þau fullorðnu verða látin taka virkan
þátt í boðkeppnum og ýmsum leikjum. Mörg fyrirtæki
í bænum hafa gefið verðlaun til þeirra sem vinna
þessar keppnir. ■ HLJÓMSVEIT SVAVARS GESTS
AÐSTOÐAR. Hermann Ragnar Stefánsson stjórnar
skemmtuninni.
■ Aðgöngumiðar seldir í anddyri Hótel Sögu. —
Styrkið gott málefni, um leið og þið njótig skemmt-
unar saman öll fjölskyldan.
BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF