Þjóðviljinn - 23.04.1964, Side 7
Fimmtudagur 23. apríl 1964
ÞlðÐVÍLJINN
SlÐA ^
setja nánari ákvæði í reglu-
gerð eftir því, sem þurfa
þyki.
Áttundi kaflinn er einung-
is um gildistöku frv. og segir
þar, að gildistakan sé miðuð
við 1. janúar 1965 og skuli þá
öll núgildandi lagaákvæði,
sem brjóti í bág við ákvæði
þessara laga og veiti starfs-
manni naumari rétt en þau
geri, úr gildi fallin.
Mannréttinda-
löggjöf
Herra forseti! Eg hefi nú
gert grein fyrir flestum ný-
mælum þessa frumvarps, Eg
tek það fram enn á ný, að
hér er um mannréttindalög-
gjöf að ræða. Hún snertír
verkafólk almennt og raunar
allt starfandi fólk í landinu.
Hún snertir konur, unglinga
og börn. Engin löggjöf hefur
náð slíkri viðurkenninu né
orðið jafn hjartfólgin þeim,
sem hennar eiga að njóta,
eins og vökulögin. Hún var
sett, þegar nýr og stórbrot-
inn þáttur hófst í atvinnulífi
Islendinga. Hennar var brýn
þörf, hún var sett á réttum
tíma.
Nú eru einnig nokkur tíma-
mót í íslenzku atvinnulífi.
Vinnurannsóknir eru hafnar.
Allir eru sammála um að
greiða götu hagræðingarmála
og taka upp ákvæðisvinnu í
einni eða annarri mynd, þar
sem hún er taiin henta til
betri nýtingar fjármagns,
véla og vinnuafls, til aukinn-
ar framleiðni og þjóðartekna
og þetta á að geta gerzt, ef
rétt og skynsamlega er að
unnið, án þess að erfiði og
slit og þrældómur erfismanns-
ins aukist.
Fi-amhald á 9. síðu
VINNUVERND ER
MANNRÉTTINDI
Pjórði kafli frumvarpsins
fjallar um vinnuvemd bama
og unglinga Bam er sam-
kvæmt skilgreiningu fmm-
varpsins sérhver sá, sem ekki
er fullra 14 ára að aldri, ung-
lingur hver sá, sem er á aldr-
inum 14—15 ára.
Vinnuvernd barna
Eins og ég vék að í upp-
hafi ræðu minnar, mundu
margir ófáanlegir til að eætta
sig við nokkuð annað og
minna en að barnavinna væri
bönnuð með öllu. Sumir vitna
jafnvel til alþjóðasamþykkta,
sem Island hafi fullgilt og sé
aðili að og sé okkur því ó-
heimilt með öllu að leyfa
nokkra þátttöku bama í at-
vinnulífinu, því að barnavinna
sé bönnuð í þessum alþjóða-
samþykktum.
En sé svo, hafa slíkar al-
þjóðlegar skuldbindingar a.m.
k. ekki verið teknar allt of
hátiðlega til þessa og þannig
í reynd ekki haft gildi. Það
er sem sé öllum kunnugt, að
bamavinna hér á íslandi á
síðari ámm er komin langt
út fyrir öll siðmenningarleg
og skynsamleg takmörk.
Þessu munu fáir neita, að ég
hygg, enda væri vandalaust
að sanna þá staðhæfingu með
tugum dæma.
Það er ástæðulaust að á-
fellast atvinnurekendur sér-
staklega fyrir þetta. Böm og
unglingar em t.d. kappsfull
og ætla sér oft ekki af, vilja
jafnvel í lengstu lög halda sig
til jafns við fullorðna fólkið
og ógjarna vilja þau hætta
fyrr en það hættir. Og til eru
jafnvel svo forsjárlausir for-
eldrar, að þeir ætlast bók-
staflega til þess af bömum
sínum, að þau notfæri sér
hverja vinnustund, sem fáan-
leg er, jafnt á nóttu sem
degi og helgum degi sem
virkum.
En hér er um miklu alvar-
legra mál að ræða en svo,
að ráða megi ótakmörkuð-
um vinnutíma bama og ung-
linga mikil þörf atvinnurek-
enda fyrir vinnuafl, blind
keppni barna og unglinga inn-
byrðis eða um það að gefast
ekki upp, fyrr en þessi eða
hinn jafnaldrinn, og ekki
heldur forsjárlaus keppni
bama og unglinga um vinnu-
þol til jafns við fullorðið
fólk. Og sizt af öllu má á-
fergja óskynsamra foreldra
eða forsjármanna barna
unglinga í Því efni að hafa
upp úr þeim, eins og það er
kallað, ráða úrslitum um 12,
14 eða 16 stunda eða jafnvel
lengri samfellda vinnu barna
og unglinga, eins og dæmi
em til frá seinni áram í ís-
lenzku atvinnulífi.
Bamaþrælkun
.Vemd skólabama
Þátttaka barna í atvinnu-
lífi okkar með svo óskynsam-
legum hætti er háskaleg frá
öllum sjónarmiðum og hana
verður a.m.k. að banna. Það
er alls ekki ofmælt að neína
þetta barnaþrælkun, enda er
flestum ljóst, að þetta ástand
er íslendingum orðið til van-
það, sem aflaga eða miður
fer hjá okkur í þjóðlífinu,
enda hefur það komið fyrir
og um það er mér kunnugt,
að menn hafa blygðazt sín
fyrir að sýna útlendingum
jafnvel myndarlegustu hrað-
frystihús okkar á sumrin,
þegar heita má, að þau séu
að yfirgnæfandi meirihluta
rekin með bömum og ung-
lingum.
Slíkur óforsvaranlegur
vinnutími bara er líka bann-
aður með öllu í þessu frum-
varpi. Við því er lagt bann í
19. gr. frumvarpsins að böm
innan 12 ára aldurs megi
vinna í vinnustofum, verk-
stæðum og verksmiðjum, en
hins vegar er heimilt að ráða
12—14 ára böm til sérhverr-
ar þeirrar vinnu, sem að dómi
lækna eða sérfræðinga í upp-
eldis- og heilbrigðismálum
sé öragglega óskaðleg
heilsu barna og þroska. Það
er yfirleitt lagt undir skóla-
lækni og skólayfirlækni að
hafa úrskurðarvald um þess
konar mál samkvæmt fram-
varpinu.
Alger hámarksvinnutími
barna samkvæmt frumvarp-
inu er 6—7 stundir á dag, en
jafnan skulu tveir vinnuhóp-
ar barna annast 8 stunda
vinnutímabil til móts við full-
orðna, þ.e. 4 stundir hvor
vinnuhópur og 10 stunda
vinnutímabil fullorðinna einn-
ig 2 vinnuhópar bama, þ.e.
5 stundir hvor þeirra o. s.
frv. Það yrði 6 stunda vinnu-
tími hjá börnum, ef um 12
stunda vinnutímabil væri að
ræða hjá fullorðnu fólki. Það
er bannað með öllu að fela
bömum gæzlu gufukatla og
véla, sem sérþekkingar eða
sérstakrar aðgæzlu þarf og
varúðar þarf til þess að um-
gangast eða stjóraa.
félagi, svo og heibrigðis- og
s'kólayfirvöldum slíka skrá
hvenær sem krafizt er.
Greiðsla vinnulauna
Þá er það V. kafli fram-
varpsins. Hann fjallar um
greiðslu vinnulauna og ýmis-
legt það, sem ti-yggja skal
rétt launþega, í þeim efnum
umfram það, sem gert er í
gildandi lögum frá 19. maí
1930 um greiðslu verkkaups.
Þar segir, að vinnulaun skuli
ávallt greiða í gjaldgengu
reiðufé nema sarni-' ’iafi ver-
ið um greiðslu i þeim efn-
um umfiam það, sem gert
er i gildandi lögum, þó eru
bankatékkar bannaðir nema
með samþykki, og einnig má
fara fram hirogreiðsla.
Greiðsla vinnulauna skal að
sjálfsögðu alltaf fara fram á
vinnustað, í vinnutímanum,
svo sem fyrir löngu er orðin
föst venja samkvæmt stéttar-
félagssamningum.
Það er tekið fram í fram-
varpinu, að launagreiðsla
sem greiðist í dagvinnu- eða
vikukaupi skuli fara fram
ekki sjaldnar en vikulega.
Það er einnig nú í lögum.
Launagreiðsla vegna á-
kvæðisvinnu skal einnig fara
fram vikulega hlutfallslega
eftir því, sem verki vindur
fram, en annars að verki
loknu. Annan uppgjörstima
má þó ákveða vegna ákvæðis-
vinnu með sérstökum samn-
ingi.
Greiðslur til manna, sem
eru á mánaðarkaupi eða árs-
kaupi, skulu fara fram ekki
sjaldnar en tvisvar á mán-
uði, hálfsmánaðarlega nema
um annað hafi verið samið
skriflega.
Um það era allstrengileg á-
isvinnu eigi aldrei skemmri
uppsagnarfrest en 14 daga.
Lágmarksuppsagnarfrestur
starfsmanns, sem tekur mán-
aðar- eða árskaup, er aldrei
skemmri en mánuður talið
frá lokum almanaksmánaðar.
Nú er starfsmanni, sem
Síiarí hluti
sonar um
ræðu Hannibals Valdimars-
vinnuverndarfrum varpið
Alkunna er, að við eram
tkvæmari oft gagnvart út-
idingum varðandi ýmislegt
Þá er það ennfremur ó-
heimilt með öllu að ráða börn
til nokkurrar þeirrar vinnu,
sem að dómi skólayfirlæknis
eða héraðslæknis getur á
nokkura hátt talizt hættuleg
heilsu bama eða þroska. Þá
segir í framvarpinu að alger
hámarksvinnutími unglinga
skuli vera 8 klst. og öll vinna
barna og unglinga á skóla-
skyldualdri er bönnuð frá
því, að skólaganga hefst og
þar til skólagöngu lýkur að
vori.
En það hefur tíðkazt nokk-
ur hin síðari ár að á börn
og unglinga hefur verið lögð
all yfirgripsmikil og erfið
vinna, sem orðið hefur að
framkvæma þannig, að gengið
hefur á svefntíma þeirra og
hvíldartíma, jafnvel meðan
þau gengu í skóla.
Samkvæmt þessum kafla
frumvarpsins er atvinnurek-
endum skylt að halda sér-
staka skrá um tegund vinnu
og vinnutima þeirra barna og
unglinga, sem hjá þeim vinna
og þeim er einnig skylt að
afhenda viðkomandi stéttar-
kvæði í þessum kafla fram-
varpsins, að engan launafrá-
drátt megi framkvæma við
launagreiðslur án skriflegs
samnings nema heimilað sé í
lögum. Undanþágur frá
þessu eru þá félagsgjöld
stéttarfélaga, lögiegar út-
svarsgreiðslur og innborgan-
ir í tryggingasjóði og sjúkra-
samlög með staðfestri reglu-
gerð. Sérhver launþegi á rétt
á greinilegu yfirliti yfir það,
hvernig laun hans séu reikn-
uð og hvers konar launafrá-
dráttur hafi verið inntur af
hendi og skulu fullnægjandi
kvittanir fyrir sérhvern
launafrádrátt ávallt fylgja
uppgjörinu.
Uppsagnarréttur
Þá er ég kominn að VI.
kafla frv. 1 þeim kafla tel
ég vera allmörg nýmæli, sem
öll hníga að því að tryggja
verkafólki fyllri rétt en nú
er í lögum gagnvart uppsögn
af hendi atvinnurekenda. Þar
segir, að þeir, sem vinna
tíma-, dag-, viku- eða ákvæð-
unnið hefur samfleytt í tvö
ár eftir 1 árs aldur hjá
sama atvinnurekanda sagt
upp starfi, án þess að rétt-
mætar ástæður séu fyrir upp-
sögn og þær séu tilgreindar.
Varðar það skaðabótaskyldu.
Þessi skaðabótaskylda verður
því rfkari, sem maðurinn hef-
ur staðið lengur í þjónustu
viðkomandi atvinnurekanda.
Hafi starfsmaður látið af
störfum vegna ólöglegrar
uppsagnar, getur atvinnurek-
andinn orðið dæmdur til þess
að ráða hann aftur í sömu
eða aðra hliðstæða stöðu
þeirri, sem hann áður gegndi.
Bætur geta einnig komið til
álita fyrir þann tíma, sem
starfsmaðurinn var sviptur
starfi hjá fyrirtækinu. Slíkar
bætur geta numið 6 mánaða-
launum, ef starfsmaðurinn
hefur verið 5 ár í þjónustu
fyrirtækisins eða atvinnurek-
anda. árslaunum eftir 10 ára
þjónustu og 3 ára launum, ef
starfsmaður hefur starfað
hjá fyrirtækinu 20 ár eða
lengur.
Þá er í þessum kafla fram-
íslenzk börn byrja ung að vinna.
varpsins ákvæði um það, að
ekki megi segja starfsmanni
upp vegna slysfara eða sjúk-
dóms. Starfsmanni, sem unn-
ið hefur samfleytt tvö ár hjá
sama atvinnurekenda, má
ekki segja upp fyrstu þrjá
mánuðina eftir að hann varð
óvinnufær og hafi starfsmað-
ur starfað 10 ár hjá sama
atvinnurekanda, er uppsögn
óheimil, þótt starfsmaður
sé óvinnufær allt að einu ári.
Og hafi dregið úr starfsgetu
starfsmanns vegna slysa eða
sjúkdóms við störfin, er at-
vinnurekanda skylt að leitast
við að finna honum starf hjá
fyrirtækinu, sem hentar hæfni
hans, jafnvel þótt hann verði
til þess að sérþjálfa viðkom-
andi starfsmann sinn nokkuð.
Það skal tekið fram, af því
að þessi ákvæði ýmis kunna
að þykja nokkuð ströng, að
þau ganga í engu atriði
lengra en í norsku og dönsku
vinnulöggjöfinni.
Refsiákvæði og gildis-
•taka
Sjöundi kaflinn er örstutt-
hann er einungis um refsi-
ákvæði vegna brota á 1. og
segir í honum, að brot varði
sektum nema strangari refs-
ingar liggi við samkv. al-
mennum hegningarlögum.
Það er tekið fram í 33. gr.
frv., að foreldrar og aðstand-
endur, sem láti böm fram-
kvæma vinnu, sem brjóti í
bág við vinnuverndarlögin,
skuli vera ábyrg fyrir slíkum
verknaði og skulu þau hæta
sektum. Með brot gegn lög-
um þessum skal fara að
hætti opinberra mála. Það er
svo tékið fram, að um alla
nánari framkvæmd þessara
laga skuli félagsmálaráðherra